Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 „Óhætt er að mæla heilshugar með Koparakri. Þeir sem heilluðust af verðlaunabók höfundarins, Milli trjánna, verða í góðum höndum á koparakrinum, því grunnstemn- ingin er sú sama í báðum bókum,“ skrifar gagnrýnandinn Thomas Be- hrmann á vefnum Litteratursiden í ritdómi sínum um Koparakur eftir Gyrði Elísson sem nýverið kom út í Danmörku í þýðingu Eriks Skyum- Nielsen. Að mati Behrmann tekst Gyrði með listilegum hætti að fjalla um kunnuglegar tilfinningar með húmor, töfra og dulúð að vopni. Aðrir gagnrýnendur deila hrifn- ingu Behrmann í skrifum sínum um Koparakur. Jørgen Johansen, gagnrýnandi hjá danska dag- blaðinu Berlingske, hrósar Erik Skyum-Nielsen fyrir þýðinguna sem sé hreint afbragð. „Þar sem hver saga í bókinni er að meðaltali aðeins fjórar blaðsíður verður stíll- inn að vera knappur,“ skrifar Joh- ansen og bendir á að sérstaða Gyrð- is sem höfundar felist ekki síst í því hversu mikið vægi hið ósagða hafi í verkum hans og hversu gott vald hann hafi á mínimalisma tungu- málsins. „Mörkin milli lífs og listar eru gegnumgangandi þema í mörg- um af bestum sögum bókarinnar,“ skrifar Johansen og bendir á að Gyrðir sé í sterku samtali við heimsbókmenntirnar. Undir þetta tekur Louise Faldorf í nettímarit- inu Atlas þar sem hún bendir á að Gyrðir sé m.a. undir áhrifum frá Haruki Murakami þar sem einmana karlmaður sé iðulega í forgrunni. En ólíkt persónum Murakami þá liggi persónum Gyrðis ekki á að komast neitt. „Persónurnar sakna einskis og leita einskis. Það er heimurinn umhverfis þær sem er órólegur. Draumur og ímyndunar- afl er í forgrunni, þar sem raun- veruleikinn umbreytist í bak- grunnshávaða,“ skrifar Faldorf og leggur áherslu á að þó texti Gyrðis sé mínimalískur verði sögur hans aldrei merkingarlausar. „Þvert á móti. Sögunum er miðlað með næst- um nöktu tungumáli. Þessi til- þrifalitli stíll styrkir húmor text- anns. Nakið og hárbeitt tungumálið gerir sögurnar hispurslausar og að- gengilegar.“ Birte Weiss, gagnrýn- andi Weekendavisen, hrósar einnig Gyrði fyrir knappan stíl hans og bendir á að höfundurinn sé þekktur á Íslandi fyrir að skapa mikið úr litlu. „Aðeins þeir sem hafa ofnæmi fyrir mínimalisma ættu að sleppa því að lesa þessa bók,“ skrifar Weiss. Morgunblaðið/Einar Falur Gagnorður Gyrðir Elíasson. Danskir rýnar hrifnir af Koparakri Gyrðis www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind SKEMMTUN FYRIR ALLA! ER AFMÆLI FRAMUNDAN? VERÐ FRÁ 1.99 0,- KLEINUR The Jungle Book Munaðarlaus drengur er al- inn upp í skóginum. Bönnuð innan 9 ára. Metacritic 75/100 IMDb 8,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.40 Flóðbylgjan 12 Jarðfræðingurinn Kristian varar við að milljónir rúm- metra af grjóti gætu fallið í sjóinn hvað á hverju og myndað stærstu flóðbylgju í sögu Noregs. Borgarbíó Akureyri 17.50 The Boss Viðskiptajöfur lendir í fang- elsi eftir að upp kemst um innherjasvik. Þegar hún sleppur út skapar hún sér nýja ímynd og verður um- svifalaust eftirlæti flestra. Metacritic 40/100 IMDb 5,0/10 Smárabíó 20.00 Bad Neighbours 2:Sorority Rising 12 Þegar systrafélag há- skólanema flytur inn við hlið- ina á Mac og Kelly komast þau að því að stelpunum fylgir enn meira svall og sukk en strákunum. IMDb 8,6/10 Laugarásbíó 20.00, 22.00 Sambíóin Egilshöll 20.00 Smárabíó 17.50, 20.10, 22.20, Borgarbíó Akureyri 20.00 Mothers Day Leiðir fjögurra yndarinnar liggja síðan saman á skond- inn hátt svo úr verða fjórar aðskildar sögur sem fléttast saman í eina. Metacritic 17/100 IMDb 5,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 21.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00 Sambíóin Keflavík 22.15 Angry Birds Á ósnortinni eyju úti á hafi hafast við ófleygir fuglar. Líf- ið leikur við fuglana þar til dag einn, þegar undarlegir grænir grísir flytja á eyjuna. Metacritic 49/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 17.50, 20.00 Smárabíó 15.30, 15.30, 17.45, 17.50, 20.10 Borgarbíó Akureyri 17.50 Where to Invade Next Michael Moore ferðast til Evrópu og Afríku til að skoða hvað Bandaríkin geta lært af þeim. Metacritic 63/100 IMDb 7,4/10 Borgarbíó Akureyri 22.30 The Huntsman: Winter’s War 12 Metacritic 36/100 IMDb 6,2/10 Smárabíó 21.00, 22.30 Ratchet og Clank Félagarnir Ratchet og Clank þurfa nú að stöðva hinn illa Drek frá því að eyðileggja plánetur í Solana-vetrar- brautinni. Þeir ganga til liðs við hóp litríkra og skemmti- legra persóna sem kallar sig Alheimsverðina. Morgunblaðið bbmnn Laugarásbíó 17.50 Smárabíó 15.30 Ribbit Saga frosks í tilvistarkreppu. IMDb 4,2/10 Sambíóin Álfabakka 18.00 Bastille Day Michael er bandarískur smá- þjófur sem býr í París. Nýj- asti ránsfengur hans reynist vera eitthvað allt annað en hann bjóst við. Smárabíó 23.00 Brev til kongen 12 IMDb 7,1/10 Mizra er 83 ára og vill vega- bréf svo hann geti snúið aft- ur til Kúrdistan til að heiðra minningu barnanna tíu sem hann hefur misst. Bíó Paradís 20.00 Anomalisa 12 Bíó Paradís 18.00 Hrútar 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 7,4/10 Bíó Paradís 20.00 Keep Frozen Bíó Paradís 18.00 The Witch 16 Morgunblaðið bbbbn Bíó Paradís 22.00 Fyrir framan annað fólk 12 Morgunblaðið bbbnn Bíó Paradís 22.00 The Ardennes Bíó Paradís 18.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali er að finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna. Vinir setja saman áætlun um að endurheimta stolin kettling, með því að þykjast vera eitur- lyfjasalar í götugengi. Sambíóin Álfabakka 17.40, 17.40, 20.00, 20.00, 22.20, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 18.20, 21.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.15 Sambíóin Keflavík 20.00 Keanu 16 Kvikmyndir bíóhúsanna Hinn stökkbreytti Apocalypse er talinn fyrsti stökkbreytti einstaklingurinn í X- Men seríu Marvel og jafnframt sá öfl- ugasti. Hann hefur þann eiginleika að geta safnað kröftum annarra stökk- breyttra manna og er nú bæði ódauðlegur og ósigrandi. IMDb 8.3/10 Metacritic 51/100 Laugarásbíó 19.00, 22.00 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.55 Sambíóin Keflavík 20.00, 23.00 Smárabíó 16.30, 16.30, 19.30, 20.00, 22.20, 22.30, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 20.00, 22.00, 22.00 X-Men: Apocalypse 12 Alvarlegt atvik leiðir til klofnings í Avengers hópnum um hvernig eigi að takast á við aðstæður. Hann magnast upp í baráttu milli Iron Man og Captain America. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 83/100 IMDb 8,7/10 Laugarásbíó 22.10 Sambíóin Álfabakka 18.00, 20.20, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00 Sambíóin Akureyri 17.00, 20.30 Captain America: Civil War 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.