Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is M ovie Mania er kannski ekki sér- staklega góð við- skiptahugmynd en hefur þó veitt vinum og vandamönnum höfundarins og hönnuðarins, Axels Ólafs Smith, ómælda ánægju allt frá því hann lagði spilið á borðið fyrir þá um jólin í hittifyrra. Enda var hann ekkert að hugsa um peninga þegar honum datt í hug að búa sjálfur til spurningaspil um kvikmyndir sem eru hans aðal- áhugamál líkt og allrar fjölskyld- unnar, þar á meðal eiginmannsins, Troy Andrew Porter. Axel Ólafur sló hugmyndir sinna nánustu um útgáfu spilsins strax út af borðinu. „Algjörlega óraunsætt,“ segir hann. „Notkun tónlistar, ljósmynda og tóndæma úr bíómyndum í gróða- skyni væri tvímælalaust brot á höf- undarréttarlögum. Ég get ekki einu sinni ímyndað mér umstangið við að leita uppi alla rétthafana eða kostn- aðinn við að kaupa af þeim réttinn ef því væri að skipta, “ bætir hann við. Aukinheldur hefði Axel Ólafur hvorki tíma til að standa í flóknum samningaviðræðum við herskara lög- fræðinga stóru kvikmyndaveranna í útlöndum né vesenast að öðru leyti í útgáfu. Hann þarf að sinna sínu starfi sem lyfsali hjá Lyfjum og heilsu vest- ur í bæ, þar sem hann hefur skammt- að fólki lyfin sín nánast allar götur frá því hann lauk námi í lyfjafræði fyrir hartnær tuttugu árum. Og unir því alveg ljómandi vel. Kvikmynda- og spilaáhuganum, sem hefur fylgt honum svo lengi sem hann rekur minni til, svalar hann eftir vinnu. 1.800 spurningar í 5 flokkum „Frá því ég var krakki höfum við fjölskyldan haft óskaplega gaman af að spila ýmiss konar borðspil, sér- staklega spurningaspil. Við spilum mikið Trivial Pursuit og öllum finnst kvikmynda- og tónlistarspurning- arnar skemmtilegastar, en hötum að sama skapi íþróttaspurningarnar. Þess vegna fór ég að gamni mínu að pæla í spili sem byggðist eingöngu á þekkingu á bíómyndum og væri svo- lítið öðruvísi uppbyggt en önnur spil sem við þekktum. Þegar ég var kom- inn með hugmyndina fullmótaða í kollinn byrjaði ég að dúlla mér við að semja spurningar og síðan að hanna umgjörðina, spilaspjaldið og þvíum- líkt,“ segir Axel Ólafur, sem kynnti aðra og endurbætta útgáfu spilsins til sögunnar í þröngum hópi fyrir síðustu jól. Spilið samanstendur af um 1.800 spurningum í 5 flokkum og snýst í stórum dráttum um að fá sem flest stig og um leið flest Óskarsverðlaun. Í upphafi leiks ákveða leikmenn, sem geta verið tveir eða fleiri – og þá tveir eða fleiri í saman í liði – upp á hversu mörg stig skuli spilað. Teningnum er kastað. Milli fjögurra hornreita, Ósk- ars-reita, eru 9 minni reitir í flokk- unum fimm; ljósmynd, karakter, plakat, tóndæmi og tilvitnun, og eiga leikmenn að svara hvaða kvikmynd hvert um sig tengist. Markmiðið er að komast sem oftast á Óskars-reit því þeir gefa flest stig, en þar snúast spurningarnar um allt sem lýtur að Óskarsverðlunum fyrr og síðar, t.d. er spurt hver hafi verið valinn besti leikstjórinn 2007 og tilnefndir taldir upp. „Þar getur pínu heppni ráðið úr- slitum, en að öðru leyti reynir spilið á þekkingu,“ útskýrir Axel Ólafur. Sem höfundur Movie Mania hef- ur Axel Ólafur allt of mikið forskot til að taka þátt í leiknum sem óbreyttur leikmaður. Hann veit nefnilega svar- Lyfsali með bíó- og spiladellu Axel Ólafur Smith lyfsali svarar umhugsunarlaust hátt í tvö þúsund spurningum í borðspilinu Movie Mania. Hann veit hvaða tónlist og tilvitnanir tengjast bíómynd- unum, þekkir nöfn leikaranna og karakteranna sem þeir leika svo fátt eitt sé talið. Axel Ólafur hefur þó litla möguleika á að hreppa Óskarinn því fjölskyldu og vinum finnst ósanngjarnt að höfundurinn og hönnuðurinn hafi forskot í eigin spili. Morgunblaðið/Ófeigur Tómstundir Axel Ólafur lyfjafræðingur svalar kvikmynda- og spilaáhuga sínum eftir vinnu í Lyfjum og heilsu þar sem hann hefur starfað í um 20 ár. Morgunblaðið/Elín Arnórsdóttir Kvikmyndaæði Borðspilið Movie Mania er fyrir tvo eða fleiri – og þá tvo eða fleiri saman í liði. Í upphafi er ákveðið upp á hversu mörg stig skuli spilað. Markmiðið er að kom- ast sem oftast á Ósk- ars-reit því þeir gefa flest stig, en þar snúast spurningarnar um allt sem lýtur að Óskars- verðlaunum. Norræna húsið og hreyfingin Hjólað óháð aldri bjóða gesti velkomna á opna kynningu á verkefninu Hjólað óháð aldri kl. 17 - 18.30 í dag, fimmtudag 19. maí. Dorthe Pedersen kynnir áhrif og framgang verkefnisins um allan heim. Einnig verður heimildarmyndin The Grey Escape frumsýnd á Íslandi. Í myndinni er fylgst með ferðalagi sautján íbúa á hjúkrunarheimilum, þegar þeir hjóla frá Danmörku til Noregs til að afhenda Norðmönnum hjól. Hreyfingin Hjólað óháð aldri var stofnuð 2012 af Ole Kassow, en hann vildi gefa eldri borgurum tækifæri til að komast aftur á hjólin en varð að yfirvinna skerta hreyfigetu þeirra. Lausnin fólst í farþegahjólum og hóf hann að bjóða íbúum hjúkrunarheim- ilis í nágrenninu í hjólatúra. Sóley Tómasdóttir, forseti borg- arstjórnar, opnar samkomuna og að lokinni sýningu myndarinnar verða umræður um stöðu Hjólað óháð aldri á Íslandi. Dagskráin fer fram á ensku. Allir velkomnir! Vefsíðan www.hjoladohadaldri.is Grái flóttinn í Norræna húsinu Morgunblaðið/Árni Torfason Hjólað Sumt eldra fólk á erfitt með að hjóla vegna skertrar hreyfigetu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.