Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 33
valdur Thoroddsen, jarð- og
landfræðingur, heimsótti Bene-
dikt nokkrum dögum áður en
hann dó og spurði um líðan hans.
Hann sat þá í hægindastól og
sagði: „Ég get ekki gengið og
ekki andað, en annars líður mér
vel.“ Þessi orð finnast mér eiga
afar vel við Hilmar afa, en
kvartsár var hann ekki og
kenndi sér sjaldan meins. Hann
hafði húmor fyrir sjálfum sér og
aðstæðum, og hefði eflaust sagt
það hafa borið vel í veiði að öll
fjölskyldan var samankomin í
fermingarveislu þegar hann loks
kvaddi þennan heim.
Ég veit að þér líður betur
núna, hvar sem þú ert og hvort
sem þar er melur eða mói. Ég
mun alltaf muna þig, elsku afi,
með glettið bros á vör.
Þín elskandi,
Katrín.
Það sem ég gæfi fyrir eina
klukkustund í viðbót af spurn-
ingum frá mér til afa.
Eftir að afi var kominn upp á
Landspítala einsetti ég mér að
spyrja hann spjörunum úr, þó
ekki bókstaflega. Milli þess er
hann hugsaði og dormaði beið ég
spenntur eftir því að sjá hvort ég
fengi hann til þess að glotta á
sinn glettnislega hátt. Ég elska
þetta glott og á eftir að sakna
þess svo mikið. Það sem ég vildi
óska þess að ég hefði sagt við afa
áður en hann fór, er hversu mik-
ið ég er þakklátur fyrir það að
hann hafi komið inn í líf Pöllu
ömmu. Ég er þér ævinlega þakk-
látur, Hilli afi, fyrir það að vera
til staðar fyrir mömmu og gott
betur en það, þú varst frábær
faðir sem og afi. Afi minn í trján-
um, eins og Kormákur sagði,
takk fyrir okkur.
Ágúst Guðmundsson og
Kormákur Pétur Ágústsson.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðisflokkurinn
Hafnarfirði
Laugardagskaffi
Næsta laugardagkaffi verður 23. apríl kl. 10-
12 í sal Sjálfstæðisflokksins, Norðurbakka 1a.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins er gestur
fundarins.
Heitt á könnunni.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði
Aðalfundur
Kaupmannasamtaka Íslands verður haldinn
miðvikudaginn 27. apríl n.k. í húsakynnum
Kaupmannasamtaka Íslands, Húsi verslunar-
innar, 13. hæð, kl. 14:00.
Tilboð/Útboð
Skútustaðahreppur
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis
í landi Arnarvatns í Skútustaðahreppi.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 20. apríl s.l. að auglýsa skv. 1. mgr. 43 gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis 365-V
(hótellóðar) í landi Arnarvatns í Skútustaðahreppi.
Breytingartillagan gerir ráð fyrir stækkun núverandi lóðar Hótels Laxár þar sem fyrirhugað er að byggja
starfsmannabústaði vestan hótelsins þannig að þeir snúi ekki að Mývatni og verði ekki jafn sýnilegir frá
þjóðvegi og þeir yrðu annars innan núverandi lóðar. Því er mörkum reitsins og byggingarreit breytt þannig
að þau nái vestur yfir háhæðina, sem hótelið stendur á. Samhliða breytingu á deiliskipulagi er gerð
leiðrétting á landnotkunarreit 365-V í Aðalskipulag Skútustaðahrepps 2011-2023 þannig að stærð og lögun
landnotkunarreits er breytt til samræmis við uppgefna stærð í aðalskipulagsgreinargerð.
Tillöguuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660
Mývatni frá og með föstudeginum 22. apríl til og með föstudeginum 3. júní 2016. Þá eru tillögurnar og
aðgengilegar á heimasíðu Skútustaðhrepps: http://www.myv.is undir Skipulagsauglýsingar (hnappur á
forsíðu).
Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 3. júní 2016. Þeim sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests. Skila skal
athugasemdum skriflega til skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni og/eða í tölvupósti á
netfangið: bjarni@thingeyjarsveit.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests
teljast henni samþykkir.
Bjarni Reykjalín,
skipulags- og byggingarfulltrúi Skútustaðahrepps.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine
í Martin, Slóvakíu mun halda
inntökupróf í Reykjavík í 6.
apríl og 2. júni 2016. Einnig 14.
júlí í Martin. Prófað er í efna-
fræði og líffræði. Ekkert prófgjald.
Skólagjöld 9500 evrur á ári. Kennt
er á ensku. Nemendur læra
slóvakísku og geta tekið alla klinik
í Slóvakíu. Nemendur útskrifast
sem læknar ( MUDr.) eftir 6 ára
nám. Fjöldi íslendinga stundar
nám í læknisfræði við skólann auk
norðmanna, svía og finna og fl.
Heimasíða skólans er
www.jfmed.uniba.sk/en FÍLS
félag íslenskra læknanema í
Slóvakíu www. Jfmedslova-
kia.wordpress.com
Palacký University í Olomouc í
Tékklandi býður upp á 5 ára nám í
tannlækningum. Kennt á ensku.
Skólagjöld 11.800 evrur á ári.
www.medicineinolomouc.com
Kaldasel ehf.,
Uppl. í s. 5444333 og fs.
8201071
kaldasel@islandia.is
TILBOÐ - TILBOÐ
Vandaðir dömuskór úr leðri.
Tilboðsverð aðeins 2.900.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Lækkað verð
Handslípaðar kristal ljósakrónur frá
Tékklandi og Slóvakíu.
Kristal glös, vasar ofl.
Handútskornir trémunir.
Slóvak Kristall (Kaldasel ehf.),,
Dalvegur 16 b, Kópavogur,
s. 5444333.
Bílar
Skoda Octavia modelár 2014
ekinn aðeins 29 þús. km. ekki
bílaleigubíll. Diesel. Þjónustubók.
Bluetooth fyrir síma. Isofix festingar
fyrir barnastól. Kastarar. Álfelgur. ofl.
Verð: 3.580.000,-
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Hjólbarðar
Matador heilsársdekk - útsala
215/70 R 16 kr. 19.500
235/60 R 18 kr. 28.500
255/55 R 18 kr. 29.900
255/50 R 19 kr. 34.500
275/40 R 20 kr. 44.500
175/75 R 16 C kr. 17.500
205/75 R 16 C kr 19.500
215/75 R 16 C kr. 23.500
225/65 R 16 C kr. 27.200
235/65 R 16 C kr. 29.900
Framleidd af Continental í Slóvakíu
Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði
Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur
s. 5444333
Traktordekk rýmingarsala
13.6 -24 kr. (1 stk) 39.900
11.2 – 28 ( 1 stk) kr. 29.900
Kaldasel ehf ., Dalvegur 16 b,
Kópavogur s. 5444333
Húsviðhald
Þríf ryð af
þökum, ryðbletta
og tek að mér ýmis
verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
mbl.is
alltaf - allstaðar
Móðir mín hafði kynnst Sillu á
sæluviku húsmæðra á Laugar-
vatni og boðið henni drenginn
sinn til sumarstarfs. „Viltu ekki
koma inn, væni minn, og fá þér
mjólk og köku,“ kallaði Silla af
tröppunum. Það stafaði hlýja
frá henni, hlýja sem ég naut
næstu 50 ár. Ég var hjá þeim
hjónum næstu þrjú sumur sem
kaupamaður og síðan sem
heimilisvinur. Ártún var mér
sem annað heimili sem reyndist
mér afar vel sem og fjölskyldu
minni. Silla mín var öllum
stundum með hugann við vel-
ferð okkar drengjanna sem
þarna vorum sem kaupamenn,
hvort okkur væri kalt, svangir
eða fengjum nægan svefn.
Hvort okkur yfirleitt liði vel
eða vanhagaði um eitthvað.
Umhyggju hennar lauk ekki
með því að ég yxi upp úr því að
vera þarna sumarvinnumaður,
heldur fylgdi mér alla tíð síðan.
Hefi ég á svo margan og ómet-
anlegan hátt notið rausnar og
velvildar Ártúnahjónanna, þau
reyndust mér rétt eins og kær-
leiksríkir foreldrar. Fyrir það
verð ég ævilangt þakklátur.
Þegar Gunnar féll frá, langt
um aldur fram, brá Silla búi og
færði sig á Hvolsvöll og síðar á
Selfoss, hvar hún átti fallegt
heimili sem gott var að líta til,
þá oft ég átti leið um. Síðan
hrakar heilsu hennar og hún
fær vist á Sólvöllum á Eyr-
arbakka. Þar fór einnig vel um
hana, hún var þar ánægð með
allt og alla. Hún var í raun
heilsugóð allt til síðasta dags,
aðeins farin að gleyma, mundi
þó betur lengra aftur í tímann.
Mér finnst ég betri maður
vegna kynna minna af Sillu og
efast ekki um að hún fái þar
umönnun sem henni ber og á
skilið, aftur komin til bónda
síns.
Afkomendum hennar votta
ég samúð mína og þarf eflaust
ekki að minna þau á hve stolt
þau mega vera af Sillu Sím.
Blessuð veri minning hennar.
Maggnús Víkingur.