Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 35
aldna lækni með þakklæti fyrir allt. Kristínu og afkomendum votta ég djúpa samúð. Sigurjón Guðmundsson. Sigursteinn Guðmundsson er látinn hátt á níræðisaldri. Hann var læknir Austur-Húnvetninga í tæp fjörutíu ár, lengur en nokkur annar. Sigursteinn var ættaður frá Patreksfirði og alinn upp í Hafnarfirði, en varð meiri Hún- vetningur en margir innfæddir. Hann tekur sig upp frá miðju framhaldsnámi í Þýskalandi með fjölskyldu síðla árs 1962 til að taka við héraðslæknisembættinu í Blönduóslæknishéraði. Sigur- steinn hafði áður kynnst læknis- störfum í héraðinu og Húnvetn- ingum er hann starfaði sem aðstoðarlæknir Páls Kolka og staðgengill hans á árunum 1959- 1960. Ég kynntist Sigursteini fyrst fyrir þrjátíu og fimm árum. Við störfuðum síðan náið saman í rúmlega ellefu ár. Á þessum ár- um kynntist ég Sigursteini sem fagmanni og manneskju. Þó heil kynslóð væri á milli okkar í aldri myndaðist góður vinskapur á milli okkar og gagnkvæm virðing alla tíð. Ég komst fljótlega að því hvers vegna Sigursteinn breytti stefnu sinni og hætti námi til að taka við læknisstörfum við Hú- naflóann. Héraðið var hans draumastaður frá fyrstu kynn- um. Honum líkaði vel við fólkið í héraðinu með sínum fjölbreyti- leika. Læknisfræðileg aðstaða á Blönduósi var líka frábær á þess- um árum. Héraðshælið var þá ný- byggt af miklum myndarskap. Þar var aðstaða til skurðlækn- inga, fæðingarhjálpar og lækn- inga sjúkra og aldraða, allt undir sama þaki. Sigursteinn greip tækifærið til að fá draumastarfið þegar það gafst. Þó Sigursteinn hafi ekki verið búinn að ljúka sérfræðinámi í kven- og skurðlækningum þegar hann tók við héraðslæknisemb- ættinu á Blönduósi, þá hafði hann þegar öðlast góða færni til allra þeirra skurðlækninga sem hægt var að beita í héraðinu. Sigur- steinn var mjög fær skurðlæknir og farsæll alla tíð. Hann gerði sér alltaf far um að viðhalda færni sinni með símenntun. Það var síð- an dæmigert fyrir faglegan metn- að Sigursteins að ljúka námi og fá sérfræðiviðurkenningu í kven- lækningum hátt á sextugsaldri. Sigursteinn var mjög virkur í félagsstörfum alla tíð, þrátt fyrir erilsamt starf. Þar var hann virk- ur þátttakandi og hrókur alls fagnaðar. Nú eru nærri tuttugu ár liðin síðan samstarfi okkar Sigur- steins lauk. En við höfum alltaf verið í góðu sambandi síðan og vináttan haldist. Að leiðarlokum vil ég þakka Sigursteini fyrir mjög gott samstarf og vináttu um árabil. Minningarnar um góðan lækni og merkan mann munu lifa. Ég, Gestný og fjölskylda vott- um Kristínu, Matthíasi og Fann- eyju, Rósu Margréti og Rúnari Þór, börnum þeirra og barna- börnum samúð okkar. Böðvar Örn. Sigursteinn kom fyrst til starfa á Blönduósi fyrir meira en hálfri öld sem aðstoðarlæknir Páls Kolka. Hann dvaldi þar ekki lengi í það sinn, heldur gekk til annarra verka, m.a. að námi í sinni sér- grein, kvensjúkdómum og fæð- ingarhjálp. Mörgum hafði litist vel á hinn unga lækni, sem var hlýr í viðmóti og með jákvæð við- horf, t.d. tók hann mjög undir skoðanir Kolka um eina megin- stofnun heilbrigðismála í hverju héraði. Því var það þegar Kolka flutti suður að honum bárust fjöl- margar áskoranir um að sækja um stöðu héraðslæknis. Hann sló til og fékk starfið. Þetta varð okkur Húnvetning- um til gæfu, vonandi báðum að- ilum. Sigursteinn hafði ekki einung- is góðan orðstír sem læknir, hann var félagslyndur og tók ríkan þátt í starfi fólksins í héraðinu. Hann var t.d. virkur Lionsmaður nær til hins síðasta og hann var ítrek- að kjörinn í sýslunefnd fyrir Blönduósinga. Á þessum vett- vangi tók hann höndum saman við aðra sem börðust fyrir því að efla Héraðshælið, bæði að bygg- ingum og tækjakosti. Baráttan skilaði miklum árangri. Á Hér- aðshælinu fæddu konur börn sín, á skurðstofu voru oft gerðar þrjár til fimm aðgerðir á viku og aldraðir nutu skjóls í æ ríkara mæli en áður hafði gerst. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt um úlfúð eða ágreining frá þessu stóra heimili í þá daga og er það til vitnis um hæfni stjórnandans. Við starfslok Sigursteins kom það í hlut nýrra manna að taka við og héldu þeir áfram á sömu braut uns stjórnvöld kusu að skipta sér af bæði á Blönduósi og annars staðar. Fyrst var skipað- ur nýr forstjóri, sem ekki var vit- að um að áður hefði haft afskipti af heilbrigðismálum og síðan fyr- irmæli í nafni norrænnar velferð- ar um að loka skurðstofum og fæðingarstofum bæði á Blönduósi og víða annars staðar á landinu. Þessar ákvarðanir voru að mín- um dómi mjög misráðnar, enda varð þá engum vörnum við komið. Sigursteinn var fjölhæfur mað- ur og átti mörg áhugamál. Fram- an af ævi mun hann hafa tekið mikið af ljósmyndum. Fljótlega breytti hann um tæki og tók kvik- myndir bæði af einstökum við- burðum og atvikum úr lífi fólks. Ég hygg að í fórum hans sé að finna gríðarlegt safn heimilda á filmum sem verða því verðmætari sem lengur líður. Við Helga biðjum minningu þessa mæta manns blessunar og sendum samúðarkveðjur okkar til Kristínar og allrar fjölskyld- unnar. Pálmi Jónsson. Kveðja frá Krabbameinsfélagi Austur-Húnavatnssýslu Fyrir hönd stjórnar Krabba- meinsfélags Austur-Húnvetninga kemur hér kveðja og nokkur orð um störf Sigursteins þar og konu hans, Brigittu D. Vilhelmsdóttur, nú látin. Hann var fyrsti formað- ur félagsins og gerði sér grein fyrir þörf slíks félags á svæðinu ásamt fleirum og sem síðan var stofnað 1968 í félagsheimilinu Blönduósi að viðstöddu miklu fjölmenni. Formaður var Sigursteinn um 20 ára skeið með hléi og tók þátt í störfum þess með fræðslu, krafti og áhuga og mótaði starf þess til framtíðar. Mörg verkefni sem fé- lagið tók að sér fyrstu árin var m.a. að efla heilsufar kvenna með krabbameinsleit sem Sigursteinn sem læknir tók þátt í uns heilsu- gæslan tók við því verkefni. Unnu þau hjónin vel saman fyrir félagið en Brigitta sat lengi í stjórn, t.d. fór hún vítt um sveitir og safnaði félögum. Árið 1988 á 20 ára af- mæli félagsins voru þau bæði gerð að heiðursfélögum og hon- um og Birgittu þakkað fyrir góð og óeigingjörn störf fyrir félagið. Kveðjum við Sigursteini nú með þökkum fyrir vel unnin störf á þeim vettvangi. Blessuð sé minning hans. Sveinfríður Sigurpálsdóttir. Seinni hluta árs 2003 þegar ég flutti búferlum til Blönduóss til að taka við stöðu forstjóra Heil- brigðisstofnunarinnar á Blöndu- ósi voru ekki liðnir margir dagar hjá mér í hinu nýja starfi þar til Sigursteinn læknir bankaði upp á til að kynna sig og um leið að sjá sendinguna að sunnan, eða þann- ig. Strax tókust með okkur ágæt kynni og mér varð fljótlega ljóst að Sigursteini var mjög umhugað um vöxt og velgengni „Hælisins“ eins og heilbrigðisstofnunin hét í huga heimamanna. Þrátt fyrir að vera hættur launuðum störfum vegna aldurs var Sigursteinn ávallt reiðubúinn til að koma að málum stofnunarinnar þegar á þurfti að halda. Minnisstæðust er aðkoma hans að 50 ára afmæli stofnunarinnar. Hann var mjög virkur í þeim undirbúningi öllum en honum fylgdi mikið utanum- hald, útgáfa afmælisblaðs sem Sigursteinn stýrði af röggsemi, kvikmyndagerð og margt fleira. Sigursteinn var fyrsti formað- ur Hollvinasamtaka stofnunar- innar en samtökin voru stofnuð gagngert til að safna fyrir og kaupa stafrænan búnað við rönt- gentæki hennar en með þeim búnaði varð HSB fyrst heilbrigð- isstofnana á landsbyggðinni til að fá slíkan búnað. Sigursteini var ekki bara annt um Hælið og þá starfsemi sem þar fór fram held- ur var hann alla tíð mikill áhuga- maður um sögu lækninga og hjúkrunar almennt í héraði sem og um sögu héraðsins og það sem var að gerast á hverjum tíma. Sigursteinn gerði fjölda kvik- mynda um Hælið, Blönduós og Austur-Húnavatnssýslu og er til mikið safn heimildamynda sem eftir hann liggur og er þar um að ræða mikil menningarsöguleg verðmæti fyrir héraðið og ís- lenskt samfélag. Sömuleiðis var Sigursteinn afar ráðagóður og veitti mér góðan stuðning í mín- um störfum þennan góða tíma á Blönduósi. Margt fleira væri hægt að nefna því Sigursteinn kom að mörgum þörfum sam- félagsmálum á langri ævi en ég læt hér staðar numið. Að lokum viljum ég og kona mín, Álfhildur, þakka Sigursteini góð kynni og samfylgdina þessi ellefu ár og um leið votta fjöl- skyldu hans og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Valbjörn Steingrímsson. Starfsfélagi minn til margra ára og fyrrverandi yfirlæknir, Sigursteinn, hefur nú kvatt okk- ur. Margs er að minnast á þeim mörgu árum sem kynni okkar voru. Þegar ég kom í fyrsta sinn 1973 sem hjúkrunarfræðingur til að vinna á Héraðshælinu á Blönduósi sem bar það nafn þá, tók hann á móti mér og sýndi mér húsakynni á stofnuninni. Auð- fundið var hve glaður og áhuga- samur hann var um það hvað væri nú hægt að gera fyrir skjólstæð- ingana. Margt hefur breyst síðan þá að kröfu nútímans og nýbygg- ing var byggð við húsið með m.a. nýrri deild, heilsugæslu og bættri aðstöðu starfsmanna. Hann var ávallt í góðu sam- bandi við arkitekta er hönnuðu verkið og hugmyndasmiður sjálf- ur við þær framkvæmdir til hags- bóta fyrir skjólstæðinga og heil- brigðismálin í héraði með miklum metnaði. Naut hann þess að taka þátt í þeirri uppbyggingu. Hann hafði miklar skoðanir og þekk- ingu á heilbrigðisþjónustu sem gat verið erfið í dreifbýlinu og kom það sér vel þegar rætt var um innri sem ytri málefni stofn- unar á stjórnarfundum. Sigursteinn var með menntun sem kvensjúkdóma- og fæðingar- læknir auk þess að vera laginn skurðlæknir. Með aðstoð annarra lækna, hjúkrunarfræðinga og að- stoðarfólks gerði hann minni að- gerðir á lítilli skurðstofu, jafnvel keisaraskurði í eldra húsinu en síðar lögðust skurðaðgerðir af eins og hjá sumum minni stofn- unum. Margar fjölskyldur voru hon- um þakklátar fyrir þær læknisað- gerðir. Það eru einnig ófá börnin sem hann hefur hjálpað í heiminn ásamt ljósmæðrum og var farsæll fæðingarlæknir. Margir læknar störfuðu með Sigursteini um lengri eða styttri tíma og deildu með sér vaktabyrðinni en fyrr á árum kom það fyrir að hann var einn á vakt í héraðinu sem reyndi á reynslu hans og kunnáttu sem læknis og lenti þá stundum í ófærð og vegleysum í læknisvitj- unum. Eitt af áhugamálum Sig- ursteins var að taka ljósmyndir og kvikmyndir og þá gjarnan af starfsfólki og vistmönnum og ljósmyndirnar eru til í húsinu og sanna sitt. Hann var ávallt mikið snyrti- menni til fara og óaðskiljanlegur við hvíta sloppinn á stofugangin- um eða við móttöku á heilsugæsl- unni og naut trausts skjólstæð- inga sinna og þeirra mörgu heilbrigðisstarfsmanna sem unnu með honum. Beitti sér einnig fyr- ir því að keypt voru ný tæki með aukinni tækni fyrir stofnunina til að auðvelda rannsóknir og að greina betur sjúkdóma eða til að viðkomandi þyrfti síður að sækja út fyrir sína heimabyggð. Var Sigursteinn þannig trúr samferðafólki sínu og vel metinn sem læknir og héraðslæknir til margra ára. Við Kristinn vottum Kristínu sambýliskonu hans, Rósu og Matthíasi og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Sveinfríður Sigurpálsdóttir. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19  210 Garðabær sími 842 0204  www.harpautfor.is HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarþel við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANDÍSAR ÖNNU JÓNSDÓTTUR hjúkrunarfræðings. Sérstakar þakkir færum við læknum og öðru starfsfólki Landspítala - háskólasjúkrahúss svo og hjúkrunarfræðingum Karitas fyrir frábæra umönnun í löngum og erfiðum veikindum hennar. . Birgir Vigfússon Ásta Margrét Birgisdóttir Örn Viðar Skúlason Vigfús Birgisson María Theodóra Ólafsdóttir Birgir Jón Birgisson Gréta María Bergsdóttir Linda Björg Birgisdóttir Jón Vídalín Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi GUNNAR BJÖRN HENRY SIGURÐSSON ökukennari, lést þriðjudaginn 3. maí. Útför fer fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn 11. maí kl. 13. . Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir Björg Gunnarsdóttir Ívar Gunnlaugsson Magnús Gunnarsson Steinunn Ástráðsdóttir Lilja Gunnarsdóttir Bjarnleifur Bjarnleifsson Anna Gunnarsdóttir Gunnar Gunnarsson Lulu Andersen Helga Gunnarsdóttir Birgir Gunnarsson Guðrún Arinbjarnardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI ÁGÚST GUNNARSSON viðskiptafræðingur, verður jarðsunginn frá Garðakirkju þriðjudaginn 10. maí kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. . Agnes Egilsdóttir Gunnar Árnason Hlédís Sveinsdóttir Anna Guðrún Árnadóttir Finnur Sveinbjörnsson Dagný Halldórsdóttir Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir Ólafur Þ. Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og bróðir, FRIÐÞJÓFUR BRAGASON (Bubbi), Sléttahrauni 28, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. maí kl. 13. . Ellen Ásthildur Ragnarsdóttir, Róbert Friðþjófsson, Ragna Björg Friðþjófsdóttir, Páll Eliasen, Bragi Friðþjófsson, Svala Jónsdóttir og systkini. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG JÓHANNSDÓTTIR, (Lilla á Á), Siglufirði, lést 30. apríl. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 17. maí kl. 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Björgunarsveitina Stráka Siglufirði, kt. 551079-1209, banki 0348-26-2717 . Jóhann Skarphéðinsson Auður Halldórsdóttir Björg S. Skarphéðinsdóttir Tryggvi Árnason Stefanía Skarphéðinsdóttir Aðalsteinn Sveinsson Aðalbjörg Skarphéðinsd Guðjón Björnsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.