Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 ✝ Birgit Hellandfæddist á Siglufirði 27. febr- úar 1944. Hún andaðist á Land- spítalanum 7. maí 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Droplaug Gutt- ormsdóttir Hell- and, f. á Síðu í Vesturhópi 21. janúar 1916, d. 6. ágúst 2012, og Knut Helland, f. á Övre Helland í Modalen í Noregi 6. nóvember 1914, d. 18. ágúst 1985. Þau áttu auk Birgit, dótt- urina Arndísi Ingu, f. 3. febr- úar 1953. Hún er gift Óskari Þór Björnsson. Börn þeirra eru Egill, f. 2003, og Hildur Ósk, f. 2008. Birgit var með foreldrum sínum á Siglufirði til ársins 1951 og fjölskyldan flutti þá til Reykjavíkur með viðkomu á Ingólfsfirði. Árið 1955 flutti fjölskyldan í Kópavoginn. Birg- it gekk í skóla í Reykjavík og Kópavogi og hún útskrifaðist með verslunarpróf frá Verslun- arskóla Íslands árið 1963. Um það leyti kynntist hún manns- efni sínu og fjölskyldan stækk- aði hratt. Birgit helgaði líf sitt börnunum og eiginmanni og seinna barnabörnum, þegar þau komu. Utan heimilis vann hún um tíma sem ritari, við af- greiðslu og sem skólaliði. Útförin fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag, 19. maí 2016, klukkan 13. Þormóðssyni og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Þann 11. júní 1966 giftist Birgit Hreini Frímanns- syni, f. 20. janúar 1944. Foreldrar hans voru Guðríður Hreinsdóttir og Frímann S. Jóns- son. Börn þeirra eru: 1) Finnur, f. 12.6. 1964, maki Kristín Ein- arsdóttir. Börn þeirra eru Aðalheiður Dögg, f. 1988, Marí- anna Sif, f. 1994, og Birgitta Líf, f. 1995. 2) Knútur, f. 26.1. 1968. 3) Frímann, f. 26.1. 1968. 4) Dagný, f. 1976, maki Úlfar Elsku hjartans mamma mín er látin. Ég trúi því ekki að hún skuli vera farin. Jafnvel þótt vit- að hafi verið í hvað stefndi þá leyfði hún okkur aldrei að gefast upp og missti sjálf aldrei trúna á að hún myndi sigra að lokum. Hún kenndi okkur svo sannar- lega hvernig maður tekst á við mótlæti. Mamma og pabbi áttu því láni að fagna að vera ástfangin alla ævi og sérstaklega var gaman að sjá þau gera allt saman, nema kannski helst að vakna á morgn- ana. Ég hef erft svefnpurkugenið frá mömmu og kann ég henni bestu þakkir fyrir það. Það var ljúfsárt að fylgjast með mömmu og pabba í veikindum mömmu, pabbi alltaf við hlið hennar og gerði allt sem hann gat til að henni liði betur. Þau voru svo sannarlega ástfangin fram á síð- asta dag. Mamma var yndisleg amma fyrir börnin mín, hún gaf sér allt- af tíma fyrir þau, hvort sem það var að lita, spila, fara út á róló eða henda steinum í sjóinn. Hún sleppti jafnvel heimilisverkunum meðan þau voru hjá henni, það segir meira en mörg orð um væntumþykju hennar í garð ömmubarnanna því í mínum upp- vexti man ég ekki annað en að heimilið hafi ávallt verið tandur- hreint og allt á sínum stað. Hún studdi barnabörnin ávallt í hverju því sem þau tóku sér fyrir hendur og sýndi alltaf áhuga á því sem gekk á í þeirra lífi. Ég veit að börnin mín eiga eftir að sakna ömmu sinnar mikið. Elsku mamma, takk fyrir allt sem ég er og allt sem ég á. Þú verður ætíð mín fyrirmynd. Þín elskandi dóttir, Dagný. Elskuleg tengdamóðir mín er nú látin allt of fljótt eftir erfið veikindi síðustu mánuði. Þrátt fyrir mikil veikindi vonaði ég allt- af að þér myndi batna og að þú fengir að fara heim aftur þar sem þér leið best en þú varst mjög heimakær. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast þér þegar ég kom inn í fjölskylduna þína fyrir 30 árum þegar ég kynntist elsta syni þínum, Finni. Þú varst mikil fjölskyldumanneskja og barst ávallt hag fjölskyldunnar fyrir brjósti og minnist ég mikils stuðnings frá þér og Hreini þegar við Finnur fórum að búa. Einnig hafa dætur okkar Finns, ömmu- stelpurnar þínar fengið að njóta þess bæði sem lítil börn og sem fullorðnar, en betri ömmu var varla hægt að hugsa sér. Þú gafst þér ávallt tíma fyrir þær og fjöl- skylduna alla. Ég minnist einnig allra matar- og kaffiboðanna en þú varst mjög góð að elda og baka og bjóst til heimsins bestu sósur og á ég nú allmargar uppskriftir frá þér sem ég mun varðveita vel. Ég kveð þig nú með miklu þakklæti fyrir allt en minning um yndislega tengdamóður mun lifa áfram í hjarta mér. Þín tengdadóttir, Kristín (Stína). Elsku amma hefur nú kvatt okkur og eigum við eftir að sakna hennar mikið. Amma skilur eftir sig fullt af góðum minningum. Við hlökkuðum alltaf mikið til að koma í næturgistingu til ömmu og afa á Selbraut. Þar voru nefnilega aðrar regl- ur en heima. Þar máttum við ráða hvort við fengum kvölddrekku- tíma eða hafa kósýkvöld. Amma gaf sér alltaf tíma til að leika við okkur, hún lagði mikla áherslu á að vanda sig þegar maður litaði og höfum við saman fyllt ófáar litabækur hjá þeim. Amma eldaði líka mjög góðan mat, til dæmis eplasalatið, sem var stundum í aðalrétt og kjötið til hliðar. Amma var líka mjög dugleg að fara með okkur út á róló eða nið- ur í fjöru, þar sem við saman köstuðum steinum í sjóinn. Elsku amma, takk fyrir allt og við pössum afa fyrir þig. Þín Egill og Hildur Ósk. Elsku amma okkar. Við eigum eftir að sakna þín svo mikið en sem betur fer eigum við ótal margar minningar sem er hægt að halda í, eins og afi myndi segja: „Góðar minningar eru það besta sem maður hefur.“ Við gætum talið upp allar þær góðu minningar sem við eigum og fyllt heila bók með þeim, en þær minningar sem koma fyrst upp í huga okkar eru þær þegar við vorum í pössun hjá ykkur afa í ófá skipti þegar við vorum litlar. Þá löbbuðum við yfir í Hagkaup á Eiðistorgi og keyptum morgun- mat, við fórum oft að Tjörninni í Reykjavík að gefa öndunum brauð sem við höfðum fengið í bakaríi á leiðinni. Einnig eigum við góðar minningar úr Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum og þegar við fórum á leikskólana á móti Selbraut að leika og tókum þá með okkur alls kyns dót. Við bjuggum oft til tjaldhelli úr tepp- um inni í geymslu sem við gátum leikið okkur í tímunum saman. Á kvöldin fengum við oft að fara í bað með Mikka og Andrés sem vöktu miklu lukku og gera enn. Eftir það settumst við upp í sófa í náttfötunum með nammi í skál, kveiktum upp í arninum og horfð- um á sjónvarpið í gamla imba- kassanum með loftnetinu. Ekki má gleyma brúna norska Guð- brandsdalsostinum sem Birgitta elskar. Svo enduðum við oft pöss- unina á að borða á McDonalds áð- ur en okkur var skilað heim. Önnur minning sem stendur upp úr er þegar þið afi buðuð allri fjölskyldunni í frí til Frímanns til Bandaríkjanna. Sú ferð er ein af skemmtilegustu og eftirminni- legustu utanlandsferðum okkar. Nokkrum mánuðum áður en þið tilkynntuð okkur þetta hafði Maríanna einmitt verið að spyrja pabba hvenær við gætum farið að heimsækja Frímann. Enn og aft- ur getum við vitnað í afa að þarna bjuggum við til margar góðar minningar sem munu fylgja okk- ur. Sérstakar minningar á Birg- itta um þegar þið afi fluguð út með henni til Noregs þegar hún fór í lýðháskólann. Þið hjálpuðuð henni að koma sér fyrir og studd- uð þétt við bak hennar allt árið. Við höfum lært svo margt af þér sem við munum taka með okkur í framtíðina. Þú varst alltaf góðhjörtuð og vildir ávallt það besta fyrir alla. Þú varst alltaf þolinmóð og studdir okkur í einu og öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Nú munum við systurnar bera ættarnafnið Helland með stolti og vonandi mun það lifa um ókomna tíð. Takk fyrir allt, elsku amma. Þínar ömmustelpur, Maríanna Sif og Birgitta Líf Finnsdætur. Elsku amma – amma Bigga, amma á nesinu, amma í Pennan- um, amma mín. Ég bjóst aldrei við því að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Sökn- uður og sorg fylla hjarta mitt en ég veit að þú ert komin á betri stað og þú lifðir lífinu til hins ýtr- asta. Þú og afi hafið einmitt alltaf sagt að lífið er til að lifa. Það eru minningarnar og upplifanirnar sem skipta máli. Það er það sem ég mun geyma vel, minningarnar um þig og stundirnar okkar sam- an. Þú varst amma sem dröslaðist svo oft með okkur systurnar á róló. Amma sem var alltaf til í að lita með mér og hrósa mér fyrir glæsilegan afrakstur, þrátt fyrir misjöfn gæði myndanna. Amma sem stóð úti við Eið- istorg með afa að bíða eftir að ég hlypi fram hjá í Reykjavíkur- maraþoninu – og þú beiðst enn lengur þar til ég kom aftur hlaup- andi hinum megin við Eiðistorg. Amma sem var alltaf glæsileg – og yfirleitt í einhverju rauðu. Amma sem gaf sér alltaf tíma fyrir mig og sýndi því sem ég tók mér fyrir hendur áhuga. Amma sem gerði mér alltaf ljóst hversu mikið við barnabörn- in skiptum máli fyrir þig og afa. Amma – ég elska þig, ég sakna þín og ég mun varðveita minning- arnar um þig í hjarta mínu. Þín Aðalheiður (Heiða). Með nokkrum orðum langar mig að minnast kærrar vinkonu og svilkonu, Birgit Helland. Mín fyrstu kynni af Birgit voru í kringum tvítugsaldurinn er við báðar giftumst inn í sömu fjöl- skylduna, okkur varð strax vel til vina, þau vinabönd okkar og maka okkar styrktust og efldust eftir því sem árin liðu. Hver myndin af annarri birtist þegar blaðað er í bók minning- anna. Karfavogurinn kemur strax upp í hugann með okkar yndislegu tengdaforeldrum, Guð- ríði og Frímanni, laufa- brauðsbakstur undir góðri hand- leiðslu Jórunnar ásamt börnum okkar er litu oftast til nammiskál- arinnar góðu, margt fleira væri hægt að minnast og þakkarvert að hafa fengið að lifa fjölskyldu- samveru án snjallsíma og tölvu. Fleiri myndir birtast, ferðalög innanlands ásamt yndislegri Frakklandsferð með ykkur hjón- um, sem hlaðin er minningum, þar sem meðal annars vínrækt- arhéruð voru skoðuð undir leið- sögn ykkar yndislegu hjóna. Að ógleymdri Brusselferðinni góðu fyrir nokkrum árum á veg- um kvenfélags Seltjarnarness er þú bauðst mér að vera þátttak- andi í, samvera með þér og þínum félagskonum var mér ógleyman- leg. Megi birta vorsins og ylur um- vefja ykkur öll. Innilegar samúðarkveðjur til eiginmanns og fjölskyldu, megi allar góðar vættir styrkja ykkur og styðja í sorginni. Aðalheiður Jónsdóttir (Alla). Vorið 1964 tóku 25 bekkjar- félagar í 6.Z í Menntaskólanum í Reykjavík stúdentspróf. Bekkur- inn myndaði með sér félagsskap og hefur haldist náin vinátta með félögum allar götur síðan. Bekk- urinn var hreinn strákabekkur, en undir lok náms og á næstu misserum bundu nokkrir félagar föst sambönd við hitt kynið sem í allmörgum tilvikum reyndust varanleg. Hópurinn stækkaði brátt og þó svo að stofnað hafi verið bekkjarfélag, Skarphéðinga- félagið, og eiginkonur hafi mynd- að sitt eigið félag, Karenar, þá má heita að allt hafi fallið saman í einn vinahóp. Síðla árs 1963 kynnti Hreinn Frímannsson fyrir okkur skóla- félögum unga stúlku, Birgit Hell- and. Á æskuárunum er ekki á vís- an að róa í ástarmálum, en í tilviki Birgit og Hreins var að hefjast langur þáttur í þeirra lífi; hjónaband sem staðið hefur í meira en hálfa öld. Á þeim árum hafa þau bæði skilað drjúgu ævi- starfi, eignast fjögur börn, sem öll eru uppkomin og á miðjum starfsdegi, og mun elsta barna- barnið þegar hafa lokið háskóla- námi. Þegar við Karenar og Skarp- héðingar kveðjum Birgit er margs að minnast. Birgit og Hreinn voru meðal þeirra sem oftast tóku þátt í samfundum, ferðum innanlands og utan og hverskyns uppátækjum okkar hóps. Margt bar þá á góma og ef einhverjum fataðist flugið eða gerðist of fullyrðingasamur, gat hann eða hún átt von á skarplegri athugasemd frá Birgit sem þó var aldrei borin fram af meinfýsi heldur miklu fremur af hjálpsemi á hljóðlátan og yfirvegaðan hátt, þannig að mönnum varð um- ræðuefnið skýrara en áður. Samræður gátu átt sér stað á ýmsum stöðum um hin ólíkustu efni, t.a.m. um þjóðmenningu yfir kræklingi með Whisky-sósu í Whisky-safninu í Edinborg, en til þeirrar borgar fór hópurinn í skipulagða ferð síðla sumars árið 2007. En fleiri tilefni gáfust til uppbyggilegra samræðna. Birgit og Hreinn voru áhugamenn um leikhús og sum okkar urðu þeirr- ar gleði aðnjótandi að fara með þeim á leiksýningar og setjast síðan og ræða innihald sýninga og áhrif yfir kaffibolla eða vín- glasi. Oft hafði þá Birgit komið auga á eitthvað, sem okkur hinum hafði yfirsést. Birgit var lífsglöð kona, ævin- lega jákvæð og vinsamleg, og hún hafði einstaklega góða nærveru. Okkur er öllum í fersku minni þegar Birgit og Hreinn buðu til veislu í tilefni af sameiginlegu sjötugsafmæli fyrir rúmum tveimur árum. Þá geisluðu þau af gleði, þökkuðu hvort öðru liðin ár, röktu samverustundir með vinum og vandamönnum og leyfðu sér að líta á komandi efri ár með bjartsýni, enda virtist mega ætla að þau gætu átt marg- ar sælustundir eftir ólifaðar. En skjótt skipast veður í lofti og nú má ekki lengur njóta hinna góðu samvista. Við kveðjum látna vinkonu með söknuði og vottum Hreini og fjölskyldu dýpstu sam- úð. Fyrir hönd Karena og Skarp- héðinga, Guðfinna og Gunnar. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti (Ragnhildur Ófeigsdóttir) Þetta ljóð kom mér í hug er ég frétti að Birgit vinkona og fé- lagssystir væri flutt til Sólar- landsins. Í dag kveðjum við félagskonu í kvenfélaginu Seltjörn, góðan og traustan félaga, jákvæða og upp- örvandi. Nú eru minningarnar eftir frá svo ótal mörgu, þar sem gleðin ríkti í ferðalögum bæði innan lands og utan og margs konar störfum er félag okkar hef- ur tekið þátt í. Í félagi eins og okkar er nauð- synlegt að stíga dansinn í takt, hún Birgit steig dansinn í takt með sínu ljúfa fasi og blíða brosi og hvatti okkur áfram og að gef- ast ekki upp þó á móti blési. Mér er efst í huga sólríkur dagur í júní á síðasta ári er við áttum saman í Borgarfirði, sum- arfrí var framundan og hlakkað til að hittast á komandi hausti. Mikið voru veikindin langt í burtu þennan sólríka dag. Þess- um degi gleymum við ekki. Birgit var einnig í vatnsleikfimihópnum okkar í um 20 ár. Þar eru minn- ingar sem geymast allar ljúfar. Við úr þessum báðum hópum þökkum ljúf kynni og allar góðar stundir. Henni Birgit vinkonu minni þakka ég góða samvinnu í stjórn félags okkar og minnist með þakklæti allra símtala á liðnum mánuðum. Þú varst hetja og gott að ræða við þig. Við trúum því að Sólarlandið hafi tekið vel á móti þér og þú vakir yfir okkur meðal rósanna. Innilegar kveðjur sendum við þér, Hreinn, ég þakka öll símtölin er við höfum átt á erfiðum stund- um. Megi Guð vera með þér og börnum og barnabörnum og gefa ykkur styrk. Minningarnar verða ekki teknar frá ykkur, þær lifa um ókomin ár. Blessuð sé minn- ing góðrar konu. Erna Kristinsdóttir Kolbeins. Nágrannakona okkar, Birgit, er látin eftir erfið veikindi. Hún ólst upp í Kópavoginum, bjó seinna í Þrándheimi í Noregi og síðar í Reykjavík en fluttist svo á Seltjarnarnes þar sem þau Hreinn byggðu sér hús að Sel- braut 13. Þangað fluttu þau og bjuggu ásamt fjórum börnum sínum, Finni, tvíburunum Frí- manni og Knúti og Dagnýju. Lóð- irnar okkar liggja saman svo við höfum verið nágrannar í tæp 40 ár. Þegar byggingavinnunni var lokið var melnum sem húsin standa á smám saman breytt í gróðursæla garða og við ná- grannarnir eignuðumst sameig- inlegt limgerði. Þess var þó gætt að á einum stað í limgerðinu væri gangstígur til að auðvelda sam- gang á milli heimilanna. Dætur okkar léku sér saman og lá stund- um á að hittast. Að loknu jóla- haldi fyrir mörgum árum bauð Birgit okkur yfir til þeirra Hreins. Ári síðar endurguldum við boðið. Allar götur síðan höf- um við hist til skiptis á heimilum okkar. Þessi góði siður var árviss þar til síðasta vetur að Birgit var orðin of veik fyrir slíka fundi. Á þessum notalegu kvöldstundum var farið yfir helstu viðburði í fjölskyldunum, framan af voru það fréttir af börnum og barna- börnum, en á seinni árum hefur meira verið spjallað um bækur, menningarviðburði og ferðalög. Birgit var heimakær og undi sér vel í nærumhverfinu, var í kven- félaginu og stundaði sundleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness. En hún hafði líka gaman af því að ferðast. Hún hafði frá mörgu að segja frá Frakklandsferðum þeirra hjóna og svo bættust við ferða- sögur frá Arizona úr heimsókn- um þeirra til Frímanns, sonar þeirra, sem býr í Phoenix. Hreinn og Birgit voru samstillt í lífinu og ræktuðu sinn garð en rósirnar undir suðurveggnum voru henn- ar. Nú eru þær að lifna við eftir vetrarhvíld en lífsneisti Birgit hefur slokknað. Við kveðjum Birgit með trega en minnumst hennar með þakklæti fyrir að skapa ánægjulegar samveru- stundir og búa til gott nágrenni. Hreini og fjölskyldu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Hildigunnur Ólafsdóttir og Jón Skúlason. Í dag kveð ég með sorg í hjarta hana Birgit vinkonu mína, sem þurfti eftir meira en hálfs árs baráttu að lúta í lægra haldi fyrir illvígum sjúkdómi. Mér fannst svo sjálfsagt að hún myndi fara með sigur af hólmi í baráttunni við veikindin, því hún sýndi allan tímann einstaka þrautseigju og æðruleysi, var svo einstaklega já- kvæð og kvartaði aldrei yfir neinu. Hún brosti bara sínu hlýja brosi og talaði um hvað allir væru góðir við sig. Birgit Helland Okkur langar að minnast bróður okk- ar, Óskars, sem lést 11. apríl sl. Meiri- part ævinnar bjó hann í Austur-Húna- vatnssýslu. Minnisstæðar eru ferðirnar á Skagaströnd á Kántrí-hátíðirnar. Það voru gleðistundir. Sveitalífið og bú- störfin áttu vel við hann, en svo flutti hann að lokum á höfuðborg- arsvæðið 1997. Bjó fyrst í stað í Kópavogi, en flutti síðan í Hátún 4. Heimsóknirnar í Hátún 4 voru ávallt skemmtilegar. Hann var hrókur alls fagnaðar. Hjá honum var alltaf heitt kaffi á könnunni og pönnukökubakstur og allskon- Óskar Eiríksson ✝ Óskar Eiríks-son fæddist 23. september 1930. Hann 11. apríl 2016. Útför Óskars fór fram 25. apríl 2016. ar eldamennska átti vel við hann. Hann var mann- blendinn og hafði gaman af því að fara í Kolaportið og spjalla við kunn- ingjana. Óskar tók aldrei bílpróf og gekk því mikið um bæinn. Síðustu árin hittumst við systk- inin mánaðarlega í kaffi og þá var mikið spjallað um lífið og tilveruna og það voru ánægjulegar stundir. Fyrir ári síðan flutti hann á Dvalarheimilið Grund vegna heilsubrests. Þar var hann vel lið- inn og þar leið honum mjög vel. Eftir áramótin fór heilsu hans að hraka. En starfsfólkið á Litlu- Grund hugsaði vel um hann og viljum við færa því bestu þakkir fyrir. Guðrún, Hulda og Fríða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.