Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Guðrún Frímanns-dóttir heldur upp áafmælisdaginn
ásamt þremur æskuvin-
konum sínum frá Akur-
eyri, í Neustadt an der
Aisch í Bæjaralandi, en ein
þeirra býr þar.
Sjálf býr Guðrún á
Egilsstöðum, er félags-
málastjóri á Fljótsdalshér-
aði, en Fljótsdalshérað er
með þjónustusamning við
Vopnafjörð, Borgarfjörð
eystri, Seyðisfjörð, Djúpa-
vog og Fljótsdalshrepp.
Samningurinn nær til
þjónustu við fatlað fólk,
barnaverndar og allrar al-
mennrar félagslegrar
þjónustu.
„Ég hóf störf hér 2010,
ætlaði mér ekki að ílengj-
ast en er hér enn. Á Fljóts-
dalshéraði er afskaplega
gott samfélag sem hefur
tekið vel á móti mér. Hér
er mikil náttúrufegurð og ótakmarkaðir möguleikar til útiveru, sem
hentar mér ágætlega. Ég geng eða hjóla í mínum daglegu störfum og
forðast bílnotkun eins og mögulegt er. Finnst gaman að fara á göngu-
skíði og að ganga á fjöll, en útivera er mér afskaplega hugleikin og hef-
ur verið alla tíð. Ég hef ferðast mikið um landið, bæði gangandi og á
skíðum. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs fer í gönguferðir alla sunnudaga
ársins og Fjallhressir, sem er gönguhópur hér á svæðinu, fer einnig í
reglulegar ferðir allt árið. Ég fer til skiptis með þessum tveim hópum,
allt eftir því hvað er í boði hverju sinni. Hef einnig verið í gönguhópum
sem skipuleggja sínar ferðir sjálfir. Þessi lífsstíll hentar mér vel og er
góð leið til að halda andlegri og líkamlegri heilsu.“
„Eitt það eftirminnilegasta sem ég hef gert á fjöllum var að klífa
Hraundranga í Öxnadal, það var mikið ævintýri og í fyrsta sinn sem ég
upplifði alvöru hræðslu, þegar ég missti fótanna eitt augnablik og hékk
í línunni. Í þessari ferð vorum við tvær ömmur og einn langafi.“
Er búið að ákveða gönguferð í sumar? „Ég var búin að skipuleggja
tvær ferðir en þær fuku þegar kona sem er frá Ástralíu bauð mér að
koma með sér til Singapúr, Kambódíu, Balí og Ástralíu, ferð sem tekur
um sjö vikur.“
Guðrún var gift Jónasi Sigurbjörnssyni frá Akureyri, en hann lést
1989. Börn þeirra eru Eva Jónasdóttir, læknir á Landspítalanum, og
Grettir Jónasson, flugmaður hjá Icelandair. Guðrún á þrjú barnabörn,
þau Daða, Silju og Emmu.
Fjallagarpurinn Á leið upp Hraundranga.
Kleif Hraundranga
Guðrún Frímannsdóttir er 60 ára í dag
S
igurmar Kristján fæddist
á Siglufirði 7.5. 1946 og
ólst þar upp við dúndr-
andi síldarstemmingu:
„Þá urðu allir að vinna
sem á annað borð gátu hreyft sig.
Ég var ekki hár í loftinu þegar ég
byrjaði að velta tómum síldartunn-
um niður á plan. Einu sinni þegar
ég var 11 ára gamall og var að velta
tunnum hættu þær að berast klukk-
an fjögur að nóttu til. Þá hafði
gleymst að reka mig heim í háttinn
og ég hafði sofnað þar sem ég stóð.
Svo hækkaði ég í tign og varð „dix-
elmaður“ sem var betur borgað. Þá
sló ég botna úr tómum tunnum og
sló síðan botninn í fullar tunnur.
Ég var síðan eitthvað til sjós á
Siglufirði og á háskólaárunum var
ég kokkur á humarveiðum frá Höfn
í Hornafirði.“
Sigurmar var í Barnaskóla Siglu-
fjarðar og Gagnfræðaskóla Siglu-
fjarðar og lauk þaðan landsprófi,
lauk stúdentsprófi frá MA 1966 og
embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1972, stundaði framhaldsnám í al-
þjóðlegum einkamálarétti við
Stokkhólmsháskóla 1972–73, öðl-
aðist hdl.-réttindi 1973 og hrl.-
réttindi 1987.
Sigurmar var fulltrúi hjá toll-
stjóranum í Reykjavík og jafnframt
hjá yfirborgarfógetanum í Reykja-
vík 1973–79 og hefur starfrækt eig-
in málflutningsskrifstofu í Reykja-
vík frá 1979. Hann hefur sinnt
Sigurmar Kristján Albertsson hæstaréttarlögmaður – 70 ára
Við Kastalann í Flatey Frá vinstri: Björgvin Þorvarðarson, Sigurmar Kristján Albertsson, Bjarni Sigurjónsson,
Claudia Keller, Álfheiður Ingadóttir, Stefanía Traustadóttir, Sigrún Sól Sólmundsdóttir og Ragnar Jónsson.
Úr síldinni í lögmennsku
MA-klíkan 1966 Haraldur Blöndal hrl., Pétur Pétursson læknir og Sigurmar.
Kristín Aðal-
steinsdóttir
er 70 ára 8. maí.
Eiginmaður henn-
ar er Hallgrímur
Þór Indriðason.
Árnað heilla
70 ára
Reykjavík Sigurður Kári
Kaldalóns fæddist í
Reykjavík 22. júlí 2015.
Hann vó 3.618 g og var
53 cm að lengd. Foreldrar
hans eru Jóhanna Katrín
Guðnadóttir og Sigvaldi
Þórður Kaldalóns.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
GARÐAR OG GRILL
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstud. 13. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569-1105
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
20. maí gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
Garða og grill. Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita
potta, sumarblómin, sumarhúsgögn og grill ásamt girnilegum uppskriftum.