Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki
sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum
og öðrum löndum. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Heyrnartæki eruniðurgreidd afSjúkratryggingum
Íslands
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tengsl verslunarinnar Sports Direct
á Íslandi við Panama komu í ljós 27.
ágúst 2012, þegar birtur var listi yfir
hluthafa í félaginu Rhapsody Invest-
ments (Europe) S.A. í Lúxemborg.
Samkvæmt þessum lista var Guru
Invest S.A., félag skráð með sama
heimilisfang og lögfræðistofan Mos-
sack Fonseca, meðal hluthafa.
Rhapsody Investments (Europe)
á 100% hlut í Sports Direct á Íslandi.
Af þessu tilefni kannaði Morgun-
blaðið í fyrrasumar umsvif Guru In-
vest og skyldra aðila. Lágu þræðirn-
ir víða um heim og kom fjöldi félaga
við sögu. Gögn sem lekið var frá lög-
fræðistofunni Mossack Fonseca fylla
upp í þá mynd. Nánar er fjallað um
Guru Invest hér á opnunni.
Samkvæmt Kjarnanum, sem hef-
ur umrædd gögn frá Mossack Fon-
seca undir höndum, stofnaði Mos-
sack Fonseca félagið OneOOne
Entertainment í október 2007, með
milligöngu Landsbankans. Prókúru-
hafar eru sagðir Jón Ásgeir
Jóhannesson og Ingibjörg Stefanía
Pálmadóttir, aðaleigandi 365 miðla.
Vísar Kjarninn til tölvupósts í janúar
2010 þar sem á að koma fram ósk um
að nafni félagsins OneOOne Enter-
tainment S.A. í Panama yrði breytt í
Moon Capital S.A.
Þess hafi síðan verið óskað með
tölvupósti 23. september 2010 til
Mossack Fonseca að nafni Moon
Capital skyldi breytt í Guru Invest.
Ingibjörg eini hluthafinn
Félagið Moon Capital er enn
skráð í Lúxemborg. Samkvæmt
hluthafaskrá Fjölmiðlanefndar á það
félag meirihluta í 365 miðlum.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá Lúx-
emborgar var félagið Moon Capital
skráð 22. mars 2010. Félagið Euro-
pean Marketing & Research Limi-
ted í London var skráður eini hlut-
hafinn í félaginu. Haustið 2011 er
birtur ársreikningur ársins 2010 og
eru þá engar eignir skráðar í félag-
inu. Hinn 20. júní 2012 kemur til-
kynning um að Ingibjörg Stefanía sé
orðin eini hluthafi félagsins. Hún er
skráð með heimilisfangið 27 St.
George Street í auðmannahverfinu
Mayfair í Lundúnum. Næstu þrjú
skjöl um félagið eru ársreikningar
2010-12 og eru skráðar eignir þessi
ár 10,14-11,48 milljónir evra.
Tímalína félagsins Rhapsody In-
vestments er öllu lengri, samkvæmt
fyrirtækjaskrá Lúxemborgar.
Félagið hét í upphafi Zel S.A. og
var skráð 16. maí 2006. Í stjórn þess
sátu þrír einstaklingar með heimilis-
fang í Lúxemborg. Í ársbyrjun 2007
eru þeir afskráðir sem stjórnarmenn
og í stað þeirra koma félagið LDF
Director II Group Limited, LDF Di-
rector I Group Limited, bæði til
heimilis í OMC Chambers-bygging-
unni í Road Town, höfuðstað Tor-
tólu, og svo endurskoðunarstofan Fi-
duciaire Di Fino & associes S.á.r.l. í
Lúxemborg. Næstu þrjú skjöl varða
rekstur áranna 2006 til 2008. Nafni
félagsins er svo breytt 28. maí 2009
og heitir upp frá því Rhapsody In-
vestments (Europe) S.A. Um leið
eru nýju stjórnarmennirnir afskráð-
ir og í stað þeirra kemur Henri Van-
herberghen, til heimilis í Lúxem-
borg, og félagið Primary Manage-
ment, sem hefur aðsetur á fjórðu
hæð í fjármálamiðstöð Bahamaeyja.
Luca Di Fino hættir hins vegar í
stjórn. Hinn 16. júní 2011 fer Prim-
ary Management á Bahamaeyjum úr
stjórn félagsins en Karim Van Den
Ende, til heimilis í Lúxemborg, kem-
ur inn í stjórn. Van Den Ende hættir
síðan 3. febrúar 2012 og inn í stjórn
kemur Tina Kilmister.
Gamlir viðskiptafélagar
Hún heitir fullu nafni Tina Maree
Kilmister-Blue og er eiginkona Jeff-
rey Ross Blue, gamals Baugsmanns.
Hinn 14. júní 2012 fer Henri Vanher-
berghen úr stjórn félagsins en félag-
ið Fin-Contrôle S.A., til heimilis í
Lúxemborg, kemur inn í staðinn.
Þessum hrókeringum lýkur 20.
júní 2012 þegar Kilmister fer úr
stjórn en í staðinn koma Jeffrey
Ross Blue, Bob Mellors og Dave
Forsey, allir til heimilis í Bretlandi,
og Ingibjörg Stefanía.
Hinn 17. maí 2013 hættir Fin-
Contrôle S.A. í stjórn og 13. ágúst
2014 gerir Bob Mellors það líka.
Hinn 9. apríl 2015 hættir Jeffrey
Ross Blue í stjórninni en í stjórnina
koma Sigurður Pálmi Sigurbjörns-
son og Justin Barnes, til heimilis í
Bretlandi.
Sigurður Pálmi með 458 hluti
Alls 24 skjöl eru aðgengileg um fé-
lagið og skipta síðurnar hundruðum.
Fram kemur í skjali 17, dagsettu
27.8. 2012, að hluthafar í félaginu séu
eftirfarandi aðilar: Jeffrey Ross
Blue, með 208 hluti, félagið Sports-
direct.com S.A., með 347 hluti, Guru
Invest S.A., með 374 hluti, og Sig-
urður Pálmi Sigurbjörnsson, með
458 hluti. Samtals voru þetta 1.387
hlutir og áttu Guru Invest S.A. og
Sigurður Pálmi því rétt tæplega 60%
hlutafjár. Hlutafé var aukið úr
31.000 evrum í 429.970 evrur, sam-
kvæmt skjalinu. Er svo vikið að
heimildum til að auka hlutfé í allt að
5.000.300 evrur. Heimilisfang Guru
Invest S.A. var sagt Mossfon-bygg-
ingin, 54th East Street, í Panama-
borg. Samkvæmt vefsíðu lögfræði-
stofunnar Mossack Fonseca eru þar
aðalskrifstofur félagsins.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá Cred-
itinfo er Sports Direct á Íslandi
skráð undir merkjum NDS ehf. Það
félag er sagt í 100% eigu Rhapsody
Investments (Europe) S.A. Sam-
kvæmt stofnskjali NDS, sem er
undirritað 18. janúar 2012, var Sig-
urður Pálmi stjórnarmaður og fram-
kvæmdastjóri.
Samkvæmt ársreikningi NDS ehf.
fyrir árið 2012 átti Rhapsody Invest-
ments (Europe) S.A. 100% hlut í fé-
laginu í mars 2013. Síðarnefnda fé-
lagið hefur ekki íslenska kennitölu.
Fram kom í Morgunblaðinu í byrj-
un nóvember 2013 að verslun Sports
Direct á Smáratorgi hefði verið opn-
uð í maí 2012. Verslunin var þá að
flytja í stærra húsnæði í Lindum.
Viðskiptasamband Jóns Ásgeirs
og Ingibjargar Stefaníu við Sports
Direct á sér langa sögu. Sagt var frá
því í Morgunblaðinu í október 2007
að Baugur Group hefði keypt 1%
hlut í bresku keðjunni Sports Direct.
Tengsl við enn annað félag
Í fyrirtækjaskrá Lúxemborgar
eru þrjú félög sem innihalda nafnið
Rhapsody; Rhapsody International,
Rhapsody Investments (Europe) og
Rhapsody Investments (Germany).
Til eru 18 skjöl um félagið Rhap-
sody Investments (Germany) S.A.
Fram kemur í skjali númer 7, sem er
dagsett 28. maí 2009, að nafni félags-
ins er breytt úr BD Euro Industry
Corporation S.A. í Rhapsody Invest-
ments (Germany). Sama dag er nafni
Zel S.A. breytt í Rhapsody Invest-
ments (Europe) S.A. Þá höfðu félög-
in sama heimilisfang, 19 Rue de
Aldringen í Lúxemborg.
Samkvæmt síðustu skýrslum
höfðu félögin sama heimilisfang, 1
Côte d’Eich í Lúxemborg. Í febrúar
2010 eru félögin LDF Director I
Limited og LDF Director II Group
Limited, á Tortóla, og Fiduciaire Di
Fino & Associés S.á.r.l. í stjórn
Rhapsody Investments (Germany)
S.A. Þessi félög áttu um tíma líka
sæti í stjórn hjá Rhapsody Invest-
ments (Europe).
Þá má nefna að Tina Kilmister
kom inn í stjórn Rhapsody Invest-
ments (Germany) í febrúar 2012.
Þræðirnir hafa legið til Panama
Í ágúst 2012 kemur félagið Guru Invest S.A. inn sem hluthafi í móðurfélag Sports Direct á Íslandi
Ingibjörg S. Pálmadóttir settist í stjórn móðurfélagsins Eini hluthafinn í öðru félagi í Lúxemborg
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í Kópavogi Verslunin Sports Direct var opnuð árið 2012. Árið 2013 flutti verslunin í stærra húsnæði.
Við athugunina á Rhapsody Invest-
ments (Europe) S.A. voru athuguð
tvö önnur félög með svipuð nöfn.
Annars vegar er um að ræða fé-
lagið Rhapsody Investments Limi-
ted sem stofnað var á Guernsey 31.
mars 2009, samkvæmt fyrir-
tækjaskrá í Guernsey. Hinn 2. júní
2009 var eini stjórnandi félagsins
Primary Management Limited.
Á fyrstu stofnskjölunum eru til-
greindar upplýsingar um tvo starfs-
menn hjá bankanum Credit Suisse.
Hinn 31. mars 2009 eru skráðir
tveir hluthafar í Rhapsody Invest-
ments Limited á Guernsey. Báðir
eiga 1 hlut og var verðmæti hvors
hlutar 1 pund. Þeir eru Brock Nom-
inees Limited og Tenby Nominees
Limited, báðir með heimilisfangið
Helvetia Court í St. Peter Port.
Primary Management í stjórn
Í tilkynningu 29. júlí 2010 er ítrek-
að að Primary Management Limited
sé eini stjórnandi félagsins. Í til-
kynningu 15. mars 2011 segir að fé-
lagið sé undanþegið skilum á árs-
reikningi fjárhagsárið 1. apríl 2011
til 31. mars 2012.
Skoðuð voru 15 skjöl um félagið í
fyrirtækjaskrá Guernsey og voru
þar afar takmarkaðar upplýsingar.
Það vekur athygli að félagið Rhap-
sody Investments Limited á Guern-
sey er stofnað tveimur mánuðum áð-
ur en nafni félagsins Zel S.A. í
Lúxemborg er breytt í Rhapsody In-
vestments (Europe) S.A. Við nafna-
breytingu kom félagið Primary Ma-
nagement Limited, á Bahamaeyjum,
inn í stjórn félagsins í Lúxemborg.
Félag með sama nafni, skráð á Gu-
ernsey, var stjórnandi Rhapsody In-
vestments Limited á Guernsey.
Í viðskiptum við Credit Suisse
Þá koma nöfn starfsmanna bank-
ans Credit Suisse fyrir í skjölum fé-
lagsins á Guernsey. Samkvæmt frá-
sögn Kjarnans hafði OneOOne
Entertainment S.A., sem sagt var fé-
lag Ingibjargar Stefaníu, banka-
reikning hjá Credit Suisse.
Morgunblaðið kannaði líka félagið
Rhapsody International S.A. í Lúx-
emborg. Af 16 skjölum um félagið
virtist mega ráða að það væri með
öllu ótengt áðurnefndum félögum,
Rhapsody Investments (Europe)
S.A. og Rhapsody Investments á
Möltu. Fjallað er um enn annað fé-
lag, Rhapsody Investments (Ger-
many) S.A., hér fyrir ofan.
Félag í Guernsey
virðist vera tengt
Rhapsody Investments stofnað 2009