Morgunblaðið - 07.05.2016, Side 8

Morgunblaðið - 07.05.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016 Í tíð síðustu ríkisstjórnar, semkallaði sig velferðarstjórn, var sett byggingareglugerð sem jók byggingakostnað stórlega. Áætlað hefur verið að hækkun bygginga- kostnaðar vegna reglugerðarinnar hafi numið 10-20%.    Nú hefur SigrúnMagnúsdóttir umhverfisráðherra gefið út reglugerð um breytingu á þessari íþyngjandi og kostnaðar- sömu reglugerð vinstri stjórnar- innar.    Markmiðið með breytingunni erað lækka byggingakostnað vegna íbúðarhúsnæðis og allt útlit er fyrir að það muni takast.    Í samtali við Morgunblaðið sagðiframkvæmdastjóri Búseta að breytingin gæti leitt til 1-2 milljóna króna sparnaðar í byggingu ein- faldrar íbúðar, en sparnaðurinn væri hlutfallslega minni í stærri íbúðum.    Reglugerðin er jákvætt skref enmeð henni er þó ekki búið að vinda ofan af öllum kostnaðarauk- anum sem vinstri velferðarstjórnin lagði á landsmenn.    Vonandi er sú ágæta breytingsem nú hefur orðið aðeins fyrsta skrefið í þá átt að gera al- menningi kleift að lækka kostn- aðinn við að koma sér upp þaki yfir höfuðið.    Fólki er vel treystandi til að takaákvarðanir um eigið húsnæði og ef þær ákvarðanir ganga ekki á hagsmuni annarra er óþarfi að auka kostnaðinn með íþyngjandi regluverki. Sigrún Magnúsdóttir Unnið að lægra íbúðaverði STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.5., kl. 18.00 Reykjavík 6 alskýjað Bolungarvík 2 rigning Akureyri 3 alskýjað Nuuk 7 skýjað Þórshöfn 5 alskýjað Ósló 10 skýjað Kaupmannahöfn 11 heiðskírt Stokkhólmur 10 heiðskírt Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 15 skúrir Brussel 16 heiðskírt Dublin 7 skúrir Glasgow 8 skýjað London 12 léttskýjað París 12 léttskýjað Amsterdam 17 heiðskírt Hamborg 12 heiðskírt Berlín 12 skýjað Vín 12 skýjað Moskva 7 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 10 skúrir Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 heiðskírt Róm 17 heiðskírt Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -5 léttskýjað Montreal 3 skúrir New York 16 alskýjað Chicago 9 alskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:37 22:12 ÍSAFJÖRÐUR 4:23 22:37 SIGLUFJÖRÐUR 4:05 22:21 DJÚPIVOGUR 4:02 21:47 Alls var 451 strandveiðibátur kom- inn með leyfi til veiða í gær, en 291 hafði landað afla fyrstu þrjá daga vertíðarinnar, sem byrjaði á mánudag. Alls var 302 tonnum landað í vikunni, en veður var mjög misjafnt eftir svæðum og víðast hvar erfitt að róa í norðan- áttinni. Heimilt er að draga 650 kíló, í þorskígildum talið, af kvótabundn- um tegundum í hverri veiðiferð. Flestir bátar, eða 121, eru byrjað- ir strandveiðar á svæði A frá Arn- arstapa að Súðavík og komu þar 116 tonn á land í vikunni. Meðal- afli á bát á A-svæði er því 959 kíló. 82 bátar eru byrjaðir á D- svæði frá Höfn í Borgarnes og hafa þeir landað 113 tonnum. Þar er meðalaflinn mestur eða 1.381 kíló á bát. Á B-svæði frá Norðurfirði til Grenivíkur eru 46 bátar byrjaðir og meðalaflinn 677 kíló. Á C-svæði frá Húsavík að Djúpavogi eru 42 bátar byrjaðir og aflinn alls 42 tonn eða um tonn á bát. Mestur afli á suð- ursvæði  451 kominn með strandveiðileyfi „Það er alveg ljóst að ekki verður byggt hótel við Mývatn nema að full- kominni hreinsistöð fyrir frárennsli verði komið upp, en það hefur legið ljóst fyrir frá upphafi, þannig að um- ræðan núna kemur okkur ekki á óvart,“ segir Magnea Þórey Hjálm- arsdóttir, framkvæmdastjóri Ice- landair Hotels Group, en hótel- keðjan hefur fengið samþykkta breytingu á aðal- og deiliskipulagi við Hótel Reykjahlíð til að byggja viðbyggingar á tveimur hæðum. Mikið hefur verið rætt og ritað um frárennsli í Mývatnssveit og í minn- isblaði sem Skútustaðahreppur sendi inn við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 kemur fram að hreppurinn þurfi að ráðast í umfangsmiklar úr- bætur á frárennslismálum m.a að kröfu Umhverfisstofnunar. Þar kemur fram að Verkfræðistofan EFLA hafi gert forhönnun og kostn- aðarmat á fráveitukerfi sem uppfylli kröfu um svokallaða þriggja þrepa hreinsun en í dag er tveggja þrepa hreinsun í Reykjahlíð. Hefðbundin kostnaðaráætlun við hreinsistöðina og lagna- og dælu- kerfið hljóðar upp á 200–325 millj- ónir króna en ljóst er að sveitarfé- lagið ræður ekki við þann kostnað. Magnea segir að deiliskipulags- ferli sé að hefjast og teikningar af hóteli liggja ekki fyrir. benedikt@mbl.is Ekki byggt nema hreinsistöð komi  Icelandair hótelkeðjan hyggur á framkvæmdir við Mývatn Ljósmynd/ Arnar Egilsson Stækkun Hótelið er á besta stað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.