Morgunblaðið - 22.04.2016, Side 39

Morgunblaðið - 22.04.2016, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2016 Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Útskriftarsýning nemenda á BA- stigi í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Ís- lands er einn af þeim fjölmörgu vor- boðum sem setja svip sinn á miðbæ- inn um þessar mundir. Útskriftar- nemar eru nú í óðaönn að undirbúa opnun sýningarinnar, sem fram fer á morgun, laugardag, í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. „Sýningin er stór í sniðum og hér koma ólík fög saman, myndlist, vöruhönnun og grafísk hönnun svo eitthvað sé nefnt. Til að halda utan um þessa einingu innan eininganna fannst okkur spennandi að gefa sýn- ingunni sérstakt nafn,“ segir Mark- ús Þór Andrésson sýningarstjóri. Útskriftarsýningin ber heitið Ytri höfnin og er þetta í fyrsta skipti sem útskriftarsýning nemenda ber sér- stakt heiti. 80 nemendur munu fylla sali Hafnarhússins með verkum sem endurspegla nám, rannsóknir og listsköpun þriggja ára. Mestur fjöldi útskrifast frá myndlistardeild, eða 32 nemendur. Þá ljúka 15 námi í arkitektúr, 14 í grafískri hönnun, 9 í fatahönnun og 7 í vöruhönnun. Ytri höfn nemenda Markús segir að staðsetningin við sjóinn hafi átt þátt í að velja nafn sýningarinnar. „Síðan varð mér hugsað til ljóðabókar eftir Braga Ólafsson sem kom út árið 1993, um svipað leyti og margir útskriftar- nemanna voru að koma í heiminn. Mér fannst þessi ljóðabók skírskota skemmtilega til þess að horfa á hversdagsleikann í kringum okkur frá nýjum sjónarhól.“ Nafngiftin vísar auk þess í óræðan stað úti fyrir landi þar sem skip kasta akkerum tímabundið á ferða- lagi sínu um heiminn. „Nemendur yfirtaka Hafnarhúsið með svipuðum hætti, staldra þar við í tvær vikur og halda síðan hver í sína áttina til frek- ari landvinninga.“ Aðspurður hvort finna megi ákveðið þema á sýningunni segir Markús það fara eftir því hvaða deildum nemendur tilheyra. „Arki- tektanemarnir eru með skýrt þema sem endurspeglar heildarmynd sýn- ingarinnar. Þau eru að vinna hafn- armannvirki á öllum þremur við- komustöðum Breiðafjarðarferj- unnar Baldurs.“ Nemar í fatahönnun og grafískri hönnun einbeita sér frekar að sínum einstaklingsverkefnum. „Þar er til dæmis verið að huga að endur- vinnslu og umhverfisvitund. Í vöru- hönnuninni er verið að rýna mark- visst í sögu efnanna og að þau séu meðhöndluð af virðingu, en ekki þeirri sóun sem hefur einkennt 20. öldina.“ Sýningin verður opnuð á morgun, laugardag, og stendur yfir til 8. maí. „Þetta er mjög þakklátt og verk- efnin skemmtileg og það er mikil og falleg orka sem streymir um salinn þegar sýningin fer í gang,“ segir Markús. Óræður staður  Ytri höfnin, útskriftarsýning BA-nema í arkitektúr, myndlist og hönnun við LHÍ, verður opnuð á morgun Morgunblaðið/Styrmir Kári Ytri höfnin Sýningarstjórinn Markús Þór Andrésson ræðir uppsetningu verks við einn útskriftarnemann. Pólskir kvikmyndadagar eru sam- starfsverkefni pólska sendiráðsins á Íslandi og Bíós Paradísar og fara sýningar fram á morgun, laugardag- inn 23. apríl. Þema daganna í ár: „Aldrei gefast upp, þetta er svo ynd- islegt líf.“ „Sendiráðið velur myndir sem hafa slegið í gegn í heimalandinu,“ segir Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri hjá Bíó Paradís. Kvikmyndadagarnir fara fram í fimmta skipti í ár og segir Ása samstarfið við pólska sendiráðið hafa verið afar farsælt. „Dagarnir eru mjög vel sóttir af Pólverjum sem eru búsettir á Íslandi sem og öðrum og það hefur alltaf verið troðið út úr dyrum hjá okkur á þessum dögum.“ Opnunarmyndin Dætur mínar, kýrnar, verður sýnd á sérstakri opn- unarhátíð í kvöld. Myndin segir frá tveimur ólíkum systrum sem í ljósi erfiðra aðstæðna verða að taka hönd- um saman þrátt fyrir að geðjast ekki hvorri að annarri. Marta hefur náð frægð og frama í lífinu en einkalíf hennar er að þrotum komið, þrátt fyrir alla þessa velgengni. Öfugt við hina sterku og ráðandi systur sína er yngri systirin Kasia viðkvæm og tilfinningarík. Samband systranna er ekki upp á það besta en skyndileg veikindi móður þeirra veldur því að þær verða að vinna saman. Marta og Kasia verða smám saman samrýmdari, sem veldur mörgum grátbroslegum uppá- komum. Jákvæðni, gleði og ást Tvær myndir eru þar að auki sýnd- ar á kvikmyndadögunum, Að lifa að eilífu og Konungur lífsins. Mynd- irnar falla inn í þemað og fjalla um menn sem lenda í ýmsum aðstæðum sem leiða til breytinga á þeirra lífi og þannig komast þeir að því að lífið hef- ur upp á meira að bjóða en þeir héldu. Kvikmyndirnar eru uppfullar af jákvæðni og sýna að stundum er nóg að útvíkka sjóndeildarhringinn örlítið til að finna gleði og ást. Almennar sýningar fara fram á morgun kl. 16, 18 og 20. Myndirnar eru allar sýndar með enskum texta og aðgangur er ókeypis. „Við hvetj- um sýningargesti hins vegar til að nálgast miða á sýningarnar í miða- sölu Bíó Paradísar og tryggja sér þannig miða í tæka tíð,“ segir Ása. Nánari upplýsingar um dagana og sýningartíma má nálgast á heimasíðu Bíós Paradísar, www.bioparadis.is. Yndislegt líf í Bíó Paradís  Pólskir kvikmyndadagar fara fram í fimmta sinn Dætur mínar, kýrnar Stilla úr opnunarmynd Pólskra kvikmyndadaga. 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Sun 24/4 kl. 15:00 68.sýn Fös 29/4 kl. 19:30 70.sýn Lau 7/5 kl. 19:30 72.sýn Fim 28/4 kl. 19:30 69.sýn Lau 7/5 kl. 15:00 71.sýn Fim 12/5 kl. 19:30 73.sýn Sýningum lýkur í vor! Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið) Lau 23/4 kl. 19:30 Lau 30/4 kl. 19:30 Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu. Um það bil (Kassinn) Fös 22/4 kl. 19:30 aukasýn Síðustu sýningar! Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið) Lau 23/4 kl. 13:00 Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst! Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari) Fös 22/4 kl. 20:00 Fös 22/4 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 27/4 kl. 19:30 Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram! Hvítt (Kúlan) Sun 24/4 kl. 13:00 Lau 30/4 kl. 13:00 Sun 24/4 kl. 15:00 Lau 30/4 kl. 15:00 Leikandi létt og sjónræn sýning fyrir börn frá 1 til 5 ára! VEGBÚAR –★★★★ – S.J. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Þri 17/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/5 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Sun 24/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 14:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Lau 21/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Þri 3/5 kl. 20:00 Sun 22/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Mið 4/5 kl. 20:00 Þri 24/5 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Fim 5/5 kl. 20:00 Mið 25/5 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Fim 26/5 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 14:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Lau 28/5 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Þri 10/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Mið 11/5 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Fim 12/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Lau 14/5 kl. 14:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar Auglýsing ársins (Nýja sviðið) Fös 22/4 kl. 20:00 4.sýn Fim 28/4 kl. 20:00 7.sýn Lau 7/5 kl. 20:00 Lau 23/4 kl. 20:00 5.sýn Lau 30/4 kl. 20:00 8.sýn Fös 13/5 kl. 20:00 Sun 24/4 kl. 20:00 aukas. Fim 5/5 kl. 20:00 9.sýn Mið 27/4 kl. 20:00 6.sýn Fös 6/5 kl. 20:00 Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur eftir Tyrfing Tyrfingsson Vegbúar (Litla sviðið) Fös 22/4 kl. 20:00 38.sýn Fös 6/5 kl. 20:00 39.sýn og síðasta Síðustu sýningar Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 29/4 kl. 20:00 106.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn Kenneth Máni stelur senunni Illska (Litla sviðið) Lau 23/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00 Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins Danskir fjölmiðlar hafa keppst um að lofa sýninguna Gauguins verdener, með verkum eftir franska meistarann Paul Gauguin (1848-1903), sem var opnuð í Glyptotekinu í Kaupmannahöfn um liðna helgi. Nokkuð er til af verkum Gauguins í Danmörku, en hann kvæntist danskri konu, Mette að nafni, og bjó með henni og börnum þeirra um skeið í borginni. Athygli vekur að auk kunnra málverka og skúlptúra sem eru til sýnis er óvenjulegt nisti eða hálf- gildings örskúlptúr sem Gauguin gerði fyrir Mette, samkvæmt sögu sem lifað hefur með fjölskyldunni. Í The Art Newspaper er þetta sagt æði óvenjulegt verk, sett saman úr útskorinni málmplötu sem var á sínum tíma silfruð en er nú brún, gleri af úri og hárlokk sem líklega var eitt sinn brúnn en er nú gulur – og er sagður vera líklega af Mette eða Gauguin sjálfum. Á málverki af Mette sem er í eigu Listasafns Norðmanna er að sjá sem hún beri verkið í borða um hálsinn og þá er til ljósmynd frá París af hjónunum þar sem hún virðist einnig bera það. Sérstakt og áður ósýnt nisti Gauguins á yfirlitssýningu í Kaupmannahöfn Ljósmynd/Ny Carlsberg Glyptotek Sérstakt Nistið sem er eignað Gauguin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.