Morgunblaðið - 22.04.2016, Blaðsíða 35
og héldum við fjórar hörku sjálf-
stæðiskonur úti vikulegum skrifum í
Morgunblaðið undir heitinu: „Í til-
efni kvennaárs“. Björg Einarsdóttir
rithöfundur, sem var ein okkar, hef-
ur tekið efnið saman og er það nú
varveitt á safni.
Stúdentsprófi lauk ég frá MR
1956. Lagði stund á læknisfræði og
forspjallsvísínidi við HÍ en lauk síð-
an námi í lífeindafræði í Zürich í
Sviss. Ég starfaði lengst af á blóð-
fræðideild Landspítalans. Þar setti
ég upp fjölda lækningarannsókna og
stóð að samanburðarrannsóknum í
lífeindafræði.“
Bergljót stundaði framhaldsnám í
Bretlandi og Bandaríkjum.Var lengi
kennslustjóri rannsóknardeildar
spítalans og annaðist samhliða því
verklega kennslu lífeindafræðinema
við Tækniskóla Íslands og lækna-
nema við Háskóla Islands. Hún er
einn af stofnendum Meinatækna-
félags Íslands og var formaður þess
1969-1973. Hún hlaut vísindaverð-
laun Alþjóðasamtaka lífeindafræð-
inga í Orlando í Flórída árið 2002.
Fjölskylda
Makar: Ólafur Rafn Jónsson, f.
1936, stjórnmálafræðingur frá Yale
University; Sæmundur Kjartansson,
f. 1929, d. 2014, húðsjúkdómalæknir
frá University of Minnesota, og
Oddur Björnsson, f. 1932, d. 2011,
rithöfundur.
Börn 1) Lára Liv, f. 11.5. 1960,
rekstrarfræðingur frá Bifröst, maki:
Bárður Guðfinnsson fram-
kvæmdasjóri; 2) Halla Kristjana, f.
25. 1962, viðskiptafræðingur frá Há-
skóla Íslands, maki: Robert Biglio
verkefnastjóri, og 3) Óttar Rafn, f.
19.4. 1963 í Minneapolis, BNA, raf-
magnstæknifræðingur frá Odense
Teknikum, fv. maki: Dorte Holm rit-
ari.
Systkini: Óttar f. 19.7. 1937, d.
14.9. 1992, verkfræðingur frá
München og doktorsnám frá Madis-
on, Wisconsin, BNA; Inga, f. 13.3.
1939, lífeindafræðingur frá TÍ; Unn-
ur, f. 17.4. 1945, próf í versl-
unarfræði frá Bodö, Noregi og Min-
neapolis, BNA; Hildur, f. 30.1. 1947,
lífeindafræðingur frá TÍ, og hálf-
bróðir sammæðra er Friðrik, f. 8.4.
1956, lyfjafræðingur frá HÍ og lauk
píanónámi við Tónlistarskólann í
Reykjavík.
Barnabörn: Maria Liv, f. 1991,
Róbert Óttar, f. 1996, Alice Vera, f.
1998, Amelia Liv, f. 1999, Liv Fei, f.
2002, og Björk, f. 2005.
Foreldrar: Faðir: Halldór Hall-
dórsson, f. 27.12. 1900. Hagfræð-
ingur frá Kaupmannahafnarháskóla.
Árið 1933 settur bankastjóri við Út-
vegsbanka Íslands á Ísafirði. Þar
starfaði hann þar til hann lést af
völdum lífhimnubólgu 5.12. 1949.
Móðir: Liv Ellingsen, f. 5.1. 1910.
Stúdent frá MR. „Hún lagði stund á
tannlækningar í Berlin en varð að
hverfa heim áður en námi lauk
vegna óróleika í Þýskalandi á þess-
um tíma.“ Liv lést úr krabbameini
17.3. 1967.
Úr frændgarði Bergljótar Halldórsdóttur
Bergljót
Halldórsdóttir
Anna Petersdatter
Næss Bröske
Anders Bergh
verkfr. og verksmiðju-
eigandi í Kristiansand, Nor.
Marie Johanne Bergh
húsfr. í Rvík
Othar Petter Jæger Ellingsen
framkv.stj. Slippfélagsins og
stofnandi Ellingsen
Liv Ellingsen
húsfr. á Ísafirði
Emilie Ellingsen
f. Hemmingsen í Risvær, Nor.
Elling Ellingsen
skipasmiður, f. í Vikna, Nor.
Othar Edvin Ellingsen
forstjóri Ellingsen
Jón Halldórsson
söngstj. Fóstbræðra
Björg Ellingsen
húsfr. í Rvík
Pétur Halldórsson
borgarstjóri
Anna L. Thoroddsen
húsfr. í Rvík
Marta Guðjohnsen
húsfr. í Rvík
Jórunn
Viðar
tónskáld
Jón Óttar Ragnarsson
frkvstj. í BNA
Halldór Pétursson
teiknari
Emil Thoroddsen
tónskáld
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
tónskáld
Einar Viðar
söngvari og bankaritari í Rvík
Katrín
Fjeldsted
læknir
og fv.
alþingis-
maður
Pétur Guðjohnsen
dómorganisti og söngstj. í Rvík
Kristjana Guðjohnsen
húsfr. í Rvík
Halldór Jónsson
bankaféhirðir og
bæjarfulltr. í Rvík
Halldór Halldórsson
bankastjóri á Ísafirði og hagfr.
Hólmfríður Hansdóttir
húsfr. á Bjarnastöðum,
frá Neslöndum
Jón Halldórsson
bóndi á Bjarnastöðum
í Bárðardal, S-Þing.
Erling Ellingsen
verkfr. og
frkvstj. í Rvík
Kirstín Katrín Knudsen
húsfr. í Rvík
Guðrún Knudsen
húsfr. í Rvík
Haraldur
Ellingsen
viðskipta-
og tölfr. í
Rvík
María
Ellingsen
leikkona í
Rvík
Morgunblaðið/Jim Smart
Meinatæknirinn Bergljót.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016
85 ára
Páll Þórir Ásgeirsson
80 ára
Bergljót Halldórsdóttir
Emma Kristjánsdóttir
Helgi Hjálmarsson
Hörður Skarphéðinsson
Jóhanna Jónsdóttir
Sigvaldi Guðlaugur
Guðmundsson
75 ára
Bergþóra Lövdahl
Björn Ófeigur Jónsson
Erla Þórisdóttir
Páll Þorsteinn Þorgeirsson
Pálmi Ólafsson
Sigríður Þorsteinsdóttir
Valdemar Thorarensen
70 ára
Ámundi Friðriksson
Árni Jóhannesson
Benoný Ólafsson
Elín Guðmundsdóttir
Erna Magnúsdóttir
Guðmundur Viggósson
Gunnar Jónsson
Lilja Ragnarsdóttir
Ægir Breiðfjörð
Sigurgeirsson
60 ára
Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir
Björn Jóhannesson
Einar Júlíusson
Guðrún Sigurjónsdóttir
Kristján Gunnarsson
Krystyna Gorzkowska
Margrét Alfreðsdóttir
Ólafur Rögnvaldsson
Páll Kristinn Pálsson
Seksan Khamphamuang
Sigurður Sigurðsson
50 ára
Hannes Jóhannesson
Júlía Margrét Sveinsdóttir
Pálína Kristinsdóttir
Páll Eydal Reynisson
Ragnheiður Gísladóttir
Sigríður Hrönn
Gunnarsdóttir
Sigrún Jóna Leifsdóttir
40 ára
Agnieszka Korzeniewska
Anna Guðlaug
Baldursdóttir
Ágúst Norðfjörð Jónsson
Berglind Guðmundsdóttir
Berglind Ósk Ólafsdóttir
Birna Kristín Ómarsdóttir
Eva Sigurveig Pálsdóttir
Halldór Magnússon
Kristín Helga Johansen
30 ára
Bolli Hrafn Baldursson
Damian Myszoglad
Elínborg Ásdís Árnadóttir
Elín Guðný Hlöðversdóttir
Hafdís Anna Bragadóttir
Jón Birnir Jónsson
Linda Hrönn
Hermannsdóttir
Selma Cogic
Sigmar Arndal Eyþórsson
Sonja Haraldsdóttir
Steindór Haraldsson
Unnsteinn Jóhannsson
Þorgerður Edith
Hafsteinsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sonja er Akureyr-
ingur en er bús. í Reykja-
vík. Hún er snyrtifræðingur
og grafískur hönnuður að
mennt, vinnur hjá MPA-
miðstöðinni og sjálfstætt
sem grafískur hönnuður.
Maki: Reynir Albert Þór-
ólfsson, f. 1981, vinnur í
Húsasmiðjunni.
Foreldrar: Haraldur Ólafs-
son, f. 1962, uppstoppari,
og Erna Sigurbjörg Arn-
ardóttir, f. 1962, hár-
greiðslum.
Sonja
Haraldsdóttir
30 ára Þorgerður er
Norðfirðingur og er leik-
skólakennari.
Maki: Jóhann Óskar Guð-
mundsson, f. 1983, vinnur
í gámaþjónustunni
Sjónarás.
Börn: Íris Ósk, f. 2012, og
Ásgeir Örn, f. 2014.
Foreldrar: Hafsteinn
Smári Þorvaldsson, f.
1957, rafvirki í Neskaup-
stað, og Alma Þormóðs-
dóttir, f. 1961, vinnur á
leikskóla í Neskaupstað.
Þorgerður Edith
Hafsteinsdóttir
30 ára Linda er Akureyr-
ingur en býr í Reykjavík
og er nemi i miðlun og al-
mannatengslum við Há-
skólann á Bifröst.
Maki: Stefán Agnar Hjör-
leifsson, f. 1985, lýsinga-
ráðgjafi hjá Jóhanni Ólafs-
syni.
Dóttir: Emma Rakel, f.
2012.
Foreldrar: Hermann Óli
Finnsson, f. 1960, málara-
meistari, og Halla Björk
Ragnarsdóttir, f. 1961.
Linda Hrönn
Hermannsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína frá Uppeldis- og
menntunarfræðideild við Mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands. Ritgerðin
heitir Þróun orðaforða og lesskilnings
íslenskra grunnskólanema sem eiga
annað móðurmál en íslensku (The
development of vocabulary and read-
ing comprehension among Icelandic
second language learners).
Leiðbeinendur voru dr. Freyja
Birgisdóttir, aðalleiðbeinandi, dósent
við Háskóla Íslands og meðleiðbein-
endur dr. Hrafnhildur Ragnarsdóttir,
prófessor á Menntavísindasviði Há-
skóla Íslands, og dr. Hetty Roessingh,
prófessor við Háskólann í Calgary í
Kanada. Auk þess sat í doktorsnefnd-
inni dr. Sigurgrímur Skúlason, sér-
fræðingur hjá Námsmatsstofnun.
Markmið rannsóknarinnar var að
kanna þróun orðaforða og lesskilnings
grunnskólanema með íslensku sem
annað tungumál (ísl2) og tengsl á milli
þessara færniþátta. Tveir aldurshópar
voru prófaðir þrisvar: yngri hópurinn í
4., 5. og 6. bekk og eldri hópurinn í 6.,
7. og 8. bekk.
Jafnaldrar með
íslensku að
móðurmáli (ísl1)
voru prófaðir
samtímis. Vax-
andi munur kom í
ljós á orðaforða
ísl1 og ísl2-
barnanna. Yfir-
burðir ísl1-
nemendanna komu einnig fram í notk-
un þeirra á hærra stigs orðaforða, en
fjöldi þeirra jókst með aukinni færni
barnanna í að tjá hugmyndir sínar í
riti. Því meiri orðaforða sem ísl2 og
ísl1-börnin höfðu í fjórða bekk, þeim
mun hraðar juku þau lesskilning sinn
út miðstigið, sem leiddi til vaxandi
munar á milli barna. Því eldri sem ísl2-
nemendurnir voru þegar þeir komu til
landsins, þeim mun hraðar juku þeir
stigafjölda sinn á orðaforða- og les-
skilningsprófum. Munur á ísl2-
þátttakendum með evrópsk móðurmál
og þeim sem eiga móðurmál sem ekki
eru evrópsk kom fram á orðaforða- og
lesskilningsprófum í öllum bekkjum,
fyrrnefndi hópurinn var alltaf hærri.
Sigríður Ólafsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir fæddist 9. ágúst 1958. Hún lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1978, BA-prófi í frönsku 1994 frá Háskóla Íslands og kennslu-
og uppeldisfræði ári síðar frá sama skóla. Sigríður lauk MA-prófi árið 2010 með
rannsókninni Íslenskur orðaforði íslenskra grunnskólanema sem eiga annað
móðurmál en íslensku. Sigríður hefur starfað sem stundakennari við Háskóla Ís-
lands frá árinu 2012 og er nú aðjúnkt á Menntavísindasviði. Sigríður er gift Hösk-
uldi Hrafni Ólafssyni og eiga þau þrjú börn, Ólaf Hrafn, Ásgerði og Sigríði. For-
eldrar Sigríðar eru Ólafur Skúlason og Ebba Sigurðardóttir.
Doktor
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
NOW GARLIC OIL
EFLIR ÓNÆMISKERFIÐ