Víkurfréttir - 18.12.1997, Qupperneq 51
MICHELE YVEiNER-DAVIS
NÝTT
______LIF____
í
HjÓNABANDIÐ
BÖK S£M HÍÁI I'AK l>ÉR
AÐ FÁ MEl'RA OtOR U'FINU
OC FORÐAST ÁREKSTRA
I SAMSKJI’TUM
NÝTT LÍF í HJÓNA-
BANDIÐ - Michele Weiner-
Davis
Þetta er bók sem hjálpar þér
að fá meira út úr lífinu og
forðast árekstra í samskiptum.
Höfundurinn er Michele
Weiner-Davis, bandarískur
meðferðarráðgjafi sérhæfð í
hjúskaparvanda. Hún notar
aðferð sem hún kallar SKM,
skammtímameðferð til
lausna, og er ný meðferð
byggð á kenningum sem eru
gerólíkar þeim hefðbundnu. I
bókinni eru ítarlegar
leiðbeiningar um hvemig má
endumýja hjónabandið í stað
þess að skilja. Þú getur breytt
| hjónabandinu með því að
breyta sjálfum þér.
Aðferðin byggist á því að:
Leggja áherslu á lausnir, ekki
vandamál. Einbeita sér að
nútíð og framtfð, ekki
| fortíðinni. Sjá árangur innan
mánaðar.
HÁSKAFÖR í HÁFJÖLL-
UM - Jack Higgins
Efni þessarar nýju bókar eftir
Jack Higgins, segir frá
háskaför í fiugi yfir háfjöllum
Indlands og Tíbet. Leyni-
þjónustumaðurinn. Paul
Chavasse fær það verkefni að
| ræna vísindamanninum Karli
Hoffner úr klóm Kínverska
herliðsins í Tíbet og koma
honum heilum á húfi til
London. Til þessa verkefnis
I HAFJOLLUM
notar hann litla flugvél. Hann
er staðkunnungur í þessu
fram andi og dularfulla landi
munkanna. Tíbetskir föður-
landsvinir aðstoða hann við
þetta erfiða verkefni, sem er
samfelld martröð ógna og
pyntinga hinna kínversku
valdhafa. Þetta er mögnuð
spennubók.
ÁSTIN SIGRAR
- Bodil Forsberg
Höfundurinn, Bodil Forsberg,
er löngu kunnur fyrir bækur
sínar sem einkennast af hraða,
spennu og ást. Þessi bók er
þar engin undantekning. Hún
fjallar um Camillu og John
Ström og hvemig þeim tekst
að leysa úr þeim vandamálum
sem á vegi þeirra verða. I
þessari nýju bók reynir á flest
það sem þarf til þess að gera
spennandi ástarsögu, en það
kann höfundurinn vinsæli,
Bodil Forsberg, öðrum betur.
BRAUTRYÐJANDINN
Júlíana Jónsdóttir skáldkona
Bókin um Júlíönu Jónsdóttur
skáldkonu er skráð af
Guðrúnu P. Helgadóttur f.v.
skólastjóra og rithöfundi.
Höfundur þessarar skáldkonu,
sem fyrst íslenskra kvenna
fékk útgefna ljóðabók eftir
sig. Sagt er frá uppvax-
tarárum Júlíönu á Rauðsgili,
dvöl hennar í Akureyjum og
tryggðarofum þar. Síðan fór
hún til Stykkishólms þar sem
hún tók þátt í leiklistarlífi
staðarins og til Reykjavíkur
þar sem hún starfaði um tíma
við Sjúkrahús Reykjavíkur
(Farsóttarsjúkrahúsið). Loks
dvöl hennar vestanhafs, þar
sem hún bjó til æviloka.
Höfundur fjallar um ljóð
Júlíönu og birt em kvæði úr
ljóðabókunum Stúlku og
Hagalagðar.
Guðrún P. Helgadóttir er
löngu þekkt af ritverkum
sínum. Hún byggir þau á
traustum, sögulegum grunni
og ýtarlegri könnun heimilda.
A látlausan og alþýðlegan
hátt tekst henni að skrifa
listrænar og fróðlegar bækur.
H^r-^J^CGuðcún P. Helgadóttir
. c//i/<ui< r (/óibSi/ofti/'
<s/ui///o/ta
Gkðilqj
jól við
kstur
(jóóra bóh
Bestn óskir um
GHeMleg jú(
fneérelt (iummiiit nr
Þökkum viðskiptin
OLAFUR
íll ÞORSTEINSSONehf
Vatnagarðar 4 • Pósthólf 551 • 121 Reykjavík
Vistmenn
Gurðvangi
óska öllum þeim sem
sýnt hafa þeim vinarhug
og glatt med heimsóknum,
gleðilegra jóla og farsœldar á nýju ári.
Guð blessi ykkur öll
Oskum öllum þeim sem
sýnt hafa þeim vinarhug
og glatt með heimsóknum,
gleðilegra jóla
og farsœldar á nýju ári.
Guð blessi ykkur öll
Usímenn Hlévangi
Víkurfréttir
JÓLABLAÐ