Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 11

Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR OFBELDI. NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN? Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Gallabuxur kr. 11.900 2 síddir háar í mittið beinar skálmar STOFNAÐ 1956 Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is 1956–2016 Fyrirtækið er lokað í dag vegna afmælisferðar starfsmanna. Opið aftur þriðjudaginn 26. apríl. Á. Guðmundsson fagnar 60 ára afmæli Baldur Arnarson baldura@mbl.is Guru Invest, félag Ingibjargar Stef- aníu Pálmadóttur, hefur verið skráð stærsti hluthafinn í breska félaginu Guru Capital Limited. Samkvæmt bresku fyrirtækja- skránni, Companies House, hét síðar- nefnda félagið Foldtown Limited, þar til 26. febrúar 2009. Þá er nafninu breytt í Tecamol Limited, þar til 24. mars 2009 þegar nafninu er breytt í JMS Partners. Félagið fékk svo nafn- ið Guru Capital 8.11. 2012. Þegar skýrsla um félagið var sótt 1. júlí í fyrrasumar voru hluthafar þrír. Guru Invest S.A. átti 100 A hluti, og 172 B hluti. Jón Ásgeir Jóhannesson átti svo 100 B hluti. Í árslok 2013 voru eignir sagðar 1.832.221 pund en skuldir 1.609.176 pund. Fram kemur að Gunnar Sig- urðsson, fv. fjármálastjóri Baugs Group, fari úr stjórn félagsins 27. nóvember 2012 og sama dag kemur Einar Þór Sverrisson lögmaður inn í stjórnina. Hann var skráður stjórn- andi félagsins. Þá undirritaði hann nafnabreytingu félagsins úr JMS Partners í Guru Capital hinn 23. októ- ber 2012, samkvæmt öðru skjali. Rekstur fjölmiðla í Bretlandi Samkvæmt bresku fyrirtækja- skránni átti Guru Invest S.A. 959.834 A hluti í fjölmiðlafyrirtækinu MYM-e Limited, sem skráð var með sama heimilisfang og Guru Capital, í Guru House í Lundúnum. Það jafngilti um 66% A hluta. Skuldir umfram eignir voru 17.307 pund. Jón Skaftason kom inn í stjórn 31.5. 2013 en fór úr stjórn 10.4. 2015. Hann er sonur Kristínar Þorsteinsdóttur, ritstjóra 365 miðla. Þá átti Guru Capital m.a. hlut í fé- laginu Night Day Limited og mat- vælafyrirtækinu Muddy Boots og fé- laginu Premier Chocolate Limited. Jafnframt átti Guru Capital um hríð hlut í rakarastofukeðjunni Murdock Limited. Jón Ásgeir og Jón Skaftason sátu í stjórn þess félags frá 21. janúar 2013 en hættu 23. maí 2014. Guru Invest var m.a. skráð fyrir hlut í tískuhúsinu Moncrief UK Limited og fjölmiðlafyrirtækinu 365 Media Eu- rope Limited, samkvæmt bresku fyrirtækjaskránni. Fram kemur í óendurskoðuðum ársreikningi Murdock Limited fyrir fjárhagsárið sem lauk 31.3. 2014 að Guru Capital hafi selt 65% hlut sinn í félaginu til L‘Heureux LLC. Segir þar að þóknun Guru Capital vegna stjórnunarstarfa var 91.796 pund. Premier Chocolate Limited hét áður Steakburger Limited og var stofnað 7. febrúar 2014, samkvæmt bresku fyrirtækjaskránni. Guru Capital kemur fyrir í stofnskrá. Helgi Már Gíslason var stjórnandi félagsins, en hann er barnabarn Helga Vilhjálmssonar í Góu. Helgi Már hefur verið í sambúð með Ásu Karen Jónsdóttur, dóttur Jóns Ás- geirs, en hún er skráð fyrir tískuhús- inu Asa Jons Limited, sem er skráð á sama stað og Guru Capital. Þar er líka heimilisfang Premier Chocolate. Af öðrum félögum sem tengjast þessum aðilum má nefna að félagið Bonus Foods Limited var stofnað 11.6. 2009. Nafninu var svo breytt í Best Price Foods Limited og svo aft- ur í Yellow – Best Price Foods Limi- ted. Helgi Már sat í stjórn frá 9.8. 2012 til 1.6. 2015. Það er skráð í Guru House. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá að tískuhúsið Norr11 var með verslun í Guru House í Lundúnum. Samkvæmt dönsku fyrirtækja- skránni á Guru Capital Limited 50- 66,66% hlut í eignarhaldsfélaginu Norr11 Holding ApS í Danmörku. Jón Skaftason er annar tveggja stjórnenda í félaginu. Verslun Norr11 á Íslandi er á Hverfisgötu 18a. Það hús er í eigu IP Studium, félags Ingi- bjargar Stefaníu. Norr11 er með verslanir í London, Reykjavík, Berl- ín, Kaupmannahöfn og Tallinn. Fjárfesti í fjölda félaga í gegnum Guru-félögin  Félag Ingibjargar Stefaníu tengist margvíslegum rekstri í mörgum löndum Ljósmynd/Zoë Robert Höfuðstöðvarnar Guru House, 54 South Molton Street í Lundúnum. Myndin var tekin í fyrrasumar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjallað var um tengsl Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur og Jóns Ás- geirs Jóhannessonar við Panama- skjölin á ýtarlegan hátt á vef Kjarn- ans og í Stundinni í gær. Sú umfjöllun er unnin í samstarfi við Reykjavík Media og RÚV. Morgunblaðið hefur ekki þessi gögn undir höndum. Þeim var lekið frá lögfræðistofunni Mossack Fon- seca í Panama og er fjöldi fjölmiðla um heim allan nú að vinna upp úr öllu gagnaflóðinu. Var því haldið fram í fréttaskýr- ingu Stundarinnar að þessi gögn bentu til að Ingibjörg Stefanía hefði átt milljarða í gegnum tengslin við Panama. Þeir fjármunir hefðu nýst í skuldauppgjöri við Glitni. Á vef Kjarnans var því sama hald- ið fram og vísað til gagna. Í þeim virðist koma fram að skulda- uppgjörið hafi falist í afhendingu 200 milljóna í reiðufé og 2,2 milljarða í skuldabréfum. Athygli vekur að heimilisfang Moon Capital S.A. er sagt Mossfon-byggingin í Panama. Það er sama heimilisfang og Guru Invest S.A. var skráð á þegar félagið eignaðist hlut í Rhapsody Invest- ments (Europe) S.A. í Lúxemborg sumarið 2012. Þá kemur félagið Piano Holding á Cayman-eyjum við sögu, sem og fé- lagið 101 Chalet á Sóleyjargötu 11. Ingibjörg Stefanía á það hús. Í húðhreinsunarvörum Í fréttaskýringu á vef Kjarnans sagði að meðal félaga sem hefðu fengið lán frá Guru Invest væri Cut- is Developments. Það fyrirtæki er sagt reka ProSkin-húðhreinsunar- keðjuna í Bretlandi. „Það fékk lán upp á 100 þúsund pund í maí 2012 til að fjármagna rekstur sinn, kaupa tæki og opna tvær nýjar ProSkin stofur í júní sama ár,“ sagði í frétt- inni. Þá segir á sama stað að Guru In- vest hafi átt hlut í félaginu Rich- mond Group/Richmond Brands, sem skráð sé til heimilis á Seychelles- eyjum. „Þótt Jón Ásgeir [Jóhannes- son] hafi haft prókúru hjá Guru In- vest, að minnsta kosti framan af, er Ingibjörg [Stefanía Pálmadóttir] eiginkona hans skráður eini eigandi félagsins samkvæmt skjölum Mos- sack Fonseca,“ segir í fréttinni um eignarhald á Guru Invest S.A. Upphæðir sagðar nema milljörðum  Mörg skattaskjól nefnd í skjölunum mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.