Morgunblaðið - 19.05.2016, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Hverfisgötu 105 • storarstelpur.is
Munið bílastæði á bak við hús
Við erum á facebook
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Við erum að leysa málið og höfum
allan vilja til þess. Við munum ekki
skorast undan ábyrgð,“ segir Ing-
ólfur Geir Gissurarson fram-
kvæmdastjóri fasteignasölunnar
Valhallar sem sá um sölu Ásmund-
arsalar sem hýsti Listasafn ASÍ.
Morgunblaðið greindi frá því í
gær að hæsta tilboðinu í húsið hefði
ekki verið tekið og ASÍ væri að
skoða sinn rétt; hvort hægt væri að
láta fasteignasöluna greiða sér mis-
muninn. Hvorki Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, né Ingólfur vildu tjá sig
um hvað upphæðirnar væru háar.
Fasteignasalan og ASÍ munu
funda í dag um málið og býst Ing-
ólfur við að því muni ljúka eftir fund-
inn.
Hjónin Sigurbjörn Þorkelsson og
Aðalheiður Magnúsdóttir keyptu
Ásmundarsal en alls bárust sex til-
boð í eignina.
Salan vakti nokkra reiði meðal
Sambands íslenskra myndlist-
armanna sem setti af stað undir-
skriftasöfnun þar sem skorað var á
rekstrarfélag Listasafns ASÍ og ASÍ
að endurskoða stöðu sína í málinu.
Listasafn ASÍ verður með starfsemi
í húsinu fram á haust þegar nýju eig-
endurnir taka við starfseminni.
Stefnt er að reglulegu sýningahaldi í
húsinu og að glæða það lífi meðal
annars með því að setja þar á stofn
hönnunar- og listamiðstöð.
Valhöll vill leysa málið og
skorast ekki undan ábyrgð
Hærra tilboð barst í Ásmundarsal án vitundar ASÍ
Morgunblaðið/Eggert
Ásmundarsalur Salan vakti athygli.
Á HÚSAVÍK
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framkvæmdir við uppbyggingu
iðnaðar á Bakka við Húsavík ganga
nokkurn veginn eftir áætlun. Tíma-
ramminn er þó þröngur og lítið
þarf að koma upp á til þess að
virkjanir og verksmiðja komist
ekki í gang á tilsettum tíma. Fram-
kvæmdirnar ná hámarki í sumar og
er áætlað að á sjötta hundrað
starfsmenn verði þá á vinnusvæð-
unum á Þeistareykjum, Bakka og
við Húsavíkurhöfn.
Húsavíkurbær hélt samræming-
arfund með öllum helstu hags-
munaaðilum á framkvæmdasvæð-
unum í gær. Þar gerðu fyrirtæki
og stofnanir grein fyrir stöðu mála,
hver í sínum verkþætti. „Ég get
ekki betur séð en að allir hlutir séu
vel innan skekkjumarka,“ sagði
Kristján Þór Magnússon bæj-
arstjóri eftir fundinn. Hann tók
fram að ennþá væri óvissa um ein-
hverja hluti og línan væri mjðg
strekkt og lítið mætti út af bregða.
Vinna upp tafir
Vegagerðin er aðalverkkaupi að
jarðgöngum um Húsavíkurhöfða,
vegagerð frá höfn að iðnaðarsvæði
og stækkun og lagfæringar á
Húsavíkurhöfn. Fram kom hjá
Gunnari Guðmundssyni, forstöðu-
manni á Akureyri, að jarðgöngin
væru orðin 350 metrar að lengd
sem er um þriðjungur af heild-
arlengdinni. Verkið komst seinna
af stað en áformað var og þótt
ágætlega gangi að sprengja er nú
útlit fyrir að ekki takist að
sprengja í gegn fyrr en í lok ágúst
sem er tveimur og hálfum mánuði
seinna en kveðið var á um í samn-
ingum. Verktakinn, norska fyr-
irtækið LNS, vinnur upp seink-
unina að einhverju leyti með því að
flýta öðrum framkvæmdum og tel-
ur að ekki verði seinkun á skilum
verksins í heild. Því verði lokið um
miðjan ágúst 2017, á sama tíma og
uppfyllingin við Bökugarð.
Stöðvarhúsið tilbúið í haust
Framkvæmdir við höfnina eru
einnig á eftir áætlun. Mikil áhersla
er lögð á það að hægt verði að nota
hafnarbæturnar í haust því um
höfnina þurfa að fara tæki og efni
sem notað er við virkjunina á
Þeistareykjum og byggingu kís-
ilvers PCC á Bakka. Sérfræðingar
Vegagerðarinnar töldu að það ætti
að takast. Vinnu við dýpkun hafn-
arinnar er að ljúka.
Á Þeistareykjum er verktakinn
LNS Saga að byggja stöðvarhús og
jarðvarmaveitu jarðvarmavirkjunar
Landsvirkjunar. Jarðborarnir eru
að bora vinnsluholur. Þá er Lands-
net að undirbúa lagningu há-
spennulína til að tengja virkjunina
við landsnetið og iðnaðarsvæðið á
Bakka. Við þessi verk og fleiri
smærri starfa um 280 menn í sum-
ar.
Valur Grettisson, yfirverk-
efnastjóri Þeistareykjavirkjunar,
segir að mikil snjókoma og leið-
inlegt veður í apríl og maí hafi sett
aðeins strik í reikninginn hjá verk-
takanum. Klæðning stöðvarhússins
sé um mánuði á eftir áætlun en
önnur verk í húsinu séu á undan
áætlun þannig að í heildina á hann
ekki von á að skil verksins tefjist.
Valur segir mikilvægt að húsið
verði tilbúið í lok nóvember því þá
verði húsið afhent þeim sem selja
og setja upp túrbínur virkjunar-
innar.
Unnið verður að uppsetningu
tækja í stöðvarhúsinu í byrjun
næsta árs og byrjað að prófa þau.
Fyrri túrbína virkjunarinnar á að
hefja framleiðslu haustið 2017 og
sú seinni fyrrihluta árs 2018.
Boraðar verða fjórar holur til
gufuöflunar á Þeistareykjasvæðinu
í sumar og fjórar næsta sumar.
Svæðið gefur þegar gufu fyrir fyrri
vélina og vel það og svæðið er orð-
ið það vel rannsakað að Valur segir
nokkuð tryggt að unnt verði að afla
nauðsynlegrar viðbótarorku með
þeim holum sem boraðar verða í ár
og á næsta ári.
Raskar ekki áætlunum
Landsnet hefur boðið út og sam-
ið við birgja og verktaka um flesta
verkþætti við lagningu háspennu-
lína frá Þeistareykjum til Bakka og
frá Þeistareykjum til Kröflu þar
sem virkjunin verður tengd við
landsnetið. Verktakar við und-
irbúning línuleiðanna ætluðu að
vera byrjaðir en það hefur tafist
vegna snjóa. Þórarinn Bjarnason,
verkefnisstjóri hjá Landsneti, segir
að þeir bíði tilbúnir.
Hann telur að tímaáætlun
Landsnets standist. Landsnet hef-
ur óskað eftir heimild til eign-
arnáms á línuleið Kröflu þar sem
samningar tókust ekki við landeig-
endur. Nýlega féll dómur í Hæsta-
rétti þar sem heimild við-
skiptaráðuneytisins til eignarnáms
jarðaparta á Suðurnesjum var
ógilt. Þórarinn segir að Landsnet
telji að sá dómur eigi ekki að hafa
áhrif á framkvæmdina. Báðar lín-
urnar þurfa að vera komnar til
þess að virkjun og kísilver geti
starfað eðlilega.
Vilja byggja íbúðarhúsnæði
Þýska verktakafyrirtækið SMS
er aðalverktaki við byggingu kís-
ilvers PCC á Bakka. Jörg Dembek
framkvæmdastjóri segir að verk-
efnið sé á tíma og áætlun um að
gangsetja verksmiðjuna um jólin
2017 standi. Áætlað er að 200-250
manns verði við byggingarvinnu í
sumar, þegar mest verður um að
vera.
Byrjað verður að ráða starfsfólk
eftir sumarhlé og aftur eftir ára-
mót og það þjálfað. Hann segir
mikilvægt að starfsfólkið sé vel
þjálfað áður en verksmiðjan taki til
starfa.
Húsnæðismarkaðurinn á Húsavík
er erfiður, erfitt er að fá húsnæði
leigu eða kaups. Húsavíkurbær
hefur tekið frá íbúðarhúsalóðir fyr-
ir PCC í útjaðri bæjarins og er fyr-
irtækið að kanna möguleika á að
byggja þar 40-60 íbúðir.
Kristján Þór bæjarstjóri bindur
vonir við húsnæðisverkefni PCC.
Það yrði mikil innspýting í bæj-
arfélagið og gæti haft keðjuverk-
andi áhrif. Hann telur til dæmis að
margir væru tilbúnir að minnka við
sig ef litlar hentugar íbúðir kæmu
á markaðinn og þá losnuðu mörg
einbýlishús.
Framkvæmdir enn á áætlun
Tímalínan strekkt og lítið má út af bregða til að tímaáætlanir við uppbyggingu á Þeistareykjum og
Bakka raskist Á sjötta hundrað menn að störfum í sumar Innan skekkjumarka, segir bæjarstjóri
Húsavíkurhöfn Miklar framkvæmdir standa yfir í Húsavíkurhöfn. Böku-
garður er lengur og lagfærður og aukið athafnarými skapað í höfninni.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kolageymsla Gríðarleg mannvirki kísilvers PCC rísa nú á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Þetta er hluti af
hráefnageymslu, þar sem kolin verða geymd. Áætlað er að 200-250 manns verði við byggingarvinnu þarna í sumar.
Þeistareykir Starfsmenn LNS Sögu
steypa við stöðvarhúsvegg.