Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 ✝ Björg J. Ragn-arsdóttir fædd- ist á Akureyri 14. september 1930. Hún lést á Líkn- ardeildinni í Kópa- vogi 26. apríl 2016. Foreldrar henn- ar voru Ragnar Gísli Jónsson, f. 1898, d. 1987, og Guðrún Benedikts- dóttir, f. 1907, d. 1987. Björg giftist 5. september 1959 Einari Jónssyni bifvéla- virkja frá Draghálsi, f. 24. maí 1921, d. 11. október 2009. Börn þeirra 1) Guðrún Einarsdóttir, f. 1. september 1961, maki Halldór Þórólfsson, f. 17. júlí 1957, synir þeirra: a) Ívar Örn, f. 9. maí 1984, sambýliskona Hrefna Pálsdóttir, f. 1984, b) Gísli Hall- dórsson, f. 12. mars 1990, sam- býliskona Sunna Dögg Arnardóttir, f. 1991, 2) Ragnar Einarsson, f. 15. desember 1964. Björg bjó fyrstu tvö æviárin á Ak- ureyri, fluttist þá til Sauðárkróks, bjó þar í tólf ár, síðan eitt ár í Reykjavík, í Vestmannaeyjum í fimm ár, fluttist tví- tug til Reykjavíkur og bjó þar til dánardags. Björg vann fyrst í verslun, síðar við ræstingar og heim- ilishjálp. Hún söng í ýmsum kórum, m.a. Dómkirkjukórnum, við brúðkaup, jarðarfarir og alls kyns athafnir, en lengst af söng hún í Grensáskirkju, í 25 ár. Útför Bjargar fór fram í kyrrþey að ósk hennar. Björg, tengdamóðir mín, var lítillát kona, hún vildi hafa útför sína í kyrrþey og enga ræðu í jarðarförinni. Ég vona, Björg mín, að þú fyr- irgefir að við gátum ekki orðið við þeim óskum þínum og leyfð- um séra Ólafi að halda stutta en góða ræðu. Kynni okkar Bjargar hófust árið 1981 þegar ég fór að venja komu mína í Langagerði, milli okkar myndaðist vinátta sem entist alla tíð. Þegar ég kom inn á heimili Bjargar og Einars var Björg að syngja í kirkjukór Grensáskirkju og fór ég allar götur síðan með henni í jóla- messur þangað. Björg og Einar pössuðu drengina okkar, Ívar og Gísla, mikið þegar þeir voru yngri og hafði hún afskaplega gaman af því og þeir sömuleiðis. Þá hafði hún mikið yndi af söng, bæði af því að syngja sjálf og ekki síður af því að heyra aðra syngja og sér í lagi óperur. Við hjónin nutum þess að fara í Hörpu á óperuna Ragnheiði með Björgu fyrir rúmu ári. Garðurinn í Langagerðinu bar af öðrum görðum, vel hirtur og skipulagð- ur. Hvergi sá maður flottari grasblett, ávallt nýsleginn. Björg sá um alla málningarvinnu heim- ilisins og var húsið alltaf eins og nýmálað. Þá vílaði hún það ekki fyrir sér að fara upp á bílskúrsþak 85 ára gömul til þess að kítta í göt og mála. Innilegar þakkir fyrir margar ánægjulegar samverustundir í gegnum tíðina. Þinn tengdason- ur, Halldór Þórólfsson. Amma mín hafði margt til brunns að bera og marga eig- inleika sem eru sannarlega til eftirbreytni. Það voru forréttindi að fá að eyða miklum tíma í minni æsku í Langagerði með henni og afa og sá tími skilur margt eftir sig, sem gerir mig og aðra sem urðu sömu gæfu aðnjótandi að betri manneskjum. Eitt af því sem mér fannst einkenna ömmu mína var óeig- ingirni. Hún vildi allt fyrir alla gera og viðfangsefnið var þar al- gjört aukaatriði. Mín fyrstu kynni af því voru á mínum yngstu árum þegar pössun hjá ömmu var allt að því daglegt brauð. Þetta átti svo eftir að halda áfram allan þann tíma sem okkar æviskeið sköruðust. Mér er sérstaklega minnisstætt að hafa átt í miklum erfiðleikum með hannyrðir í skólanum og var þá kærkomið að fá aðstoð hjá ömmu með hin ýmsu sauma- og prjónaverkefni. Sá stuðningur, tiltrú og hjálp sem amma gaf mér hefur svo reynst ómetanleg síðan. Þegar kom svo að því að gera eitthvað fyrir hana, sama hversu smávægilegt atriðið var, þá reyndist það gjarnan hér um bil ómögulegt. Í þau skipti sem það tókst eða maður leyfði sér að koma með smávægilegar gjafir í formi blóma eða minjagripa að utan þá átti þakklætið engan enda að taka og ég tel mig geta sagt það með nokkuð mikilli vissu að hún amma mín hafi aldr- ei hent neinu sem við bræður gáfum henni, hversu ómerkileg- ur sem hluturinn kann að hafa verið. Það er einmitt atriði sem kemur upp þegar ég hugsa til ömmu, hversu ótrúlega hjartahlý hún var. Amma var líka hógvær, dug- leg og samviskusöm með ein- dæmum. Aldrei heyrði ég hana tala illa um nokkurn mann og þrátt fyrir að hafa haldið ein- staklega fallegt heimili og vera eigandi að fallegasta garði Reykjavíkur heyrði ég hana aldrei hreykja sér af þvíeða gera lítið úr öðrum sem gerðu síður en hún. Það lýsir henni líka ágætlega að þegar það kom upp smávægilegt vatnstjón í Langa- gerði fannst henni hér um bil óþægilegt að þiggja sanngjarnar bætur frá tryggingafélaginu. Þetta var þrátt fyrir að hafa lík- legast ekki lent í tjóni í fleiri ára- tugi og greitt sín iðgjöld sam- viskusamlega ár eftir ár. Yndisleg sál er fallin frá og fær nú að liggja við hlið afa út í eilífðina. Það er mér og vonandi öðrum mikil huggun í því að geta horft um farinn veg og minnst frábærs fólks og gert sitt besta til þess að heiðra minningu þeirra með því að reyna að halda þeirra bestu eiginleikum á lofti, því þar er sannarlega af nægu að taka. Gísli Halldórsson. Mín fyrstu „kynni“ af Björgu voru fyrir rétt um ári þegar við Ívar vorum farin að draga okkur saman en ekkert orðið opinbert ennþá. Þannig var að ég sat kímin við hlið Ívars fyrir utan Krónuna í Grafarholti á meðan amma hans þuldi samviskusamlega upp í símanum uppskriftina af súkku- laðiköku sem Ívar hugðist baka fyrir samstarfsmenn sína í Landsbankanum. Ég kunni strax vel við rólega, hægláta röddina. Það kom ekki annað til greina af Ívars hálfu en að biðja ömmu um uppskrift af súkkulaðiköku því hún bakaði bestu súkku- laðikökuna. Ég var raunar búin að komast að því að flest sem amma hans eldaði og bakaði bragðaðist ögn betur en það sem aðrir gátu reitt fram. Gúllasið, rifsberjasultan, já bara flestallur matur var betri ef amma hafði komið nálægt gerð hans. Ég hitti Björgu svo í fyrsta skipti á 85 ára afmælinu hennar síðastliðið haust. Þar byrjaði ég á að óska rangri ömmu til ham- ingju með afmælið og afhenda blómvönd því hvoruga ömmuna hafði ég áður hitt. En það kom ekki að sök og vandræðalegheit- in fuku út í veður og vind þegar hún hóf að sýna mér gersem- arnar sem leyndust á heimilinu og sagði mér söguna þar á bak við. Að koma inn í Langagerðið var hálfpartinn eins og að koma inn á safn en þar úir og grúir af alls konar hlutum með langa sögu. Þrátt fyrir að vera hlaðið merkum munum þá var ávallt snyrtilegt og hvergi rykkorn að sjá. Björg var vel að sér í hinum ýmsu málefnum og það var hægt að ræða við hana um allt milli himins og jarðar. Hún hafði sér- staklega róandi og þægilegan talanda og hafði einstakt lag á að láta manni líða vel í kringum sig. Hún sýndi öllu því sem maður tók sér fyrir hendur einstakan áhuga og spurði mig gjarnan út í eitthvað sem hún hafði lesið tengt næringu og mataræði. Ég á eftir að sakna þess að banka upp á í Langagerðinu og sitja í stofunni og ræða um allt og ekkert. Ég þakka stutt en ákaflega góð kynni. Hrefna Pálsdóttir. Björg J. Ragnarsdóttir ✝ Sigurlaug Pét-ursdóttir Þor- mar fæddist á Galt- ará í Gufudalssveit í Austur-Barða- strandarsýslu 18. desember 1923. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 5. maí 2016. Foreldrar henn- ar voru Anna Jakobsdóttir, f. 24. jan. 1887, d. 29. mars 1957, og Pétur Pét- ursson, f. 9. ágúst 1886, d. 9. okt. 1981. Systkini Sigurlaugar þeirra Valgeir, Vigdís og Að- alsteinn. Vigdís er í sambúð með Árna Gunnari Haraldssyni. Þau eiga eitt barn. 2) Anna, f. 1959, starfsmaður Fiskistofu. Eiginmaður hennar er Auðunn G. Guðmundsson og börn Magn- ea Erna, Daníel og Guðmundur. Guðmundur er í sambúð með Jennýju Maggý Rúriksdóttur og eiga þau tvö börn. 3) Pétur, f. 1960, bílstjóri, og 4) Sigurður, f. 1967, starfsmaður ÍSAL. Sig- urlaug lauk námi frá Hús- mæðraskólanum á Staðarfelli vorið 1944. Hún flutti til Reykjavíkur í svokallaða vist (þjónustustörf) á heimilum. Sig- urlaug rak þvottahús ásamt eiginmanni sínum og var starfs- maður Sláturfélags Suðurlands. Útför Sigurlaugar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 19. maí 2016, kl. 13. voru Kristín, f. 1915, d. 2010, Sig- urður. f. 1916, d. 1960, Jakob Gunn- ar, f. 18. jan. 1919, d. 2003, Pétur Jón- as, f. 15. júlí 1920, d. 2007, Sigríður, f. 16. sept. 1921, d. 2. feb. 2011. Eigin- maður Sigurlaugar var Valgeir Þor- mar, f. 1926, d. 2005. Börn þeirra eru fjögur 1) Sigmar, f. 1957, mennta- skólakennari. Eiginkona hans er Alfa Kristjánsdóttir og börn Móðir okkar fæddist í litlum torfbæ í Kollafirði við Breiða- fjörð. Æskuminningarnar um líf- ið í sveitinni stóðu henni ávallt nærri. Við börnin fengum að heyra margar sögurnar. Um kýrnar sem mamma sótti korn- ung í hagann á sumrin. Hvernig hún renndi sér að vetri í snjó á tunnustöfum sem voru heima- tilbúin skíði. Þó gat hún á fullorð- insárum hvergi hugsað sér að búa annars staðar en í iðandi mannlífi ört stækkandi höfuðborgar landsins. Í Reykjavík kynnist hún föður okkar Valgeiri Þormar frá Skriðuklaustri á Fljótsdals- héraði. Þau giftu sig og leigðu íbúð í Þingholtunum í Reykjavík. Erf- iður atburður skyggði þó á gleðina yfir fæðingu frumburðar- ins. Að kvöldi aðfangadags jóla 1957 brann húsið Þingholtsstræti 28 í Reykjavík þar sem þau bjuggu. Þetta var einn stærsti bruni fjölbýlishúss sem orðið hef- ur á Íslandi. Móðir okkar yfirgaf brennandi húsið í skyndi með ungbarnið í fanginu á meðan faðir okkar og Jakob Pétursson frændi okkar björguðu því litla af búslóð þeirra sem náðist úr brunanum. Skólaganga mömmu var tak- mörkuð við heimakennslu á sveitabæjum og einn vetur á Húsmæðraskólanum að Staðar- felli. En líkt og margir Íslending- ar hafði hún lesið sér til um ver- öldina sem var þarna fyrir utan Breiðafjörðinn. Líkt og ævisögu Tómasar Alva Edisons, banda- ríska uppfinningamannsins, hvernig ljósaperan og aðrar nýj- ungar urðu til sem gerbreyttu lífi fólks í sveitum landsins sem hafði lítið breyst í þúsund ár. Hörð lífsbarátta alþýðufólks á fyrri hluta síðustu aldar mótaði um margt lífssýn móður okkar. Hún réð sig í vist og komst þá í kynni við heimilislíf fólks sem taldist sumt kannski til yfirstétt- ar í Reykjavík. Sigurlaug stóð alltaf fast á sínu gagnvart vinnu- veitendum sínum varðandi það sem um var samið í sambandi við kaup og kjör enda lagði hún sig alltaf fram sjálf um að standa við sitt. Festa, vinnusemi og ákveðni um að standa á sínu virðist hafa verið veganesti mömmu frá æskustöðvunum á Vestfjörðum. Kannski mótaði líf við kröpp kjör einnig móður okkar sem jafnað- armanneskju. Hún var alltaf mjög meðvituð um nauðsyn þess að vinnandi fólk og þeir sem minna máttu sín fengju að búa við mannsæmandi kjör. Þetta var lífssýn sem hún deildi mjög með eiginmanni sínum. Þó þau hjónin kæmu lítið nálægt almennu flokksstarfi stjórnmálaflokka voru þau eldheitir stuðnings- menn þeirra sem boðuðu nýja tíma og voru með þeim fyrstu til að greiða götu og tala máli fram- bjóðenda eins og Vigdísar Finn- bogadóttur og Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur. Upp úr áttræðisafmælinu fór móðir okkar að sýna merki heilsubrests. Fljótlega var hún greind með byrjunareinkenni alz- heimers-sjúkdómsins. Á nokkr- um mánuðum hrakaði henni svo að hún átti orðið erfitt með að taka þátt í daglegu lífi. Sigurlaug flutti á Dvalar- og hjúkrunar- heimilið Grund til langtímadvalar þar sem hún var næstu ellefu ár- in. Á Grund naut hún úrvalsu- mönnunar frábærs starfsfólks. Fyrstu árin á Grund fór minnið að hverfa en það virtist svo að lengst héldust æskuminningarn- ar um fjölskyldulífið í sveitinni, foreldra og systkini á Galtará. Meira: mbl.is/minningar Sigmar Þormar, Anna Þormar, Pétur Þormar og Sigurður Þormar. Sigurlaug Péturs- dóttir Þormar Vinur minn og frændi, Ólafur Run- ólfsson, er fallinn frá. Við erum báðir frá Berustöðum í Ása- hreppi en þrátt fyrir umtalsverðan aldursmun náðum við Óli Run afar vel saman á síð- ari árum í gegnum sameiginlegt áhugamál okkar, ljóðlistina. Óli hafði skemmtilega nær- veru og með sitt síða hvíta skegg og glampa í augum varð hann eft- irminnilegur þeim sem urðu á vegi hans, ekki síst ef þeir fengu síðan vísukorn að auki. Já, Óli var hagyrðingur eins og þeir gerast bestir og framlag hans til okkar, sem unnum ís- lenskum menningararfi, vísna- gerð og ljóðmáli, er ómetanlegt. Vísurnar skipta eflaust þúsund- um, allar svo haglega ortar að á þeim sést aldrei missmíð. Einkum áttum við Óli Run eft- irminnilegar stundir eftir að hann ákvað eftir hvatningu mína og eflaust margra fleiri, að gefa vísurnar sínar og ljóðin út á bók- um. Ég fékk það ánægjulega hlutverk að aðstoða hann við út- gáfuna svo úr urðu tveir mikils- verðir minnisvarðar um það að ís- lenskir bragarhættir og vísnagerð eiga fullt erindi við samtíma okkar, nú þegar liðið er nokkuð á 21. öldina. Vísnagerðin var Óla í blóð bor- in og ég man vel þegar hann lýsti fyrir mér hvernig þetta gerðist helst hjá honum. Þá var það oft- ast þannig að þegar hann var lagstur til hvílu á kvöldin og hafði lagt augu sín aftur tóku hending- arnar að renna honum fyrir hug- skotssjónir eins og á auglýsinga- skilti. Ekki var þá annað að gera en að setjast upp við dogg og grípa blýant og festa hugrenn- ingarnar á blað – eða umslag. Óli var víðförull maður og fór um landið á „Litla Rauð“, sem var rauður smábíll af gerðinni Nissan Micra. Oft kom hann við hjá okkur á Laugum í Þingeyj- arsveit og var aufúsugestur. Ekki síst höfðu dætur mínar gaman af komum Óla frænda „jólasveins“ með sitt hvíta skegg. Á útlit sitt spilaði hann gjarnan í heimagerð- um jólakortum með mynd og kveðju í bundnu máli. Við, fjölskylda mín og foreldr- ar, þökkum Ólafi Runólfssyni innilega fyrir ánægjulega sam- fylgd. Með honum er genginn eft- irminnilegur og góður drengur sem verður sárt saknað. Hólm- fríði og fjölskyldu hennar vottum við innilega samúð okkar. Jóhann Guðni Reynisson. Ólafur var Rangæingur af svo- nefndri Víkingslækjarætt, fædd- ur á Berustöðum í Ásahreppi og var sá fimmti í hópi sjö systkina, sem allt var dugnaðar- og mynd- arfólk. Systurnar tvær, Ingigerð- ur og Margét, settust að í þétt- býlinu við Faxaflóa, en bræðurnir aðrir en Ólafur voru Rangæingar alla tíð: Stefán bóndi á Berustöð- um, Þorsteinn bílstjóri á Rauða- Ólafur Runólfsson ✝ Ólafur Runólfs-son fæddist 12. janúar 1929. Hann lést 19. apríl 2016. Útför hans fór fram 29. apríl 2016. læk í Holtum, Steinþór landbún- aðarráðunautur á Hellu og Trausti, sá yngsti í hópnum, lifir systkini sín. Hann var fyrr bóndi á Berustöð- um og seinna bú- settur á Hellu. Ólafur gerðist bifvélavirki og meistari í grein sinni og vann í fyrstu við kaup- félagsverkstæðið á Rauðalæk um árabil en síðar fluttist hann í þétt- býlið og gerðist ökukennari í ára- tug. Lengst starfaði hann sem bílstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur en loks réðst hann til starfa hjá ÁTVR og var þar 15 síðustu ár starfsævi sinnar. Árið 1980 gekk Ólafur Run- ólfsson í Kvæðamannafélagið. Hann var félagi þar í 36 ár, fædd- ur 1929, sama ár og félagið var stofnað. Hann var lengi í stjórn sem gjaldkeri og gerður heiðurs- félagi. Góður félagi var hann og gulltraustur, samviskusamur, kappsfullur og aflasæll eins og gjaldkerar eiga að vera. Hann heimsótti þá örfáu, sem seinir voru að borga árgjaldið og sat yf- ir þeim með ljúfmennsku og án nokkurrar ýtni þar til þeir höfðu borgað og kom aftur, ef peningar voru ekki á lausu. Heimturnar urðu því 100% á fáum árum. Hann var fundrækinn í besta lagi og kom lengst af með okkur í all- ar sumarferðir félagsins. Hann var einna drýgstur vísnasmiður í þessum ferðum. Fljótur var hann að yrkja og lipurlega hagmæltur. Ólafur var prúður félagi, kurt- eis og óáleitinn og þægileg var návist hans sífellt blandin gam- ansemi. Hann gat verið óræður í ávarpi og ekki laus við hlýlega kerskni. Þegar hann var spurður að nafni við fyrstu kynni sagði hann að nafn sitt gæti verið á esperantó „Nossflónur Rufaló“. Frekari skýringar fengust ekki, en svo rann ráðningin upp nokkru síðar. Það var nafnið hans lesið aftur á bak. Þetta var aðferð Ólafs við að prófa menn og gera þeim glaðan dag, en hann hafði unun af því að gleðja menn, prófa og fræða. Ólafur eignaðist góða konu, Kristbjörgu Stefánsdóttur frá Hallgilsstöðum í Fnjóskadal. Þeirrar sambúðar naut hann að- eins í 15 ár. Dóttir Kristbjargar, Hólmfríður Fanndal Svafars- dóttir, og börn hennar, Krist- björg Hildur og dóttir hennar Andrea Lúsía, Guðmundur Smári og Ólafur Freyr, eignuð- ust í Ólafi kærleiksríkan og elsk- aðan afa. Samband þeirra við Ólaf var fagurt og gott. Ólafur var félagslyndur og hafði unun af ferðalögum um landið og að rækta tengsl við fjölskyldu og vini. Hann gaf út tvær ljóðabækur; Hugur og hjarta kom út árið 2012 og fjallaði um reynslu hans af hjartaaðgerð, sem hann gekkst undir 1996. Bókin Fróns um grundir kom út árið 2013. Fleira átti hann í handraðanum sem ekki vannst tími til að gefa út. Sigurður Sigurðarson, f.h. Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.