Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Eins og þú kannt vel að meta framlag þess hæfileikaríka fólks sem þú þekkir, er lífið þitt ekki hlutur fyrir það til að tjá sig með. Fáðu einhvern góðan vin til að slást í för með þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Hin sálarlegu ör sem foreldrum þínum hefur ekki tekist allt sitt líf að láta gróa, hefur þú fengið í arf. Margar reglnanna eru ómeð- vitaðar og því erfitt að breyta. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er allt á ferð og flugi í kringum þig svo þér veitist erfitt að fóta þig í öllum hamaganginum. Stefndu síðan ótrauður áfram og láttu engan draga úr þér kjarkinn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ættir að taka daginn í dag að klára þau verkefni sem liggja óleyst á borði þínu. Dagurinn í dag er góður til þess að sannfæra vini um hvaðeina sem þér er mikilvægt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Stjórnsýsla er alger forsenda þess að knýja málin áfram. Treystu innsæi þínu og réttu vini eða vinum þínum hjálparhönd í dag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Brjóttu odd af oflæti þínu og þiggðu aðstoð samstarfsmanna þinna. Gættu þess líka að setja sjálfum þér ekki of stífar reglur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Öryggi er forsenda sambands hjá sum- um, en ekki endilega hjá þér. Ef þú hefur hall- að þér að einhverju sem þú ásælist, hættu því þá. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þær aðstæður koma upp að þú neyðist til þess að segja hvar í flokki þú stendur. Verið opin fyrir hefðbundnum og nýj- um leiðum til að bæta heilsuna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Samband sem vatnsberanum þykir sjálfsagt færir honum huggun. Mundu bara að tala skýrt svo aðrir viti hvað þú ert að fara. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einu gildir hversu rólega dagurinn fer af stað, það verður meira en nóg að gera. Sinntu bara þínu og varastu að dragast inn í deilur manna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Í augum sumra hljómar tími sem maður eyðir heima undir sæng með sjálfs- hjálparbók ekki sérlega unaðslega, en þú ert ekki eins og sumir. Einbeittu þér að því sem skiptir máli. 19. feb. - 20. mars Fiskar Jákvætt viðhorf þitt í vinnunni bætir andrúmsloftið í kringum þig og áhugi þinn virkar smitandi á aðra. Taktu tillit til þess og frestaðu mikilvægum ákvarðanatökum. Í fallegu ljóði gerir SigurlínHermannsdóttir „hvítasunnu- úttekt í sumarbústaðarlandinu“ og birtir á Leirnum, – Það „ kom vel út, gróður og fuglalíf allt að koma til,“ segir hún. Lít ég þar á leiti lerkiviðinn sterka. Stara ofar störum stoltir reynsluboltar. Furan fráleitt þorir að fóta sínum rótum. Hygla að hreiðrum fuglar í háa grenitrénu. Um birtuskil á bala bjarkir eru að þjarka. Fjallavíðir veður vítt um svæðið grýtta. Haggast ekki heggur hlaðinn mörgu blaði. Runnar upp þar renna, reyniblaðka, einir. Ólafur Stefánsson stóðst ekki mátið: Meðan ýtar upp á grín, yrkja kvæði lúin, semur ljóðin sallafín sumarhúsafrúin. Magnús frá Sveinsstöðum orti þegar hann birti á FB myndir úr nýju og glæsilegu fjárhúsi sonar síns á Sveinsstöðum og sagði frá því, að hann hefði aðstoðað þar tvo dagparta. – „Góð kvæðakona spurði hvort ekki hefði fæðst vísa,“ segir hann. Í glæsihöll er líf ei leitt, langt er frá ég hími. Lömbin fæðast eitt og eitt, yndislegur tími. Ingólfur Ómar heilsaði leir- verjum á annan í hvítasunnu og sagði: Mikið er veðrið búið að vera gott og það gefur manni smá innblástur til að yrkja: Geisladís í heiði hlær, hjalar í laufi þíður blær, anga vallargrösin græn og gróðurmoldin frjó og væn. Glóa sund í gullnum ljóma, glaðar raddir í lofti óma. Glampa slær á grund og hlíð. gjöful skartar vorsins tíð. Fía á Sandi er veðurglögg: Nú eru fjöllin eins og rjómakaka, ansi svalt. Allt sumarið að sunnan fauk til baka, mér sýnist kalt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hvítasunnuúttekt, innblástur og rjómakaka Í klípu „ÉG VARÐ FYRIR ELDINGU. ÉG KOM TIL AÐ LEGGJA FRAM KÆRU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVERNIG DIRFIST ÞÚ AÐ ÖSKRA SVONA Á MIG FYRIR FRAMAN PLÖNTURNAR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... minningarnar sem tíminn reynir að má út. „KÆRA SPYRJUM HUND“… „GRRRRRR!“ ENGAN HATURS- PÓST, TAKK MENN, ÞAÐ SKIPTIR MÁLI AÐ VERA SNJALL Á VÍGVELLINUM! TIL DÆMIS: „HVENÆR ER RÉTT AÐ HÖRFA?“ ÞEGAR ÓVINURINN BERST Á MÓTI! Víkverji hefur löngum viðað að sérvitagagnslausum fróðleik, oftar en ekki með það að markmiði að geta miðlað þeim fróðleik áfram til annarra, hvort sem aðrir vilja njóta fróðleiksins eður ei. Víkverji er með öðrum orðum svokallaður Besser- wisser, maður sem þarf að vita betur en aðrir. x x x Líf Besserwissersins er hreint ekkisvo slæmt. Fyrir mörgum virkar Víkverji eins og maður sem hefur ágætis vit á hlutunum, jafnvel þegar það vit er mestmegnis fengið að láni af internetinu. Sú staðreynd að Vík- verji er með gleraugu hjálpar tals- vert til, þar sem fólk gerir ómeðvitað ráð fyrir því að gleraugnaglámar séu með gleraugu vegna þess að þeir hafi hreinlega lesið sér til óbóta. Augu þeirra hafi bókstaflega ekki þolað allan þennan fróðleik, og því kallað á sjónleiðréttingu. x x x En stundum reynist netið hafarangt fyrir sér, og þá getur Besserwisserinn lent í tómum vand- ræðum. Í mörg ár trúði Víkverji til dæmis alls kyns „tilviljunum“ sem Bandaríkjaforsetarnir Abraham Lincoln og John F. Kennedy áttu sameiginlegt. (Í þessu samhengi má nefna að F-ið stendur fyrir Fitzger- ald, en það var ættarnafn Rose, móður Kennedy.) Þeir voru víst báð- ir kjörnir á Bandaríkjaþing á ártali sem endaði á „46“, og báðir tóku við embætti forseta á ártalinu „61“. Þetta tvennt er hvort tveggja rétt, en getur þó varla talist merkilegt eitt og sér. x x x Því miður fyrir Víkverja reyndustflestar af hinum „tilviljununum“ sem tengdar eru þessum tveimur mönnum vera hreinn uppspuni. Lin- coln var til dæmis aldrei með ritara sem hét Kennedy, og svo mætti lengi telja. Víkverji hefur því lært sína lexíu, og gefið upp á bátinn titil sinn sem höfuð-Besserwisser Árvak- urs. Hann mun því aldrei treysta netinu aftur. Eða eins og þessi til- vitnun í Lincoln, sem Víkverji las á netinu segir: „90% af því sem þú lest á netinu er lygi.“ víkverji@mbl.is Víkverji því vil ég syngja þér lof og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu. (Sálm. 30:13) FERÐASUMAR 2016 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, miðvikud. 23.maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569-1105 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur 27.maí gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um Ferðasumarið 2016. Í blaðinu verður viðburðardagatal sem ferðalangar geta flett upp í á ferðalögumum landið og séðhvað er umað vera á því svæði semverið er að ferðast um í.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.