Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Stærsta, skemmtilegasta og elsta gæludýraverslun landsins, Dýraríkið, er nú fáanlegt. Gæludýr og gæludýravörur. Spennandi verkefni fyrir dýraáhugafólk. • Hótel Siglunes er lítið og mjög fallegt hótel/gistihús í eigin húsnæði í ferðamannabænum Siglufirði. Þar eru 19 herbergi, fullbúinn veitingastaður og bar. Frábærir dómar hjá ferðamiðlum. • Umboð fyrir eldhúsinnréttingar. Þekkt evrópskt merki í eldhúsinnréttingum og fataskápum. Velta á bilinu 70-100 mkr. Gott tækifæri fyrir aðila í skyldum rekstri. Auðveld kaup. • Lítil heildverslun með gott umboð fyrir hágæða múrefni og klæðningar. Velta um 100 mkr. Miklir möguleikar á vexti • Vaxandi innflutnings- og smásölufyrirtæki með mjög góða markaðshlutdeild á sérhæfðum markaði. Ársvelta 130 mkr. og EBITDA 30 mkr. • Fiskvinnsla á SV-horninu í framleiðslu á fiski og harðfiski. Velta 50 mkr. Inannlandsssala og útflutningur. Miklir möguleikar til veltuaukningar. • Verslunarkeðja með matvæli (12 útsölustaðir) og miðlæga framleiðslu. Ársvelta 650 mkr. Miklir vaxtamöguleikar og góð afkoma. • Gamalgróin heildverslun með þekkt leikföng og gjafavörur. Velta um 100 mkr. Góð afkoma. • Stórt og gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda. • Öflugt og vaxandi fyrirtæki í skiltagerð og markaðslausnum. Vel tækjum búið. Ársvelta um 100 mkr. og góð afkoma. • Rótgróin rafvöruverslun í Reykjavík. Velta 80 mkr. og afkoman góð. • Gróðrarstöð staðsett á Suðurlandi í nálægð við höfuðborgina. Fyrirtækið hefur sterka stöðu á markaði. Velta er nokkuð jöfn allt árið, um 130 mkr. og EBITDA um 25 mkr. Fagleg miðlun fyrirtækja og rekstrareininga • Hótel og hostel á Vesturlandi, mikil tækifæri. • Matvælafyrirtæki sem býður upp á hádegisverði fyrir fyrirtæki, góð afkoma. • Sérhæft fyrirtæki á sviði innflutnings á loftverkfærum og skyldum vörum. • Mjög áhugavert hótel á Norðurlandi. • Sérhæfð bílaleiga, góð afkoma og miklir vaxtamöguleikar. • Matvælaframleiðsla, samlokur, salatbakkar, ávextir, millimál og eftirréttir, velta um 300 milljónir. • Innflutnings og heildverslun með drykkjarvörur, velta um 400 milljónir. • Veitingastaður í 101 Reykjavík, mjög vaxandi velta. • Kaffihús í 101 Reykjavík. • Fyrirtæki sem þjónustar byggingariðnaðinn, mjög góð afkoma, velta 1000 milljónir. • Við erum að vinna að sölu á nokkrum áhugaverðum fasteignafélögum og góðu 1000 fm. verslunarhúsnæði á fjölförnum stað í Hafnarfirði. Lækjargötu 2, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis.is | fyrirtaekjakaup.is | investis@investis.is                                      !"# ##! " #$ !" # "# "% "% &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 #  "  #" "# ! !%$  " $%$ $ "# " !$ ! ##% " $ !%# ! ""! $!! $ #  #$ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Konur voru 25,9% stjórnarmanna fyr- irtækja sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá í lok síðasta árs. Það er hækkun upp á 0,4 prósentustig frá árinu á undan. Þetta kemur fram í nýjum tölum á vef Hagstofu Íslands. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja hefur farið hækkandi frá árinu 2007 en það var á bilinu 21,3% til 22,3% á ár- unum 1999 til 2006. Hins vegar stóð hlutfall kvenna í stjórnum stærri fyrirtækja nánast í stað milli ára eftir mikla fjölgun árin á undan. Í lok síðasta árs voru konur 32,8% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri, en þær voru 33,2% árið 2014. Til samanburðar var hlutfall þeirra í stjórnum stórra fyrir- tækja 12,7% árið 2007 og 9,5% árið 1999. Eins og fram kom í Viðskipta- Mogganum á fimmtudaginn hefur hlut- fall kvenna í stjórnum skráðra félaga hækkað lítillega eftir nýliðna aðalfundi og skipa konur nú um 45% stjórnarsæta í Kauphöllinni. Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn og tóku þau að fullu gildi í september 2013. Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmda- stjóra fyrirtækja hækkaði lítillega frá fyrra ári, úr 21,6% í 21,9% í lok síðasta árs. Konur skipa 26% stjórnarsæta í fyrirtækjum verið fjármagnað með eigin fé frá upphafi. Starfsmenn séu nú um 150. Nova hóf að bjóða farsímaþjón- ustu 1. desember 2007. Þegar félag- ið kom inn á markaðinn lagði það megináherslu á markhópinn 20-30 ára og hefur nú sterka stöðu meðal ungs fólks. Það varð fyrst íslenskra fjarskiptafélaga til að fjárfesta í dreifikerfi fyrir þriðju kynslóð far- síma og í apríl 2013 fyrsta íslenska fjarskiptafyrirtækið til að bjóða 4G þjónustu. Fram kemur á vefsíðu Baldur Arnarson baldura@mbl.is Novator hefur falið fyrirtækjaráð- gjöf Kviku að selja símafélagið Nova. Söluferlið hefst í næstu viku. Skv. heimildum blaðsins er reikn- að með að söluferlið taki þrjá mán- uði. Heildarvirði félagsins er áætlað ekki undir 15 milljörðum króna. Samkvæmt ársreikningi Nova 2014 á Novator ehf. 59,35% hlut í félaginu, Novator Teleco Finland 34,34% hlut og stjórnendur Nova áttu 6,31% hlut í félaginu. Björgólfur Thor Björgólfsson á hin félögin tvö sem eigandi Nova- tor. Aðeins þreifingar á þessu stigi Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýs- ingafulltrúi Novators, segir ekkert fast í hendi varðandi söluna á hlut Novator í Nova. „Þetta eru aðeins þreifingar. Það liggur ekkert á að selja félagið. Verðmiðinn verður ekki undir 15 milljörðum. Reksturinn hefur geng- ið mjög vel. Það eru um tíu ár síðan félagið var stofnað og nú er það orðið það stærsta á farsímamark- aði.“ Ragnhildur segir félagið hafa Nova að það sé stærsta farsímafyrirtæki á Íslandi með 34% markaðshlutdeild á árinu 2015, að sögn Póst- og fjarskiptastofnunar. Heildartekjur Nova-samstæðunn- ar námu 6,4 milljörðum króna á árinu 2014, samkvæmt ársreikningi. Samstæðan skilaði þá jákvæðri framlegð frá rekstri (EBITDA) að fjárhæð 1.456 milljónir króna og 814 milljóna króna hagnaði. Ársreikningur fyrir 2015 hefur ekki verið birtur. Novator felur Kviku að setja Nova í sölu Morgunblaðið/Ómar Í sókn Markaðshlutdeild Nova hefur farið vaxandi á síðustu árum.  Áætlað að heildarverðmæti Nova sé minnst 15 milljarðar Tvær Boeing 767-300 þotur verða teknar í notkun í leiðakerfi Iceland- air í þessum mánuði en auk þess hef- ur félagið undirritað samning um kaup á tveimur Boeing vélum af sömu gerð til viðbótar. Þær verða af- hentar á næstu mánuðum og þeim breytt til samræmis við aðrar vélar í flugflota félagsins. Er stefnt að því að taka þær í notkun í ársbyrjun 2017. Kaupverð nýju flugvélanna er trúnaðarmál, að því er fram kemur í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallarinnar, en fjárfestingunni mun vera ætlað að styðja við áfram- haldandi innri vöxt félagsins sem ráðgerður er á næsta ári. Samkvæmt þessu verða á næsta ári fjórar Boeing 767-300 þotur í leiðakerfi Ice- landair, en þær taka 262 farþega á meðan Boeing 757-200 vélarnar sem fyrir eru í flotanum taka 183 farþega. Farþegum fjölgar í apríl Icelandair Group hefur einnig til- kynnt til Kauphallar flutningatölur fyrir nýliðinn mánuð. Í apríl flutti flugfélagið 214 þúsund farþega í millilandaflugi sem eru 13% fleiri farþegar en í apríl í fyrra. Framboðs- aukning í sætiskílómetrum nam 18% og var sætanýting 80,6%, sem er 1,6 prósentustigum lakari nýting en í apríl í fyrra. Alls hefur Icelandair flutt tæplega 780 þúsund flugfarþega í millilanda- flugi á fyrstu fjórum mánuðum árs- ins, sem er 18% aukning á milli ára, og hefur sætanýting verið svipuð á milli ára eða um 80%. Farþegar Flugfélags Íslands í inn- anlandsflugi og Grænlandsflugi voru 23 þúsund í apríl sem er fjölgun um 6% á milli ára. Sætanýting nam 71,9% og jókst um 1,9 prósentustig á milli ára. Alls hafa farþegar Flug- félagsins verið liðlega 89 þúsund á fyrstu fjórum mánuðum ársins, sem er 5% aukning miðað við sama árs- hluta í fyrra. Fraktflutningar hjá Icelandair Cargo jukust um 16% í apríl frá því á síðasta ári og hefur aukning í frakt- flutningum numið 10% á fyrstu fjór- um mánuðum ársins. Icelandair bætir í flotann  Samið hefur verið um kaup á tveimur Boeing 767 þotum til viðbótar við þær tvær sem teknar verða í notkun á næstunni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Flug Nýju þoturnar taka um 80 fleiri farþega en Boeing 757 vélarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.