Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 25
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Massey Ferguson sláttutraktorar Verð frá Kr. 379.000 Toro sláttutraktorar Verð frá Kr. 849.000 Gróðurhús Plast og gler Verð frá Kr. 69.132 Sláttuvélar Frá Massey Ferguson og Toro Verð frá Kr. 89.000 UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Félag eldri borgara í Reykjavík Mánudaginn 2. maí mættu 29 pör í tvímenning hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S. Jón Þór Karlss. – Jón H. Jónsson 391 Ragnar Haraldss. – Davíð Sigurðsson 352 Axel Lárusson – Guðbjörn Axelss. 351 A/V Ólafur Kristinss. – Björn Arnarson 375 Trausti Friðfinnss. – Hafliði Þórsson 373 Bjarni Guðnason – Guðm. K. Steinbach 353 Fimmtudaginn 5. maí var spilað á 16 borðum Efstu pör í N/S Jón H. Jónsson – Bergljót Gunnarsd. 364 Örn Isebarn – Hallgrímur Jónss. 359 Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 328 A/V Lúðvík Ólafsson - Ragnar Jónsson 410 Skúli Sigurðss. – Þorleifur Þórarinss. 379 Elín Guðmanns.- Friðgerður Benedikts.362 Ingvaldur Gústafsson er bronsstigameistari BK Síðasta keppni vetrarins hjá Bridsfélagi Kópavogs var Vortví- menningur þar sem tvö kvöld af þremur giltu til verðlauna. Gunnlaugur Karlsson - Ásmundur Örnólfs- son/Kjartan Ingvarsson 121 Birna Stefnisd. - Aðalsteinn Steinþórss. 113 Ingvaldur Gústafsson - Bernódus Kristins./ Birgir Örn 109 Ingvaldur Gústafsson varð síðan bronsstigameistari 2015-2016 með 293 stig, en í öðru sæti varð með- spilari hans Bernódus Kristinsson með 276. Bridsfélag Kópavogs þakkar öll- um þeim fjölmörgu og bráð- skemmtilegu spilurum sem mættu í Gjábakkann í vetur og hlakkar til að sjá ykkur að afloknu því blíðviðr- issumri sem nú bíður handan við hornið. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson brids@mbl.is Alaverjar (Ala- wiyyah) eru kristin þjóð í Sýrlandi sem fyrr á öldum nefndist Nusay- riyyah. Á 11. öld voru Alaverjar að mestu bú- settir á tveimur svæð- um. Annars vegar í Norð-vestur Sýrlandi (Latakia+Id- lib+Aleppo) og hins vegar í Bagdad í Írak. Samfélagi þeirra í Bag- dad var eytt af Mong- ólum 1258 og í Aleppo drápu Mong- ólar tugi þúsunda 1260.Undarlegt er – en þó skiljanlegt – að Alaverjar segist vera múslimar, þótt þeir trúi á heilaga þrenningu, endurfæðingu og haldi upp á kristnar trúarhátíðir, en virði lítils Kóraninn og siði súnní-múslima. Krossfararnir töldu í fyrstu að Ala- verjar væru venjulegir múslimar og börðust gegn þeim við komuna til Sýr- lands 1097. Þegar kom í ljós að svo var ekki tókst gott samband við þá. Þann- ig aðstoðuðu krossfararnir Alaverja að endurheimta flesta þá kastala sem þeir höfðu misst 1071 í átökum við múslima. Að loknum krossferðunum var regla að múslimar ofsóttu og drápu Alaverja. Þetta stunduðu Mam- lúkar sem réðu Sýrlandi 1260-1516 og þegar Ottómanar í Tyrklandi náðu völdum í Sýrlandi 1516, er talið að þeir hafi drepið yfir 90.000 Alaverja. Eftir heimstyrjöldina fyrri stjórn- aði Frakkland á Sýrlandi til 1946 í um- boði þjóðabandalagsins og þeir gáfu Alaverjum nafnið Alawiyyah, til að verja þá ofsóknum múslima. Sam- bandið við Frakkland var svo gott að 1920 eignuðust Alaverjar sitt eigið þjóðríki við strönd Miðjarðarhafs, sem stóðst ágang súnní- múslima til 1936. Meðal Alaverja voru skiptar skoðanir um hvort þeir ættu að ganga til liðs við súnní-múslima sem börðust gegn Frakk- landi og fyrir sjálfstæðu Sýrlandi. Með aðstoð sjía-múslima tókst Ala- verjum smám saman að fá viðurkennt að þeir væru múslimar og fengu þegnrétt í Sýrlandi. Súnní-klerkar hafa stjórnað ofsóknum gegn Alaverjum Ofsóknum á hendur Alaverjum hef- ur löngum verið stjórnað af trúar- leiðtogum (imam) súnní-múslima. Þeir hafa gefið út „fatwa“ og þannig veitt réttlætingu á drápum og ofsóknum. Nefnum elsta dæmið um „fatwa“ á hendur Alaverjum. „Fatwa“ 1305 – Taqi ad-Din Ahmad ibn Taymiyyah (1263-1328) var bók- stafstrúar múslimi sem hataði Ala- verja. Hann úthlutaði Ala-verjum „fatwa“ í þrígang og sagði að þeir væru meiri trúleysingar en kristnir og gyðingar. Ibn Taymiyyah lagði grunn að wahhabisma, sem er annáluð öfga- stefna og ríkjandi í Sádí-Arabíu. Trúir hefðinni (sunnah) hafa síðari fordæm- ingar súnní-múslima gjarnan verið endurtekning á þessu forna „fatwa“. Hryðjuverkasamtökin Bræðralag múslima hatar Alaverja eins og alla sem ekki eru súnní-múslimar. Samt höfðu þeir lengi fengið að starfa óá- reittir í Sýrlandi. Árið 1980 gerðu þeir tilræði við Hafez Assad forseta og þá þótti Alaverjum mælirinn fullur. Bræðralag múslima var að nafninu til hrakið frá Sýrlandi, en þessi samtök eru búin að vera virk í ISIS og öðrum hryðjaverkasamtökun súnní-múslima. Katar er miðstöð hatursboð- skapar súnní-múslima Arabaríkið Katar liggur á tanga sem teygir sig frá Sádí-Arabíu út í Persaflóa og er 11.586 km2 að flatar- máli. Svæðið tilheyrði Tyrkjaveldi 1871-1915, en þá náði Bretland svæð- inu og stjórnaði því til 1971. Í Katar er einveldi og við völd er Al-Þani-ættin af Tamimi-kynþættinum. Af þessum kynþætti er einnig Salmann Tamimi sem er „imam“ súnní-múslima á Ís- landi. Núverandi konungur í Katar er „Tamim bin Hamad Al Thani“, sem er sonur drottningarinnar „Mozah bint Nasser Al Missned“, einnar af þrem- ur eiginkonum fyrrverandi konungs. Það má þykja athyglisvert að albróðir núverandi konungs er „Mohammed bin Hamad bin Khalifa Al Thani“ sem þekktur er fyrir að taka þátt í svindli Ólafs Ólafssonar í Samskipum, með hlutabréf í Kaupþingi. Sjónvarpsstöð í Katar með arabískt menningarefni Arabarnir í Katar aðhyllast súnní- íslam, eins og frændur þeirra í Sádí- Arabíu. Það eina sem umheimurinn veit um Katar er að þar er starfrækt sjónvarpsstöðin Al-Jazeera, í eigu Al- Þani-ættarinnar, eins og allt annað í landinu. Viðurkennt er að stöðin er starfrækt til að útvarpa áróðri sem Al-Þani-ættin telur þóknanlegan. Lík- lega hefur Al-Jazeera yfir 500 millj- ónir áhorfenda í fjölmörgum ríkjum og eru þeir flestir súnní-múslimar. Einn vinsælasti umræðuþáttur sem Al-Jazeera sýnir nefnist „Andstæð sjónarmið“ og er þar fjallað um marg- vísleg málefni í arabaheiminum, á sviði stjórnmála, efnahagsmála, sam- félagsmála og trúmála. Stjórnandi þáttanna nefnist Faisal Al-Kassim og er sýrlenskur Drúsi að uppruna, en hefur ánetjast súnní-íslam og þykir aröbunum það merki um mátt Allah. Þann 8. maí 2015 var í þættinum um- fjöllun sem vakið hefur hneykslun og reiði margra utan arabaheimsins. Þátturinn fjallaði um spurninguna: „Ættum við að drepa alla Alaverja?“ Í upphafi þáttar, sagði stjórnandinn frá könnun sem hann hafði látið gera á meðal áhorfenda stöðvarinnar. Greindi hann frá, að 96,2% þátttak- enda hefðu svarað spurningunni ját- andi. Sjálfur tók hann sterklega undir það sjónarmið, að sjálfsagt væri að fremja þjóðarmorð á Alaverjum. Gestina greindi á. Þáttinn er hægt að skoða á Netinu: (https://www.youtube.com/ watch?v=ULtNYSUqYHw). Áætlanir súnní-múslima um þjóðarmorð á Alaverjum í Sýrlandi Eftir Loft Altice Þorsteinsson » Það eina sem um- heimurinn veit um Katar er að þar er starf- rækt sjónvarpsstöðin Al-Jazeera í eigu Al- Þani-ættarinnar, eins og allt annað í landinu. Loftur Altice Þorsteinsson Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.