Morgunblaðið - 07.05.2016, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Í tilefni af mæðra-
deginum sem er á
morgun, sunnudaginn
8. maí, leyfi ég mér að
nota tækifærið og
minnast móður minn-
ar með eftirfarandi
orðum:
Þú varst alltaf svo
góð við mig. Ég fékk
athygli þína óskipta.
Þú lifðir fyrir mig,
hlustaðir á mig og tal-
aðir við mig, leiðbeindir mér og
lékst við mig. Þú sýndir mér þol-
inmæði, virtir áhugamál mín, skoð-
anir og þær leiðir sem ég valdi að
fara. Þú föndraðir með mér, leyfðir
mér að mála og smíða, búa til bíla og
borgir, strætókerfi og heilu hand-,
körfu- og fótboltavellina, allt innan-
húss.
Ég og vinir mínir fengum rými og
frið til að þróa hugmyndaflugið, búa
til ævintýraheima, að sjálfsögðu inn-
an víðra marka sem þú settir og við
virtum af því að þú varst vinur okk-
ar og mér og okkur
þótti mikið til þín
koma.
Þú agaðir mig í kær-
leika af móðurlegri um-
hyggju og reyndir að
læra með með mér. Þú
sagðir mér sögur, last
fyrir mig, fræddir mig
og baðst með mér.
Þú varst alltaf svo
umhyggjusöm og
hjartahlý. Þú varst mitt
skjól og varnarþing.
Við stóðum saman og
vörðum hvort annað,
vorum sannir vinir. Ég var dreng-
urinn þinn og þú varst mamma mín.
Mér fannst ég heppnasti dreng-
urinn í öllum heiminum.
Þú varst alltaf allt í öllu, fram-
kvæmdasöm og skipulögð, jákvæð,
úrræðagóð og drífandi. Þú eldaðir
og bakaðir, slóst upp veislum, mál-
aðir, flísalagðir og veggfóðraðir eins
og ekkert væri. Þú fórst áfram af
dugnaði og ósérhlífni, elju, útsjón-
arsemi og kærleika. Alltaf svo
passasöm, nákvæm og smekkleg.
Sérlega þrifin, snyrtileg og glæsileg.
Minningin ein
Og þótt hún elsku mamma mín sé
nú aðeins minningin ein mun ég
ávallt minnast hennar með glöðu
geði og dýpstu virðingu. Hugheilu
þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt
og allt.
Elskum og virðum mæður okkar.
Látum þær finna fyrir þakklæti og
hlýju. Og Guð blessi minningu allra
okkar mæðra sem nú hafa skilað
sínu hlutverki og fengið hvíldina
góðu.
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
»Elskum og virðum
mæður okkar.
Látum þær finna fyrir
þakklæti og hlýju.
Guð blessi minningu
mæðranna sem skilað
hafa sínu og fengið
hvíldina góðu.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Minnumst mæðra okkar
KLEINUR
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Kíkið á verðin eftir
tollalækkun
Æfingapeysa, hálfrennd
6.990 kr.
íþróttafatnaður
stærðir 36-46
Mikið hefur verið
rætt og ritað um pen-
inga sem fluttir voru
úr landi og hafa verið
geymdir í skatta-
skjólum sem svo eru
kölluð. Ætla ekki út í
pælinguna hvað ná-
kvæmlega gerist þeg-
ar peningar eru fluttir
með þessum hætti til
annarra landa, annað
en eins og nafnið bendir til þá eru
líkindi til þess að peningarnir séu
fluttir þangað til þess að komast
hjá eða lækka skattgreiðslur við-
komandi fjármagnseiganda. Senni-
lega væri nafnið eitthvað annað ef
það væru háir vextir sem yllu fjár-
magnsflutningunum.
En það hefur sem sagt komið í
ljós að við Íslendingar eigum
sennilega enn eitt höfðatöluheims-
metið og í þetta skiptið í fjölda ein-
staklinga með verulegar eignir í
skattaskjólum. Ekkert sérstaklega
eftirsóknarvert heimsmet. Svo
virðist sem enginn auðmaður hafi
verið maður með mönnum, eða
auðmönnum, nema eiga reikning í
svona skattaskjóli og flutt þar með
peningana sína úr landi. Sem
óneitanlega bendir til þess að við
hin, sem erum ekki menn með auð-
mönnum, sitjum uppi með sárt
ennið að þurfa að greiða meiri
skatta til að halda
uppi okkar góða vel-
ferðarkerfi, mennta-
kerfi, samgöngukerfi
og hvað þau heita nú
öll þessi kerfi sem við
Íslendingar rekum
saman. Í það minnsta
notfæra allir Íslend-
ingar sér þessi kerfi,
burt séð frá því hvort
og þá hversu mikið
hver og einn greiðir í
skatta.
Svo virðist sem
flestir þeirra sem hafa notað og
tjáð sig um notkun skattaskjól-
anna séu annað hvort búnir að
gleyma öllum milljónunum, eða
milljörðunum á erlendu banka-
reikningunum eða að þetta hafi allt
saman bara verið kostnaður og
vesen að hafa staðið í þessu.
Hreint ótrúlegt hversu margt gott
og vel gefið fólk hefur verið platað
eða pínt af fjármálastofnunum til
þess að stofna bankareikninga af
þessu tagi og vonandi munu sagn-
fræðingar/mannfræðingar framtíð-
arinnar rannsaka hvað veldur.
Ég þekki engan sem á peninga á
svona bankareikningi, hef í það
minnsta ekki séð neitt kunnuglegt
nafn ennþá í umfjöllun fjölmiðla.
Enþekki til allmargra sem hafa
með mikilli vinnu, útsjónarsemi og
dugnaði byggt þannig upp eigin
fyrirtæki og eftir atvikum auð.
Minnist eldri hjóna í Hafnarfirði
sem stofnuðu og ráku fyrirtæki
sem þau seldu nýverið. Og eftir því
sem ég best veit hafa greitt alla
skatta og skyldur af þeim hagnaði
sem þau fengu út úr sínum rekstri
með stolti. Og hafa þannig lagt sitt
stóra lóð á þær mikilvægu vog-
arskálar að byggja upp innviði ís-
lensks samfélags. Við þurfum
fleira svona fólk í íslensku við-
skiptalífi.
Sýnist á viðbrögðum þeirra sem
hafa tjáð sig um aðild sína að
bankareikningum í skattaskjólum,
að líklega séu það um það bil 1%
þeirra sem eru á 600 manna listan-
um yfir slíka aðila sem hafa gerst
sekir um að hafa gert þetta vísvit-
andi til þess að skjóta fjármunum
undan íslenskum skattayfirvöldum.
Skömm þessara sex er því mikil.
Hinir 594, þessir plötuðu eða
píndu, eru hins vegar rannsókn-
arefni fræðimanna framtíðarinnar.
Hinir plötuðu og píndu
Eftir Gísla Pál
Pálsson »Hreint ótrúlegt
hversu margt gott
og vel gefið fólk hefur
verið platað eða pínt af
fjármálastofnunum til
þess að stofna banka-
reikninga af þessu tagi
Gísli Páll Pálsson
Höfundur er forstjóri í Mörk,
hjúkrunarheimili.
Wesley So er án efa bestiskákmaður sem komiðhefur fram á Filipps-eyjum. Fjölskyldumál
hans voru dálítið í fréttum í fyrra,
um það leyti sem hann fékk banda-
rískt ríkisfang. Þegar hann lagði
Kasparov að velli í aðeins 25 leikj-
um á hraðskákmótinu í St. Louis
fyrir viku þóttust fróðir menn og
langminnugir, þar á meðal Garrí
sjálfur í „tísti“ á Twitter, finna
skyldleika við skák sem Paul
Morphy tefldi við tvo áhugamenn í
hléi á flutningi óperu Rossini, Rak-
aranum í Sevilla, í ítalska óperu-
húsinu í París þann 2. nóvember
árið 1858. Að vísu hefur sagnfræð-
ingurinn Edward Winter haft uppi
efasemdir um þessa dagsetningu í
veftímaritinu Chess Notes en við
látum það liggja milli hluta. Hinn
liðlega tvítugi piltur fá New Or-
leans, sonur háyfirdómarans, hafði
lokið lagaprófi 19 ára og kunni
lagabálk Louisana-ríkis utan að.
Þar sem hann var of ungur til að
geta praktíserað og engan verð-
ugan andstæðing að finna við skák-
borðið í Bandaríkjunum tók hann
áskorun sem var borin var fram í
stórblaðinu The Illustrated London
Times og sigldi yfir hafið til Evr-
ópu í þeirri von að mæta fremsta
skákmeistara Breta, Howard
Staunton. Hann dvaldi þó lengstum
í París og á Café de la Régence
gersigraði hann helstu skákmeist-
ara þess tíma, þar á meðal Þjóð-
verjann Adolf Andersen, sem er
frægur í skáksögunni fyrir Ódauð-
legu skákina, sem tefld var við upp-
haf heimssýningarinnar í London
árið 1851. Morphy heillaði menn
með fágaðri framkomu sinni, flo-
samjúkri Suðurríkjaensku og
snilldartaflmennsku. Fregnir af
sigrum hans, m.a. í blindfjölteflum,
bárust um álfuna og víðar. Viktoría
Bretadrottning veitti honum
áheyrn og aðallinn bar hann á
höndum sér. Skákunnendurnir tveir
sem áður voru nefndir, Ísidor greifi
og Karl hertogi af Brunswick, sem
auðvitað var með einkastúku í
ítalska óperuhúsinu, tefldu þessa
frægu skák:
París 1958:
Paul Morphy – Samráðamenn
Philidor vörn
1. e4 e5 2. Rf3 d6 3. d4 Bg4 4.
dxe5 Bxf3 5. Dxf3 dxe5 6. Bc4 Rf6
7. Db3 De7 8. Rc3 c6 9. Bg5 b5 10.
Rxb5 cxb5 11. Bxb5+ Rbd7 12. O-
O-O Hd8 13. Hxd7 Hxd7 14. Hd1
De6 15. Bxd7+ Rxd7
16. Db8+ Rxb8 17. Hd8 mát.
Í St. Louis varð Kasparov að láta
sér lynda 3. sætið, hlaut 9½ v. af 18
mögulegum, Nakamura varð efstur
með 11 vinninga, So fékk 10 vinn-
inga og Caruana rak lestina með
5½ v. Kasparov átti í mesta basli
með So en skákin sem stendur upp
úr er þessi sigur úr 10. umferð:
St. Louis 2016
Wesley So – Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. Rf3 g6 2. e4 Bg7 3. d4 d6 4.
c4 Bg4 5. Be2 Rc6 6. Rbd2 e5 7. d5
Rce7 8. h3
Staðan kom upp aftur í 16. um-
ferð og þá hrókeraði hvítur.
Bd7 9. c5
Það hefur stundum dugað gegn
Kasparov „að taka hann með
áhlaupi“; varnartaflmennska hefur
aldrei verið hans sterkasta hlið.
dxc5 10. Rc4 f6 11. d6 Rc8 12.
Be3 b6 13. O-O Bc6 14. dxc7 Dxc7
15. b4 cxb4 16. Hc1 Rge7 17. Db3!
Hindrar stutta hrókun. Af svip-
brigðum Kasparovs að dæma var
honum alls ekki skemmt.
17. … h6?
Furðulegur varnarleikur en það
var fátt um fína drætti.
18. Hfd1 b5
19. Rcxe5! fxe5 20. Bxb5
Nú er svipuð leppun komin fram
og í Morphy-skákinni.
20. … Hb8 21. Ba4! Db7 22.
Hxc6! Rxc6 23. De6+ R8e7 24.
Bc5!
Hótar 24. … Bxc6+. Svartur er
varnarlaus.
24. … Hc8 25. Bxe7
– og Kasparov gafst upp.
Skyldleikinn við
skákina í óperunni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Gullsmárinn
Spilað var á 10 borðum í Gull-
smára mánudaginn 2. maí.
Úrslit í N/S:
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonss. 207
Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðarson 190
Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 188
Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 187
A/V:
Guðbjörg Gíslad. - Sigurður Sigurðss. 217
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 210
Haukur Bjarnason - Hinrik Lárusson 201
Kristín G. Ísfeld - Óttar Guðmss. 173
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
brids@mbl.is
mbl.is
alltaf - allstaðar