Morgunblaðið - 07.05.2016, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Sýningin fjallar á breiðum grund-
velli um loftslagsbreytingar en lista-
mennirnir sem taka þátt hafa mikið
verið að vinna með samfélagsleg
kerfi,“ segir Anna Líndal myndlist-
armaður, en hún ásamt sex öðrum
myndlistarmönnum stendur að sam-
sýningunni Infinite Next, eða Hið
óendanlega framundan, sem verður
opnuð í dag, laugardag, kl. 16 í Ný-
listasafninu í Breiðholti.
Listamennirnir eru auk Önnu þau
Amy Howden-Chapman, Bjarki
Bragason, Bryndís Snæbjörnsdóttir
og Mark Wilson, Hildigunnur Birg-
isdóttir og Pilvi Takala og hafa þau
öll unnið myndlistarverk sín á þeim
grundvelli að maðurinn sé orðinn að
jarðfræðilegu afli, segir Anna en
verkin endurspegli hin flóknu tengsl
sögulegra, vistfræðilegra og menn-
ingarlegra fyrirbæra og hvernig þau
birtast í þeim brotakennda raun-
veruleika sem loftlagsbreytingar
eru.
Öðlist nýtt sjónarhorn
Þegar Anna er beðin að lýsa sýn-
ingunni í nokkrum orðum segir hún
hið óendanlega vera án takmarka,
það sé endalaust rými, stærð eða
samhengi og ógerlegt sé að mæla
eða ná yfirsýn yfir það. Verkin á
sýningunni séu að kljást á ólíkan
máta við kerfi sem öll samfélög glími
við, þ.e. hagkerfi síð-kapítalismans,
hnignun vistkerfa, tilraunir manns-
ins til þess að hafa áhrif á virkni
þeirra, þekkingarframleiðslu, söfn-
un upplýsinga og áhrif mannsins í
umhverfinu.
„Ég vona að þetta verði til þess að
fólk öðlist nýtt sjónarhorn inn í hvað
skiptir máli,“ bætir hún við en á sýn-
ingunni má til að mynda sjá verk um
persónuna Mjallhvíti þar sem fólki
er boðið inn í Disney-heim til að upp-
lifa ævintýrið.
Í beinu samtali við vísindin
„En það er bara á forsendum
Disneylands og það finnst mér bara
vera tákngervingur fyrir stöðu ein-
staklingsins í samfélaginu. Við meg-
um taka þátt í ævintýrinu en bara á
forsendum þess sem samfélagið hef-
ur búið til fyrir okkur.“
Sýningarverkefnið hófst á síðasta
ári á Grænlandi þar sem Anna og
Bjarki Bragason voru með sýningu
þar í landi í tengslum við stóra ráð-
stefnu um loftslagsbreytingar. Þau
voru með erindi á opnunarhátíðinni
þar sem þau fjölluðu um eigin list-
rannsóknir til að staðsetja viðfangs-
efni ráðstefnunnar í pólitísku og
menningarlegu samhengi. „Það var
geysilega fróðlegt að taka þátt í
þessu en sýningin okkar var í beinu
samtali við ráðstefnuna og vísindin á
Grænlandi.“
Í kjölfarið var þeim boðið að sýna
á Nýlistasafninu og ákváðu af því til-
efni að bjóða fjórum öðrum lista-
mönnum að taka þátt. „Okkur fannst
spennandi að fá meiri breidd í við-
fangsefnið og vera í samtali við
áhugaverða listamenn.“
Kljást við kerfi sem öll
samfélög glíma við
Myndlistarsýning um loftslagsbreytingar í Nýlistasafninu
Ævintýri Eitt verkanna er Mjallhvít eftir myndlistarmanninn Pilvi Takala,
„The Real Snow White“, frá árinu 2009 og verður til sýnis í Nýló kl.16.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Árið er 1922. Andrúmsloft borgar-
innar hefur tekið stakkaskiptum,
byggingarnar eru hærri, partýin
stækkuðu, siðferðið varð lausbeisl-
aðra og áfengið ódýrt. Eirðarleysið
nálgaðist móðursýki!
Þannig hefst lýsingin á afar vin-
sælli evrópskri skemmtun sem nú
verður í fyrsta skipti boðið upp á í
Reykjavík, í Gamla bíói í kvöld, laug-
ardagskvöld, kl. 20. „Skemmtu þér
eins og Gatsby“ kallast viðburðurinn
og vísar til þess tíma þegar Jay
Gatsby, aðalsöguhetja bókarinnar
The Great Gatsby eftir bandaríska
höfundinn F. Scott Fitzgerald, gerði
garðinn frægan með íburðarmiklum
veislum þar sem andrúmsloftið var
töfrandi og umhverfið heillandi.
Fanga andrúmsloftið
Reynt verður að fanga andrúmsloft
skáldsögunnar í Gamla bíói og geta
gestir átt von á því að stíga aftur til
urrandi þriðja áratugarins með stór-
kostlegri og líflegri sýningu, segja að-
standendur, þar sem fram koma hinir
ýmsu listamenn í tónlist, dansi, ball-
ett, eldlistum, töfrum, loftfimi og-
„burlesque“, svo dæmi séu nefnd.
Hægt er að nálgast miða á midi.is
og fer hver að verða síðastur að sögn
Bao Huy Lam, framkvæmdastjóra
skemmtunarinnar. Sagðist hann
spenntur að koma til Íslands, þegar
Morgunblaðið náði tali af honum,
enda hefði mikill áhugi skapast á við-
burðinum hér á landi.
Heilluðust af Gatsby
„Við lásum bókina og sáum mynd-
ina og heilluðumst af þessari stemn-
ingu og stórfengleika sem mátti sjá í
partýum hjá Gatsby á sínum tíma.
Við sáum því tækifæri á markaðnum
fyrir slík partý og hófum að skipu-
leggja þau um allan heim,“ segir Huy
en Gatsby-veislur hafa þegar verið
haldnar í München, Kaupmannahöfn,
Prag, Helsinki, Stokkhólmi og Osló.
Húsfyllir hafi verið í hvert sinn og all-
ir skemmt sér konunglega.
Á facebook-síðu viðburðarins er
vitnað í Iiro R, veislugest sem sótti
veisluna í Helsinki á árinu, og segir
hann: „Þetta hljómar kannski eins og
klisja en þetta var besta kvöld lífs
míns! Takk kærlega fyrir og ég von-
ast til að sjá ykkur aftur að ári.“
Segir Huy að tónlistin og töfrarnir
lifi fram á rauða nótt en veislan endi í
villtu partýi sem unnið hafi hjörtu
Evrópubúa.
Allir í sínu fínasta pússi
Ætlast er til þess að gestir mæti í
sínu fínasta pússi í takt við stemning-
una. Margir listamannanna sem taka
þátt eru íslenskir, til að tengja betur
við landið, en fjölmargir erlendir
listamenn koma einnig fram. „Þetta
er partý fyrir Íslendinga og við reyn-
um því að tengja við þá með skemmti-
atriðunum og öðru í veislunni,“ segir
Huy en einnig koma gestir að utan til
að sækja viðburðinn og sjá Ísland í
leiðinni.
Þá verður Gamla bíó einnig sett í
sitt fínasta púss og skreytt með við-
eigandi hætti enda er gestum ætlað
að stíga aftur í tímann í einum vet-
fangi og upplifa gleði og glaum þriðja
áratugarins.
Skemmta sér eins og
Gatsby í töfrandi umhverfi
Glens „Skemmtu þér eins og Gatsby“-viðburðirnir hafa verið haldnir víða
um lönd og nú gefst Íslendingum færi á að upplifa þriðja áratuginn.
Vinsæl evrópsk
skemmtun haldin í
Gamla bíói í
Reykjavík í kvöld
Bjarni Bernharður Bjarnason opn-
ar málverkasýningu í Borgarbóka-
safni – menningarhúsi Gerðubergi í
dag kl. 14. Bjarni Bernharður er
rithöfundur og myndlistarmaður,
hefur gefið út fjölda ljóðabóka og á
síðasta ári gaf hann út æviminn-
ingar sínar í bókinni Hin hálu þrep
– Lífshlaup mitt. Það skrjáfar í nýj-
um degi er yfirskrift málverkasýn-
ingar Bjarna, en hann er sjálf-
menntaður myndlistarmaður og
efnistökin í málverkum hans
spanna vítt svið en hafa þó öll í sér
þræði abstraktsjónar, eins og segir
í tilkynningu.
„Verk hans eru tilfinningarík og
kröftug og tærleiki litanna nýtur
sín í afmörkuðum litaflötum,“ segir
þar. „Bjarni Bernharður er óvenju-
legur málari en það kann að skýr-
ast af þeim leiðum sem hann hefur
farið til að ná tökum á málverkinu,
þ.e.a.s. sjálfsmenntun sú sem hann
hefur ástundað, sem hefur gert
strangar kröfur um þekkingu og
rýni á verkum annarra málara. Þó
er ekki svo að stíllinn sé undir
sterkum áhrifum frá öðrum, heldur
hefur Bjarna Bernharði tekist að
„finna sjálfan sig“ í málverkinu og
bera verkin sterk persónueinkenni.
Á bókasafninu geta gestir gluggað í
úrval ljóðabóka og æviminninga
sem Bjarni Bernharður hefur gefið
frá sér í gegnum tíðina og stillt er
út í tilefni af sýningunni,“ segir í til-
kynningu.
Það skrjáfar í nýjum
degi í Gerðubergi
Morgunblaðið/Kristinn
Listamaðurinn Bjarni Bernharður.
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 7/5 kl. 15:00 71.sýn Lau 21/5 kl. 15:00 74.sýn Sun 29/5 kl. 19:30 77.sýn
Lau 7/5 kl. 19:30 72.sýn Lau 21/5 kl. 19:30 75.sýn
Fim 12/5 kl. 19:30 73.sýn Lau 28/5 kl. 19:30 76.sýn
Sýningum lýkur í vor!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 11/5 kl. 19:30 Mið 25/5 kl. 19:30
Mið 18/5 kl. 19:30 Mið 1/6 kl. 19:30
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Play (Stóra sviðið)
Þri 31/5 kl. 19:30
Listahátíð í Reykjavík
AUGLÝSING ÁRSINS –★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 7/5 kl. 14:00 Fim 26/5 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00
Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Fös 27/5 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00
Sun 8/5 kl. 20:00 Lau 28/5 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00
Þri 10/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00
Mið 11/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00
Fim 12/5 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00
Fös 13/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00
Lau 14/5 kl. 14:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00
Þri 17/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00
Mið 18/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00
Fim 19/5 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00
Fös 20/5 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00
Lau 21/5 kl. 14:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00
Lau 21/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00
Sun 22/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00
Þri 24/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00
Mið 25/5 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00
Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar
Auglýsing ársins (Nýja sviðið)
Lau 7/5 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00
Fös 13/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 20:00
Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur eftir Tyrfing Tyrfingsson
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Afhjúpun (Litla sviðið)
Sun 22/5 kl. 14:00
Höfundasmiðja FLH og Borgarleikhússins
Persóna (Nýja sviðið)
Sun 8/5 kl. 20:00 Fös 20/5 kl. 20:00
Fim 12/5 kl. 20:00 Sun 22/5 kl. 20:00
Tvö ný dansverk eftir þrjá danshöfunda
Hamlet litli (Litla sviðið)
Mán 9/5 kl. 10:00 Þri 10/5 kl. 10:00