Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Margs konar öryggisvörur og lásar fást í úrvali hjá Vélum og verkfærum. Master Lock 4401EURDL hengilás fyrir bluetooth Hægt er að miðla aðgangskóða í gegnum frítt app og fylgjast með aðgangi. Verð: 17.670 kr. YALE lyklageymslu- box með takkalás Verð: 4.278 kr. Öryggi í sumarbústaðnum Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is H jónin Orri Jónsson ljósmyndari og Þór- dís Eyvör Valdimars- dóttir framhalds- skólakennari hafa dvalið ásamt fjórum börnum sínum og grískum tengdasyni í litlu fjalla- þorpi í suðurhluta Mexíkó síðan í byrjun febrúar. Þau una sér ljóm- andi vel, hafa nóg fyrir sig og njóta lífsins og samverunnar í fögrum fjallshlíðum Oaxaca-héraðs. Dvölin í þorpinu er þó ekki af- slöppun í venjulegum skilningi, held- ur fjögurra mánaða fjölskylduverk- efni sem snýst um að stunda sjálfs- nám utan hins hefðbundna skóla- kerfis. Foreldrarnir, frumburðurinn Eyja, sem er tvítug, Vasilis, grískur kærasti hennar á sama aldri, elsti sonurinn Kári, 18 ára, og litlu dreng- irnir Flóki og Þorri, 8 og 6 ára, taka öll þátt í verkefninu. „Við verjum dögunum í skap- andi nám, sem felur meðal annars í sér að skrifa sögur og ljóð, teikna og mála, taka ljósmyndir og vídeó, hug- leiða, matreiða, semja tónlist, spila á hljóðfæri og næra bæði huga og hönd með margvíslegum hætti. Við reynum að einfalda líf okkar, fá út- rás í sköpunargleðinni og rækta áhugamálin,“ segir Orri. Gæðastundirnar og nándin Á kvöldin er spjallað saman, sjónvarpið víðs fjarri og tölvu- afþreying ekki í boði. Gæðastund- irnar eru margar og nándin mikil. Undirtónn verkefnisins er þó alvar- legur og markmiðin skýr. Í bígerð er að afrakstur dvalarinnar líti dagsins ljós sem bókverk með ljósmyndum, teikningum, textabrotum, dagbók- arfærslum og ljóðum. Mögulega mun fjölskyldan einnig vinna stutta heimildarmynd um ferlið enda hafa þau verið meðvituð um að skrásetja dvölina á myndband. Mengi er samstarfsaðili og verndari verkefnisins, en þar á bæ var hugmyndinni tekið fagnandi þegar Orri viðraði hana við stofn- anda og starfsmenn listhússins. „Praktíska hliðin er aðallega í hönd- um Mengis. Verkefnið, sem fékk nafnið Nám í nýju ljósi, hverfist um áleitnar spurningar, einkum þær sem lúta að menntun, til dæmis af- leiðingar ósveigjanleika skólakerfis sem hefur jafnvel hrakið hæfi- leikaríka og skapandi nemendur frá námi,“ segir Orri. Þótt Þórdís hafi alla tíð verið ánægð í starfi sínu sem kennari tek- ur hún í sama streng. Hún er flest- um hnútum kunnug, hefur kennt á þremur skólastigum; í leikskóla, grunnskóla og menntaskóla. „Skóla- kerfið umbunar þægum nemendum og þeir sem hugsa út fyrir kassann eiga því oft undir högg að sækja. Þótt kennarar séu allir af vilja gerð- ir eru þeir bundnir af þröngri nám- skrá og tímaramma. Forvitnir og skapandi nemendur hafa fá tæki- færi til að kryfja hlutina til mergj- ar.“ Hugmynd verður veruleiki Menntun og skólamál hafa allt- af verið Þórdísi og Orra hugleikin, enda foreldrar beggja kennarar. Þau hjónin höfðu rætt árum saman sín á milli um takmarkanir skóla- kerfisins á öllum stigum og velt upp hugmyndum um hentugar náms- aðferðir. Þegar sú staða kom upp sl. áramót að feðgarnir Orri og Kári væru báðir að gefast upp á sínu skólanámi ákvað fjölskyldan að reyna að sjá tækifæri í krísunni. „Við höfðum búið í Toronto í Kanada í eitt og hálft ár með yngri sonunum tveimur þegar við ákváð- um að hrinda hugmyndinni í fram- kvæmd. Eyja hafði lokið námi á Ís- landi og var að vinna, Kári hafði komið með okkur út, en honum leiddist og fluttist aftur til Íslands. Sjálfur var ég í meistaranámi í heim- ildarmyndagerð, en korter í útskrift tókum við flugið til Mexíkó með fátt annað en hugmyndina í farteskinu. Þar sameinaðist fjölskyldan og tók til óspilltra málanna við verkefnið,“ segir Orri. Þórdís bætir við að inn í ákvörð- unina hafi líka spilað að þau vildu vera saman á friðsælum stað fjarri neyslusamfélaginu og læra með börnunum áður en þau færu hvert í sína áttina. Orri lét meistaranámið lönd og Fjölskylduverkefnið Nám í nýju ljósi Sjö manna fjölskylda fór til fjögurra mánaða dvalar í litlu fjallaþorpi í Mexíkó til að vinna í sameiningu að verkefni sem hverfist um sjálfsnám utan hins hefð- bundna skólakerfis. Í bígerð er að afraksturinn líti dagsins ljós sem bókverk með ljósmyndum, teikningum, textabrotum, dagbókarfærslum og hugsanlega heim- ildarmynd um ferlið. Ein hugmynd kviknar af annarri um nýstárleg námsgögn og námsaðferðir en markmiðið er að allir fái notið sín á eigin forsendum. Vasilis og bræðurnir Flóki og Þorri semja smell. Þorri finnur eðlu. Orri vinnur að ljósmyndabók. Bókasafn Reykjanesbæjar lætur ekki sitt eftir liggja í hátíðahöld- unum í tilefni Listahátíðar barnanna í Reykjanesbæ sem sett var með pompi og prakt í vikunni, ellefta árið í röð. Í Átthag- astofu safnsins hefur verið sett upp sýningin Þetta vilja börnin sjá!, sem er farandsýning Borgarbóka- safnsins með fyrsta stoppi í Reykjanesbæ. Sýningin verður opn- uð kl. 11.30 í dag, laugardag. Á sýning- unni eru myndskreytingar úr íslensk- um barnabókum sem gefnar voru út í fyrra. Hálftíma áður en sýningin verður formlega opnuð býður Anna Margrét jógakennari gestum og gangandi upp á fjölskyldujóga þar sem hún leiðir þá í gegnum skemmtilegar æfingar, öndun og slökun. Allir leik- og grunnskólar í Reykjanesbæ fá boð á sýninguna, sem stendur í sex vikur í bókasafninu. Börnunum í bænum ætti ekki að leiðast í dag því af nógu er að taka til að gleðja geð þeirra í tengslum við listahátíðina, t.d. múffuskreytinga- smiðja, brúðugerð, tröllasmiðja, and- litsmálunarsmiðja og þrykksmiðja. Bókasafn Reykjanesbæjar tekur þátt í Listahátíð barnanna Þetta vilja börnin sjá í sex vikur 2015 Á sýningunni eru myndir úr ís- lenskum barnabók- um frá í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.