Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 ✝ Jónas Ólafssonfæddist á Borð- eyri við Hrútafjörð 20. júlí 1929. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísa- firði 27. apríl 2016. Foreldrar hans voru Ólafur Jóns- son húsasmíðameistari, f. 12. maí 1892, d. 30. desember 1967, og Elínborg Sveinsdóttir, sím- stöðvarstjóri á Þingeyri, f. 12. október 1897, d. 11. maí 1955. Systkini Jónasar eru Yngvi, f. 1922, d. 2005, Sveinn, f. 1924, Björgvin, f. 1924, Þórey Hrefna, f. 1925, Höskuldur, f. 1927, Jónas, f. 1928, d. 1928, Sylvía, f. 1931, Ingibjörg, f. 1932, Sigríður, f. 1935, Ólöf, f. 1937, María, f. 1939, Guðrún, f. 1944, d. 1960. Hálfsystkini Jón- asar, börn Ólafs og fyrri eig- inkonu hans, Þóreyjar Sturlaugsdóttur, eru Hrefna, f. 1915, d. 1918, Kjartan, f. 1918, d. 1991. Ennfremur Þórir, f. 1931, d. 1990. Jónas kvæntist Kristínu Nönnu Magnúsdóttur 7. nóv- ember 1954, foreldrar hennar 1966, börn þeirra eru: Patrekur Ísak, f. 1996, Birna Filippía, f. 2000, og Dagur Ernir, f. 2000. Langafabörnin eru orðin 16. Jónas fór ungur í sveit á Skarði á Skarðsströnd en lærði síðan vélvirkjun í Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri og vann þar um skeið. Starfaði síðan við verslunar- rekstur í nokkur ár. Var kjör- inn í hreppsnefnd Þingeyrar- hrepps 1966 og sat í hreppsnefnd til 1996. Tók síðan við starfi sveitarstjóra á Þing- eyri 1971 og gegndi því starfi til ársins 1996 eða í 25 ár. Sat í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 1996-1998 og gegndi starfi bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar síðasta árið. Hann gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum, var formaður stjórnar Fjórðungs- sambands Vestfirðinga, átti sæti í stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og sat í stjórn Hafnarsambands Íslands. Á yngri árum tók hann mikinn þátt í íþróttastarfi á ýmsum sviðum og keppti sjálfur. Í mörg ár hélt hann kindur sér til mikillar ánægju og var mikil áhugamaður um sauðfjárrækt allt til dauðadags. Útför Jónasar fer fram frá Þingeyrarkirkju í dag, 7. maí 2016, og hefst athöfnin klukkan 14. voru Magnús Aml- ín Ingibjartsson og Ingunn Elín Angantýsdóttir. Börn Jónasar og Nönnu eru 1. Magnús, f. 3. september 1953, hans börn eru: Hugrún, f. 1973, Nanna Kristín, f. 1974, Magnús Þór, f. 1978, Jónas Breki, f. 1980, og Sturla Snær, f. 1987. 2. Angantýr Valur, f. 19. apríl 1955, giftur Eddu Haf- dísi Ársælsdóttur, f. 15. maí 1960, börn þeirra eru: Óttar, f. 1982, Ágúst, f. 1985, Elín Edda, f. 1987, Ingunn Ýr, f. 1993 og Víkingur, f. 1997. 3. Ingunn El- ín, f. 11. febrúar, 1957, gift S. Vilhelm Benediktssyni, f. 1. ágúst 1955, börn þeirra eru: Kristín Nanna, f. 1976, og Stef- án Benedikt, f. 1980. 4. Krist- inn, f. 30. september 1965, gift- ur Helgu Valdísi Guðjónsdóttur, f. 5. febrúar 1969, börn þeirra eru Thelma, f. 1996, og Kristinn Jökull, f. 2002. 5. Steinar Ríkarður, f. 6. október 1966, giftur Nönnu Björk Bárðardóttur, f. 29. júní Þegar ég lít til baka og hugsa um pabba þá koma fyrst upp í huga mér kindurnar hans og öll sú vinna sem í kringum þær voru. Pabbi var um áratuga skeið með frístundabúskap sem gaf honum mikla ánægju. Sem ungur maður fór hann í sveit á Skarð á Skarðs- strönd, var hann þar fram á ung- lingsaldur og bar hann alltaf mikl- ar tilfinningar til þess staðar og fólksins þar. Þar hefur sjálfsagt áhuginn á fjárbúskapnum kvikn- að. Hann var mjög natinn við kindurnar, var góður ræktunar- maður og átti gott fé. Pabbi lagði áherslu á það við okkur bræður að hugsa vel um dýrin og kenndi okk- ur réttu handtökin við bústörfin. Á jólum fengu kindurnar alltaf besta heyið sem til var og voru fjárhúsin þrifin hátt og lágt. Það er ógleym- anleg ferð er við bræður fórum með pabba fyrir nokkrum árum norður á Strandir að sækja hrút en afi hans, Sveinn, hafði verið prestur í Árnesi. Hann sagði okk- ur frá öllu sem fyrir augu bar og gaman var að hlusta á frásögn hans og að sjálfsögðu var það hann sem valdi hrútinn. Pabbi og mamma höfðu mikinn áhuga á garðrækt og ber garðurinn í kringum húsið þeirra þess glöggt vitni. Ekki var pabbi mikil tilfinn- ingavera og var mjög fámáll um allt slíkt, þó mátti sjá tár á hvörm- um þegar eitthvað hreyfði við hon- um. Pabbi var góður afi barna minna og fylgdist hann vel með þeim og spurði alltaf um þau er við ræddum saman. Hann var sveit- arstjóri á Þingeyri um áratuga skeið og hafði mikinn metnað fyrir hönd samfélagsins. Á árunum frá 1966 til 1998 sem hann starfaði í sveitarstjórnarmálum urðu gífur- legar breytingar í sjávarþorpum um land allt, Þingeyri var þar eng- in undantekning þar sem mikil uppbygging átti sér stað og fegr- un umhverfis. Samstarfsmaður pabba til margra ára í sveitarstjórn var Þórður Jónsson frá Múla, þeir náðu vel saman þó ekki væru þeir samflokksmenn og höfðu báðir mikinn áhuga á bússkap. Það var mikið áfall fyrir pabba þegar Þórður féll frá langt um aldur fram því þar missti hann góðan vin og samstarfsmann. Pabbi var mjög ráðagóður, lagði mikla áherslu á að maður færi vel með það sem manni væri trúað fyrir, hefði trú á sjálfum sér og legði sig fram um að ná settum markmið- um. Það var gott að leita ráða hjá pabba og hann fylgdist vel með mínum störfum. Pabbi naut virð- ingar í stjórnsýslunni og fann ég það er ég hóf störf á sama vett- vangi. Þó það sé ef til vill skrýtið þá var pabbi ekkert mjög pólitísk- ur, þ.e.a.s. ef ég tek mið af mömmu í þeim málum, en hann hafði mikinn áhuga á samfélags- málum, þá sérstaklega samgöngu- málum og beitti hann sér mikið á þeim vettvangi fyrir svæðið og var m.a. formaður hjá Fjórðungssam- bandi Vestfirðinga þegar ákvörð- un var tekin um jarðgöngin undir Breiðadals- og Botnsheiði. Einnig sat hann í stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga og Hafnarsambands Íslands auk fjölda annarra trún- aðarstarfa. Margs er er að minnast enda nutum við þeirrar gæfu að eiga marga áratugi saman og fyrir það er ég þakklátur. Nú er komið að kveðjustund, gott er að eiga minn- ingar um góðan föður sem reynd- ist mér vel, blessuð sé minning hans. Meira: mbl.is/minningar Kristinn Jónasson Við sátum hljóðir uppi á Stekk að loknu góðu dagsverki, kvöldsól- in lék við fjallstindana. Mófuglarn- ir sungu sín fegurstu ljóð. Véla- hljóðin í nágrenninu þögnuðu og ómur af röddum bændanna tók við. Kyrrðin færðist smám saman yfir fjörðinn, sólin hneig til viðar og fjöllin spegluðust í logninu. Sameiginlegt áhugamál okkar feðga, kaffitímabúskapur, var uppspretta athafna og skoðana- skipta báðum til ómældrar gleði. Við feðgar vorum ekki alltaf sam- mála en skildum ávallt sáttir. Fað- irinn nýtti stað og stund til að und- irbúa soninn undir lífið. Lagður var grunnur að vináttu og um- hyggju sem aldrei bar skugga á. Í dag leitar hugurinn aftur upp á Stekk til þeirra stunda sem við áttum þar. Þau hughrif sem sam- spil náttúru og lands bauð upp á og við feðgar gátum ekki fangað í orð hefur skáldið fært í búning í ljóðinu Vorvísur úr Dýrafirði. Eitt erindi úr ljóðinu verður hinsta kveðja sonar til föður. Yfir firði, túni og teigi töfrakyrrð í nótt er vís. Fegra logn þú finnur eigi fyrr en þá í Paradís. (Guðm. Ingi Kristjánsson) Angantýr Valur Jónasson. Við Jónas vorum kvæntir systr- um, Jónas Nönnu og ég Doddu. Fjölskylduböndin hafa alla tíð ver- ið sterk þar sem tengdaforeldrar okkar, Ingunn og Magnús Amlín, voru miðpunkturinn. Jónas og Nanna bjuggu ofan við götuna en tengdaforeldrar okkar fyrir neðan götuna og samgangurinn var mik- ill. Þegar við komum í heimsókn til Þingeyrar var farið á milli húsa eins og allt væri þetta sama heim- ilið og í minningunni lifa margar ánægjulegar samverustundir frá þeim tímum. Þá minnist ég fjöl- margra ferða sem við fórum sam- an, út með Dýrafirði, um Vestfirði og landið allt. Ég var oftast við stýrið en Jónas með kíkinn í hönd- unum horfandi upp um hlíðar í leit að vænu fé. Jónas og Nanna byggðu hús á Þingeyri og sköpuðu sér og börn- unum fimm fallegt heimili. Þau sýndu og sönnuðu að garðrækt á Þingeyri var vel möguleg og rækt- uðu í sameiningu upp fallegan garð þar sem við nutum svo oft góðra stunda í sól og blíðu. Þau voru af þeirri kynslóð þeg- ar sjálfsagt þótti að konan væri heima og sinnti börnum og búi en karlinn væri fyrirvinnan og sæi um aðdrætti til heimilisins. Þegar hann kom heim í hádeginu beið hans heitur matur og eftir matinn var séð til þess að hann fengi að kasta sér út af smástund sér til hvíldar. Þrátt fyrir að Jónas hafi ekki komið að eldhúsverkum svo einhverju nemi náði hann á efri ár- um nokkurri færni við að elda hafragraut og sjóða kartöflur að eigin sögn. Jónas var frístundabóndi til margra ára og stundaði sauðfjár- rækt. Hann hafði mikla unun af því að vinna að kynbótum á fjár- stofni sínum og hafði þar góðan árangur eftir því sem mér er sagt. Ég er langt frá því að vera fróður á þessu sviði en get þó fullyrt að lambakjöt sem barst frá búi Jón- asar inn á heimili mitt þótti bera af öðru kjöti í alla staði. Þó sauðfjár- ræktin hafi ekki bundið okkur saman áttum við Jónas ýmis sam- eiginleg áhugamál og má þar nefna gleðistundir við laxveiðar og við spilaborðið þar sem við spil- uðum bridge bæði sem mótherjar og makkerar. Jónas var snyrtimenni fram í fingurgóma og eitt af því sem ég lærði af honum var að ódýrasta og arðbærasta fjárfesting sem menn gætu farið í væri að huga að um- hverfinu og hafa snyrtilegt í kringum sig. Á þeim 25 árum sem Jónas var sveitarstjóri tók Þing- eyri stakkaskiptum, götur voru bundnar slitlagi, gangstéttar lagð- ar, blóm og tré gróðursett og göm- ul skúrræksni rifin. Þeir sem ferð- uðust um Vestfirði tóku eftir að Þingeyri bar af öðrum byggðar- lögum hvað snyrtimennsku varð- aði. Þar var allt svo hreint og fínt að hægt var að fara um þorpið á sokkaleistunum. Á síðustu árum sínum sem sveitarstjóri stóð Jónas fyrir byggingu sundlaugar og íþrótta- húss á Þingeyri. Þessar byggingar verða minnisvarði hans um ókomna tíð og veita íbúum Þing- eyrar og gestum ómælda gleði og lífsfyllingu. Nú þegar samvistum okkar Jónasar er lokið að sinni kveð ég svila minn með virðingu, þökk og söknuð í hjarta, góður drengur hefur lokið göngu sinni hér á jörðu. Minni góðu mágkonu Nönnu, börnum hennar og fjölskyldum þeirra sendum við Dodda og fjöl- skylda okkar innilegar samúðar- kveðjur. Kristján Haraldsson. Jónas Ólafsson Elsku Villi. Margar minning- ar renna í gegnum huga minn þessa stundina, elsku frændi, allt frá því við vorum smá pjakkar á Garða- veginum yfir í að vera algerir ræktardurgar á Álftanesinu. Við byrjuðum ungir að hanga saman þrátt fyrir fjögurra ára ald- ursmun, en það truflaði okkur aldrei og ekki annað hægt en að brosa yfir öllum okkar uppátækj- um. Þú varst alltaf til staðar þegar maður þurfti á að halda og ef manni leið illa varst þú fyrsti mað- urinn til að rífa mann upp. Þú áttir stóran þátt í að draga mig í hluti sem voru langt út fyrir minn þægindaramma og hluti af því var að sprauta á mann ísköldu vatni á morgnana til að draga mann af stað í ræktina, en það fylgir víst því að eiga frænda sem er einkaþjálfari. Oft gat ég ekki annað en litið upp til þín, litli frændi, og vonast til að ég næði einhvertíma þessum Vilhjálmur Árni Sveinsson ✝ VilhjálmurÁrni Sveinsson fæddist 30. janúar 1985. Hann lést 10. apríl 2016. Vilhjálmur Árni var jarðsunginn 28. apríl 2016. styrk og sjálfsaga sem þú bjóst yfir og tala nú ekki um þessa þvílíku orku sem þú hafðir. Fótbolti, tölvu- leikir og ræktin voru okkar helstu áhuga- mál saman og þegar ég náði að rífa þig af stað í golfið var það fljótt að bætast við. Þau voru ófá höggin sem voru tekin á vellinum og ekki leið á löngu áður en þú náðir holu í höggi eftir aðeins nokkra leiki. Þegar ég heyrði í þér síðast þá varst þú búinn að ákveða að kíkja heim á klakann og við búnir að plana í sameiningu að rífa í lóðin og kíkja á alla okkar sveittu mat- sölustaði saman en þeir voru ófáir sem við hentumst á eftir góðar æf- ingar. Það var alltaf nóg að gera hjá okkur og gleðin virtist alltaf í há- marki. Sú tilhugsun að þú sért ekki lengur á meðal okkar er ein sú versta og minningarnar okkar eiga alltaf eftir að eiga stóran stað í mínu hjarta. Ég er svo þakklátur fyrir þenn- an tíma sem við áttum saman, og þó við værum frændur þá varst þú minn besti vinur. Hjalti Snær Heiðarsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, YNGVA HREINS JÓHANNSSONAR málarameistara, Hólastekk 3. . Elíane Hommersand Þorláksdóttir Eva Yngvadóttir Sigurjón Sigurjónsson Jóhann Yngvason Jakob Yngvason Erla G. Sigurðardóttir Lárus Yngvason Dröfn Gunnarsdóttir barnabörn Ástkær eiginmaður minn og faðir, HJÖRTUR JAKOBSSON vörubílstjóri, Hraunbæ 150, sem lést á Landspítalanum Hringbraut þann 27. apríl, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 9. maí klukkan 13. . Auður Gunnarsdóttir, Ásta Rut Hjartardóttir. Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VALDIMAR K. JÓNSSON, prófessor emeritus, Kirkjusandi 3, lést á Landspítalanum 5. maí síðastliðinn. Útför verður frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. maí kl. 13. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á hjartadeild Landspítalans. . Þyrí Valdimarsdóttir Eggert Eggertsson Örn Valdimarsson Guðbjörg M. Sigtryggsd. Vilborg Erla Valdimarsd. Sigurður Sigurðsson Jón Rafn Valdimarsson Elín Rósa Guðmundsd. barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, AXEL VALDIMAR ERLINGSSON BANG, Skjólbraut 1a, lést á heimili sínu 1. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 13. Aðstandendur vilja koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem komu að umönnun Axels í veikindum hans. . Dagný Karlsdóttir Erling Bang Karl Erlingsson Doris Róbertsdóttir Gunnar Erlingsson Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR ÓLAFUR EINAR JÓNSSON, Suðurlandsbraut 66, lést 10. apríl síðastliðinn. Bálförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Jóna M. Ólafsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson, Heimir Ólafsson, Halldór Ólafsson, Bozena Wrzesinska, Þórstína S. Ólafsdóttir, Jóhann Zakarías Karlsson, Eyrún O. Ólafsdóttir, Reynir Georgsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, bróðir og faðir, VIKTOR GEIR VALMUNDSSON, Norðurgötu 47, Akureyri, lést 26. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 12. maí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á SÁÁ, samtök um áfengis- og vímuefnavanda. . Valmundur Einarsson, Elsa Pálmey Pálmadóttir, Pálmi Rafn Eiríksson, Einar Karl Valmundsson, Halla Valey Valmundsdóttir, Elsa Bjarney Viktorsdóttir, Sigurgeir Bessi Viktorsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.