Morgunblaðið - 07.05.2016, Page 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
✝ Jónas Ólafssonfæddist á Borð-
eyri við Hrútafjörð
20. júlí 1929. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísa-
firði 27. apríl 2016.
Foreldrar hans
voru Ólafur Jóns-
son
húsasmíðameistari,
f. 12. maí 1892, d.
30. desember 1967,
og Elínborg Sveinsdóttir, sím-
stöðvarstjóri á Þingeyri, f. 12.
október 1897, d. 11. maí 1955.
Systkini Jónasar eru Yngvi, f.
1922, d. 2005, Sveinn, f. 1924,
Björgvin, f. 1924, Þórey
Hrefna, f. 1925, Höskuldur, f.
1927, Jónas, f. 1928, d. 1928,
Sylvía, f. 1931, Ingibjörg, f.
1932, Sigríður, f. 1935, Ólöf, f.
1937, María, f. 1939, Guðrún, f.
1944, d. 1960. Hálfsystkini Jón-
asar, börn Ólafs og fyrri eig-
inkonu hans, Þóreyjar
Sturlaugsdóttur, eru Hrefna, f.
1915, d. 1918, Kjartan, f. 1918,
d. 1991. Ennfremur Þórir, f.
1931, d. 1990.
Jónas kvæntist Kristínu
Nönnu Magnúsdóttur 7. nóv-
ember 1954, foreldrar hennar
1966, börn þeirra eru: Patrekur
Ísak, f. 1996, Birna Filippía, f.
2000, og Dagur Ernir, f. 2000.
Langafabörnin eru orðin 16.
Jónas fór ungur í sveit á
Skarði á Skarðsströnd en lærði
síðan vélvirkjun í Vélsmiðju
Guðmundar J. Sigurðssonar á
Þingeyri og vann þar um skeið.
Starfaði síðan við verslunar-
rekstur í nokkur ár. Var kjör-
inn í hreppsnefnd Þingeyrar-
hrepps 1966 og sat í
hreppsnefnd til 1996. Tók síðan
við starfi sveitarstjóra á Þing-
eyri 1971 og gegndi því starfi
til ársins 1996 eða í 25 ár. Sat í
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
1996-1998 og gegndi starfi
bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar
síðasta árið. Hann gegndi fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum, var
formaður stjórnar Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga, átti
sæti í stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og sat í
stjórn Hafnarsambands Íslands.
Á yngri árum tók hann mikinn
þátt í íþróttastarfi á ýmsum
sviðum og keppti sjálfur. Í
mörg ár hélt hann kindur sér
til mikillar ánægju og var mikil
áhugamaður um sauðfjárrækt
allt til dauðadags.
Útför Jónasar fer fram frá
Þingeyrarkirkju í dag, 7. maí
2016, og hefst athöfnin klukkan
14.
voru Magnús Aml-
ín Ingibjartsson og
Ingunn Elín
Angantýsdóttir.
Börn Jónasar og
Nönnu eru
1. Magnús, f. 3.
september 1953,
hans börn eru:
Hugrún, f. 1973,
Nanna Kristín, f.
1974, Magnús Þór,
f. 1978, Jónas
Breki, f. 1980, og Sturla Snær,
f. 1987. 2. Angantýr Valur, f.
19. apríl 1955, giftur Eddu Haf-
dísi Ársælsdóttur, f. 15. maí
1960, börn þeirra eru: Óttar, f.
1982, Ágúst, f. 1985, Elín Edda,
f. 1987, Ingunn Ýr, f. 1993 og
Víkingur, f. 1997. 3. Ingunn El-
ín, f. 11. febrúar, 1957, gift S.
Vilhelm Benediktssyni, f. 1.
ágúst 1955, börn þeirra eru:
Kristín Nanna, f. 1976, og Stef-
án Benedikt, f. 1980. 4. Krist-
inn, f. 30. september 1965, gift-
ur Helgu Valdísi
Guðjónsdóttur, f. 5. febrúar
1969, börn þeirra eru Thelma,
f. 1996, og Kristinn Jökull, f.
2002. 5. Steinar Ríkarður, f. 6.
október 1966, giftur Nönnu
Björk Bárðardóttur, f. 29. júní
Þegar ég lít til baka og hugsa
um pabba þá koma fyrst upp í
huga mér kindurnar hans og öll sú
vinna sem í kringum þær voru.
Pabbi var um áratuga skeið með
frístundabúskap sem gaf honum
mikla ánægju. Sem ungur maður
fór hann í sveit á Skarð á Skarðs-
strönd, var hann þar fram á ung-
lingsaldur og bar hann alltaf mikl-
ar tilfinningar til þess staðar og
fólksins þar. Þar hefur sjálfsagt
áhuginn á fjárbúskapnum kvikn-
að. Hann var mjög natinn við
kindurnar, var góður ræktunar-
maður og átti gott fé. Pabbi lagði
áherslu á það við okkur bræður að
hugsa vel um dýrin og kenndi okk-
ur réttu handtökin við bústörfin. Á
jólum fengu kindurnar alltaf besta
heyið sem til var og voru fjárhúsin
þrifin hátt og lágt. Það er ógleym-
anleg ferð er við bræður fórum
með pabba fyrir nokkrum árum
norður á Strandir að sækja hrút
en afi hans, Sveinn, hafði verið
prestur í Árnesi. Hann sagði okk-
ur frá öllu sem fyrir augu bar og
gaman var að hlusta á frásögn
hans og að sjálfsögðu var það
hann sem valdi hrútinn. Pabbi og
mamma höfðu mikinn áhuga á
garðrækt og ber garðurinn í
kringum húsið þeirra þess glöggt
vitni. Ekki var pabbi mikil tilfinn-
ingavera og var mjög fámáll um
allt slíkt, þó mátti sjá tár á hvörm-
um þegar eitthvað hreyfði við hon-
um. Pabbi var góður afi barna
minna og fylgdist hann vel með
þeim og spurði alltaf um þau er við
ræddum saman. Hann var sveit-
arstjóri á Þingeyri um áratuga
skeið og hafði mikinn metnað fyrir
hönd samfélagsins. Á árunum frá
1966 til 1998 sem hann starfaði í
sveitarstjórnarmálum urðu gífur-
legar breytingar í sjávarþorpum
um land allt, Þingeyri var þar eng-
in undantekning þar sem mikil
uppbygging átti sér stað og fegr-
un umhverfis.
Samstarfsmaður pabba til
margra ára í sveitarstjórn var
Þórður Jónsson frá Múla, þeir
náðu vel saman þó ekki væru þeir
samflokksmenn og höfðu báðir
mikinn áhuga á bússkap. Það var
mikið áfall fyrir pabba þegar
Þórður féll frá langt um aldur
fram því þar missti hann góðan vin
og samstarfsmann. Pabbi var
mjög ráðagóður, lagði mikla
áherslu á að maður færi vel með
það sem manni væri trúað fyrir,
hefði trú á sjálfum sér og legði sig
fram um að ná settum markmið-
um. Það var gott að leita ráða hjá
pabba og hann fylgdist vel með
mínum störfum. Pabbi naut virð-
ingar í stjórnsýslunni og fann ég
það er ég hóf störf á sama vett-
vangi. Þó það sé ef til vill skrýtið
þá var pabbi ekkert mjög pólitísk-
ur, þ.e.a.s. ef ég tek mið af
mömmu í þeim málum, en hann
hafði mikinn áhuga á samfélags-
málum, þá sérstaklega samgöngu-
málum og beitti hann sér mikið á
þeim vettvangi fyrir svæðið og var
m.a. formaður hjá Fjórðungssam-
bandi Vestfirðinga þegar ákvörð-
un var tekin um jarðgöngin undir
Breiðadals- og Botnsheiði. Einnig
sat hann í stjórn Sambands ísl.
sveitarfélaga og Hafnarsambands
Íslands auk fjölda annarra trún-
aðarstarfa.
Margs er er að minnast enda
nutum við þeirrar gæfu að eiga
marga áratugi saman og fyrir það
er ég þakklátur. Nú er komið að
kveðjustund, gott er að eiga minn-
ingar um góðan föður sem reynd-
ist mér vel, blessuð sé minning
hans.
Meira: mbl.is/minningar
Kristinn Jónasson
Við sátum hljóðir uppi á Stekk
að loknu góðu dagsverki, kvöldsól-
in lék við fjallstindana. Mófuglarn-
ir sungu sín fegurstu ljóð. Véla-
hljóðin í nágrenninu þögnuðu og
ómur af röddum bændanna tók
við. Kyrrðin færðist smám saman
yfir fjörðinn, sólin hneig til viðar
og fjöllin spegluðust í logninu.
Sameiginlegt áhugamál okkar
feðga, kaffitímabúskapur, var
uppspretta athafna og skoðana-
skipta báðum til ómældrar gleði.
Við feðgar vorum ekki alltaf sam-
mála en skildum ávallt sáttir. Fað-
irinn nýtti stað og stund til að und-
irbúa soninn undir lífið. Lagður
var grunnur að vináttu og um-
hyggju sem aldrei bar skugga á.
Í dag leitar hugurinn aftur upp
á Stekk til þeirra stunda sem við
áttum þar. Þau hughrif sem sam-
spil náttúru og lands bauð upp á
og við feðgar gátum ekki fangað í
orð hefur skáldið fært í búning í
ljóðinu Vorvísur úr Dýrafirði. Eitt
erindi úr ljóðinu verður hinsta
kveðja sonar til föður.
Yfir firði, túni og teigi
töfrakyrrð í nótt er vís.
Fegra logn þú finnur eigi
fyrr en þá í Paradís.
(Guðm. Ingi Kristjánsson)
Angantýr Valur Jónasson.
Við Jónas vorum kvæntir systr-
um, Jónas Nönnu og ég Doddu.
Fjölskylduböndin hafa alla tíð ver-
ið sterk þar sem tengdaforeldrar
okkar, Ingunn og Magnús Amlín,
voru miðpunkturinn. Jónas og
Nanna bjuggu ofan við götuna en
tengdaforeldrar okkar fyrir neðan
götuna og samgangurinn var mik-
ill. Þegar við komum í heimsókn til
Þingeyrar var farið á milli húsa
eins og allt væri þetta sama heim-
ilið og í minningunni lifa margar
ánægjulegar samverustundir frá
þeim tímum. Þá minnist ég fjöl-
margra ferða sem við fórum sam-
an, út með Dýrafirði, um Vestfirði
og landið allt. Ég var oftast við
stýrið en Jónas með kíkinn í hönd-
unum horfandi upp um hlíðar í leit
að vænu fé.
Jónas og Nanna byggðu hús á
Þingeyri og sköpuðu sér og börn-
unum fimm fallegt heimili. Þau
sýndu og sönnuðu að garðrækt á
Þingeyri var vel möguleg og rækt-
uðu í sameiningu upp fallegan
garð þar sem við nutum svo oft
góðra stunda í sól og blíðu.
Þau voru af þeirri kynslóð þeg-
ar sjálfsagt þótti að konan væri
heima og sinnti börnum og búi en
karlinn væri fyrirvinnan og sæi
um aðdrætti til heimilisins. Þegar
hann kom heim í hádeginu beið
hans heitur matur og eftir matinn
var séð til þess að hann fengi að
kasta sér út af smástund sér til
hvíldar. Þrátt fyrir að Jónas hafi
ekki komið að eldhúsverkum svo
einhverju nemi náði hann á efri ár-
um nokkurri færni við að elda
hafragraut og sjóða kartöflur að
eigin sögn.
Jónas var frístundabóndi til
margra ára og stundaði sauðfjár-
rækt. Hann hafði mikla unun af
því að vinna að kynbótum á fjár-
stofni sínum og hafði þar góðan
árangur eftir því sem mér er sagt.
Ég er langt frá því að vera fróður
á þessu sviði en get þó fullyrt að
lambakjöt sem barst frá búi Jón-
asar inn á heimili mitt þótti bera af
öðru kjöti í alla staði. Þó sauðfjár-
ræktin hafi ekki bundið okkur
saman áttum við Jónas ýmis sam-
eiginleg áhugamál og má þar
nefna gleðistundir við laxveiðar og
við spilaborðið þar sem við spil-
uðum bridge bæði sem mótherjar
og makkerar.
Jónas var snyrtimenni fram í
fingurgóma og eitt af því sem ég
lærði af honum var að ódýrasta og
arðbærasta fjárfesting sem menn
gætu farið í væri að huga að um-
hverfinu og hafa snyrtilegt í
kringum sig. Á þeim 25 árum sem
Jónas var sveitarstjóri tók Þing-
eyri stakkaskiptum, götur voru
bundnar slitlagi, gangstéttar lagð-
ar, blóm og tré gróðursett og göm-
ul skúrræksni rifin. Þeir sem ferð-
uðust um Vestfirði tóku eftir að
Þingeyri bar af öðrum byggðar-
lögum hvað snyrtimennsku varð-
aði. Þar var allt svo hreint og fínt
að hægt var að fara um þorpið á
sokkaleistunum.
Á síðustu árum sínum sem
sveitarstjóri stóð Jónas fyrir
byggingu sundlaugar og íþrótta-
húss á Þingeyri. Þessar byggingar
verða minnisvarði hans um
ókomna tíð og veita íbúum Þing-
eyrar og gestum ómælda gleði og
lífsfyllingu.
Nú þegar samvistum okkar
Jónasar er lokið að sinni kveð ég
svila minn með virðingu, þökk og
söknuð í hjarta, góður drengur
hefur lokið göngu sinni hér á
jörðu.
Minni góðu mágkonu Nönnu,
börnum hennar og fjölskyldum
þeirra sendum við Dodda og fjöl-
skylda okkar innilegar samúðar-
kveðjur.
Kristján Haraldsson.
Jónas Ólafsson
Elsku Villi.
Margar minning-
ar renna í gegnum
huga minn þessa
stundina, elsku frændi, allt frá því
við vorum smá pjakkar á Garða-
veginum yfir í að vera algerir
ræktardurgar á Álftanesinu.
Við byrjuðum ungir að hanga
saman þrátt fyrir fjögurra ára ald-
ursmun, en það truflaði okkur
aldrei og ekki annað hægt en að
brosa yfir öllum okkar uppátækj-
um.
Þú varst alltaf til staðar þegar
maður þurfti á að halda og ef
manni leið illa varst þú fyrsti mað-
urinn til að rífa mann upp.
Þú áttir stóran þátt í að draga
mig í hluti sem voru langt út fyrir
minn þægindaramma og hluti af
því var að sprauta á mann ísköldu
vatni á morgnana til að draga
mann af stað í ræktina, en það
fylgir víst því að eiga frænda sem
er einkaþjálfari.
Oft gat ég ekki annað en litið
upp til þín, litli frændi, og vonast
til að ég næði einhvertíma þessum
Vilhjálmur Árni
Sveinsson
✝ VilhjálmurÁrni Sveinsson
fæddist 30. janúar
1985. Hann lést 10.
apríl 2016.
Vilhjálmur Árni
var jarðsunginn 28.
apríl 2016.
styrk og sjálfsaga
sem þú bjóst yfir og
tala nú ekki um
þessa þvílíku orku
sem þú hafðir.
Fótbolti, tölvu-
leikir og ræktin voru
okkar helstu áhuga-
mál saman og þegar
ég náði að rífa þig af
stað í golfið var það
fljótt að bætast við.
Þau voru ófá
höggin sem voru tekin á vellinum
og ekki leið á löngu áður en þú
náðir holu í höggi eftir aðeins
nokkra leiki.
Þegar ég heyrði í þér síðast þá
varst þú búinn að ákveða að kíkja
heim á klakann og við búnir að
plana í sameiningu að rífa í lóðin
og kíkja á alla okkar sveittu mat-
sölustaði saman en þeir voru ófáir
sem við hentumst á eftir góðar æf-
ingar.
Það var alltaf nóg að gera hjá
okkur og gleðin virtist alltaf í há-
marki.
Sú tilhugsun að þú sért ekki
lengur á meðal okkar er ein sú
versta og minningarnar okkar
eiga alltaf eftir að eiga stóran stað
í mínu hjarta.
Ég er svo þakklátur fyrir þenn-
an tíma sem við áttum saman, og
þó við værum frændur þá varst þú
minn besti vinur.
Hjalti Snær Heiðarsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
YNGVA HREINS JÓHANNSSONAR
málarameistara,
Hólastekk 3.
.
Elíane Hommersand Þorláksdóttir
Eva Yngvadóttir Sigurjón Sigurjónsson
Jóhann Yngvason
Jakob Yngvason Erla G. Sigurðardóttir
Lárus Yngvason Dröfn Gunnarsdóttir
barnabörn
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
HJÖRTUR JAKOBSSON
vörubílstjóri,
Hraunbæ 150,
sem lést á Landspítalanum Hringbraut
þann 27. apríl, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 9. maí klukkan 13.
.
Auður Gunnarsdóttir,
Ásta Rut Hjartardóttir.
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
VALDIMAR K. JÓNSSON,
prófessor emeritus,
Kirkjusandi 3,
lést á Landspítalanum 5. maí síðastliðinn.
Útför verður frá Dómkirkjunni föstudaginn
13. maí kl. 13. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hans er bent á hjartadeild Landspítalans.
.
Þyrí Valdimarsdóttir Eggert Eggertsson
Örn Valdimarsson Guðbjörg M. Sigtryggsd.
Vilborg Erla Valdimarsd. Sigurður Sigurðsson
Jón Rafn Valdimarsson Elín Rósa Guðmundsd.
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
AXEL VALDIMAR ERLINGSSON BANG,
Skjólbraut 1a,
lést á heimili sínu 1. maí síðastliðinn. Útförin
fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
11. maí kl. 13.
Aðstandendur vilja koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem
komu að umönnun Axels í veikindum hans.
.
Dagný Karlsdóttir Erling Bang
Karl Erlingsson Doris Róbertsdóttir
Gunnar Erlingsson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR ÓLAFUR EINAR JÓNSSON,
Suðurlandsbraut 66,
lést 10. apríl síðastliðinn. Bálförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
.
Jóna M. Ólafsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson,
Heimir Ólafsson,
Halldór Ólafsson, Bozena Wrzesinska,
Þórstína S. Ólafsdóttir, Jóhann Zakarías Karlsson,
Eyrún O. Ólafsdóttir, Reynir Georgsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir og faðir,
VIKTOR GEIR VALMUNDSSON,
Norðurgötu 47, Akureyri,
lést 26. apríl. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 12. maí kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hans er
bent á SÁÁ, samtök um áfengis- og vímuefnavanda.
.
Valmundur Einarsson, Elsa Pálmey Pálmadóttir,
Pálmi Rafn Eiríksson,
Einar Karl Valmundsson,
Halla Valey Valmundsdóttir,
Elsa Bjarney Viktorsdóttir,
Sigurgeir Bessi Viktorsson.