Morgunblaðið - 22.04.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.04.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 Hlökkum til að heyra frá ykkur! Nolta Okkar megin áherslur eru: ◆ Liðsheildarþjálfun ◆ Leiðtogahæfni ◆ Stefnumótun og umbótastarf Sigurjón Þórðarson Sími: 893 1808 • sigurjon.thordarson@nolta.is Friðfinnur Hermannsson Sími: 860 1045 • fridfinnur.hermannsson@nolta.is Ráðgjöf og þjálfun nolta.is Vinnustofur sem styrkja og hreyfa við fólki Frekari upplýsingar á nolta.is Nolta er á Facebook Viltu styrkja liðið þitt? Team - Navigation er kröftug og skilvirk tveggja daga vinnustofa þar sem liðið nær sameiginlegri tengingu og kemur helstu verkefnum sínum í bullandi farveg. Leiðtoginn á réttum kúrs Self - Navigation er skemmtileg tveggja daga vinnustofa þar sem leiðtoginn stillir af hvert hann stefnir og kemur skipulagi á sín helstu verkefni. Árni Sverrisson Sími: 898 5891 • arni.sverrisson@nolta.is Í gær útskrifuðust einnig 23 nem- endur úr Reiðmanninum, sem er tveggja ára starfsmenntanám. Nem- endurnir komu frá Selfossi og úr Kópavogi. Reiðmannsnemendur keppa um Reynisbikarinn, sem kenndur er við Reyni Aðalsteinsson, upphafsmann námskeiðanna. Guð- ríður Eva Þórarinsdóttir á Fram- sókn frá Litlu-Gröf varð í 1. sæti, Bára Másdóttir í 2. sæti og Gunnar Jónsson í 3. sæti. Upphaf Skeifudagsins má rekja til stofnunar Hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri árið 1954. Gunn- ar heitinn Bjarnason, sem var kenn- ari við Bændaskólann á Hvanneyri, stofnaði félagið ásamt nemendum. bóklegum áfanga Hrossarækt II. Gabríela María Reginsdóttir fékk framfaraverðlaun Reynis, sem veitt eru þeim nemanda sem sýnt hefur hvað mestan áhuga, ástundun og tekið hvað mestum framförum í Hrossarækt III. Sumir handhafar Morgunblaðs- skeifunnar hafa komist í hóp ástsæl- ustu hestamanna landsins. Bára Sigurjónsdóttir, markaðs- og kynn- ingarstjóri LbhÍ, sagði að fyrrver- andi handhöfum Morgunblaðsskeif- unnar hefði verið boðið sérstaklega á Skeifudaginn í tilefni af afmælinu. Alls mættu 28 þeirra, eða tæpur helmingur Skeifuhafa frá upphafi. Þeir voru kallaðir upp og fengu rós. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þorbjörg Helga Sigurðardóttir, frá Skollagróf, er handhafi Morgun- blaðsskeifunnar 2016. Gabríela María Reginsdóttir varð í 2. sæti og Halldóra Halldórsdóttir í 3. sæti. Morgunblaðsskeifan hefur verið veitt árlega síðan 1957. Hana fær sá nemandi Landbúnaðarháskóla Ís- lands (LbhÍ) sem hlýtur hæstu meðaleinkunn úr verklegum reið- mennskuprófum. Þykir mikill heiður að hljóta Morgunblaðsskeifuna. Hestamannafélagið Grani á Hvanneyri bauð til mikillar hátíðar í hestamiðstöðinni á Mið-Fossum í Borgarfirði í tilefni af því að Skeifu- dagurinn var haldinn hátíðlegur í 60. skipti í gær. Metfjöldi gesta mætti og voru áhorfendabekkir reiðhallar- innar þéttsetnir. Þar kepptu nem- endur í Hrossarækt III við LbhÍ í ýmsum greinum reiðmennsku. Halldóra Halldórsdóttir, á Hró- bjarti frá Höfðabrekku, hlaut Gunn- arsbikarinn. Hann hlýtur sá nem- andi sem fær hæstu einkunn í fjórgangskeppni. Þorbjörg Helga Sigurðardóttir varð í 2. sæti og Gabríela María Reginsdóttir í 3. sæti. Þorbjörg Helga Sigurðardóttir hlaut ásetuverðlaun Félags tamn- ingamanna. Þau hlýtur sá reiðmaður sem þykir sitja best sinn hest. Karen Helga Steinsdóttir fékk Eiðfaxabikarinn. Hann fær sá nem- andi sem hlýtur hæstu einkunn í Ljósmynd/Gunnhildur Birna Björnsdóttir Sigurvegari Þorbjörg Helga Sigurðardóttir hlaut hina eftirsóttu Morgunblaðsskeifu 2016 auk fleiri verðlauna. Þorbjörg Helga hlaut Morgunblaðsskeifuna  Skeifudagurinn var haldinn í sextugasta skiptið í gær Ljósmynd/Gunnhildur Birna Björnsdóttir Reynisbikarinn Guðríður Eva Þórarinsdóttir á Framsókn frá Litlu-Gröf varð í fyrsta sæti í keppni Reiðmannsnemenda og hlaut Reynisbikarinn. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Stefnt er að því að skilja á milli þjón- ustu sem annars vegar felur ein- vörðungu í sér gistingu, t.d. vegna fólks utan af landi sem þarfnast dvalarstaðar í tengslum við meðferð sem það sjálft sækir eða þess nán- ustu, og hins vegar vegna fólks sem er sjúklingar í þeim skilningi að hót- elgisting nægir ekki heldur þarf það einnig á hjúkrunarþjónustu að halda. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Velferðarráðuneytinu við fyrir- spurn Morgunblaðsins varðandi það hvaða úrræði yrðu til boða eftir að samningur Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) við Sinnu/Heilsumiðstöðina, sem rekið hefur Sjúkrahótelið í Ár- múla, rennur út í lok aprílmánaðar. Verið sé að finna leiðir til að sinna þeirri þjónustu sem Sjúkrahótelið í Ármúla hafi annast svo að ekki verði rof í þjónustunni þegar samning- urinn rennur út. Hótelgisting verði niðurgreidd Horft er til þess að þeir sem ein- göngu þurfi á gistingu að halda fái hótelgistingu niðurgreidda hjá SÍ á grundvelli rammasamninga við hót- el sem áhuga hafa. Fram kemur að sambærilegar ráðstafanir hafi verið gerðar á Akureyri til þessa. Hvað varði sjúkrahótelrými fyrir þann hóp sem þarfnist hjúkrunar hafi ráðuneytið og SÍ rætt án árang- urs við ýmsa aðila um möguleika þeirra til að annast slíka þjónustu. Horft sé til þess möguleika nú að Landspítalinn annist rekstur sjúkra- hótelrýma en endanleg niðurstaða liggi ekki fyrr. Tekur ráðuneytið fram að málin skýrist á allra næstu dögum. Ekki kom til greina að endurnýja samninginn um Sjúkrahótel í Ár- múla við Sinnum. Annarra lausna er því leitað þar til sjúkrahótel rís á lóð Landspítalans við Hringbraut. Skilja á milli gistingar og hjúkr- unarþjónustu  Reyna að koma í veg fyrir rof á þjón- ustu sem áður var veitt á Sjúkrahóteli Morgunblaðið/Golli Lokað Sjúkrahótelið í Ármúla lokar dyrum sínum í lok aprílmánaðar. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Um er að ræða elsta kirkjugarð Reykjavíkur, þar sem um þrjátíu kynslóðir Reykvíkinga hvíla, og hafa beinagrindur verið grafnar þar upp í stórum stíl og fluttar á brott. En það er þvert gegn kröfum Minjastofnun- ar,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Vísar hann í máli sínu til Víkur- kirkjugarðs sem finna má við Land- símahúsið í miðbæ Reykjavíkur, en garðurinn nær inn á byggingarreit þar sem áformað er að reisa stórhýsi á næstunni. Kjartan bend- ir á að lengi vel hafi menn ekki vitað hversu langt í austur kirkjugarðurinn næði, en nú hafi hins vegar komið í ljós að hann teygi sig þangað töluvert. „Um leið og í ljós kom að Víkur- kirkjugarður nær mun austar en ýmsir töldu og að þar væru tugir vel varðveittra beinagrinda hefði mér fundist rétt að farið væri yfir þau gögn áður en beinagrindur væru fluttar burtu,“ segir Kjartan og bendir á að einnig hafi þarna fundist leifar af mannvirki frá víkingaöld. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins hafa lagt fram tillögu, sem nú er komin til borgarráðs til frekari skoð- unar, þess efnis að horfið verði frá fyrirhugaðri framkvæmd svo koma megi í veg fyrir menningarlegt tjón. Frá þeim tíma er fornleifaupp- gröftur hófst á svæðinu, þ.e. 1. febr- úar sl., er að sögn Kjartans búið að fjarlægja 32 heilar beinagrindur úr garðinum og enn fleiri óheilar. Beinagrindur grafnar upp í stórum stíl  Þvert gegn kröfum Minjastofnunar, segir borgarfulltrúi Kjartan Magnússon Morgunblaðið/Golli Framkvæmdasvæði Um 30 kynslóðir Reykvíkinga hvíla í kirkjugarðinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.