Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 37
leyndi sér ekki að hjartað sló fyrir fjölskylduna og þar voru dýrmætin. Frá samverunni í Wash- ington D.C. forðum varð til taug sem ekki rofnaði. Því mið- ur komu búseta í mismunandi löndum og hversdagslegar ann- ir í veg fyrir tíða fundi okkar í milli en alltaf var gaman að hittast á förnum vegi og minn- ast gamalla tíma og segja frá hvað hefði á dagana drifið. Með þessum orðum kveðjum við kæra vinkonu og þökkum henni samfylgdina, hvatningu og góð ráð. Við vottum Helga, börnum, tengdabörnum, barna- börnum og fjölskyldunni allri, okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Hervarar Jónasdótt- ur. Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir og Finnur Magnússon. Þegar fréttin um skyndilegt andlát Hebu barst vinum henn- ar var það þeim mikið áfall. Hún sem geislaði af orku og lífsgleði varð að lúta í lægra haldi fyrir bráðum sjúkdómi sem ekki gerði boð á undan sér svo nokkru næmi. Hún var eftirminnileg mann- eskja, hlý og jákvæð, skemmti- legur og hjálpsamur dugnaðar- forkur, ljóðelsk og söngvin ræðukona. Falleg. Sannur vin- ur vina sinna. Hún var glæsilegur fulltrúi Íslands víða um lönd í áratugi og tók á sinn fágaða og glað- lega hátt á móti þúsundum er- lendra gesta og kynnti Ísland. Sendiherrahjónin Heba og Helgi voru alla tíð í íslensku utanríkisþjónustunni fyrir- myndir. Samvinnu þeirra og sam- hljómi í störfum bar hvergi skugga á. Aðdáunarverð teym- isvinna þeirra var öllum sem kynntust þeim ljós. Oft var álagið mikið og vinnutíminn langur, t.d. á ráðuneytisstjóra- árunum. Þá var hið jákvæða lífsviðhorf Hebu ábyggilega gulls ígildi. Missir Helga er þungbær. Ættmóðirin Heba var afkom- endum þeirra Helga stoð og stytta í hvívetna og stolt var hún af þeim og samfagnaði innilega við áfanga og sigra í lífi þeirra. Við þessi sorglegu tímamót er ótal góðra stunda að minnast í starfi og leik. Ferðir um sveit- ir Íslands, heimsóknir að Iðu og svo margar gagnkvæmar heimsóknir á starfsstöðvum víða erlendis. Við vorum t.d. um tíma öll staðsett í N-Am- eríku og áttum gleði- og starfs- stundir saman í N.Y., Wash- ington, Norður-Dakóta og Manitoba. Ljúfar minningar koma í huga frá Jazzhátíðinni í Cle- arwater í Flórída. Dýrmætar minningar sem ná yfir áratugi tengjast kvennahópnum Lell- unum þar sem Heba var sterk- ur hlekkur í vinakeðjunni. Elsku Helgi. Við sendum þér, börnunum og fjölskyldunni allri innilegustu samúðarkveðj- ur héðan frá Winnipeg. Megi minningarnar um dásamlega konu ylja ykkur um ókomin ár og gefa ykkur styrk. Guð blessi minningu hennar. Anna Birgis og Hjálmar W. Hannesson. Lífsglaðari og jákvæðari manneskju en Hebu hef ég aldrei kynnst. Kynni okkar tók- ust fyrir rúmum níu árum síðan – þegar ég hóf störf hjá Lyfja- stofnun. Þar á bæ hreif Heba alla með sér og smitaði af glaðværð og elsku. Fas hennar, glæsileiki og viðmót var einstakt og hún tók á móti gestum og viðskipta- vinum Lyfjastofnunar – háum sem lágum – með svo höfð- inglegri framkomu að þeir komu hrærðir inn á fundi. Þeg- ar Heba var á vaktinni var allt- af búið að opna löngu fyrir aug- lýstan opnunartíma og á dimmum vetrarmorgnum var unun að mæta til starfa því ávallt var Heba búin að kveikja á kertum og sjá til þess að huggulegheit og hlýja umvefði samstarfsfólkið. Hún bar virðingu fyrir starfi sínu og samferðafólki svo eftir því var tekið. Að sama skapi þótti öllum hún bera af. Að fá fallega brosið hennar og fallega fram bornu kveðjuna „Góðan daginn“ var eitt af því sem ég saknaði mest þegar ég hætti hjá Lyfjastofnun. Atvikin höguðu því svo til að ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að hitta Hebu marga fleiri morgna. Þegar ég var í þeim sporum síðastliðið haust að taka að mér annasamt starf, þá þurfti ég að finna góða konu til að gæta yngsta barns okkar hjóna vegna langvarandi veik- inda þess. Mér varð að sjálfsögðu hugs- að til Hebu, því betri konu vissi ég að væri ekki hægt að finna. Ég hitti hana fyrir á miklum hátíðisdegi – stórfjölskyldan var samankomin og dóttir hennar á leið með að ganga í hjónaband. Heba bað um klukkustundarfrest en eftir 20 mínútur var hún búin að segja já – hún væri meira en til í að koma og passa hana Lilju mína. Í hönd fór stórkostlegur vetur. Ég og aðrir heimilismenn gát- um farið áhyggjulaus út hvern einasta morgun því Heba var mætt – og það leið ekki á löngu þar til ekki var um hana talað á heimilinu með öðrum hætti en sem „ömmu Hebu“. Ég undirbjó Lilju að sjálf- sögðu með því að segja henni að amma Heba hefði hitt prins- essur og drottningar þegar hún var með afa Helga úti í heimi, Díönu og Elísabetu og margar fleiri. Við tóku ævintýralegir dagar í Grundarlandinu og þegar heim var komið að kvöldi dags hafði greinilega margt á dag- ana drifið í playmo-höllum og búningakistum heimilisins, að ekki sé talað um öll límmið- akaupin. Fyrir mig voru þær dýrmæt- ar morgunstundirnar þegar ég gat setið með Hebu og spjallað. Þannig fylgdist ég með Hebu og allri hennar fjölskyldu – allt- af var eitthvað skemmtilegt í gangi – boð, sýningar og uppá- komur. Síðan var það góð- gerðavaktin hjá Hvítabandinu – og alltaf stóð Helgi við hennar hlið. Það var farið að vora. Heba var farin að hoppa á trampólíni í garðinum með Lilju og var svo á leið norður langa helgi í fermingu. Við fengum ekki að sjá hana aftur. Söknuðurinn er svo sár þeg- ar svona fljótt er kvatt. Ég sakna góðrar konu, góðrar nærveru og glæsilegrar fyrir- myndar. Elsku Helgi, við Teddi, Lilja, Auður Katarína og Kolbeinn sendum þér og allri fjölskyld- unni okkar innilegustu og dýpstu samúðarkveðjur á þess- um erfiða tíma, með einlægu þakklæti fyrir að fá að kynnast svo vel og minnast nú um alla tíð elsku ömmu Hebu. Helga Þórisdóttir. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 ✝ Ólafur ÁrniThorarensen fæddist á Siglufirði 23. ágúst 1922. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Fjallabyggðar, Siglufirði, 12. apríl 2016. Foreldrar hans voru Hinrik Thor- arensen læknir, f. 15. september 1893 á Akureyri, d. 26. desember 1986, og Svanlaug Margrét Ólafsdóttir Thorarensen stúd- ent, f. 19. febrúar 1896 á Stokks- eyri, d. 6. nóvember 1950. Bræð- ur Ólafs voru Oddur Carl, lögfræðingur og bíóeigandi, f. 12.2. 1920, d. 25.5. 2015, Ragn- ar, doktor í rafmagnsverkfræði, f. 5.2. 1921, d. 3.3. 2011 í Santa Barbara í Kaliforníu og Hinrik, viðskiptafræðingur og versl- unareigandi, f. 20.2. 1927, d. 21.9. 2010. Hálfsystir þeirra samfeðra er Stella Klara Thor- arensen Bohnsack stúdent, f. 8.2. 1938, nú búsett í Freder- icton í Kanada. 2004. Þau eru öll búsett í Kópa- vogi. Ólafur Árni, eða Óli Thor eins og hann var kallaður af flestum, eyddi sínum bernskuárum á Siglufirði og Akureyri. Hinrik faðir hans var læknir á Siglu- firði og umfangsmikill í við- skiptum þar. Á sumrin dvöldu Óli og bræður hans á Siglufirði en sóttu skóla á veturna á Ak- ureyri. Óli útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1942 og hélt svo það sumar vestur til Bandaríkj- anna þar sem hann lagði stund á viðskiptafræði við Berkeley- háskóla í Kaliforníu þaðan sem hann útskrifaðist 1944. Að námi loknu sneri hann aftur heim til æskustöðvanna á Siglufirði og rak þar bíó og verslun ásamt Oddi bróður sínum til fjölda ára. Síðar skiptu þeir eignunum á milli sín þannig að Óli rak búð- ina en Oddur bíóið. Búðin var líf og yndi Óla og hana rak hann með hléum til ársins 1985 þegar hann settist í helgan stein og flutti til Kanaríeyja. Þar bjó hann til ársins 2008 þegar hann sneri aftur heim til Siglufjarðar. Síðustu árin dvaldi Óli á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggð- ar á Siglufirði. Útför Ólafs Árna fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 7. maí 2016, klukkan 14. Ólafur giftist þann 12. febrúar 1960 Giselu Gerdu Edith Dahm, f. 16.6. 1938, síðar framkvæmdastjóri í Berlín. Þau skildu 1968. Synir þeirra eru: 1) Ólaf- ur Árni tann- læknir, f. 5.9. 1961, verkefna- stjóri á St. Olavs sjúkrahúsinu í Þrándheimi í Noregi. Dóttir hans er Snædís Thorarensen, f. 8.5. 1991. Móðir hennar er Sædís Númadóttir, f. 6.11. 1963. Eiginmaður Snædís- ar er Jeromy Thorarensen, f. 6.5. 1982, framhaldsskólakenn- ari. Þeirra börn eru Melkorka, f. 12.11. 2011, og Jórunn, f. 15.4. 2014, öll búsett í Spokane í Bandaríkjunum. 2) Ragnar, land- og viðskiptafræðingur MBA, f. 7.1. 1965, starfar hjá Þjóðskrá Íslands. Hans kona er Sigríður Axelsdóttir tann- læknir, f. 30.7. 1964. Þeirra börn eru Ólöf, f. 3.2. 1997, Þórunn, f. 11.4. 2000, og Kristín, f. 6.3. Pabbi var ánægður með líf sitt. Svo ánægður að hann sagðist engu myndi breyta ef hann fengi að lifa því aftur. Svo ánægður að hann vildi verða 100 ára. Það gekk ekki alveg eftir en nálægt því var hann. Pabbi var um fjögurra ára gamall þegar hann lamaðist vinstra megin í líkamanum. Aldrei hefur verið staðfest hvort um var að ræða heilablæðingu eða lömun- arveiki sem þó er líklegra. Pabbi var sendur til Kaupmannahafnar og varð að liggja þar hreyfingar- lítill í heilt ár. Það var meðferð þess tíma og pabba ákaflega erfið. Þegar pabbi kom heim aftur hófst hinn eiginlega meðferð, hreyfing. Pabbi var duglegur að ganga allt sitt líf og líklega hefur það verið uppskriftin að löngu og heilsuríku lífi hans. Ungdómsár pabba voru skemmtileg, sérstak- lega sumrin þegar hann og bræð- ur hans dvöldu á Siglufirði við leik og störf. Þá iðaði Siglufjörður af mann- lífi og faðir þeirra Hinrik var stór- tækur í viðskiptum og þeir bræð- ur höfðu því í nógu að snúast. Pabbi útskrifaðist sem stúdent frá MA 1942. Hann fór þá vestur til Kaliforníu þar sem hann nam viðskiptafræði við Berkeley-há- skólann þaðan sem hann útskrif- aðist 1944. Að námi loknu settist pabbi að á Siglufirði þar sem hann og Oddur bróðir hans tóku við rekstri fyrirtækja föður þeirra. Samstarf þeirra bræðra gekk mjög vel en svo fór að pabba líkaði betur í búðinni og Oddi í bíóinu. Þeir skiptu því eignunum á milli sín. Pabbi hafði yndi af verslun- inni. Hann ferðaðist víða um heim til þess að kaupa inn vörur en mest keypti hann beint frá Lond- on og New York. Í einni innkaupa- ferðinni sem var heitið til Ítalíu 1959 kom pabbi við í Berlín. Þar hitti hann unga blómarós, mömmu, og þau felldu hugi sam- an. Hjónaband pabba og mömmu var stormasamt enda voru þau mjög ólík að skapgerð og aldurs- munurinn 16 ár. Þau skildu 1968 og mamma fór aftur til Berlínar. Pabbi vildi ekki missa okkur bræðurna til mömmu þannig að hann stakk af með okkur til Kan- aríeyja þar sem við vorum í felum í rúmlega þrjú ár. Við komum heim 1971 og eftir ársdvöl í Reykjavík fórum við til Siglufjarðar og pabbi byrjaði aftur með búðina. Þegar við bræðurnir vorum komnir suð- ur í háskólanám ákvað pabbi að loka búðinni endanlega og flytja aftur til Kanarí. Þar bjó hann næstu 23 árin og undi hag sínum vel. Árið 2008 flutti pabbi aftur heim til Íslands. Þá var orðið of erfitt fyrir hann að hugsa um sig sjálfur. Eftir stutta viðkomu í Hveragerði flutti hann aftur til Siglufjarðar. Í fáein ár eftir að pabbi kom aftur norður ferðaðist hann um bæinn á rafskutlu enda voru fæturnir búnir að gefa sig. Pabbi hafði mikið yndi af rafskutl- unni og sagði að hún veitti honum mikið frelsi. En svo kom að því að henni var líka lagt. Pabba leið af- skaplega vel á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar þar sem hann dvaldi síð- ustu árin. Hann fékk þar þá bestu umönnun sem hann gat hugsað sér. Pabbi gerði aldrei miklar kröfur til lífsins, sennilega bara eina, að fá að lifa því. Í mínum huga var pabbi ótrúlega seigur karl. Hann ól okkur bræðurna upp einn síns liðs og gerði það eins vel og hann gat. Pabba þótti óskap- lega vænt um okkur bræðurna og sagði oft að hans barómeter sveifl- aðist í takt við okkar. Ef okkur liði vel þá liði honum vel. Þannig var pabbi. Ragnar Thorarensen. Elsku Óli frændi Takk fyrir að taka alltaf svona vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn. Ætíð svo hláturmildur og glaðvær. Takk fyrir að segja okkur sögur af Svanlaugu lang- ömmu og Hinriki langafa og frá ykkur bræðrum þegar þið voruð smástrákar. Núna eruð þið sam- an, fjölskyldan. Hvíl í friði, elsku Óli frændi, mér þótti svo vænt um þig. Sara Hauksdóttir. Ólafur föðurbróðir minn, eða Óli frændi eins og ég kallaði hann alltaf, er látinn tæplega 94 ára að aldri. Hann er síðastur fjögurra bræðra til að kveðja. Óli frændi var búsettur á Kanaríeyjum um árabil. Foreldr- ar mínir heimsóttu hann oft þang- að og áttu með honum góðar stundir, en Óli og þau voru miklir mátar. Þegar Óli var um áttrætt flutti hann heim og fór fljótlega norður á Siglufjörð þar sem hann undi hag sínum vel. Er við áttum leið norður í Fljót var það ávallt tilhlökkunarefni að koma til Sigló og heimsækja Óla frænda. Hann tók alltaf vel á móti okkur enda einstaklega lífsglaður og hláturmildur. Óli var einkar húmorískur og alltaf var stutt í spaugið og mikið hlegið. Hann var fróður um liðna tíð og ég hafði yndi af að fræðast um líf ömmu og afa og bræðranna þegar þeir voru að alast upp. Með- an heilsan leyfði ferðaðist Óli um á rafskutlu og þá sáum við hann gjarna tilsýndar á ferð um bæinn. Síðustu árin dvaldi Óli á Sjúkra- húsinu á Siglufirði þar sem hann fékk góða umönnun sem hann var þakklátur fyrir. Óla, Ragnari og fjölskyldum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ég minnist Óla frænda með virðingu og hlýhug. Guð blessi minningu hans. Svanlaug. Látinn er Ólafur Thorarensen, eða Óli Thor eins og flestir kölluðu hann. Óli og Oddur bróðir hans ráku fjölskyldufyrirtæki á Siglu- firði, Óli sá aðallega um verslunina en Oddur um bíóið. Bæði börn og fullorðnir þekktu Óla vel því hann var skrafhreifinn og átti gott með að umgangast fólk. Hann var líka forvitinn og lét sig varða um náungann. Árið 1950 fór Sigga Gull vin- kona mín að vinna hjá Óla og þá byrjuðu kynni okkar Óla að þróast í mjög góða vináttu. Haustin heima á Sigló voru oft dauf því þá tæmdist bærinn. Við sem eftir vorum reyndum að grúppa okkur saman og til varð Thora-klíkan, skemmtileg smáklíka ungs fólks þar sem Óli var miðdepillinn því bækistöðin var heima hjá honum. Óli var mikill selskapsmaður á þessum árum og oftast í farar- broddi þegar við komum okkur á sem flestar árshátíðir og annað sem í boði var. Þá var Óli mjög góður dansari, hafði lært hjá Rig- mor Hansen. Óli var mikill sögumaður og kryddaði vel sögurnar. Hann út- skrifaðist úr bandarískum háskóla svo margar sögurnar voru frá Ameríku. Hann hafði verið í par- týum með frægum leikurum sem við sáum í bíómyndum og okkur þóttu þetta safaríkar sögur. Óli varð mikill örlagavaldur í mínu lífi þegar ég opnaði verslun í Ólafsvík 1963 með vörur frá versl- un Óla. Síldin brást á Siglufirði og Óli var með fulla búð af vörum. En hann var alltaf svo úrræðagóður. Auk mín opnuðu tvær aðrar konur búðir í sínum heimabyggðum með vörur frá Óla, Gunnþórunn á Seyðisfirði og Sigríður Björns í Vestmannaeyjum. Næstu árin fór hann með okkur í innkaupaferðir til að panta vörur í búðirnar. Þetta voru ánægjulegar ferðir, farið með Gullfossi og Óli var góð- ur ferðafélagi. Árið 1959 kynntist Óli Gisellu þegar hann var í verslunarferð í Þýskalandi. Stuttu seinna kom hún í heimsókn til Íslands. Óli fór suður að taka á móti henni en við vinirnir fyrir norðan biðum spenntir eftir að sjá dömuna og urðum ekki fyrir vonbrigðum. Gisella var falleg og brosmild og Óli alveg í skýjunum og naut þess að ganga fram af fólki með því að stoppa úti á götu og kyssa kærustuna, fólk varð hálffeimið. Um haustið var stórbrúðkaup. Næstu árin fæddust svo drengirn- ir Óli og Ragnar. Óli hætti með verslunina á Sigló og flutti til Reykjavíkur. Keypti skóbúð sem hann átti í stuttan tíma, honum fannst leiðinlegt að selja fólki sem hann þekkti engin deili á og bauð varla góðan daginn. Óli og fjölskylda heimsóttu okkur Begga tvisvar til Ólafsvík- ur. Árin liðu og alltaf hélst okkar góða vinátta. Gisella og Óli slitu samvistir en Óli fékk að hafa strákana sína. Það sem hann var hamingjusamur með það. Nú er gamla Thora-klíkan að hverfa, hver af öðrum hefur kvatt. Systkinin Sigga og Viddi og bræð- urnir Snorri og Skjöldur eru farin ásamt fleirum. Nú kveð ég elskulegan góðan vin og læt hugann reika til liðinna daga þar sem gleðin og gamanið sat í fyrirrúmi. Minningin um Ólaf Thorarensen lifir. Sjáumst síðar. Sigríður Þóra Eggertsdóttir (Sigga-Tóta). Ólafur Árni Thorarensen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.