Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Sigríður Ingibjörg Ingadóttirkvaddi sér hljóðs á þingi í fyrradag af þónokkru yfirlæti und- ir liðnum fund- arstjórn. Tilefnið var „leiðrétting“ á orðum ráðherra, sem hafði sagt í svari í óundirbúnum fyrirspurnartíma við spurningu Sig- ríðar skömmu áður að ekki þyrfti laga- breytingu til að hækka þak á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.    Sigríður sagði forseta þingsins aðhún teldi „mjög mikilvægt að koma að leiðréttingu þar sem ráð- herra fór með rangt mál og sagði að ekki þyrfti lagabreytingu til að hækka þak í fæðingarorlofi. Það þarf svo sannarlega og þess vegna ítreka ég tilboð okkar samfylking- arfólks, að frumvarp okkar fái af- greiðslu og að barnafjölskyldur fái hækkun á þaki í fæðingarorlofi strax nú í sumar. En það þarf svo sannarlega lagabreytingu til að hækka þakið og ég vona að hæst- virtur ráðherra þekki betur aðra málaflokka sem undir hana heyra.“    Hálftíma síðar kvaddi þingmað-urinn sér aftur hljóðs undir sama dagskrárlið, var þá heldur daufari og sagði: „Hæstvirtur for- seti. Þetta er hálfgerð sneypuför. Ég verð að koma hingað og biðja hæstvirtan félags- og húsnæðis- málaráðherra afsökunar. Ég sagði að hún hefði rangt fyrir sér, að það þyrfti lagabreytingu til að breyta þakinu í fæðingarorlofslögunum, en það er þannig að ef á að hækka þakið dugir reglugerð.“    Nú er það auðvitað svo að Sig-ríður bar fyrirspurn sína upp undir dagskrárliðnum óundirbúinn fyrirspurnartími, en það er ekki þar með sagt að fyrirspurnirnar verði að vera óundirbúnar og van- hugsaðar. Sigríður Ingi- björg Ingadóttir Sannarlega sneypuför STAKSTEINAR YOUR TIME IS NOW. MAKE A STATEMENT WITH EVERY SECOND. Pontos Day/Date Sígild en engu að síður nútímaleg hönnun sem sýnir það allra nauðsynlegasta. Áreiðanlegt sjálfvindu úrverk sem sýnir vikudaga og dagsetningu. Einfalt og stílhreint úr sem sendir skýr skilaboð. jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 6 1 Kringlan Smáralind Veður víða um heim 18.5., kl. 18.00 Reykjavík 6 skúrir Akureyri 8 léttskýjað Nuuk 4 léttskýjað Þórshöfn 4 heiðskírt Ósló 12 skýjað Kaupmannahöfn 13 léttskýjað Stokkhólmur 14 léttskýjað Helsinki 9 léttskýjað Lúxemborg 14 alskýjað Brussel 15 alskýjað Dublin 13 alskýjað Glasgow 12 rigning London 11 rigning París 13 rigning Amsterdam 17 alskýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 15 rigning Vín 17 skýjað Moskva 17 rigning Algarve 26 heiðskírt Madríd 24 heiðskírt Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 19 heiðskírt Róm 18 heiðskírt Aþena 21 léttskýjað Winnipeg 17 heiðskírt Montreal 10 heiðskírt New York 16 léttskýjað Chicago 11 rigning Orlando 26 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:58 22:52 ÍSAFJÖRÐUR 3:34 23:25 SIGLUFJÖRÐUR 3:16 23:10 DJÚPIVOGUR 3:21 22:28 Síðustu farþegar Icelandair sem komust ekki frá Boston á mánu- dagskvöld áttu að koma heim með flugvél sem lagði af stað í gær. Ice- landair flýgur tvisvar á dag til Boston. Boeing 767- þotu félagsins var snúið við á mánu- dagskvöld þegar ekki tókst að taka upp öll hjólin eftir flugtak. Guð- mundur Jensson farþegi sagði að vélin hefði flogið lágflug í um hálf- tíma þar til flugstjórinn tilkynnti að um tæknilega bilun væri að ræða. Flugvélinni var lent aftur í Boston. Farþegarnir biðu um borð í um 45 mínútur og tóku svo föggur sínar og var ekið á hótel, að sögn Guð- mundar. Hann kvartaði yfir því að upplýsingagjöf af hálfu flugfélagsins hefði verið ónóg en hrósaði stöðv- arstjórum Icelandair í Boston. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, sagði að 260 far- þegar hefðu verið í flugvélinni. Tek- ist hefði að koma 240 þeirra í aðrar flugvélar eða með öðrum flug- félögum á mánudag og þriðjudag. Um 20 manns fengu ekki far fyrr en í gær. Guðjón sagði það misskilning að beðið hefði verið eftir varahlutum frá Íslandi til að laga flugvélina. „Til að hægt sé að skoða svona bil- un þarf að lyfta vélinni upp. Við þurftum að sækja tjakka til Norður- Karólínu til að geta lyft vélinni og skoðað hana. Það er ástæða þess hvað skoðunin tók langan tíma,“ sagði Guðjón. Hann hafði ekki fengið upplýsingar síðdegis í gær um hvað olli biluninni. Guðjón átti allt eins von á að flugvélinni yrði flogið til Ís- lands í gær eða í nótt. gudni@mbl.is Allir far- þegarnir komnir  Vantaði tjakka til að lyfta þotunni Guðjón Arngrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.