Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2016 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 Bókaðu núna! Bókaðu snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir í sumar. Landssamband bakarameistara, LABAK, efnir til sölu á brjóstaboll- um í bakaríum um allt land fram til sunnudagsins 8. maí. Bollusalan er til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman sem styrkir grunn- rannsóknir á brjóstakrabbameini. Þetta er sjötta árið sem LABAK starfar með Göngum saman að þessu málefni og hafa rúmar 7 milljónir króna safnast á þeim tíma. Í ár er brjóstabollan gómsæt rjómabolla með berjafyllingu og verða búðir félagsmanna LABAK skreyttar með bleikum blöðrum og veggspjöldum. Bakarameistarar bjóða brjóstabollur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Á Breiðafirði eru að minnsta kosti 3.000 eyjar og hólmar sem fengið hafa nöfn og fuglar verpa í og að auki um 2.200 hólmar og sker sem hafa sín nöfn en fuglar verpa ekki í. Fullyrðingin um að eyjarnar á Breiðafirði séu óteljandi er hrakin með samantekt Þorvaldar Þórs Björnssonar, starfsmanns Náttúru- fræðistofnunar. Þorvaldur á sjálfur eyjar á Breiðafirði og fór mikið um eyj- arnar á árunum 1985 til 1998 þegar hann stundaði þar minkaveiðar og aðstoðaði bændur og landeigendur við að losna undan vargaplágum. Á þessum árum safnaði hann saman miklum upplýsingum um fuglalíf í eyjunum og um leið heiti eyja og skerja. Hann tók jafnframt margar ljósmyndir. „Þegar ég sá hvað þetta var orðið mikið fór ég með upplýsingarnar niður á Örnefna- stofnun og sýndi starfsmönnum þar. Þá opnuðust allar flóðgáttir. Ég fékk örnefnaskrár frá öllum byggðum eyjum og býlum sem eiga eyjar. Ég las þetta yfir og leitaði til manna sem hafa skrifað um eyjar og sker á Breiðafirði og gamalla manna sem þekkja þarna til,“ segir Þorvaldur. Upplýsingarnar í örnefnalýs- ingum eru allar í textaformi og kostar það mikla vinnu að staðsetja eyjarnar. Hann vann að þessu verkefni í eigin frítíma, á kvöldin og um helgar, en seinni árin hefur hann fengið að vinna að þessu í starfi sínu hjá Náttúrufræðistofnun nokkrar vikur á ári. Eftir það hefur vinnan gengið betur. Erfitt að skilgreina Þorvaldur hefur ekki lokið vinnu sinni en hann er kominn með nöfn á rúmlega 3.000 eyjum sem fuglar verpa í og um 2.200 eyjum og skerjum þar sem fuglar verpa ekki í. Hann telur að ekki vanti mikið upp á að eyjarnar séu fulltaldar. Hann tekur þó fram að erfitt sé að skilgreina hvað eigi að taka með og hvað ekki. Sú venja er að telja til eyja hólma og sker þar sem gras vex. Það geti breyst með tímanum. Þannig séu mörg flæðisker með nöfn, þótt ekkert gras þrífist. Nafngiftirnar tengist væntanlega því að fólk hafi þurft að varast þau við siglingar. Hins vegar séu til sker með grasi þótt þau fari undir sjó í stærstu flóðum. Sá mikli mun- ur sem er á sjávarföllum í Breiða- firði skapar einnig vanda við taln- ingu því sker og hólmar eru stundum samvaxin eyjunum en stundum ekki. Verið er að teikna örnefnin inn á loftmynd hjá Náttúrufræðistofnun. Eyjanöfnin og staðsetningar fara síðan til Örnefnastofnunar og Landmælinga, sem hyggjast gera örnefnin aðgengileg á vefnum. Yfir 5.200 eyjar og sker með nafni á Breiðafirði  Þorvaldur Þór Björnsson telur og skráir eyjarnar óteljandi og fuglalíf í þeim Morgunblaðið/Þorkell Fagurey Eyjarnar á Breiðafirði eru af ýmsum stærðum og gerðum, eyjar, hólmar, sker, flæðisker, flögur og boðar. Þar eru mörg örnefni sem tengjast búsetu í eyjunum. Nú er aðeins föst búseta í Flatey. Almennur hreinsunardagur verður haldinn í Reykjavík í dag. Hefur verið opnuð sérstök skráningarsíða á netinu þar sem hægt er að velja sér tiltektarsvæði á opnum leik- svæðum og nágrenni. Reykjavíkurborg hefur í vikunni staðið fyrir hreinsunarátaki í borg- inni þar sem fólk og fyrirtæki eru hvött til að hreinsa saman. Er þetta liður í evrópskri hreins- unarviku sem Reykjavík tekur nú þátt í. Öll opin leiksvæði hafa verið skráð inn á skráningarsíðuna og er auðvelt að velja sér stað. Þeir sem vilja geta í dag fengið ruslapoka á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar við Njarðargötu, Jafnasel og Stór- höfða. Mun starfsfólk borgarinnar sækja pokana á opnu leiksvæðin eftir helgina. Börn fengu viðurkenningu Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri tók þátt í átakinu ásamt starfsfólki Ráðhúss Reykjavíkur í vikunni. Í tilkynningu segir að Dagur hafi notað tilefnið og heiðrað nokkra unga eldhuga í umhverfis- málum sem hafi meðal annars kom- ið á fund til hans og staðið fyrir hreinsunarátaki á eigin vegum í ná- grenni sínu. Hann afhenti þeim við- urkenningarskjal og skráningu á eitt sumarnámskeið í þakkarskyni. Nánari upplýsingar um hreinsunarátakið eru á vefsíðunum reykjavik.is/hreinsumsaman og www.facebook.com/hreinsumsaman Ungir eldhugar Borgarstjóri með börnum sem hann veitti viðurkenningar. Hreinsunardagur í Reykjavík í dag Áætlun Reykjavíkurborgar um að koma af stað 2.500-3.000 leigu- og búseturéttaríbúðum á næstu 3-5 árum er hafin. Hefur nú sá hluti verkefnisins sem snýr að Vest- urbugt verið auglýstur til útboðs. Þetta kemur fram í bréfi sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri birti í gær. Kaupandi byggingarréttarins fær heimild til að hanna og byggja um 170-176 íbúðir og atvinnu- húsnæði á jarðhæðum. Af þeim mun borgin ráðstafa um 70 íbúð- um til útleigu í gegnum samstarfs- aðila borgarinnar. Húsin verða alls um 18.400 m2, þar af verður atvinnuhúsnæði tæpir 1.700 fer- metrar. Auk þess verða bíla- geymslur o.fl. undir húsunum, sem áætlaðar eru um 10.200 fermetrar. Þá kemur fram að borgin hefur óskað eftir umsóknum frá áhuga- sömum aðilum til að taka þátt í forvali og samkeppnisviðræðum vegna byggingarréttar og upp- byggingar á lóðum við Hlésgötu í Vesturbugt. vidar@mbl.is Uppbygging í Vest- urbugt í útboð Eyjarnar á Breiðafirði eru eitt af þeim náttúrufyrir- bærum sem sögð hafa verið óteljandi, eins og vötnin á Arnarvatnsheiði og hólarnir í Vatnsdal. Þótt eyjarnar hafi verið sagðar óteljandi hafa ýmsir reynt að slá á þær tölu og hingað til hefur verið miðað við 2.500 til 3.000. Þorvaldur Þór er kominn talsvert yfir þann fjölda, þegar miðað er við eyjar sem fengið hafa nöfn. Við grúsk sitt hefur Þorvaldur tekið eftir miklum breytingum á fuglalífi í eyjunum. Breytingarnar urðu þegar minkurinn kom í eyjarnar og síðan kunna æt- isskilyrði einnig að hafa breyst á öðrum tímum. Lundinn hefur gefið mikið eftir og er horfinn úr mörgum eyjum og hólmum. Í staðinn er komin grágæs, sem verpir víða. Í sumum hólmum sá hann eitt eða tvö grágæsaheiður þegar hann byrjaði að fara um eyjarnar fyrir þrjátíu ár- um en þar eru nú kannski 30 til 40 hreiður. Þorvaldur vonast til að þau gögn sem hann hefur safnað um fuglalífið geti nýst við rannsóknir í framtíðinni. Færri lundar en fleiri grágæsir BREYTINGAR Á FUGLALÍFI Í BREIÐAFJARÐAREYJUM Þorvaldur Þór Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.