Morgunblaðið - 07.05.2016, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ef tré fellur ískóginum ogenginn er á
staðnum til að heyra
það, gefur það frá
sér hljóð?“ spurði
írski heimspekingurinn George
Berkeley fyrir þremur öldum.
Hér á landi virðist spurningin
vera hvort allur heimurinn heyri
það falli tré á Íslandi. Og svarið
virðist vera: já.
Margir hafa tekið sterkt til
orða eftir að byrjað var að birta
upplýsingar úr Panamaskjöl-
unum um aflandsfyrirtæki Ís-
lendinga. Engin ástæða er til
þess að gera lítið úr því sem þar
kemur fram, en óþarfi er að slíta
þá hluti úr öllu samhengi eins og
gert er þegar sagt er að orðspor
Íslands sé ónýtt í útlöndum vegna
spillingar.
Þótt Íslendingar vilji standa
öðrum framar á öllum sviðum, er
erfitt að halda því fram að þjóðin
sé heimsmeistari í spillingu. Ef
orðspor Íslendinga er nú í hættu
ætti orðspor annarra að vera
löngu fokið.
Spillingin þrífst víða og stjórn-
málamenn sitja sem fastast þótt
þeir hafi sett kíkinn fyrir blinda
augað eða jafnvel ýtt undir hana
með ráðum og dáð.
Um þessar mundir er Jean-
Claude Juncker höfuð fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins. Juncker var forsætis-
ráðherra Lúxemborgar frá 1995
til 2013. Hann var fjármálaráð-
herra landsins frá 1989 til 2009. Á
þessum tíma gerði Lúxemborg
samninga við mörg af stærstu
fyrirtækjum heims, sem gerðu
þeim kleift að komast undan
skatti í öðrum löndum Evrópu-
sambandsins og víðar. Upphæð-
irnar nema ekki milljörðum, held-
ur billjónum. En Juncker segir
ekki ég og situr áfram, áhyggju-
laus um orðspor
Lúxemborgar.
Aflandskerfið er
ekki íslensk upp-
finning. Þegar sól
breska heimsveld-
isins hneig til viðar héldu Bretar
áhrifum sínum með því að gerast
miðstöð fjármála. Þeir eiga lyk-
ilþátt í að búa til það kerfi, sem
afhjúpað er í Panamaskjölunum.
Skattaskjól Bandaríkjamanna
er í Delaware og var búið til sem
svar við aflandsæfingum Breta.
Þar eru fleiri fyrirtæki skráð en
íbúar. Delaware hefur verið kall-
að draumaland þeirra, sem vilja
komast hjá því að borga skatta.
Til þessa hefur aflandskerfið
verið látið viðgangast. Eftir
bankakreppuna 2008 hefur kveð-
ið við nýjan tón og stjórnmála-
menn sagst ætla að uppræta
aflandskerfið. Bretar hafa meira
að segja kynnt aðgerðir, sem eiga
að taka gildi í haust og eiga að
torvelda mjög að fela eignarhald
fyrirtækja og undankomu undan
skattlagningu. Í ljósi reynslu er
rétt að trúa ekki fyrr en á verður
tekið, en samkvæmt þessu ætla
Bretar að fella ófreskjuna, sem
þeir sköpuðu og hefði kannski
fremur verið ástæða til að ráðast
gegn í krafti hryðjuverkalaga en
gegn íslensku fjármálakerfi.
Leggja þarf áherslu á að Ís-
land sitji ekki eftir í þeim efnum,
heldur verði peningaþvætti,
undanskot og skattsvik tekin
föstum tökum. Það eru hins vegar
takmörk fyrir því hverju Íslend-
ingar fá áorkað einir. Það þarf al-
þjóðlegt átak til að loka skjólum
spillingarinnar og þar þurfa þeir,
sem hingað til hafa greitt fyrir
spillingunni, að vera í aðalhlut-
verki.
Ef það tré fellur í skóginum er
líklegt að hvellurinn heyrist fyrir
alvöru.
Heyrir allur heim-
urinn ef tré fellur á
Íslandi?}
Skjól spillingarinnar
Um þessar mund-ir eru fimm ár
frá því að bandarísk-
ir sérsveitarmenn
skutu Osama bin
Laden til bana þar sem hann hafð-
ist við í felum, steinsnar frá þjálf-
unarbúðum pakistanska hersins.
Víg bin Ladens var á sínum tíma
sagt marka allnokkur tímamót, en
þá var áratugur liðinn frá hryðju-
verkunum 11. september, auk
þess sem al Qaeda-samtök hans
höfðu staðið fyrir fjölda voða-
verka víðsvegar um heiminn.
Einnig hafa verið færð rök fyrir
því að þessi hernaðaraðgerð hafi
aðallega verið táknræn um mátt
Bandaríkjanna, en hafi litlu
breytt til lengri tíma. Síst hefur
dregið úr áhrifum öfgamanna í
hinum íslamska heimi. Uppgang-
ur Ríkis íslams, sem var að
nokkru leyti á kostnað al Qaeda,
þýðir að heimurinn er síst örugg-
ari en áður.
Þá er langt frá því að búið sé að
sigrast á al Qaeda. Sérfræðingar í
hryðjuverkum telja að nú séu
kjöraðstæður víða um Mið-
Austurlönd og Norð-
ur-Afríku fyrir boð-
skap hryðjuverka-
manna. Þá sé athygli
Vesturlanda einkum
beint að Ríki íslams, sem geri al
Qaeda auðveldara fyrir að dreifa
boðskap sínum. Fráfall bin Lad-
ens veikti samtökin, en gerði ekki
út af við þau.
Tímamótin hafa einnig orðið til
þess að vekja upp vangaveltur um
það, hvort Bandaríkjamenn ættu
að reyna að hafa hendur í hári
Abu Bakr al-Baghdadi, æðsta yf-
irmanns Ríkis íslams, með svip-
uðum hætti. Yfirmaður CIA,
leyniþjónustu Bandaríkjanna,
hafði á orði að slíkt gæti orðið
mjög þýðingarmikil aðgerð.
Reynslan af víginu á bin Laden
sýnir þó, að líkt og í grísku goða-
fræðinni er ekki sjálfgefið að
skrímslið láti undan þó eitt höf-
uðið sé hoggið af. Aðgerð af þessu
tagi getur verið þýðingarmikil í
baráttunni við hryðjuverkamenn,
en það þarf mun meira til að sigr-
ast á öflugum samtökum slíkra ill-
virkja.
Fimm ár frá vígi
Osama bin Ladens}Það þarf meira til
Í
fyrradag steig Guðni Th. Jóhannesson
inn á hið opinbera svið með öðrum og
meira afgerandi hætti en hann hefur
áður gert. „Í sumar göngum við til for-
setakjörs. Þar verð ég í framboði,“
sagði hann glaður í bragði fyrir framan hund-
ruð stuðningsmanna sem saman voru komnir
til að hlýða á hann tilkynna þessa ákvörðun
sína.
Okkur er öllum óhætt að fagna þessari
ákvörðun Guðna, óháð því hvort við hyggjumst
styðja hann til embættisins eða ekki. Ástæðan
er einföld. Þarna fer ærlegur og góður dreng-
ur sem sýnt hefur að honum er vel treystandi
til að leysa af hendi vandasöm verkefni. Kosn-
ingabaráttan verður ábyggilega betri og mál-
efnalegri með hann um borð. Þar ræður meðal
annars yfirgripsmikil þekking hans á sögu for-
setaembættisins og þeirra fimm einstaklinga sem því
hafa gegnt frá árinu 1944. Líkast til er Guðni eini mað-
urinn sem skákað getur núverandi forseta hvað þekkingu
á þessu efni varðar. Gaman verður að fylgjast með þeim
tveimur kljást með þau vopn öll í farteskinu.
Sjálfur hyggst ég styðja Guðna í kosningunum. Ég hef
einfaldlega góða reynslu af honum persónulega og þegar
nafn hans var fyrst nefnt í sambandi við mögulegt for-
setakjör sá ég strax fyrir mér að hann gæti tekið við emb-
ættinu og vaxið með því á komandi árum. Verði hann kos-
inn, veit ég þó að þær aðstæður munu koma upp þar sem
ég verð honum ekki sammála í einu og öllu. En það gerir
ekkert til. Ég geri ekki slíka kröfu til fólks
sem ég kýs til trúnaðarstarfa, hvort sem það
er á vettvangi ríkis, borgar eða til setu á
Bessastöðum. Og raunar verð ég að viður-
kenna að ég er strax orðinn honum ósammála
um eitt atriði sem fram kom í ræðu hans á
fimmtudag.
Það snýr að hugmyndinni um að forseti Ís-
lands eigi að vera sameiningartákn þjóðar-
innar. Ég er algjörlega sannfærður um að það
geti enginn forseti verið og raunar held ég að
aðrir þættir í skilgreiningu Guðna á embætt-
inu renni stoðum undir þá skoðun. Um þau at-
riði er ég Guðna sammála. Hann segir til
dæmis að forseti eigi „að vera fastur fyrir þeg-
ar á þarf að halda. Hann á að leiða erfið mál til
lykta og tryggja að þjóðin eigi alltaf síðasta
orðið í stærstu málum“, og þá segir hann einn-
ig að forseti geti „þurft að taka óvinsælar ákvarðanir“.
Forseti verður sannarlega að stíga inn í erfiðar að-
stæður. Það hafa þeir allir þurft að gera. Og þeir hafa allir
þurft að taka óvinsælar ákvarðanir. Þær eru oftast þess
eðlis að þær eru vinsælar hjá einum hópi en öðrum ekki.
Slík staða sundrar, að minnsta kosti um sinn og því er allt
tal um tákn sameiningar í raun fokið út í veður og vind.
En hvað sem líður þessu held ég að Guðni geti orðið góð-
ur forseti, jafnt á þeim stundum þegar um hann mun
ríkja sátt og líka þegar á hann verður deilt fyrir embætt-
isfærslu sína. Vonandi fæst tækifæri til að sannreyna
þessa skoðun mína.
Stefán Einar
Stefánsson
Pistill
Stundum óvinsælt og einmanalegt
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Eftirlitsnefnd með fjármál-um sveitarfélaga munvæntanlega láta gerasjálfstæða rannsókn á
fjárhag Reykjanesbæjar áður en
ákveðið verður hvort gripið verður til
aðgerða og þá hverra. Eftirlits-
nefndin og innanríkisráðherra hafa
ýmis úrræði til að bregðast við, meðal
annars að svipta bæjarstjórnina fjár-
forræði og skipa fjárhaldsstjórn,
hækka skatta, skera niður þjónustu,
selja eigur sveitarfélagsins og leita
frjálsra samninga eða nauðasamn-
inga við lánardrottna.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
hefur verið í viðræðum við lánar-
drottna sína í hálft annað ár. Nið-
urstaða bæjarins og meirihluta
kröfuhafa var sú að nauðsynlegt væri
að fella niður rúmlega 6 milljarða kr.
af alls rúmlega 40 milljarða króna
skuldum bæjarins til þess að hjálpa
til að hann geti náð lögbundnu
skuldaviðmiði. Kröfuhafarnir settu
það skilyrði að allir lánardrottnar
sætu við sama borð. Í hópi kröfuhafa
eru ellefu lífeyrissjóðir og þeir gátu
ekki fallist á þetta samkomulag.
Að vísu komu nokkuð misvísandi
upplýsingar fram um afstöðu lífeyr-
issjóðanna á bæjarstjórnarfundi í síð-
ustu viku. Í svarbréfi fulltrúa lífeyr-
issjóðanna, sem barst bænum seint
kvöldið áður, kom fram að þeir væru
reiðubúnir að ganga til samninga um
breytt kjör og endurgreiðslutíma
lána, um hugsanleg breytt vaxtakjör
eða aðrar leiðir sem gætu leitt til þess
að greiðslubyrði bæjarsjóðs og hafn-
ar myndu lækka. Fulltrúar meiri-
hlutans sögðust hafa spurt fulltrúa
lífeyrissjóðanna nánar út í þetta og
fengið þau svör að ekki væri í boði að
lækka vexti, frekar væri ástæða til að
nýta ákvæði í skuldabréfum um að
hækka vextina. Þeir litu svo á að ekki
væri um neitt að ræða við lífeyris-
sjóðina.
Nægur tími til að semja
Samþykkt var að tilkynna til eft-
irlitsnefndar með fjármálum sveitar-
félaga að heildarsamningar við kröfu-
hafa væru ekki í sjónmáli og því gæti
bærinn ekki lagt fram tillögur um að-
lögun að skuldaviðmiðum eftirlits-
nefndarinnar. Meirihlutinn hafði áð-
ur lagt til mun afdrifaríkari tillögu,
það er að tilkynna eftirlitsnefndinni
að Reykjanesbær væri kominn í fjár-
þröng. Hún hefði væntanlega falið í
sér að skipuð yrði fjárhaldsstjórn til
að yfirtaka fjármál bæjarins. Tillög-
unni var breytt á fundinum og mild-
ari útgáfan samþykkt af fulltrúum
meirihlutaflokkanna. Með því er bolt-
anum kastað til eftirlitsnefndarinnar.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins greiddu atkvæði á móti.
Þeir gagnrýndu misvísandi skilaboð
um samninga við lífeyrissjóðina og
vildu láta betur reyna á samninga við
þá, á grundvelli bréfs sjóðanna. „Ég
tel að við höfum nægan tíma til að ná
samningum og hef fulla trú á því að
við getum gert það án þess að fá hjálp
frá öðrum,“ segir Böðvar Jónsson
bæjarfulltrúi.
Rannsaka fjárhag
Reykjanesbæjar
Morgunblaðið/Kristinn
Uppbygging Reykjanesbær glímir við skuldavanda vegna uppbyggingar
sem enn hefur ekki skilað bænum nægum tekjum á móti.
Stjórnendum lífeyrissjóða er ekki
frjálst að gefa eftir kröfur sem
þeir meta svo að skuldarinn geti
endurgreitt, að mati Þórarins V.
Þórarinssonar hæstaréttarlög-
manns. Hann vill ekki útiloka það
að stjórendur geti bakað sér
skaðabótaábyrgð ef þeir gefa eftir
fjárhagslega hagsmuni sjóðanna
og vísar í nýlegan dóm héraðs-
dóms í máli Lífeyrissjóðs verk-
fræðinga á hendur fyrverandi
stjórnendum sjóðsins og trygg-
ingafélagi en þeir voru taldir hafa
farið út fyrir heimildir til fjárfest-
inga.
Í lögum um lífeyrissjóði segir
beint að stjórn lífeyrissjóðs skuli
ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af
þeim kjörum sem best eru boðin á
hverjum tíma með tilliti til ávöxt-
unar og áhættu. Í lögunum er
einnig tekið fram að sjóðunum sé
óheimilt að inna af hendi framlög í
öðrum tilgangi en að reka sjóðinn
og ávaxta fé hans.
Aðrir lánardrottnar en lífeyr-
issjóðirnir hafa fallist á að gefa
eftir hluta af sínum kröfum í heild-
arsamningum við Reykjanesbæ.
Þórarinn segir að lífeyrissjóðirnir
séu allt öðruvísi fjárfestar. Þeir
horfi til þess að geta staðið við
skuldbindingar áratugi fram í tím-
ann á meðan aðrir sjóðir og bank-
ar horfi til stöðunnar núna og nán-
ustu framtíðar. Hann bendir á að í
tilviki sveitarfélaga sé ekki fráleitt
að ímynda sér að miklar fjárfest-
ingar í höfn og fleiru komist í full
not þegar tímar líða fram og þau
verði í færum að endurgreiða lánin
þótt þau geti ekki staðið við
greiðsluáætlanir í dag.
Ekki heimilt að gefa eftir kröfur
STJÓRNENDUR GETA SKAPAÐ SÉR SKAÐABÓTAÁBYRGÐ