Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 20
BAKSVIÐ Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Um 90% þess flóttafólkssem kemur til landa Evr-ópusambandsins komastþangað með aðstoð glæpasamtaka sem hagnast um 5-6 þúsund milljarða bandaríkjadala á starfseminni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýlegri skýrslu um smygl á flóttafólki sem unnin er af Alþjóða- lögreglunni (Interpol) og Evrópulög- reglunni (Europol). Skýrslan er ítar- leg greining á starfsemi og þeim leiðum sem glæpasamtök nota til að koma fólki inn til Evrópu. Slík kortlagning er mikilvæg svo lögreglan jafnt innan sem utan Evr- ópu geti brugðist við þessu ástandi. Fyrr á árinu tók til starfa evrópsk miðstöð, European Migrant Smugg- ling Centre, sem ætlað er að bregðast við stórfelldum fólksflutningum til Evrópu á vegum skipulagðra glæpa- hópa. Alþjóðleg glæpastarfsemi Smygl á flóttafólki tengist al- þjóðlegri glæpastarfsemi og nær til yfir 100 landa jafnt innan sem utan Evrópusambandsins. Þessi starfsemi „gefur vel af sér“ en talið er að hver flóttamaður þurfi að reiða fram á bilinu þrjú til sex þúsund evrur fyrir að þiggja aðstoð glæpasamtaka sem jafngildir um 400 til tæplega 900 þús- und krónur. Yfirleitt er um að ræða peninga sem flóttafólkið reiðir fram sjálft eða um 53% greiðslna. Í 16% tilvika greiðir fjölskyldumeðlimur, sem er þegar kominn til lands innan Evrópu- sambandsins, fyrir að fá fjölskyldu- meðlim til sín. Ýmist er greitt fyrirfram, stund- um eftir hvern áfanga ferðarinnar eða við komuna á áfangastað. Oftast berast greiðslurnar frá áfangastaðn- um sem bendir til þess að greitt er eftir á. Talið er líklegt að glæpa- samtök eigi eftir að nýta sér þessa neyð flóttafólks í ríkari mæli, að það þurfi að greiða skuld sína og geri það ýmist með kynlífsþjónustu eða ann- arri ánauð. Glæpasamtök sem smygla flóttafólki eru oft nátengd öðrum glæpum t.d. mansali, fíkniefnainn- flutningi, skjalafalsi o.fl. Hryðjuverkamenn eru einnig taldir líklegir til að nýta sér þessa glæpastarfsemi til að ná markmiðum sínum og komast inn til Evrópu, segir í skýrslunni. Nýjar flóttaleiðir Þessi tala, 90%, er sögð hækka á næstunni í ljósi þess að mörg lönd hafa tekið upp strangara landamæraeftirlit. Helstu leiðir flóttamanna inn til Evr- ópu eru þekktar en þær taka mið bæði af landamæraeftirliti og veðurfari sem er síbreytilegt og smyglarar eru fljótir að bregðast við. Helstu leiðirnar sem flóttamenn fara eru fimm talsins og eru merktar með rauðum örvum á meðfylgjandi korti. Grænu örvarnar sýna hvernig fólkið ferðast innan Evrópu og í meira en áratug hafa siglingar yfir Miðjarð- arhafið verið ein helsta leiðin. Frá vestanverðu Miðjarðarhafi til Spánar og Portúgal, fóru meira en 7.164 manns ólöglega árið 2015. Á leiðinni yfir mitt Miðjarðarhafið til Ítalíu eru flestir frá ríkjum í Afríku, árið 2015 fóru þar 153.946 og hafði þeim fækkað frá árinu á undan. Fleiri reyndu að komast til Evrópu í gegnum Tyrkland og til Grikkland árið 2015 en árið áður, alls 885.386. Þónokkur fjöldi fer einnig svokallaða austurleið um landamæri við Moldavíu, Úkraínu og Rússland en 1.950 fóru þar í gegn árið 2015. Svipaður fjöldi lagði leið sína í gegnum Rússland og yfir landamæri Noregs og Finnlands og freistuðu þess að komast á Schengen-svæðið. Glæpasamtök nýta sér neyð flóttafólks 20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sameiningsveitarfélagaer aftur komin á dagskrá. Á Íslandi eru nú 74 sveitarfélög og eru þau ákaflega mis- munandi að stærð og íbúafjölda. Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, hefur sett fram tillögu um könnun á kostum og göllum sameiningar allra átta sveitar- félaganna í Árnesþingi og kem- ur fram í Morgunblaðinu í gær að hún hafi fengið góðar und- irtektir. Þá hafa sveitarstjórnir Djúpavogshrepps, Sveitarfé- lagsins Hornarfjarðar og Skaft- árhrepps samþykkt að hefja viðræður um hagkvæmni sam- einingar. Þessi þrjú sveit- arfélög eru 14 þúsund ferkíló- metrar og því um 14% landsins. Íbúarnir eru 3.100 og því innan við 1% af íbúum landsins. Það er engin furða að þessar þreifingar skuli hafnar. Litlum sveitarfélögum fylgir óhag- kvæmni, sama hvað vel þau eru rekin. „Eftir því sem verkefnin verða umfangsmeiri og þyngri sjá menn að þeir geta ekki leyst þau nema í samstarfi og þá heyrast þessar raddir: Af hverju sameinumst við ekki?“ segir Karl Björnsson, fram- kvæmdastjóri Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, í frétta- skýringu Morgunblaðsins í gær. Björn Ingi Jónsson, bæj- arstjóri Hornafjarðar, segir þar að markmiðið sé að finna leiðir til að sveitarfélögin geti tekið við verkefnum og veitt íbúunum góða þjónustu og það gerist ekki nema með öflugum sveit- arfélögum. Um leið nefnir hann það lykilatriði að tryggja þurfi að „íbúunum finn- ist þeir ekki missa eitthvað frá sér við sameiningu“. Hagkvæmnin af sameiningu virðist augljós. Sveitarfélög eru rekin með skattfé íbúanna og nýting þess skiptir máli. Í greiningu, sem Grímur Atlason, fyrrverandi sveitarstjóri Dala- byggðar og bæjarstjóri Bolung- arvíkur, gerði fyrir rúmum tveimur árum á nokkrum sveitarfélögum kom fram að kostnaður við yfirstjórn gat farið upp í allt að 40% af útsvarstekjum. Reiknaðist hon- um til að rekstur skrif- stofuhalds yfirstjórna sveitar- félaga hefði kostað 8,2 milljarða árið 2012. Það gengur ekki að sveit- arfélög, sem ekki afla nægilegs útvars til að reka leik- og grunnskóla, hvað þá meira, verji tugum prósenta af þeim tekjum í skrifstofuhald. Sveit- arfélögum hefur vissulega fækkað. Um miðja síðustu öld voru þau 229. Nú eru þau aðeins þriðjungur af því. Enn er þó svigrúm til hagræðingar. Þær þreifingar um sameiningu sveitarfélaga, sem nefndar eru hér fyrir ofan snúast um að af- stýra tvíverknaði og þríverkn- aði í skriffinnsku og nýta skattfé betur í þágu íbúanna. Þegar litið er á heildarmyndina eru milljarðar í húfi. Rekstur yfirstjórna sveitarfélaga getur kostað tugi pró- senta af skatt- tekjum þeirra} Ræða sameiningu Tvö ár eru liðinfrá því að hryðjuverka- samtökin Boko Ha- ram stálu sviðsljós- inu með árás sinni á þorpið Chibok, þar sem þau rændu 219 skólastúlkum og hnepptu í ánauð. Allan þann tíma hafa stjórnvöld í Nígeríu heitið því að þau muni finna stúlkurnar og bjarga þeim úr klóm samtak- anna. Hafa stjórnmálafræð- ingar jafnvel talið að getuleysi Goodlucks Jonathan, fyrrver- andi forseta, við að finna stúlk- urnar hafi kostað hann emb- ættið þegar kosið var í fyrra. Loforðið hefur í ljósi reynsl- unnar haft fremur holan hljóm. Þrátt fyrir að hart hafi verið barist gegn ítökum Boko Ha- ram, og sótt hart fram gegn yf- irráðasvæði þeirra, hefur stjórnarherinn hvorki fundið tangur né tetur af stúlkunum. Mikil óvissa hefur því ríkt um örlög þeirra, þó að hryðjuverka- samtökin hafi sent frá sér myndbands- upptöku í síðasta mánuði þar sem fimmtán af stúlk- unum birtust. Í gær var loks tilkynnt að tekist hefði að bjarga fyrstu stúlkunni af 219 úr klóm hryðju- verkasamtakanna. Gat hún leið- beint yfirvöldum um staðsetn- ingu fleiri úr hópnum og má gera ráð fyrir að allt kapp verði lagt á að bjarga sem flestum. Það er þó fjarri því á vísan að róa í þeim efnum, og má gera ráð fyrir að Boko Haram muni vilja halda í stúlkurnar sem lengst, ekki síst vegna áróð- ursgildisins. Auk þess er óvíst um örlög hinna stúlknanna, en að sögn þeirrar sem bjargaðist eru sex þeirra þegar látnar. Björgun stúlkunnar hefur engu að síður kveikt nýja von um björgun þeirra sem enn lifa. Um leið má vona að endanlega megi takast að uppræta Boko Haram og þau illskuverk sem samtökin hafa staðið fyrir. Fyrstu stúlkunni frá Chibok bjargað}Enn er von É g get verið sjúklega sniðug að spara. Á dögunum fór ég til dæmis á Kringlukast og fjárfesti í skóm sem voru á þrjátíu pró- sent afslætti. Reiknast mér til að ég hafi sparað nokkur þúsund krónur og er sparnaður mánaðarins þar með vel á veg kom- inn. Síðan fór ég til Köben þar sem ég keypti ýmislegt sem væri líklega dýrara hér á landi og margfaldaðist þar með ávinningur mánaðarins. Ef aðeins íslenska ríkið væri jafn útsjónarsamt í fjármálum og ég. Nokkrar ríkisstofnanir tóku á dögunum þátt í tveimur örútboðum þar sem prófað var að leita besta verðsins á tveimur hlutum sem almennt þykja nokkuð nauðsynlegir fyrir daglegt skrifstofulíf; tölvur og pappír. Niðurstaðan var 25% lægra verð á tölvum og 30% lægra verð á pappír. Samanlagt skilaði þetta sér í fjórtán til sextán milljóna króna sparnaði fyrir átta rík- isstofnanir. Til að setja upphæðina í samhengi get ég bent á að einungis þessi sparnaður samsvarar öllum mínum skatt- greiðslum miðað við núverandi laun á alltof stórum hluta starfsævinnar. Ef ekki hefði verið leitað betra verðs á þennan einfalda hátt hefði ég í nokkur ár verið að verja öll- um mínum skattgreiðslum í að borga verðmuninn á papp- írnum sem Seðlabankinn, Tollstjóri og sex aðrar stofnanir hefðu getað fengið ódýrari annars staðar. Til að setja þetta í ennþá frekara samhengi má líkja þessu við að Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefði tekið meðvitaða ákvörðun um að kaupa fyrrnefnda skó daginn áður en Kringlukastið hófst á 30% hærra verði. Fyrir þá ákvörðun hefði ég þurft að greiða í nokkur ár. Samkvæmt nýlegri könnun sem meirihluti fjárlaganefndar gerði hjá 160 ríkisstofnunum nýtti einungis lítill hluti sér útboðs- fyrirkomulag á einfaldri þjónustu. Hæsta útboðshlutfallið var á fjarskiptaþjónustu, eða 45,6%. Þetta er hæsta hlutfallið en samt leituðust einungis 73 stofnanir af 160 eftir því að borga lægsta mögulega símreikninginn. Þá leituðu einungis 7,5% af þessum stofnuðum eftir lægsta raforkuverðinu. Það eru 12 stofn- anir af 160. Talið er að íslenska ríkið kaupi vörur og þjónustu fyrir um 88 milljarða króna á ári. Í sumum flokk- um getur vissulega verið erfitt að kreista fram mikinn sparnað en sé miðað við 5% í dæmaskyni, en ekki 30%, líkt og náðist með fyrrnefndan pappír myndi ágóðinn nema um 4,5 milljörðum króna á ári. Það eru skattgreiðslur nokkurra starfsæva hjá allnokkrum vinnandi mönnum. Geri ég ráð fyrir að flestir myndu þiggja að ríkið myndi frekar leita í hlýjan faðm útsölugoðanna en að eyða pen- ingum í að kaupa vörur og þjónustu á yfirverði. Í guðanna bænum, skellið ykkur á útsölur og njótið dýrðarinnar. sunnasaem@mbl.is Sunna Sæ- mundsdóttir Pistill Sparnaðurinn er á útsölum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen „Evrópa stendur frammi fyrir fordæmalausum flótta- mannavanda. Fjöldi flótta- manna kemur til Evrópu í gegn- um flókin og ófyrirleitin glæpasamtök smyglara. […] Glæpasamtökin eru sveigjanleg og þrautseig og bregðast fljótt við aðgerðum lögreglunnar með því að breyta um smyglleiðir til landa innan Evrópusambands- ins. Aldrei áður hefur lögreglan þurft í jafn ríkum mæli að reiða sig á greinagóða mynd af ástandinu sem dregin er upp í rauntíma. Glæpasamtökin græða stórkostlegar upphæðir á ástandinu. Árið 2015 græddu þau 5-6 þúsund milljarða bandaríkjadala. Þetta styrkir glæpastarfsem- ina og hefur til lengri tíma neikvæð áhrif á efnahag Evrópu,“ er haft eftir Rob Wainwright, framkvæmdastjóra Evr- ópulögreglunnar, í skýrslunni. Flókin glæpa- starfsemi GRÆÐA PENINGA Rob Wain- wright Leiðir flóttamanna til Evrópu FINNLAND ÞÝSKALAND GRIKKLANDÍTALÍA SPÁNN FRAKKLAND BRETLAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.