Morgunblaðið - 07.05.2016, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
SUMUM LEYNDARMÁLUM
Á EKKI Að ÞAGA YFIR.
GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK?
HVAÐ MEÐ
KYNFERÐISOFBELDI?
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Kvart og síðbuxur
Margir litir
str. 36-50
Verð 8.980.-
MODEST STRECH-
BUXURNAR
KOMNAR AFTUR
Opið 10-16 í dag
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Túnika
kr. 7.900
Str. s-xxxl
Lokakaffi
Kvenfélagsins Heimaeyjar
verður á Grand hótel Reykjavík sunnudaginn 8. maí kl. 14.
Blítt og létt hópurinn kemur í heimsókn.
Við vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórnin
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Sólvallagötu 12
OPIÐ HÚS
í Hússtjórnaskólanum í Reykjavík
í dag, laugardaginn 7. maí, milli kl. 13:00 - 17.00
Kaffi og kökusala ásamt sýningu á handavinnu nemenda
Allir velkomnir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is og facebook.com/laxdal.is
SUMARFRAKKAR
OG LJÓSAR
SUMARBUXUR
Frelsi &
jafnrétti
Forsenda
framfara
S JÁ L F S TÆÐ I S F L O KKUR I N N
Á réttri leið
Vorferð eldri
sjálfstæðismanna
Samtök eldri sjálfstæðismanna og Félag eldri sjálf-
stæðismanna á Suðurnesjum efna til vorferðarmið-
vikudaginn 18.maí n.k.
Farið verður fráNesvöllum í Reykjanesbæ
kl. 9:00 og ekið aðValhöll. Kl. 10:00 verður svo farið
frá Valhöll og ekið tilAkraness ogGrundartanga.
Nánari dagskrá verður auglýst á ses.xd.is.
Fargjaldið er 3.000 kr. á mann og best að leggja það
inn á reikning 0513-26-007414, kt. 570269-1439.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 515-1700,
ekki síðar enmánudaginn 16. maí kl. 15.00.
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, tilkynnti í gær að
hann hygðist ekki bjóða sig fram til
áframhaldandi
setu sem formað-
ur flokksins, þvert
á það sem hann
hafði áður sagst
ætla að gera. Í
bréfi sem Árni
Páll sendi frá sér
til flokksmanna í
gær segist hann
ekki getahorft
fram hjá því að
um sýn sína og persónu sé ekki eining
„og atburðarásin á og frá síðasta
landsfundi vekur mér efasemdir um
að sú eining geti skapast með mig
sem formann. Mín biði því erfið bar-
átta, innan flokks sem er í sárum, sem
enginn veit hverju myndi skila,“ segir
Árni Páll.
Hann segir stöðu flokksins óásætt-
anlega, en hún hefur mælst langt und-
ir kjörfylgi í skoðanakönnunum að
undanförnu. „Hugsjónir jafnaðar-
manna þurfa samhentan og skynsam-
an flokk sem ber þær fram og persón-
ur geta ekki staðið þeim framar,“
segir í bréfinu. Oddný G. Harðardótt-
ir og Magnúsi Orri Schram, Helgi
Hjörvar og Guðmundur Ari Sigur-
jónsson hafa boðið sig fram til for-
manns. Oddný og Magnús sögðu í
samtali við mbl.is að ákvörðun Árna
Páls hafi komið á óvart.
Spurð um lélegan árangur Sam-
fylkingarinnar í skoðanakönnunum
að undanförnu segir Oddný: „Mér
finnst eðlilegt að flokkur í þessari
stöðu reyni allt sem hann getur til að
laga stöðuna og eitt af því getur verið
að skipta um forystu,“ segir Oddný.
Magnús Orri segir Árna öflugan
stjórnmálamann. „Hann fékk svolítið
snúin spil á hendi þegar hann tók við,
og formannskosningin á síðasta
landsfundi,“ segir Magnús Orri.
„Þannig að það er búin að vera svolítil
brekka hjá honum í hans formannstíð
og ég held að þetta sé hyggileg
ákvörðun fyrir hann,“ segir Magnús
Orri.
Helgi Hjörvar segist sáttur við þá
ákvörðun Árna Páls að hætta við að
gefa kost á sér. „Það lýsir baráttu-
þreki Árna Páls að hann hefur haldið
möguleikanum á að leiða áfram Sam-
fylkinguna opnum fram á síðustu
stundu,“ segir Helgi Hjörvar.
Ekki náðist í Árna Pál við vinnslu
fréttarinnar.
Árni Páll hættir við
þátttöku í formannsslagnum
Segir ekki einingu um sína sýn og persónu innan Samfylk-
ingarinnar Frambjóðendur segja ákvörðun koma á óvart
Árni Páll Árnason
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Ekki hafa fleiri bílar farið um þrjú
mælisnið Vegagerðarinnar á höf-
uðborgarsvæðinu frá upphafi mæl-
inga en í apríl síðastliðnum. Var um-
ferð um 13% meiri en hún var á
sama tíma í fyrra. Frá áramótum
hefur umferðin aukist um sjö pró-
sent og það stefnir í að umferðin á
höfuðborgarsvæðinu verði 4,6%
meiri en í fyrra. Þetta kemur fram í
frétt á vef Vegagerðarinnar.
Umferð jókst um 12,9% milli apr-
ílmánaða, sem er mesta aukning
milli ára í sömu mánuðum, eftir
hrun. Leita þarf aftur til ársins 2007
til að finna viðlíka aukningu milli ára
í sömu mánuðum. Metið milli ágúst-
mánaða 2006 og 2007 upp á 13,2%
stendur því enn. Umferðin fór í
fyrsta sinn yfir 150 þús. bíla að með-
altali á hverjum degi yfir mælisniðin
þrjú. Umferðin
hefur heldur aldr-
ei verið eins mikil
og nú, miðað við
árstíma og hefur
aukist um 7,1 pró-
sent á fyrstu mán-
uðum ársins.
Umferðin hefur
aukist alla viku-
daga, en mest hef-
ur hún þó aukist á
sunnudögum eða um 9,4%. Minnst
eykst umferðin á föstudögum eða
um 4,8%. Minnst er ekið á höf-
uðborgarsvæðinu á sunnudögum.
Eftir því sem lengra líður á árið
hefur spáin um væntanlega um-
ferðaukningu vaxið. Nú er gert ráð
fyrir að umferðin geti vaxið um 4,6%
miðað við árið 2015.
Umferðarmet sett á
höfuðborgarsvæðinu
Umferð Aldrei
hefur meiri um-
ferð mælst.
Umferð 13% meiri en í apríl í fyrra