Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Laugavegur 59, 2. hæð • Sími 551 8258 • storkurinn.is Opið: Mán.-F ös. 11-18 Lau. 12 -16 Við erum líka BÓKABÚÐ Skútuvogur 1c 104 Reykjavík | Sími: 550 8500 | www.vv.is LD300 fjarlægðarmælir og LAX50 krosslínulaser frá Stabila Á frábæru t ilboði sama n 29.574 kr. GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is Á R N A S Y N IR Kíkið á verðin eftir tollalækkun Æfingapeysa, hálfrennd 6.990 kr. íþróttafatnaður stærðir 36-46 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hin fornfræga sveit Risaeðlan reis úr löngum dvala um páskana og hélt bráðfjöruga tónleika á tónlist- arhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Nú snýr hún aftur – aftur – og heldur sína fyrstu tónleika í Reykjavík í 20 ár í Gamla bíói í kvöld kl. 21 en þeir síðustu voru haldnir í Tunglinu árið 1996 og eru aðdáendum sveitarinnar eflaust enn í fersku minni. Kvaddi eðlan þá með látum, eins og henni einni er lagið. 32 ára Risaeðla Risaeðlan var stofnuð árið 1984 og skipuðu hljómsveitina þá Sig- urður Guðmundsson gítarleikari, Ívar „Bongó“ Ragnarsson bassa- leikari, Margrét Örnólfsdóttir hljómborðsleikari og Halldóra Geirharðsdóttir, söngkona og saxó- fónleikari. Margrét Kristín Blön- dal, eða Magga Stína, söngkona og fiðluleikari, bættist í hópinn ári síðar og svo trommuleikarinn Val- ur Gautason. Þórarinn Krist- jánsson tók svo við kjuðunum af Vali árið 1987 og Margrét Örnólfs hætti í hljómsveitinni ári seinna og gekk til liðs við Sykurmolanna. Risaeðluna sem stígur á svið Gamla bíós í kvöld skipa Magga Stína, Ívar Bongó, Halldóra, Þór- arinn og Sigurður. Hljómsveitin gaf út smáskífu ár- ið 1989 og í kjölfar þeirrar útgáfu hélt hún í tónleikaferð um Banda- ríkin, undir nafninu Reptile, með hljómsveitunum Bless og Ham og var ferðin útrásarátak á vegum Smekkleysu undir yfirskriftinni „Heimsyfirráð eða dauði“ (World domination or death), eins og rifj- að er upp á vefnum Glatkistan. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Fame and Fossils, kom út árið 1990 og starfaði hljómsveitin með hléum næstu árin, gaf út plötuna Efta! árið 1996 og lagði upp laup- ana skömmu síðar, hélt fyrrnefnda útgáfu- og kveðjutónleika í Tungl- inu 16. júní. Í furðugóðu formi Magga Stína segir Risaeðluna hafa verið í furðulega góðu formi á Aldrei fór ég suður, sé litið til þess hversu lengi hún var sofandi. „Þá ákváðum við að slá í annað svona lokagigg og gera það aftur með stæl svo Reykvíkingar fengju að njóta þessa líka, allir vinir og vandamenn,“ segir Magga Stína. – Nú hafa nokkrar hljómsveitir snúið aftur og sagst koma fram í seinasta sinn. Verður þetta í sein- asta sinn? „Já, það er góður bissness í því að segja að þetta sé í seinasta sinn, það fjúka út miðarnir,“ segir Magga Stína og hlær. „Við erum ekki að hittast til að semja lög eða búa til músík, við erum í upprifjun og í raun og veru er þetta gleði- legt, sálfræðilegt ferli í leiðinni og upprifjun á því sem þetta var. Hvað var þessi hljómsveit og út á hvað gekk hún? Við höfum komist að ýmsu og okkur finnst þetta ógeðslega gaman, það fer einhver gamalkunnur kraftur í gang sem er gott að vera í og mikil til- hlökkun er hjá okkur að njóta þeirrar alsælu í eina kvöldstund.“ Andsvar við andsvari – En hvað var þessi hljómsveit, ef ég spyr nú sömu spurningar og þú gerðir? „Þessi hljómsveit var algjör spútnik, myndi ég segja. Við risum upp úr svona síðpönkbylgju sem kom í kjölfar pönksins sem var eins og margir vita hávær and- svarsbylgja við úrkynjuðu mein- strímpoppi. Pönk og póstpönk og sá nýbylgjugrautur sem við lifðum og hrærðumst í sem unglingar hafði gríðarlega sterk persónleg áhrif á okkur en varð þess líka valdandi að við spyrntum fast við fótum, frá þeirri sömu bylgju þeg- ar við fórum sjálf að búa til tónlist, þessa Risaeðlumúsík sem engum hefur enn tekist að skilgreina og var í raun og veru andsvar við andsvarinu. Ég held að það hafi verið okkar mottó, meðvitað og ómeðvitað að varpa einhverskonar gleðiruglsprengju inn í þetta ný- bylgjaða melankólíska andrúmsloft sem með tímanum fór að hafa til- hneigingu til að verða jafnmein- strím og annað meinstrím. Við köstuðum fram hugmyndinni um það að vera á móti því að vera á móti,“ útskýrir Magga Stína. „Þetta getur verið ein lýsingin en þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta svona eftir á séð fyrir mann persónulega algert „primal scream“. Við Dóra höfum til dæm- is verið að rýna í textana sem við sömdum og það út af fyrir sig fyr- ir okkur var og er verðugt sál- fræðilegt rannsóknarefni. Þeir eru flestir stútfullir af ofbeldi og ást. Allt í einum hrærigraut. Fyrst átti ég næstum því erfitt með að fara með þá, fann skrýtnar tilfinningar, næstum því skömm og maður hugsaði bara, rauðfjólublár í fram- an, „hvað er nú þetta?“. En svo stígur maður inn, faðmar textana og er stoltur og stæltur yfir þeim,“ bætir hún við. Börn í áfalli Magga Stína segir vert fyrir liðsmenn hljómsveitarinnar að reyna að muna hvernig þeim leið á þessum tíma, þegar lögin voru samin og textarnir og segir kímin að hugsanlegt sé að þau hafi verið samin af börnum í áfalli. „Hver veit? Ég meina, við áttuðum okkur alveg örugglega síðust af öllum á því enda var ekki spekúlerað í svo- leiðis hlutum þá heldur var bara Á móti því að vera  Fyrstu tónleikar Risaeðlunnar í Reykjavík í 20 ár verða haldnir í kvöld í Gamla bíói  Seinustu tónleikarnir  „Absalútt gleði“ segir Magga Stína um tónleikana Fræðimaðurinn Lars Lönnroth heldur fyrirlestur um nýjar túlk- anir á Njálu á vegum Miðaldastofu Háskóla Íslands í stofu 101 í Odda í dag, fimmtudag, kl. 16.30. „Á síðasta ári komu út þrjár nýjar bækur og birtur var tölu- verður fjöldi greina um Njálssögu utan Norðurlandanna, sem bendir til þess að þessi saga sé nú til dags talin eitt mesta snilldarverk í vest- rænum bókmenntun,“ segir í til- kynningu frá Miðaldastofu. Þar kemur fram að Lönnroth muni í erindi sínu fjalla um grein banda- ríska lagaprófessorsins William Ian Miller sem nefnist „Why is yo- ur Axe Bloody? A Reading of Njáls Saga“ sem að mati Lönnroth birtir „algjöra rangtúlkun á text- anum, þar sem hann sé meðhöndl- aður eins og um sé að ræða nú- tímalega, raunsæja glæpasögu en ekki miðaldasögu með trúarlegu yfirbragði,“ segir í tilkynningunni. Lönnroth mun einnig beina sjón- um sínum að nýjum bókum um Njálu eftir annars vegar þýska prófessorinn Alois Wolf og hins vegar breska fræðimanninn And- rew Hamer. „Báðar bækur eru mun gagnlegri en bók Miller,“ seg- ir Lönnroth og tekur fram að hann muni samhliða færa rök fyrir því að skrif Einars Ólafs Sveinssonar um Njálu haldi enn gildi sínu. Lars Lönnroth hóf feril sinn í Uppsala í Svíþjóð. Doktorsritgerð hans um evrópskar heimildir um ritun Íslendingasagna var gefin út árið 1965. Hann kenndi norrænar bókmenntir við við Berkeley- háskólann í Kaliforníu á árunum 1965 til 1974, en þá tók hann við stöðu prófessors við Háskólann í Álaborg í Danmörku. Árið 1982 sneri hann heim til Svíþjóðar og gegndi stöðu prófessors í almennri bókmenntafræði við Gautaborgar- háskólann til 2000. Snilldarverkið Njála  Lars Lönnroth fjallar um nýleg rit um Njálu í erindi sínu í Miðaldastofu Fræðimaður Lars Lönnroth kenndi um árabil norrænar bókmenntir. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.