Víkurfréttir - 18.12.1997, Síða 60
FYRIRTÆKI GEFA
BRÚDHJÓNALEIK
VÍKURFRÉTTA
Flughótel
Húsasmiðjan
Samkaup
Elegans
Gallery förðun
Snyrtistofa Lindu
Miðbær
Blómabúðin Kósý
■ Brúðhjón ársins 1997:
Fengu loksins
koníaks-
flöskuna góðu
-brúdkaupsveislan stóð langt fram ú nótt hjú
*
brúðhjónum úrsins þeim Osk Ðenediktsdóttur
og Jóhannesi A. Sigvaldasyni.
Brúðhjónin Ósk og
Jóhannes og dætur
þeirra, Bryndis
Sigurveig eins árs,
Guðbjörg 3ja ára og
Jóhanna sex ára.
■
brúðkaupsferð sinni til
Baltimore.
Ósk kynntist fyrst Jóhannesi í
gegnum vinkonu sína sem
vann á sama vinnustað og
hann. Ósk leist nú ekki betur á
piltinn en svo að hún spurði
vinkonu sína „hvaða gamli
maður er þetta". Hér hlær Jó-
hannes. „Mér fannst þetta nú
bara stórmyndaleg stúlka".
Þau náðu síðan saman ári
seinna í Glaumbergi á bjór-
daginn fræga en þá var Ösk
að skemmta sér með vinkon-
um sínum en Jóhannes var að
keyra vini sína.
Það var Jóhannes sem bar upp
bónorðið en þá gistu þau á
Grand Hóteli í Reykjavík
ásamt vinafólki sínu. „þetta
var nú ekki mjög hátíðlegt",
segir Jóhann þó hann segist
ekki alveg muna hvað hann
sagði nákvæmlega.
Þau höfðu verið saman í níu
ár áður en þau ákváðu að gifta
sig og eiga þrjár blómarósir.
Því lá beinast við að spyrja
þau því þau drifu ekki í þessu
fyrr?
„Það var bara kominn tími á
þetta núna", segir Jóhannes
einfaldlega.
Brúðhjón ársins fá úrval vinn-
inga af þessu tilefni og ber þar
hæst gisting í eina nótt á einni
af svftum Flug-Hótels. Einnig
verður þeim boðið í kvöld-
verð á veitingastað hótelsins.
Þau hljóta 6.000 króna gjafa-
úttekt í Húsasmiðjunni og
10.000 króna úttekt í verslun
Samkaupa.
Hárgreiðslustofan Elegans
býður þeim báðum hársnyrt-
ingu og þau fá gefins ilminn
1 Colonali frá Gallery Förðun.
Snyrtistofa Lindu gefur þeim
báðum andlitsbað. Miðbær
gefur konfektkassa og þá fá
brúðhjónin fallegan blóma-
vönd frá blómaversluninni
Kósý.
komuhúsinu í Sandgerði þar
sem boðið var upp á sjávar-
rétti, svín og lambalæri.
Þar voru að sjálfsögðu haldn-
ar margar ræður ,Jói fékk al-
deilis að heyra það frá vinum
sínum sem voru duglegir að
segja sögur af honum", segir
Ósk.
Brúðkaupsveislan var að eigin
sögn heimilisleg og segir Jó-
hannes fjölskyldu sína mjög
duglega við að halda langar
veislur. „Sú lengsta stóð yfir
til kl. fjögur um nóttina", segir
Jóhannes hreykinn. „Okkar
veisla stóð til kl. tvö og það
var mikið dansað. Og ég vil
taka það fram að mín fjöl-
skylda var miklu duglegri í
gleðiskapnum", segir Jóhann-
es.
I veislunni fékk Jóhannes af-
henta Napoleon koníaks-
flösku frá föðurafa sínum en
sá hafði heitið því þegar Jó-
hannes var tveggja ára að
hann skyldi fá hana þegar að
hann gifti sig. Jóhannes segir
að sig hafi oft langað til þess
að opna flöskuna góðu en sem
betur fer hafi ekkert orðið af
því. „Þetta var eðalvín og
bragðaðist vel“, segir hann en
Ósk tekur ekki undir það „það
var vont", segir hún og hlær.
Að veislunni lokinni gistu þau
Jóhannes og Ósk á Hótel ís-
landi og eru þau nýkomin frá
„Ha, erum við hvað?“, sagði
Ósk Benediktsdóttir þegar
henni var tilkynnt að hún og
eiginmaður hennar Jóhann-
es A. Sigvaldason hefðu ver-
ið dregin út í brúðhjónaleik
Víkurfrétta og væru því
brúðhjón ársins 1997.
Alls hafa birst í Víkurfrétt-
um um 40 myndir af brúð-
hjónum á árinu og hljóta
brúðhjón ársins að launum
veglega vinninga m.a. gist-
ingu á svítu Flug-Hótels og
margt fleira.
Ósk og Jóhannes voru gefin
saman í Hvalsneskirkju þann
13. september sl. af sr. Hirti
Magna Jóhannssyni. Hvals-
neskirkja varð fyrir valinu þar
sem Ósk er úr Sandgerði og
var hún skírð og fermd í sömu
kirkju og þar skírðu þau dætur
sínar þrjár. Þær heita Jóhanna
sex ára, Guðbjörg þriggja ára
og Bryndís Sigurveig eins árs.
„Þær voru voðalega spenntar
á brúðkaupsdaginn", segir
Ósk. „Sú elsta vaknaði kl. sex
um morguninn og hún gaf sig
ekki fyrr en klukkan eitt eftir
miðnætti. Sú yngsta svaf mest
allan tímann en bróðir ntinn
fór með þær heim um kl. níu
um kvöldið".
Veislan var haldin í Sam-
Ósk Benediktsdóttir og Jóhannes A. Sigvaldason, Brúðhjón
ársins 1997 á Suðurnesjum..
Opið til kl. 23 alla dasa til jóla
Mikið nýtt í íþróttavörudeild:
MANCHESTER UNITED, LIVERPOOL
og fleiri lið - húfur - treflar -
H klukkur - dagatöl
og margt fleira
Satínsett;
náttkjóll og sloppur
kr. 5.990.-
I Aðventuljós í bílinn!
Verð aðeins kr. 500.-
ARSOÍ
Garii - Sími 422-7935
JOLABLAÐ
Víkurfréttir