Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 ÚRSLITALEIKIR #olisdeildin GRÓTTA – STJARNAN Laugard. 7. maí kl. 16.00 Hertz-höllin Mánud. 9. maí kl. 19.30 TM-höllin HAUKAR – AFTURELDING Sunnud. 8. maí kl. 16.00 Schenker-höllin Miðvikud. 11. maí kl. 19.30 N1-höllin VIÐ ÞURFUM ÞIG Á VÖLLINN! Hvaða máli skiptir vistvottun? Opið málþing um lífsgæði í sátt við náttúruna. Þriðjudaginn 10. maí frá kl. 15.30 til 17.00 í húsi Náttúrufræðistofnunar Íslands. Allir velkomir. Dagskrá og upplýsingar á urridaholt.is Valdimar K. Jónsson, vélaverkfræðingur og fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands, lést 5. maí á hjartadeild Landspítalans. Valdimar fæddist í Hnífsdal hinn 20. ágúst 1934, sonur hjónanna Jóns Kristjánssonar trésmíðameistara og Þorbjargar Valdimars- dóttur húsmóður. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1954, lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1957, prófi í véla- verkfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole 1960 og Ph. D. frá Univers- ity of Minnesota 1965. Hann hóf starfsferil sinn hjá Regnecentralen í Kaupmannahöfn og hjá Raforku- málaskrifstofunni í Reykjavík 1960 en sama ár varð hann aðstoðarkenn- ari hjá University of Minnesota. Ár- ið 1965 gegndi hann stöðu lektors við Imperial College of Science and Technology í London. Árið 1969 varð hann prófessor við Pennsylv- ania State University í Bandaríkj- unum til 1972 þegar hann tók við starfi prófessors við Verkfræði- og raunvísindadeild Háskóla Íslands sem hann gegndi þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 2004. Valdimar var formaður Bandalags háskólamanna 1978 til 1982 og einn- ig formaður Veitu- stofnana Reykjavík- urborgar sömu ár. Valdimar var forseti verkfræðideildar HÍ og í Háskólaráði 1985 til 1989. Hann sinnti ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Fram- sóknarflokkinn m.a. sem varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1978 til 1982 og kom að stofn- un Reykjavíkurlistans 1994. Valdimar hafði umsjón með kælingu hraunsins í Heimaey árið 1973. Hann kom að stofnun Endurmenntunar Háskóla Íslands 1983 og var einnig formaður byggingarnefnda Félagsstofnunar stúdenta um nýja hjónagarða og nýja stúdentahverfisins við Eggerts- götu. Á eftirlaunaárum sínum tók Valdimar þátt í ýmsum nýsköpunar- verkefnum. Valdimar var kjörinn heiðursdoktor frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð árið 1998 og sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálka- orðu 2002. Valdimar var kvæntur Guðrúnu Sigmundsdóttur, sem lést fyrir fjór- um árum. Þau eignuðust fjögur börn: Þyrí matvælafræðing, Örn við- skiptafræðing, Vilborgu Erlu lyfja- tækni og Jón Rafn fasteignasala. Barnabörnin eru 12 og barnabarna- börn 16. Andlát Valdimar K. Jónsson Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Heimildir herma að á Esjubergi á Kjalarnesi hafi staðið kirkja fyrir kristnitöku, um árið 900. Á morgun, sunnudag, verður hald- in þar helgistund og fyrsta skóflustungan tekin að útialtari sem verður austan við bæinn Esjuberg. Til stendur að nota altarið við helgihald og ýmsar athafnir eins og t.d. skírnir og brúðkaup. Útialtarið verður vænt grettis- tak, sem sótt verður í Esjubergs- námurnar. Hlaðið verður með grjóti og torfi í kring um það og upp úr því mun síðan rísa keltn- eskur kross. Sigurborg Haralds- dóttir landslagsarkitekt hannaði altarið eftir hugmynd sr. Gunn- þórs Þ. Ingasonar, sérþjónustu- prests helgihalds og þjóðmenn- ingar, og mun hann stýra helgi- stundinni. Steini hafði forgöngu í málinu Sögufélagið Steini á Kjalarnesi hefur haft forgöngu í þessu máli og hyggst félagið einnig koma upp söguskilti við Esjuberg. Á vefsíðunni kjalarnes.is segir að ekki sé vitað hvar í landi Esju- bergs kirkjan hafi staðið og lík- legt sé að skriðuföll hafi spillt vegsummerkjum eftir hana. Einn- ig sé getið um kirkju á Esjubergi í Kjalnesingasögu frá 13. öld Fornleifarannsókn var gerð ár- ið 1981 á þeim stað á Esjubergi þar sem talið var að kirkja hefði staðið og kirkjugarður. Ekkert fannst sem gat staðfest að kirkja hefði staðið á þeim stað. Þrátt fyrir að áþreifanleg um- merki um kirkju á Esjubergi hafi ekki enn fundist þar hafa Kjal- nesingar hin síðari ár haft um hönd helgihald á staðnum í júní- mánuði ár hvert. Þær Þórhildur Ólafs, prófastur Kjalarnesprófastdæmis, Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ásamt formanni sóknarnefndar Brautarholtssóknar, fermingar- barni og fulltrúa Sögufélagsins Steina, munu taka þessa fyrstu skóflustungu sem verður kl 14. Ljósmynd/Hreinn S. Hákonarson Útialtari Stjórn Sögufélagsins Steina mælir fyrir útialtarinu, en fyrsta skóflustunga þess verður tekin á morgun. Grettistak verður altari  Reisa útialtari á Esjubergi þar sem kirkja stóð til forna  Verður notað við kristið helgihald, giftingar og skírnir Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt móður í tveggja ára skilorðs- bundið fangelsi fyrir að hafa beitt börn sín líkamlegu ofbeldi og fyrir að hafa sagt ungri dóttur sinni „að halda kjafti“. Var konan m.a. fund- inn sek um að hafa slegið dóttur sína í líkamann og gefið syni sínum kinn- hest, en hún réttlætti framkomu sína með því að benda á óviðunandi hegð- un barna sinna. Málið komst til kasta lögreglu eft- ir að barnaverndarnefnd barst nafn- laus tilkynning um átök milli móð- urinnar og dóttur hennar. Fram kom í tilkynningunni að ástandið á heim- ilinu væri erfitt og að móðirin beitti líkamlegu og andlegu ofbeldi. Þá sagði einnig að mikil drykkja væri á heimilinu. Þegar teknar voru skýrslur af börnunum sögðu þau frá ofbeldisatvikum af hendi móður sinnar, en héraðsdómur sýknaði konuna af þremur ákæruliðum af átta. Ákærða var dæmd til að greiða dóttur sinni 200.000 krónur í miska- bætur og syni sínum 100.000 krónur. Börn beitt ofbeldi  Sakfelld eftir nafnlausa tilkynningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.