Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 32

Morgunblaðið - 22.04.2016, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 ✝ Ólafur HilmarIngólfsson fæddist í Eyjafirði 20. maí 1925. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 10. apr- íl 2016. Foreldrar hans voru Ingibjörg Þor- láksdóttir, f. 11. ágúst 1896, d. 2. desember 1930, og Ingólfur Árnason, f. 12. nóv- ember 1889, d. 13. nóvember 1971. Bræður Hilmars eru: Árni, f. 21. mars 1918, d. 10. febrúar 2007, Kristinn Þorlákur, f. 31. ágúst 1923, Steinberg, f. 14. júlí 1928, d. 3. janúar 1977. Systkini Hilmars samfeðra eru: Gíslína Ingibjörg, f. 14. júlí 1933, og Haukur Heiðar, f. 5. ágúst 1942. Hilmar kvæntist 26. júní 1965 Pálínu Magnúsdóttur, f. 27. maí 1929, d. 18. júní 1981. Sonur þeirra er Skúli Rúnar Hilm- arsson, f. 13. febrúar 1964, kvæntur Brynju Helgadóttur. Sigurðar; Kristín, f. 5. nóv- ember 1929, d. 24. desember 1993, og Eyvindur, f. 30. mars 1931, d. 1. júní 1992. Hilmar fékk sína barna- fræðslu í Ásaskóla í Gnúpverja- hreppi en sótti síðar nám í bú- fræði við Bændaskólann að Hólum. Ásamt hefðbundnum bú- störfum í Austurhlíð vann Hilm- ar ýmiss konar vélavinnu í sveit- unum þar eystra á vegum ræktunarfélagsins og á eigin vélum, sá bæði um jarðvinnu og snjómokstur. Um 1960 fluttist Hilmar til Reykjavíkur og vann eftir það við ýmis störf en lengst af sem verkstjóri hjá verktaka- fyrirtækinu Hlaðbæ hf. Hann byggði ásamt konu sinni og í fé- lagi við Auðun Helgason og hans frú húsið að Hraunbraut 44 á Kársnesi í Kópavogi og bjó þar alla tíð síðan. Eftir Hilmar liggja margir smíðisgripir, bæði húsmunir og ýmiss konar amboð. Hilmar var mikill ræktunarmaður og sjást þess merki bæði á Hraunbrautinni og ekki síður á landskika fjölskyld- unnar í landi Austurhlíðar þar sem þúsundir trjáa af ýmsum toga vaxa nú. Útför Hilmars fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 22. apríl 2016, klukkan 15. Dætur Pálínu, stjúpdætur Hilm- ars, eru: Sigurlín Guðrún Ágústs- dóttir, f. 23. sept- ember 1947, gift Marijan Krajacic, Þóra Björg Ágústs- dóttir, f. 23. desem- ber 1951, gift Guð- mundi Pétri Sigur- jónssyni, Ágústa Ósk Ágústsdóttir, f. 6. nóvember 1957, gift Skúla Marteinssyni, og Valgerður Guðmundsdóttir, f. 10. október 1960. Afkomendur þeirra systk- ina eru 55 talsins. Hilmar ólst upp fyrstu árin hjá móðurfor- eldrum sínum Þorláki Ein- arssyni og Kristínu Pálsdóttur að Kotá í Eyjafirði en fluttist um 11 ára aldur til móðursystur sinnar, Lilju Þorláksdóttur, og ólst upp hjá henni og manni hennar Sigurði Eyvindssyni að Austurhlíð í Gnúpverjahreppi. Uppeldissystkini Hilmars í Aust- urhlíð voru börn þeirra Lilju og Ég kveð Hilla pabba minn með söknuði í hug og hjarta. Hann kom inn í líf mitt þegar ég var 10 ára, ég gleymi því aldr- ei þegar mamma kynnti okkur í fyrsta sinn. Nærvera hans og næmni gerðu mér kleift að vera ég sjálf. Ég sagði lítið og þá gerði hann slíkt hið sama, ég fékk að leiða okkar fyrstu kynni. Ég bókstaf- lega féll fyrir honum þessum góða manni sem var að koma inn í líf okkar til frambúðar. Það seg- ir kannski margt um það hversu yndislegur maður og faðir hann varð fyrir mér að ég var ekki orðin 12 ára þegar ég var farin að kalla hann pabba. Hann var einstakur maður. Ég elska þig, pabbi minn. Þín dóttir, Þóra Björg. Mín fyrstu kynni af Hilmari voru á fimmtudagskvöldi síðla í ágúst 1995 þegar ég bankaði uppá á Hraunbraut 44 í leit að Skúla og Hilmar kom til dyra. Drengurinn var ekki heima og lagði Hilmar ríka áherslu á að ég færi og fyndi Skúla þar sem hann var við vinnu. Þetta var upphaf á rúmlega 20 ára vinskap og betri tengdaföður hefði ég ekki getað hugsað mér. Það duldist engum sem þekktu Hilmar að hann var vinnusamur og mikill hagleiks- maður og iðulega þegar maður kom í heimsókn var hann eitt- hvað að bardúsa. Ef laga mátti hlutinn eða smíða nýjan var óþarfi að kaupa nýtt, sem mætti segja að hafi verið lífsviðhorf hans, enda var hann af þeirri hverfandi kynslóð sem fór vel með allt sitt og við sem yngri er- um mættum taka okkur til fyr- irmyndar. Hilmar var mikill ræktunarmaður og eyddi hann ófáum stundum í ræktun á lands- skika fjölskyldunnar í landi Austurhlíðar og var stundum gantast með það þegar farið var austur að nú væri verið að fara í vinnubúðir Hilmars enda vissi hann að paradísin sprytti ekki af sjálfum sér. Við skiljum þetta núna þegar við njótum verunnar í sveitinni. Hilmar var einstakt ljúfmenni, tryggur og traustur og maður orða sinna, ef eitthvað var sagt þá varð því ekki haggað. Það er kominn tími til að kveðja og eig- ingjarnt annað en að sleppa tak- inu. Elsku Hilmar, þú hefur skil- ið eftir ótal margar fallegar og góðar minningar sem ég geymi í hjarta mínu. Takk fyrir sönginn. Brynja. Þú sem ferð, ferð aldrei allur. Hverju sinni skilur þú eitthvað eftir. Hluta af þér – í mér. Við munum sakna þín sárt, afi. Þórunn Magnea Ómarsdótt- irGuðrún Ólafsdóttir og börnAnna Líta Pearson og fjölsk. Jimmy Gadson. Ég er búin að hugsa mikið um það hvað ég vilji skrifa í minn- ingu afa míns, Ólafs Hilmars Ingólfssonar. Í hvert skipti sem ég reyni að kalla fram minningu kemur fyrst tilfinning, ég finn hvernig afi lét mér líða. Afi var rólegur, hljóðlátur með leyni- húmor og einstaklega verklaginn svo tilfinningin sem hellist yfir mig er öryggi, hlýja og glettni. Glettni er reyndar ekki tilfinning en það er ekki hægt að hugsa til afa án þess að finna hvernig glettnin í augum hans og munn- vikum lét manni liða. Ég var skírð Hrönn Ólöf, Ólöf í höfuðið á Hilla afa. Fyrstu árin mín tengdist ég Ólafarnafninu ekki mikið; ég held að það hafi svolítið verið vegna þess að afi var Hilli afi en ekki Ólafur afi. Eftir því sem ég eldist fór mér að þykja vænna um Ólafarnafnið og þegar að afi kallaði mig nöfn- una sína eða skrifaði „nafna mín“ í afmælis- og jólakortin kom allt- af sól í hjartað mitt. Ég er búin að heyra afa segja „nafnan mín“ oft síðustu daga; þegar ég finn fyrir leiða yfir að komast ekki í jarðarförina hans þá segir hann við mig: „Nafnan mín.“ Og ég veit að honum hefði bara fundist það vera bruðl ef ég færi að koma í jarðarförina: „Það er nú algjör óþarfi að fara að eyða pen- ingum og tíma í það, ég er hvort sem er farinn til hennar ömmu þinnar, ekki vera leið. Þú þarft ekkert að fara til Íslands til að minnast mín.“ Og það er rétt, ég þarf ekkert að fara neitt til að minnast afa míns, hann er alltaf í hjarta mér. Í rauninni er ég búin að vera að kveðja afa í nokkur ár. Ég bý erlendis og í enda hverrar heim- sóknar heim til Íslands fór ég að kveðja Hilla afa minn. Með hverju árinu varð það erfiðara og erfiðara. Ég vissi að þetta gæti verið í síðasta sinn sem ég fengi að knúsa afa minn. Ég var síðast hjá Hilla afa fyrir tæpu ári; þá sagði hann við mig og Elínu syst- ir að þetta væri komið gott, að líkaminn hans væri orðinn það aumur að hann væri bara tilbú- inn að fara. Ég man ekki alveg orðin hans afa en þetta er það sem hann sagði. Ég átti mjög erfitt með að kveðja afa áður en ég fór aftur til Bandaríkjanna. Ég var nýlega búin að kveðja hinn afa minn í hinsta sinn og ég var ekki tilbúin að gera það sama við Hilla afa. Ekki strax. Bíddu í eitt ár í viðbót svo að ég geti komið heim næsta sumar með strákanna mína og við fengið að knúsa þig einu sinni enn. Ég ætl- aði ekki að geta sleppt honum en um leið og ég gerði það hljóp ég út í bíl. Við vissum það bæði að þetta var síðasta knúsið okkar, þetta var okkar hinsta kveðju- stund. Nú er engin kvölin, afi minn. Tenging líkama og sálar slitin. Hvíldu í friði, afi minn. Hvíldu í ró og sælu. Ég, Hrönn Ólöf Guðmunds- dóttir, eiginmaður minn David Wallach og synir okkar Michael Þór, Alexander Már og Chri- stopher Ágúst, sendum samúð- arkveðjur til allra ættingja og vina hans Hilla afa, nafna míns. Hrönn Ó. Guðmunds- dóttir-Wallach. Meira: mbl.is/minningar Tímaritið Æskan, aloe vera plönturnar í eldhúsinu, snún- ingskollurinn við píanóið og grenilykt, vanilluís með jarða- berjasósu, heitar kleinur, þrek- hjólið á svefnherbergisganginum og sagið í bílskúrnum. Alltaf sama lyktin en þó mismunandi á milli herbergja, alltaf straumur af gólfteppinu, alltaf hlýtt og allt- af gott. Það rifjuðust upp fyrir mér orð Benedikts Gröndal, náttúru- fræðings og skálds, þegar ég sat og velti fyrir mér hvernig ég ætti að setja niður á blað minningu um afa minn, Hilmar. Dr. Þor- Ólafur Hilmar Ingólfsson ✝ Sigríður fædd-ist í Vest- mannaeyjum 6. des- ember 1927. Hún lést á sjúkrahúsinu á Selfossi 13. apríl 2016. Foreldrar henn- ar voru Símon Guð- mundsson, fæddur 21. maí 1884, d. 1955, og Pálína J. Pálsdóttir, fædd 29. september 1890, d. 1980. Sigríður átti níu systkini sem upp komust: Sigríði, Fjólu, Ein- ar, Margréti, Helgu, Karl og Magnús, þau eru látin. Eftirlif- andi eru tvö yngstu systkini hennar; Sverrir og Sveinbjörg. Símon og Pálína bjuggu lengst af í Vestmanneyjum og þar fæddust flest börn þeirra. Þegar Sigríður var tveggja ára var hún send í fóstur til hjónanna Kristínar Þórðar- dóttur og Björns Einarssonar, sem bjuggu á Fagurhóli í Land- 22. júní 1946. Hennar maður er Sturlaugur Eyjólfsson, fyrrver- andi bóndi á Efri Brunná í Döl- um. Börn þeirra eru: 1) Eyjólfur, fæddur 18.4. 1964, fram- kvæmdastjóri á Selfossi, kvænt- ur Guðbjörgu Hólm Þorkels- dóttur og eiga þau fjögur börn: Birnu Björt, Þorkel Hólm, Stur- laug og Ríkharð. Þau eiga þrjú barnabörn: Birki Rafn, Bjarka Frey og Bríeti Ernu. 2) Sigríður, fædd 25.8. 1966, framhaldsskóla- kennari í Reykjavík. Hún á þrjú börn: Kristínu Björgu, Önnu Þóru og Daníel Örn Hrólfsbörn. 3) Solveig, fædd 3.2. 1973, sér- fræðingur, búsett í Danmörku. Gift Henrik Aanes og eiga þau tvo syni: Ingemar Snorra og Þor- björn Mikael. 4) Helga Helena, fædd 5.2. 1973, framhaldsskóla- kennari í Reykjavík. Gift Eiríki R. Eiríkssyni og eiga þau tvær dætur: Guðrúnu Evu og Birnu Maríu. Eftir lát Gunnars bjó hún eitt ár í Ártúnum, flutti þá á Hvols- völl og stuttu seinna að Selfossi. Þaðan flutti hún á dvalarheimilið Sólvelli á Eyrarbakka fyrir tæp- um tveimur árum. Útför hennar fer fram frá Oddakirkju í dag, 22. apríl 2016. Athöfnin hefst klukkan 15. eyjum 1908-1941. Þau áttu þá fimm uppkomin börn: Kjartan, Guðrúnu, Ragnar, Þorbjörgu og Katrínu. Stuttu seinna tóku Fag- urhólshjónin dótt- urdóttur sína Elsu Vilmundardóttur til sín. Þegar Sigríður var 13 ára létust fósturforeldrar hennar og fór hún þá í vist til vandalausra. Tveimur árum seinna giftist Þor- björg dóttir Fagurhólshjónanna Ragnari Jónsyni í Bollakoti í Fljótshlíð og átti Sigríður þar skjól þar til hún fór að Ártúnum á Rangárvöllum. Sigríður fer í Ártún til sambýlismanns og síðar eiginmanns, Gunnars Magnús- sonar, árið 1954. Þau giftust á gamlársdag 1971. Gunnar lést 5. september 1995. Barn Sigríðar og uppeldisdóttir Gunnars er Birna Kristín Lárusdóttir, fædd Sigríður Símonardóttir, amma mín, er látin. Í æsku minni var langt á milli heimila; við vestur í Dölum og hún suð- ur á Rangárvöllum. Það varð til þess að við systkinin hittum þessa ömmu okkar sjaldan. Einu sinni á ári eða svo. Þetta breyttist þegar ég fór í fram- haldsskóla. Því þótt Bifröst væri mun nær Dölunum en Rangárvellirnir voru þeir í vetrarófærð auðveldari heim að sækja. Í helgarleyfum í Ártún- um urðu kynni mín við ömmu og Gunnar manninn hennar fyrst náin. Þegar ég lauk framhalds- skóla fluttum við konan mín á Hvolsvöll og hófum þar búskap 1984. Sú ákvörðun var ekki síst tekin með vissuna um ömmu í nágrenninu. Meðan við bjugg- um á Hvolsvelli vorum við oft á ferðinni niður í Ártún að er- indast ýmislegt og nutum stuðnings ömmu og Gunnars búskaparárin okkar tvö á Hvolsvelli. Síðan varð langt á milli heim- ila okkar árum saman. Ég flyt 2002 á Selfoss með fjölskyldu mína og hitti þar fyrir ömmu, sem var nýbúin að byggja sér þar hús. Þetta varð til þess að börnin mín kynntust nú lang- ömmu sinni, sem enn var ern og frísk og áttu með henni gef- andi samneyti í meira en ára- tug. Hlutskipti ömmu í æsku var að alast upp í fóstri því að systkinin voru mörg en efnin lítil. Hún varð ung barnshaf- andi í umhverfi þar sem hún vann fyrir sér sem kaupakona. Einstæð við þau skilyrði gat hún ekki haft barnið sitt hjá sér og þurfti að setja móður mína unga frá sér í fóstur í Fljóts- hlíðinni. Mörgum árum síðar stansaði loks ferðalag kaupa- konunnar. Í Ártúnum eignaðist hún mann, heimili og fann til öryggis sem lengi hafði verið leitað að. Þá var dóttir hennar orðin stálpuð en fleiri urðu börnin ekki. Margt í lífi ömmu húsfreyju í Ártúnum má rekja til erfiðs lífshlaups frá fyrri árum. Hún hugsaði til dæmis afar vel um kaupafólkið sitt; vildi að því liði vel og nyti vinnu sinnar og dvalar. Kaupafólkið hélt áfram að heimsækja Ártún löngu eftir að það var hætt að vinna þar. Hélt áfram að koma á fullorð- insárum og þá með börnin sín með sér. Einnig var amma afar barngóð og ef börn voru í heim- sókn leið ekki á löngu þar til þau læddu lófa í hönd hennar og gengu með henni að skoða undur sveitarinnar. Gestrisni þeirra Gunnars og ömmu var engu lík. Ef gesti bar að garði var alltaf slegið upp einhvers konar veislu. Mat- ur var stöðugt á borðum frá morgni til kvölds. Á sumrin voru oft tíu manns í mat, sem gat tvöfaldast við gestakomur. Þá var borðað og drukkið í holl- um. Upp úr minningunni stendur þessi fallega og ástríka lund, sem amma bar alla tíð með sér. Hún dvaldi sjaldan við tal um erfiðleika, hvorki hjá sér né öðrum. Hún studdi afkomendur sína mikið og vék alltaf ein- hverju góðu að öllum sem til hennar leituðu. Almennt löðuð- ust allir að birtu hennar og ást. Jafnt afkomendur sem blaðber- ar. Það er því mikil manneskja sem ég kveð í dag. Ég var heppinn því ég naut nærveru hennar miklu meira en margir aðrir. Fyrir það er ég henni og Guði mínum ævinlega þakklát- ur. En kveðjan er þung og sárt til þess að hugsa að endanlega er þetta stóra hjarta hætt að slá. Hvíl nú í friði. Eyjólfur Sturlaugsson. Nú er komið að leiðarlokum hjá langömmu minni og hefur hún kvatt þennan heim. Hún var langamma mín þótt ég og systkini mín höfum ætíð bara kallað hana ömmu Sillu. Hún var alltaf til í að hjálpa öll- um afkomendum sínum. Ég man svo vel eftir því þegar hún kom að passa mig þegar ég var yngri, þó svo að hún hafi átt heima á Hvolsvelli en við í Reykjavík þá gerði hún sér lítið fyrir og kom og dvaldi hjá okk- ur heilu vikurnar til að passa okkur systurnar og sjá um heimilið þegar mamma var upp- tekin í skólanum. Hún passaði mig oft þegar ég var veik og ég man hversu gott mér fannst að hafa hana hjá mér þegar mér leið illa. Amma hafði fallega framkomu og náði einstaklega vel til allra barna. Æskuvinkon- ur mínar muna ennþá eftir hversu vingjarnleg hún var allt- af við þær og kölluðu þær hana „ömmuna sem gefur okkur ís“. Ég man mest eftir heimili þínu á Selfossi og þegar við komum til þín vorum við troðin út af góðum mat og sælgæti, enginn fór svangur frá henni, hún vildi helst senda okkur heim með nesti og gerði það líka mjög oft. Við, stórfjölskyldan, áttum margar góðar stundir saman, allar fjölskylduferðirnar, kvennaferðirnar og páskarnir. Á páskunum fór meginpartur stórfjölskyldunnar vestur í Dali og komum við okkur öll fyrir í Bláa húsinu og þá dettur mér helst í hug orðatiltækið „þröngt mega sáttir sitja“. Þetta voru virkilega góðir tímar og lék amma svo sannarlega stórt hlutverk í öllum þessum minn- ingum. Ég var virkilega heppin að eiga þig sem ömmu. Minningin um þig mun lifa í hjarta mínu um ókomin ár. Takk, elsku amma mín, fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Þín langömmustelpa, Kristín Björg. Sillu hef ég þekkt frá því ég man eftir mér enda voru hún og mamma heitin, Elsa Guðbjörg Vilmundardóttir jarðfræðingur, fóstursystur og vinkonur og mjög kært á milli þeirra. Þær ólust báðar upp að hluta hjá langömmu og langafa, Kristínu og Birni í Fagurhóli í Austur- Landeyjum, og höfðu báðar mjög góða sögu að segja af þeirri vist. Ég kom fyrst í Ár- tún mjög lítil og man hvað mér þótti víðáttan í Landeyjunum sérstök og Hólsáin ótrúlega mikið fljót. Ég var frá því að ég man eftir mér mikill dýravinur og þráði það heitast að fá að vera í sveit á sumrin. Hestarnir heilluðu mest. Þegar ég var 12 ára fékk ég að vera hálft sumar í Ártúnum hjá Sillu og Gunnari en mamma sagði mér að þá hefði ég verið búin að suða um það nokkuð lengi enda mikið af hestum þar sem ég þráði svo mjög að vera í návígi við. Næstu fjögur sumur var ég svo þar ásamt fleiri krökkum og kynntist þar minni kæru vinkonu, Hönnu Láru, sem var þar með mér öll sumr- in. Vinnuálagið var mikið eins og þá tíðkaðist en við vorum líka mjög viljugar að vinna enda verðlaunin að fá að fara á hestbak á kvöldin. Í Ártúnum eignaðist ég minn fyrsta hest, brúnskjótta meri sem ég heillaðist af sem folaldi. Silla kenndi mér margt og var mér ákaflega góð og kær. Skemmtilegast þótti mér að hlusta á sögurnar úr Fagurhóli en hún talaði af svo miklum kærleika um allt það fólk og mikið um langömmu og langafa í Fagurhóli. Það leyndi sér ekki að henni þótti vænt um þau. Mér er það ákaflega dýrmætt að hafa fengið að kynnast þeim í gegnum sögurnar hennar Sillu. Það var alltaf gott að koma til hennar og væntum- þykja og hlýja hennar í minn garð var alltaf mikil. Ég kveð elsku Sillu og þakka henni fyrir góða samveru og samfylgd. Ég votta Birnu, Stur- laugi og öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Guðrún Lára Pálmadóttir. Þá er fallin fóstra mín, kona sem ég hefi þekkt í 50 ár og sem hefur reynst mér sérlega vel. Kynni mín af Sillu hefjast snemma vors 1965 þar sem ég stend, nýorðinn 14 ára, á Ár- túnahlaðinu með pokann minn. Sigríður S. Símonardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.