Morgunblaðið - 07.05.2016, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Við lögtöku
kristni á Alþingi
árið 1000 var Þor-
móður sonur Þor-
kels mána allsherj-
argoði.Talið er að
hann hafi búið á
ættarsetri sínu,
Reykjavík. Sem
allsherjargoði var
hann æðsti emb-
ættismaður þjóð-
arinnar og skyldi
hann helga Alþingi
í hvert sinn. Á
honum hefur því
hvílt sú skylda að
reisa kirkju við bæ
sinn. Af þeim sök-
um má fastlega
ætla að ein fyrsta
kirkjan sem reist
hafi verið í nýjum
sið hafi verið
kirkjan við ætt-
arsetrið í Reykja-
vík. Ætla má að
hún hafi verið reist fljótlega eftir
kristnitökuna.
Frá upphafi var sá siður að hafa
grafreit umhverfis kirkjur. Ekki
hefur fundist annar forn grafreitur
í Reykjavík en sá sem er við suður-
enda Aðalstrætis. Það bendir
sterklega til þess að þar hafi kirkja
staðið frá upphafi.
Elstu heimildir um kirkjuna eru
kirknatal Páls Jónssonar frá því
um 1200 og elsti máldagi hennar er
frá 1379. Torfkirkja var í kirkju-
garðinum sem var gegnt Víkur-
bænum. Í Biskupaannálum segir að
Stefán Jónsson, næstsíðasti kaþ-
ólski biskupinn í Skálholti, hafi vígt
Víkurkirkju 3. febrúar árið 1505.
Reykjavík 1789: Á mynd Sæ-
mundar M. Holm, sem var prestur
og málari, af Reykjavík frá 1789
sést að kirkjugarðurinn hefur verið
ferhyrndur. Sennilegt þykir að
kirkjugarðurinn hafi verið jafn á
alla vegu, u.þ.b. 40 metrar, og
kirkjan í miðjum garðinum. Garð-
urinn hefur smám saman stækkað
til austurs. Söfnuðurinn stækkaði
þegar Innréttingar Skúla fógeta
komu til sögunnar og fólki fjölgaði
í Reykjavík.
Þrír söfnuðir og ein kirkja:
Sóknarkirkjurnar í Laugarnesi og
Nesi voru lagðar af um aldamótin
1800 og við það varð til einn
Reykjavíkursöfnuður. Árið 1798
var Víkurkirkja rifin. Þá átti Dóm-
kirkjan, sem lokið var við 1796, að
duga söfnuðunum þremur. Enginn
kirkjugarður var við Dómkirkjuna
og það þrengdist stöðugt í þeim
gamla og jafnframt styttist niður á
fast eftir sem austar dró. Kirkju-
garðsstaður fannst svo sunnan
Hólavallar – Hólavallargarður.
Tveir nafnfrægir sem hvíla
þarna: Narfi Ormsson, síðasti óð-
alsbóndinn í Reykjavík, var jarð-
settur í Víkurkirkjugarði árið 1613.
Rótað var í leiði hans og legsteinn
hans var færður að suðurvegg
Eftir Örnólf Hall
Svæðisuppdráttur Ásgeirs Magnússonar Eftir uppgröft járnhellnanna lét Landssíminn Ásgeir Magnússon gera
uppdrátt af öllu svæðinu milli Aðalstrætis og Thorvaldsenstrætis og merkja inn á hann fógetagarðinn og hvar
minnismerkin fundust. Ennfremur merkti hann inn vegginn sem þau voru fest á og leiði þeirra Gunnlaugs Odds-
sonar dómkirkjuprests og Marie (d. 1882) konu Krügers lyfsala og ungs barns þeirra. Ásgeir merkti líka inn apótek-
ið, bragga, geymslur og söluturn á svæðinu.
Víkurkirkjur og stækk-
anir kirkjugarðsins
Fyrsta kirkjan sem getið
er um er í Vík er í kirkna-
tali Páls biskups Jónssonar
um 1200. – Elsti máldagi
hennar er frá 1379. – Stærðar hennar
var ekki getið en tilgáta höfundar er
að hún um 50 fermetrar.
Stærsta og seinasta kirkjan var reist
1720 og rifin 1796. Var hún 11 stafgólf á
lengd eða um 20 m og þá líklega um 15 m á breidd. Við gröft fyrir
stöplum styttu Skúla fógeta var komið niður á gamlan suðurvegg
kirkjunnar. Skýringar: Víkurgarðurinn (u.þ.b. 40 m hver hlið) og
stækkanir hans: grænir og gulleitir fletir. Fornleifauppgröft-
urinn nú: rauður ferhyrningur. Landsímahúsið (eins og það er
nú): bláar útlínur.
Víkurkirkjugarður, Víkur-
kirkjur og Landsímareitur
» Saga Víkur-
kirkjugarðs
er merkileg fyr-
ir það að þar
hvíla jarðneskar
leifar um þrjátíu
kynslóða Reyk-
víkinga.
Örnólfur Hall
Mikið hefur verið
rætt um þá ákvörðun
Ólafs Ragnars Gríms-
sonar að bjóða sig
fram til forseta þrátt
fyrir fyrri yfirlýsingu
um að hann ætlaði
ekki að gera það.
Ólafur hefur fengið
mikla gagnrýni fyrir
þessa ákvörðun sína.
Gagnrýnt hefur
verið hvað Ólafur
verður orðinn gamall
ef hann situr eitt
kjörtímabil enn. Er-
um við búin að
gleyma því þegar þá-
verandi forsætisráð-
herra, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, skipaði konu
á áttræðisaldri í embætti um-
hverfisráðherra sem ekki var á
þingi, var þá mikið rætt um aldur?
Almennur starfsaldur hjá ríkis-
starfsmönnum er 70 ár og var það
þá ekki dálítið skondið að skipa
konu í embætti ráðherra (hefði
allt eins getað verið karlmaður)
komna á áttræðisaldur þegar
starfsmenn ráðuneytis, sem undir
ráðherra heyra, urðu að hætta
þegar 70 aldri var náð? Eru þing-
menn/ráðherrar, sem komnir eru
á áttræðisaldur, betur í stakk bún-
ir að sinna sínum störfum en for-
seti sem kominn er á áttræð-
isaldur.
Á að takmarka kjörtímabil for-
seta við t.d. tvö kjörtímabil? Hvað
má segja um þingmenn sem setið
hafa í 25 ár á Alþingi – eða í 35
ár? Nýlega náðu tveir heið-
ursmenn á Alþingi 25
ára starfsaldri og var
hampað sem spræk-
ustu mönnum – og
hvað þá sá ágæti mað-
ur sem náð hefur 35
ára starfsaldri? Væri
ekki rétt að setja tak-
mörk á setu alþing-
ismanna?
Rætt hefur verið
um að ekki sé mikil
eftirspurn eftir núver-
andi forseta og hafa
sumir þingmenn farið
mikinn. Þingmenn
ættu að líta í eigin
barm og skoða hvað
mikil eftirspurn sé
eftir þeim sjálfum. Ef
við landsmenn fengj-
um að kjósa menn en
ekki flokka þá er ég
viss um að margir þingmenn, sem
nú sitja á hinu háa Alþingi, sætu
þar ekki því þeir sitja þar í skjóli
flokka. Og hvað skyldu vera mörg
atkvæði bak við hvern þingmann,
t.d. þingmenn Samfylkingar, sem
mælist með svo lágt fylgi sem
skoðanakannanir sýna?
Ólafur Ragnar hefur sýnt það
og sannað að hann er mjög hæfur í
embætti forseta Íslands, sem því
miður er ekki hægt að segja um
marga þá frambjóðendur sem nú
hafa gefið kost á sér og bera ekki
mikla virðingu fyrir embættinu.
Meðan við breytum ekki um
stefnu og leggjum embætti forseta
niður eigum við að bera virðingu
fyrir embættinu og þeim ein-
staklingi sem það skipar.
Framboð
til forseta
Eftir Konráð Karl
Baldvinsson
» Væri ekki
rétt að setja
takmörk á setu
alþingismanna?
Konráð Karl
Baldvinsson
Höfundur er eldri borgari.
Frumvarp til breytts fyrirkomulags á sölu áfengis hefur
nú um nokkurt skeið verið til meðferðar í þinginu. Ég
held að það væri afturför að hefja sölu áfengis í matvöru-
verslunum. Það liggur fyrir að aukið aðgengi að áfengi
þýði aukna neyslu. Ýmis vandamál tengd ofneyslu áfengis
eru hér sem víða annars staðar. Núverandi fyrirkomulag
í áfengissölu hefur reynst vel. Starfsfólk áfengisverslana
hefur góða þekkingu á öllu því sem til sölu er. Ég tel enga
þörf á að breyta sölumálum áfengis og núverandi fyrir-
komulag hafi reynst í alla staði vel.
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Áfengisfrumvarpið
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Til sölu er hlutur í
Hafgolu III sem er
11,19 m skemmti-
bátur, 14,44 tonn.
Smíðaður árið 1987
af Birchwood. Tvær
nýjar 240 hö YANMAR
aflvélar og 3ja kw
ljósavél. Öll siglinga-
tæki og sjálfstýring
nýleg. Báturinn er
staðsettur í öruggri höfn í Alcudia á Majorka en skráður með
heimahöfn í Keflavík. Sjá nánar sambærilegt skip á google eða
youtube.com : birchwood ts 37 aft cabin.
Báturinn nýtist sem sumarbústaður, fyrir 6-8 manns.
Tveir eigendur með jafna eignarhlut, vilja fá inn þriðja aðila (eða
fjórða) með jafnskiptum hlutum. Heildarverð Hafgolu III er
kr. 18. millj.
Nánari uppl. Veitir
Finnbogi Kristjánsson lögg.
skipasali / finnbogi@fron.is
897-1212
Fjótandi sumarbústaður
á Spáni!
– með morgunkaffinu