Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Uppreisnarmaður skýtur úr stórskotabyssu í átökum við stjórnarher Sýr- lands nálægt þorpi sunnan við borgina Aleppo þar sem hörð átök hafa geis- að. Hermt er að um 300 manns hafi beðið bana í átökunum síðustu tvær vikur. Ennfremur er talið að a.m.k. 28 manns hafi látið lífið í loftárás á flóttamannabúðir á yfirráðasvæði uppreisnarmanna í norðurhluta Sýr- lands í fyrradag. Hátt settur embættismaður hjá Sameinuðu þjóðunum hvatti í gær til rannsóknar á því hvort loftárásin væri stríðsglæpur. Grun- ur leikur á að sýrlensk eða rússnesk flugvél hafi gert árásina en það hefur ekki verið staðfest, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins. Her Sýr- lands neitaði því í gær að hann hefði staðið fyrir árásinni. AFP Vill rannsókn á loftárásinni Reikistjarnan Merkúr gengur aðeins þrettán eða fjórtán sinnum fyrir sólu á hverri öld og næst gerist það á mánudag- inn kemur. Síðasta þverganga var 8. nóvember 2006 en hún sást þá ekki frá Íslandi. Sú næsta sést hins vegar hér á landi ef veður leyfir og hefst klukkan 11.12 að íslenskum tíma. Hún stendur í sjö og hálfa klukkustund, eða til klukkan 18.42. Gæta þarf fyllstu varúðar þegar sólin er skoðuð. Nauðsyn- legt er að nota stjörnusjónauka með sólarsíu til að fylgjast með þvergöngunni á öruggan hátt. Frekari leiðbeiningar um hvernig hægt er að sjá þvergönguna er hægt að nálgast á Stjörnufræðivefnum, stjornufraedi.is. Merkúr er aðeins 1/158 hluti af sýndarþvermáli sólar og svo smár að sólmyrkvagleraugu duga ekki til að fylgjast með þvergöngunni. Frá kl. 11.12 til 18.42 að íslenskum tíma Fer umhverfis sólina á 88 dögum Sést að hluta Reikistjarnan Merkúr Er þrisvar sinnum minni en jörðin Sést að hluta Sést ekki Sést ekki Hiti: - 173°C – + 427°C Er minnsta og innsta reikistjarnan Merkúr gengur fyrir sólu Heimildir: NASA, stjörnuathugunarstöð Parísar Fyrsta þverganga reikistjörnunnar frá 2006 verður á mánudaginn kemur Öll þvergangan sést Sólin Jörðin Venus Merkúr Sést hér ef veður leyfir  Merkúr fyrir sólu á mánudag Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, fékk flest sæti á skoska þinginu í kosn- ingum í fyrradag en hélt þó ekki meirihluta sínum. Nicola Sturgeon, leiðtogi flokksins, kvaðst ætla að mynda minnihlutastjórn frekar en hefja stjórnarsamstarf við minni flokk. Skoski þjóðarflokkurinn fékk 63 sæti af 129 og var áður með 69. Íhaldsflokkurinn fékk 31 sæti og skaust fram úr Verkamannaflokkn- um sem fékk 24 þingmenn. Sturgeon lýsti úrslitunum sem miklum sigri fyrir SNP en gaf til kynna að flokkurinn myndi ekki beita sér fyrir nýrri þjóðar- atkvæðagreiðslu um aðskilnað Skot- lands frá Bretlandi. Ruth Davidson, leiðtogi Íhaldsflokksins í Skotlandi, sagði að Skoski þjóðarflokkurinn gæti ekki efnt til slíks þjóðaratkvæð- is næstu fimm árin vegna þess að hann hélt ekki þingmeirihlutanum. Betri útkoma en búist var við Einnig var kosið til sveitarstjórna á Englandi og þings Wales og stjórn- málaskýrandi BBC sagði að í heild- ina hefði útkoma Verkmannaflokks- ins verið betri en búist var við. Flokkurinn er enn stærstur í Wales, fékk 29 þingsæti af 60. Úrslit lágu ekki fyrir í öllum sveitarstjórnum á Englandi en síðustu kjörtölur bentu til þess að fylgi Verkamannaflokks- ins hefði minnkað um 6% frá sveitar- stjórnarkosningum árið 2012. Út- reikningar BBC bentu til þess að heildarfylgi Verkamannaflokksins hefði verið um 31%, Íhaldsflokksins 30%, Frjálslyndra demókrata 15% og UKIP, flokks breskra sjálfstæðis- sinna, um 12%. Laura Kuenssberg, stjórnmála- skýrandi BBC, sagði að útkoma Verkamannaflokksins á Englandi virtist vera betri en búist var við en flokkurinn gæti ekki verið ánægður með niðurstöðuna. Hún telur ekki líklegt að andstæðingar Jeremys Corbyns í flokknum reyni að velta honum úr sessi vegna kosninganna en segir að fast sé nú lagt að honum að færa flokkinn inn á miðjuna. „Verkamannaflokkurinn er í al- varlegum vanda þótt líklegur sigur borgarstjóraefnis flokksins í Lund- únum dragi athyglina frá því,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Matthew Goodwin, prófessor í stjórnmála- fræði við Kent-háskóla. „Verka- mannaflokkurinn er nú í þriðja sæti í Skotlandi í fyrsta skipti frá 1910 og honum hefur ekki tekist að treysta stöðu sína í suðurhluta Englands.“ SNP hélt ekki þingmeirihluta  Úrslit kosninganna í Bretlandi álitin blendin fyrir Verkamannaflokkinn AFP Myndar minnihlutastjórn Nicola Sturgeon, leiðtogi SNP og forsætisráð- herra skosku heimastjórnarinnar, ræðir við blaðamenn í Edinborg. Khan spáð sigri » Síðustu kjörtölur í gærkvöldi bentu til þess að Sadiq Khan, frambjóðandi Verkamanna- flokksins, hefði verið kjörinn borgarstjóri Lundúna og yrði þar með fyrsti múslíminn til að verða borgarstjóri höfuðborgar í Evrópusambandsríki. » Khan er kominn af innflytj- endum frá Pakistan, sonur strætisvagnabílstjóra og saumakonu. Borgarstjóraefni Íhaldsflokksins, Zac Gold- smith, er sonur auðugs kaup- sýslumanns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.