Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 13

Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 13
Dæmi um flokka eru matur og drykkur, samgöngur, tónlist, íþróttir, viðskipti og tími. Appið er byggt upp með sama hætti en öfugt við bókina, sem eðli málsins sam- kvæmt er niðurnjörvuð í stærð, má endalaust bæta í það nýjum frösum. Einnig býður appið upp á mögu- leika á framburðardæmum og sam- félagslega gagnvirkni.“ Slíkar útfærslur eru þó ekki á döfinni, a.m.k. ekki til að byrja með. Hvort tveggja, bókin og appið, er einfalt í sniðum og hugsað fyrir bakpokaferðalanga eða þá sem vilja ferðast létt, en einnig innflytj- endur, skiptinema, erlent vinnuafl og alla þá sem vilja blanda geði við heimamenn á hverjum stað. Róbert kveðst hafa verið spurður af hverju hann einblíni ekki á út- gáfu appsins og sleppi bókaútgáf- unni. „Ég spyr á móti hvers vegna listamenn gefi út geisladiska, vínyl eða bækur og fréttamiðlar prenti blöð. Mörgum finnst gaman að eiga áþreifanlega gripi og mig langaði einfaldlega að bjóða upp á tvo kosti.“ Róbert segir verkefnið snúast um að stuðla að bættum samskiptum milli ólíkra menningarheima og víkka sjóndeildarhring fólks. „Flestir kannast við að heimamenn eru líklegri til að hjálpa manni ef maður talar tungumál þeirra eða gerir tilraun til þess.“ DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 1 5 -1 8 6 2 -H V ÍT A H Ú SI Ð / SÍ A Ko lve tn as ke rt Skyr með sítrónusælu er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Kolvetnaskert,fitulítið, próteinríkt og dásamlegt á bragðið. Þetta síðdegið hafði ég hjólaðeins og vindurinn í spinn-ingtíma. Kennarinn öskraðihvetjandi setningar út í sal- inn, svitinn lak á gólfið og kaloríurn- ar flugu út í buskann. Ég gekk út úr salnum í endorfínvímu, brosti út að eyrum og skipti íþróttaskónum út fyrir Nike Free-strigaskóna áður en ég hélt út í kvöldið. Eitthvað var öðruvísi að ganga út í bíl, en ég leiddi það hjá mér, sannfærð um að ég hefði bara tekið svo vel á því að fæturnir væru lúnir og aumir. Morguninn eftir hélt ég til vinnu í skónum. Mér leið ekki nógu vel, mér leið eiginlega dálítið eins og mæðg- unum í ævintýrinu um Öskubusku. Skórnir voru ekki nógu meðfærilegir og þegar í vinnuna var komið reif ég þá af mér. Komst ég þá að því, mér til mikillar skelfingar, að þeir voru einu og hálfu númeri minni en skórnir sem ég skildi eftir í skóhillunni áð- ur en ég fór í spinn- ingtímann daginn áð- ur. Þeir voru ekki mínir. Í fyrstu fylltist ég söknuði og ótta um að endurheimta ekki þægilegu skóna mína aftur. Nokkrum mínútum síðar ákvað ég að þessar tilfinn- ingar ættu kannski ekki fylli- lega rétt á sér. Í tæplega þrjú ár hafði ég notað skóna næstum á hverjum degi og farið afar vel með þá og var kannski búin að ganga fleiri spor en vænta mátti. Kannski var hvort sem er komið að aðskilnaði. Ég var líka eðlilega löngu búin að panta mér annað par, alveg eins, sem beið í kassa uppi í hillu eftir því að taka við af hinu þegar tíminn kæmi. Það truflaði mig aftur á móti meira að ég vissi ekki í fótspor hvers ég var að feta. Hver átti eiginlega þetta skópar? Hvað var hann að hugsa? Hvernig lífi lifir hann? Í skónum voru greinilega ekki mín fótspor og tærn- ar mínar vildu ólmar teygja sig út úr þeim. Ég get setið tímunum saman, virt fyrir mér eyðibýli og velt fyrir mér hvers konar lífi íbúarnir lifðu og ástæðum þess að þeir yfirgáfu hús- in sín. Mér hefur aftur á móti ekki þótt fýsilegt að klæðast föt- um og skóm af einhverjum sem ég þekki ekki. Ekki bætti úr sök þegar vinnufélagi minn benti mér, eins alvarlegur í bragði og honum er unnt, á að ég væri líklega smituð af fótsvepp sem yrði fljótlega svo stór að hann ætti skilið sér kennitölu ásamt kodda og sæng í rúminu mínu. Þennan dag tiplaði ég á tánum um hart gólf Hádegis- móa. Datt ekki í hug að klæð- ast ókunnugu skónum. Ég lét mig hafa það að keyra í þeim heim en þegar þangað var kom- ið flugu þeir af á augabragði. Ég vil gjarnan setja mig í spor ann- arra, bara ekki með þessum hætti. Ekki stela skónum mín- um! »Ég vil gjarnan setjamig í spor annarra, bara ekki með þessum hætti... HeimurLáru Höllu Lára Halla Sigurðar- dóttir larahalla@mbl.is syni. Fljótlega tóku tímarnir þó þá stefnu að hann söng og ég spilaði undir svo úr varð ágætt samstarf,“ segir Björgvin. Og í þessu samstarfi varð til annað lag við þekkt ljóð úr Dölunum; það er Vorsól eftir Stefán frá Hvítadal. Björgvin fluttist til Reykjavík- ur árið 1983 og það ár tók hann við Skagfirsku söngsveitinni og stjórn- aði henni í 25 ár eða til ársins 2008. Auk þess að semja tónlist hefur Björgvin gefið út margar kennslu- bækur fyrir píanó og einnig gefið út tvo geisladiska, Undir Dalanna sól árið 2005 og Allt sem ég er árið 2009. Þarf að vera skemmtilegt og skila sér til tónleikagesta Í dag rekur Björgvin sinn eigin tónlistarskóla, Tónskóla Björgvins. „Tónlistarkennslan fer að mestu leyti fram í Hamraskóla í Grafarvogi en auk þess stjórna ég og spila undir þegar nemendur koma saman og syngja á sal einu sinni í viku. Annars hefur þessi vet- ur eða að minnsta kosti síðustu mánuðir verið mjög annasamir vegna undirbúnings fyrir tón- leikana; útsetningar, æfingar, skipu- lag og fleira. Ferlið hefur verið langt og strangt en að sama skapi skemmtilegt – sem vonandi skilar sér til tónleikagesta,“ segir Björg- vin. Einsöngvarar á tónleikunum eru ekki af verri endanum, Gissur Páll Gissurarson, Þóra Gylfadóttir, Egill Árni Pálsson, Harpa Ósk Björnsdóttir, Jón Svavar Jósefsson og Óskar Pétursson. Einnig kemur fram blandaður kór sem nefnist Þrusk, en hann er skipaður tónlist- armenntuðu fólki af Suðurlandi. Hljómsveitin Elektra Ensemble sér um undirleik auk þess að frumflytja tvö verk eftir Björgvin sem heita Tangó 60+ og Gamli skódinn hans pabba. Söngkona Þóra Gylfadóttir verður meðal einsöngvara á Selfossi. Tenór Gissur Páll Gissurarson er þekktur tenór af Suðurlandinu. Söngvari Egill Árni Pálsson er frá Laugarási í Biskupstungum. Ljósmyndari/Steve Lorenz Bassi Jón Svavar Jósefsson er fanta góður bassi og ætlar að syngja. Uppsetning Sömu setningum í tungumálunum tólf er raðað í sömu röð. Nánar: facebook.com/justphraseit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.