Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 17

Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Orkusparnaður með Nergeco hraðopnandi iðnaðarhurðum Nergeco • Opnast hratt & örugglega • Eru orkusparandi • Þola mikið vindálag • Eru öruggar & áreiðanlegar • Henta við allar aðstæður • 17 ára reynsla við íslen- skar aðstæður & yfir 150 hurðir á Íslandi Með hraðri opnun & lokun sem & mikilli einangrun má minnka varmaskipti þar sem loftskipti verða minni Intelligent curtain sem veitir aukið öryggi Múgur og margmenni komu saman við götur Windsor í London í gær til að fagna níræðis- afmæli Elísabetar II. Bretadrottningar. Drottn- ingin gekk um og tók við hamingjuóskum, af- mæliskortum og blómvöndum frá þegnum sínum með bros á vör í tilefni dagsins. Þakkaði hún einnig fylgjendum sínum á Twitt- er fyrir afmæliskveðjur ásamt því að óska öllum þeim sem einnig urðu níræðir í gær til hamingju. Þá gaf drottningin sér einnig tíma til að snæða heppnir“ að eiga hana. Karl Bretaprins flutti einnig ávarp í BBC-útvarpsstöðinni þar sem hann vitnaði í leikskáldið Shakespeare. Formaður Verkamannaflokksins, Jeremy Cor- byn, sagði í sínu ávarpi að sama hvaða skoðun menn hefðu á konungsveldinu nyti drottningin „yfirgnæfandi stuðnings“. Undanfarið hefur drottningin þó dregið úr skyldum sínum og flutt þær yfir á prinsana Karl og Vilhjálm. dýrindis afmælisköku á ferð sinni um Windsor. Skoðanakannanir benda til þess að drottning- in hafi aldrei verið vinsælli en nú en Elísabet hef- ur verið þjóðhöfðingi í 64 ár, lengst allra kon- unga og drottninga í sögu Bretlands. Þetta kemur fram í frétt AFP. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, lofaði drottninguna í auðmjúku ávarpi til þings- ins í gær. Sagði hann drottninguna vera „stað- fasta og sterka“ og Bretar væru „einstaklega AFP Fjöldi fagnaði níræðisafmæli Bretadrottningar Tveir létust og fimm er saknað eftir að hjólastíg- ur sem lagður var vegna Ólympíu- leikanna í Ríó hrundi í sjóinn. Vitni segja að fimm manns hafi verið á hjólastígn- um þegar hann féll niður um 50 metra síðla morguns að staðartíma í Rio de Janeiro í Brasilíu. Ástæður hrunsins eru enn óþekktar en hjólastígurinn var opn- aður fyrr á þessu ári og var byggður á stálbitum meðfram ströndinni. „Fólkið var að stoppa á hjólastígn- um til að taka myndir af öldunum – þær voru stórar. Svo sá ég þá allra stærstu,“ segir vitni samkvæmt frétt BBC. „Hún lyfti hjólastígnum og hluti hans losnaði. Ég sá fólkið falla, það var mjög sorglegt,“ sagði hann. Tvö lík fundust í sjónum og voru í kjölfarið lögð á ströndina. Ríó hafði gefið út að alla hjólastígar yrðu tengdir við strandlengju borgar- innar fyrir Ólympíuleikana, en vinna hófst árið 2014. Hjólastíg- ur hrundi í sjóinn  Tveir létust og fimm er enn saknað Hrun Mannfall varð á hjólastíg sem féll. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Tónlistarmaðurinn Prince lést í gær 57 ára að aldri að heimili sínu í Minnesota. Sjúkraflutningamenn reyndu að lífga Prince við eftir að hann fannst meðvitundarlaus í lyftu. Þetta kemur fram í yfirlýs- ingu lögregluyfirvalda samkvæmt frétt AFP. Rannsókn er þegar hafin á andláti hans. Fjölmiðlafulltrúi Prince, Yvette Noel-Schure, staðfesti andlát söngvarans í tilkynningu. Sagði hún að ekki væri hægt að gefa upp dánarorsök hans að svo stöddu. Svo virðist sem Prince hafi verið að glíma við einhvers konar veik- indi, en aðeins er rúm vika síðan flugvél sem Prince var um borð í þurfti að nauðlenda í Illinois vegna veikinda söngvarans. Hann var lagður inn á sjúkrahús í kjölfarið en útskrifaður þremur tímum síðar. Talsmenn söngvarans sögðu hann aðeins hafa þjáðst af flensu en hann væri á batavegi. Prince kom fram opinberlega síðastliðinn laugardag og fullvissaði aðdáendur sína að hann væri í fullu fjöri og ekki væri þörf á að biðja fyrir honum enn sem komið væri. Fjölmargir minntust söngvarans á samfélagsmiðlum í gær. Madonna, Mick Jagger og Bandaríkjaforseti voru þar á meðal. „Í dag misstum við skapandi goðsögn,“ sagði Obama. Poppgoðið Prince látinn  Fullvissaði að- dáendur sína um að hann væri frískur AFP Látinn Tónlistarmaðurinn og goðsögnin Prince lést sviplega á heimili sínu í gær, en hann fannst meðvitundarlaus í lyftu. Dánarorsök er enn ókunn. Innanríkisráðherrar Evrópusam- bandsríkjanna samþykktu formlega í gær tillögu að nýjum liðsafla við landamæraeftirlit og landhelgis- gæslu sem hefði það verkefni með höndum að skerast í leikinn í löndum eins og Grikklandi, þar sem álag er mikið, til að hægja á innstreymi flóttamanna. Þetta kemur fram í frétt AFP, en ráðherrarnir áttu fund í Lúxemborg. Rætt var fyrst um nýja liðsaflann í desember í fyrra, en hann er lykilatriði í áætlun Evrópu- sambandsins til að hefta flæði flótta- og farandsfólks til Evrópu. Tillagan fer næst fyrir Evrópu- þingið til samþykkis í júní til að gera nýjum liðsafla kleift að vera reiðu- búinn til starfa við lok sumars. Ekki áhrif á fullveldið Brussel gerði lítið úr áhyggjum um að liðsaflinn myndi hafa áhrif á fullveldi ríkjanna og tók af allan vafa um að hvert ríki yrði að veita sam- þykki sitt áður en liðsaflinn skærist í leikinn. „Nú þegar dregið hefur úr fjölda flóttamanna á leið til Evrópu höfum við fengið tækifæri til að finna sam- an evrópska lausn,“ sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, eftir samtal sitt við hollenska forsætis- ráðherrann í gær. Auka við landamæra- og landhelgisgæslu  Ráðherrar samþykkja nýjan liðsafla AFP Samkomulag Liðsaflanum er ætlað að hægja á streymi flóttamanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.