Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Guðmundur Hallgrímsson, fyrrverandi rafverktaki á Fáskrúðs-firði, verður áttræður í dag, 19. maí. Aðspurður sagðistGuðmundur ekki ætla að gera neitt sérstakt á afmælisdag- inn, bara taka því rólega. Guðmundur hefur alltaf verið mikill íþróttagarpur og hefur tekið þátt í svo mörgum Landsmótum UMFÍ að hann segist ekki muna töluna. Fyrsta landsmótið sem hann tók þátt í var árið 1955 á Ak- ureyri. Setti hann mörg met á ferli sínum. Þó svo að Guðmundur geti ekki keppt í hlaupi lengur þá spilar hann minigolf og boccia. „Við hittumst nú félagarnir tvisvar í viku og spilum boccia. Það eru fáir hérna sem spila það,“ segir Guðmundur en á Landsmóti UMFÍ 50 ára og eldri á Blönduósi á síðasta ári varð hann í fyrsta sæti í boccia. Guðmundur er giftur Dóru Margréti Gunnarsdóttur, sem er 73 ára að aldri. Saman eiga þau fjögur börn; þau Gunnar Vigni, tví- burana Kristínu og Birnu, og Jóhönnu Vigdísi. Guðmundur á 10 barnabörn og eitt barnabarnabarn. Foreldrar Guðmundar voru þau Hallgrímur Scheving Bergsson, fæddur 1904, dáinn 1975, og Valgerður Sigurðsdóttir, fædd 1912, dáin árið 2000. arora49@live.com Morgunblaðið/Albert Kemp Íþróttagarpur Guðmundur Hallgrímsson, annar frá vinstri, í hópi ferðafélaga á Kanaríeyjum sl. vetur þegar keppt var í minigolfi. Man ekki fjölda landsmótanna Guðmundur Hallgrímsson 80 ára í dag G unnar fæddist á Akra- nesi 19.5. 1946 og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Akraness, stundaði nám við Iðn- skóla Akraness, lauk sveinsprófi í bakaraiðn og öðlaðist síðan meist- araréttindi 1966. Gunnar var bakari í Harðarbakaríi 1962-66 og 1968-75 og bakari í eigin bakaríi á Blönduósi 1966-67. Gunnar var innheimtustjóri hjá bæjarsjóði Akraness 1975-82, um- boðsmaður Olíuverslunar Íslands hf. 1982-92 og hefur verið framkvæmda- stjóri Olís á Vesturlandi frá 1992. Gunnar sat í bæjarstjórn Akraness fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1994-2016, var formaður bæjarráðs 1994-95 og forseti bæjarstjórnar 1995-96 og aft- ur 2002-2006. Þá var hann formaður bæjarráðs 1994-97. Gunnar sat í stjórn Hitaveitu Akra- ness og Borgarness frá 1994 og síðan formaður stjórnar Akranesveitu. Hann var stjórnarformaður Anda- kílsárvirkjunar 1994-98, formaður Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands 1998-2001, sat í stjórn Sveitarfélaga Vesturlands 1998-2002, þar af formaður í tvö ár, og formaður 2013-2016. Gunnar sat í stjórn Fiturs, nefndar um samstarf í ferðamálum milli Ís- lands og Færeyja 1999-2003, sat í Ferðamálaráði Íslands 2003-2007, í stjórn Grundartangahafnar, síðar Faxaflóahafna, frá 2002-2016 og í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 2002- 2006. Gunnar var formaður Knatt- spyrnufélagsins Kára á Akranesi 1964 og 1969-73, var formaður íþrótta- og æskulýðsnefndar Akra- neskaupstaðar 1970-79, sat í stjórn knattspyrnuráðs Akraness 1971-86 og var formaður 1975-80 og formaður Knattspyrnufélags ÍA 1989-97 og 2001-2005 og sat í stjórn KSÍ 1974-89. Gunnar er einn af stofnendum hljómsveitarinnar Dúmbó sextett og lék með henni í nokkur ár. Hann var sæmdur gullmerki ÍSÍ 1988, gull- Gunnar Sigurðsson framkvæmdastjóri 70 ára Stór hópur Gunnar og Sigríður með börnunum sínum, tengdabörnum og barnabörnunum, við rætur Akrafjalls. Máttarstólpi í sveitar- stjórn og íþróttamálum Frændurnir Gunnar tekur við sem forseti bæjarstjónar af Guðbjarti frænda. 60 ára brúðkaupsafmæli 19. maí 2016. Demantsbrúðkaup eiga í dag Vilhelmína Norðfjörð Sigurðardóttir og Hjalti Hjalta- son. Þau voru gefin saman á Akureyri af sr. Kristjáni Róbertssyni. Árnað heilla Brúðkaupsafmæli Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Heyrnartæki eruniðurgreidd afSjúkratryggingum Íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.