Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 7. M A Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  106. tölublað  104. árgangur  DRÖGUM ÚT 51.000 VINNINGA Á ÁRINU! AÐ VERÐMÆTI 30 MILLJÓNIR HVER!                                              !      "       #   $                         !  "     #$ %     %   $   &"  '      (  )$  )  VELJA ÚRVALS- LIÐ ÍSLANDS Í KÖRFUBOLTA 7 MANNA FJÖLSKYLDA Í FJALLAÞORPI VERKEFNI UM SJÁLFSNÁM 12ÍÞRÓTTIR Skarfur Fuglar verpa í um 3.000 eyjum á Breiðafirði. Mun fleiri eyjar hafa nöfn.  Eyjarnar á Breiðafirði eru ekki lengur óteljandi. Þorvaldur Þór Björnsson, starfsmaður Náttúru- fræðistofnunar, hefur skráð liðlega 3.000 eyjar og hólma sem fengið hafa nöfn og fuglar verpa í og að auki um 2.200 hólma og sker sem fengið hafa nöfn en fuglar verpa ekki í. Áður hafði verið slegið á að eyjarnar væru 2.500 til 3.000 og þá miðað við eyjar og hólma sem gras vex á. Verið er að skrá eyjarnar inn á loftmynd í gagnabanka Náttúru- fræðistofnunar. Upplýsingarnar fara síðan til Örnefnastofnunar og Landmælinga. Þær verða gerðar aðgengilegar almenningi á vef síðarnefndu stofnunarinnar. »20 Ekki lengur hægt að segja að eyjarnar séu óteljandi Morgunblaðið/Brynjar Gauti Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Það skiptir mig öllu máli að vera í góðu samstarfi við íslenska lækna og heilbrigðiskerfið,“ segir dr. Pedro Brugada, einn fremsti hjartaskurð- læknir heims, sem síðar á þessu ári mun opna skurðstofu á Klíníkinni í Ármúla. Við hann er kennt Brugada- heilkennið, sem hann og Joseph bróð- ir hans uppgötvuðu en það getur auk- ið líkur á hjartastoppi og hefur verið talsvert í umræðunni vegna ótíma- bærra dauðsfalla ungs fólks. Hann er nú staddur hér á landi og átti m.a. fund með Kristjáni Þór Júl- íussyni heilbrigðisráðherra í gær- morgun og segir samtalið hafa verið gagnlegt. „Við ræddum m.a. að samstarf við íslenska hjartasérfræð- inga væri afar mikilvægt,“ segir hann, en líklega munu erlendir læknar starfa á hans vegum í Klíníkinni fyrst í stað. Dr. Brugada hefur, ásamt sam- starfsfólki sínu, þróað meðhöndlun við hjartsláttartruflunum. Hún er notuð á sjúkrahúsum um víða veröld og hann vonast til að geta kynnt hana íslensk- um læknum. Hugmyndin er að erlendir sjúkling- ar fái meðhöndlunina á Klíníkinni, fyrst og fremst sjúklingar frá Evrópu- löndum sem hafa af ýmsum ástæðum ekki tök á að bíða eftir að röðin komi að þeim á biðlista eftir aðgerð. Ásdís Halla Bragadóttir, stjórn- arformaður Klíníkurinnar, segir að meti heilbrigðisyfirvöld það svo, að þau vilji að íslenskir sjúklingar fái að- gang að þjónustunni, þá yrði án efa orðið við því. Engar slíkar viðræður hafi átt sér stað. Koma sérfræðinga á borð við Bru- gada hingað til lands sé hvati fyrir ís- lenskt heilbrigðisstarfsfólk erlendis. Samstarfið við hann geti skapað ný starfstækifæri hér. »4 Þekktur hjartalæknir kemur hingað til starfa Dr. Pedro Brugada  Hvati fyrir íslenska lækna erlendis  Áhersla á samstarf Alls verða 209 reiðhjól boðin upp í dag þegar hið árlega reiðhjólauppboð lögreglunnar verður haldið í húsnæði Vöku við Skútuvog. Uppboðið hefst klukkan 11.00 en ekki var unnt að halda uppboðið í fyrra sökum verkfalla. Hlutfall reiðhjóla sem skila sér aftur til eigenda hefur hækkað lítillega síðustu ár, einkum í kjöl- far þess að lögreglan fór að birta myndir af öll- um reiðhjólum á samfélagsmiðlinum Pinterest. Vakað yfir óskilamunum fyrir stóra daginn Morgunblaðið/Eggert  Novator hefur falið fyrirtækja- ráðgjöf Kviku að setja fjarskipta- fyrirtækið Nova í söluferli. Áætlað er að söluferlið taki 2-3 mánuði. Novator er fé- lag Björgólfs Thors Björgólfs- sonar athafna- manns. Hann á tæplega 94% hlut í Nova, en stjórnendur eiga rúmlega 6% hlut. Ragnhildur Sverrisdóttir, upp- lýsingafulltrúi Björgólfs Thors, segir heildarverðmæti Nova ekki vera undir 15 milljörðum króna. Hún leggur áherslu á að aðeins sé um þreifingar að ræða. Það sé ekkert fast í hendi varðandi sölu Novators á hlutnum í Nova. Nova er nú stærsta farsímafyrir- tæki landsins. »22 Björgólfur Thor að selja hlutinn í Nova Björgólfur Thor Björgólfsson Fasteignasölur auglýsa nú til sölu tvær íbúðir á 7. hæð fjölbýlis- hússins Garða- torgs 2B í Garða- bæ sem kosta hvor 145 milljónir króna. Sam- kvæmt heimild- um blaðsins úr fasteignageiranum hefur fjárfestir keypt tvær efstu íbúðirnar, á 8. hæð, og greitt fyrir þær á fjórða hundrað milljóna. Þær verða sameinaðar. Þetta kann að vera metverð fyrir íbúðir á Íslandi utan Reykjavíkur. Verðið er nærri milljón á fermetra. Óskar Rúnar Harðarson, fasteignasali hjá Mikluborg, segir góða eftirspurn eftir vandaðri og dýrari íbúðum á markaðnum. Sala á sérbýli sé að aukast. »23 Metfé fyrir lúxusíbúðir  Fjárfest í Garðabæ Garðatorg 2B

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.