Morgunblaðið - 07.05.2016, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Rafsuðuvörur
Dalshrauni 14 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 2035 • jak.is
ESAB Caddy Mig
– 30-160 Amper
– Mjög einföld í notkun
– Stillir með einum hnappi efnisþykkt og byrjar að sjóða
– Aðeins 11,4kg
– Þolir langar framlengingarsnúrur
– Mjög góð vél frá ESAB bæði fyrir tómstundir
og atvinnumennsku
160.000
m/vsk
ESAB Caddy
Mig C160i
200.000
m/vsk
ESAB Caddy Mig C200i
– 30-200 Amper
– Einföld í notkun
– Stór LCD skjár með aðgerðarstýringum
– Stillir með einum hnappi efnisþykkt
og hvað efni er verið að nota
og byrjar að sjóða
– Þolir langa framlengingarsnúru
– Mjög góð vél frá ESAB bæði
fyrir tómstundir og
atvinnumennsku
Fyrsta flokksþing einræðisflokks
Norður-Kóreu í 36 ár hófst í gær og
var haldið fyrir luktum dyrum.
Þúsundir útvalinna félaga í Verka-
mannaflokknum sitja þingið og tal-
ið er að markmiðið sé að festa Kim
Jong-Un í sessi sem leiðtoga lands-
ins.
Síðasta landsþing flokksins var
haldið árið 1980 til að staðfesta
valdatöku föður Kims eftir að afi
hans og fyrsti leiðtogi landsins lést.
Fjölmenn sendinefnd frá Kína var
þá send til Pjongjang til að fylgjast
með flokksþinginu en nú ber svo við
að kínversk stjórnvöld, sem hafa
verið helstu bandamenn Norður-
Kóreumanna, eru ekki með neinn
fulltrúa á þinginu. Það er talið
endurspegla vaxandi óánægju
stjórnvalda í Kína með stefnu
Norður-Kóreustjórnar, m.a. tvær
kjarnorkutilraunir hennar. Orð-
rómur hefur verið á kreiki um að
Norður-Kóreumenn hyggist
sprengja kjarnorkusprengju í til-
raunaskyni í þriðja skipti áður en
flokksþinginu lýkur.
Engir Kínverjar á
flokksþingi í Pjongjang
AFP
Pukur í Pjongjang Strætisvagn fer framhjá höll í Pjongjang þar sem flokksþingið er haldið. Á byggingunni eru
myndir af föður og afa leiðtoga N-Kóreu, Kim Jong-Un. Mikil leynd var yfir setningu og störfum þingsins.
Úrslit forseta-
kosninganna í
Bandaríkjunum
í nóvember gætu
ráðist af því
hvort forseta-
efna stóru flokk-
anna tveggja er
óvinsælla, ef
mark má nýja
skoðanakönnun sem fréttaveitan
Reuters hefur birt. Um 47% þeirra
sem styðja Donald Trump, líklegt
forsetaefni repúblikana, segja
meginástæðuna þá að þau vilji
koma í veg fyrir að Hillary Clinton,
líklegt forsetaefni demókrata,
verði næsti forseti. Um 43% sögðu
aðalástæðuna vera stefnu Trumps.
Um 46% þeirra sem ætla að kjósa
Hillary Clinton segjast fyrst og
fremst gera það til að afstýra því að
Trump komist til valda í Washing-
ton, en aðeins 40% nefndu stefnu
hennar.
BANDARÍKIN
Styðja forsetaefni
í því skyni að fella
keppinautinn
Sjö ára stúlka
sem fæddist
handalaus hefur
fengið verðlaun í
Bandaríkjunum
fyrir góða rit-
hönd í keppni
skólabarna.
Stúlkan, sem
heitir Anaya
Ellick, notar ekki gervihendur en
þegar hún skrifar stendur hún og
heldur blýantinum milli handleggj-
anna. „Hún lætur ekkert aftra sér
frá því að gera það sem hún ein-
setur sér,“ hefur fréttavefur BBC
eftir skólastjóranum í skóla stúlk-
unnar í Virginíuríki. „Hún leggur
hart að sér og er með eina bestu rit-
höndina í bekknum sínum.“
BANDARÍKIN
Handalaus sigraði
í rithandarkeppni
Vísindamála-
ráðuneyti Bret-
lands hefur
ákveðið að nýtt
15.000 tonna
rannsóknaskip,
sem á að rann-
saka norður-
skautssvæðið, fái
heitið Sir David
Attenborough. Ráðuneytið ákvað
að nefna skipið eftir náttúrufræð-
ingnum og sjónvarpsmanninum en
ekki „Boaty McBoatface“, sem fékk
langflest atkvæði í könnun á netinu
þegar almenningi var boðið að velja
nafn á skipið. Ákveðið var þó að
gefa nýjum rannsóknakafbáti þetta
undarlega nafn, að sögn fréttaveit-
unnar AFP.
BRETLAND
Attenborough í stað
Boaty McBoatface