Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 ÚTSKRIFTARGJÖF GÓÐ fylgt henni út í ystu æsar,“ segir Paxton og bendir á að Trump og repúblikanar hafa lagt áherslu á að draga þurfi úr afskiptum ríkis- valdsins af atvinnulífinu. Sagnfræðingurinn leggur einnig áherslu á að aðstæðurnar í Banda- ríkjunum núna séu gerólíkar ástandinu í Evrópu þegar fasista- hreyfingarnar skutu upp kollinum. Hann skírskotar m.a. til þess að efnahagur Þýskalands var í rúst eftir ósigur landsins í fyrri heims- styrjöldinni og Ítalía var á barmi borgarastyrjaldar áður en Mussol- ini komst til valda. Efnahagur Bandaríkjanna er ekki eins slæmur og ætla mætti af óánægju kjósendanna sem hafa fylkt sér um Trump í forkosningum repúblikana. Hagvöxturinn var 2,4% á síðasta ári og atvinnuleysið minnkaði í 5%. Endurspeglar ótta millistéttarinnar Stjórnmálaskýrandi þýska blaðs- ins Spiegel, Holger Stark, telur að óánægju kjósendanna megi rekja til vaxandi misskiptingar í landinu. Á síðustu sautján árum hafi meðal- árstekjur fjölskyldna í Bandaríkj- unum minnkað um 5.000 dali, jafn- virði rúmra 620.000 króna, og eignir þeirra rýrnað um þriðjung. Trúin á ameríska drauminn hafi minnkað og skoðanakönnun bendi til þess að rúmur helmingur Bandaríkjamanna undir 25 ára aldri telji ekki að kapítalisminn sé besta efnahagsskipulagið. Holger segir það misskilning að Trump höfði aðallega til verka- manna og atvinnulausra Banda- ríkjamanna. Kannanir bendi til þess að meðalárstekjur fjölskyldna stuðningsmanna Trumps séu um 72.000 dalir, jafnvirði 8,9 milljóna króna, og hærri en stuðnings- manna Hillary Clinton og Bernie Sanders í forkosningum demó- krata. „Stuðningurinn við Donald Trump endurspeglar ótta milli- stéttarinnar í Bandaríkjunum við hnignun samfélagsins og efnahags- ins,“ skrifar Stark. Trump notfærir sér þennan ótta og ýtir undir tilhneigingu fólksins til að líta sig sem fórnarlömb al- þjóðavæðingar. Inn í þetta bland- ast samkeppni um störf og áhrif milli hvíta meirihlutans og minni- hlutahópa á borð við blökkumenn og fólk sem er upprunnið frá Mexíkó og fleiri löndum Rómönsku Ameríku. „Fáránleg valdboðshyggja“ Holger Stark segir að lausnirnar sem Trump boði beri keim af „fá- ránlegri valdboðshyggju“. Hann hafi t.a.m. lofað kjósendum sínum því að fyrirskipa forstjóra Ford að flytja bílaverksmiðjur frá Mexíkó til Bandaríkjanna og neyða Apple til að hætta að framleiða farsíma í Kína. Þessi boðskapur er í andstöðu við efnahagsstefnu forystumanna repúblikana sem aðhyllast frelsi í milliríkjaviðskiptum. Stark segir að loforð Trumps um að skerða ekki almannatryggingar stríði einnig gegn stefnu flokksins í velferðar- málum. Ólíkt leiðtogum flokksins lofi hann öflugu ríkisvaldi sem tryggi landsmönnum atvinnu og fé- lagslega vernd. AFP Á leið í Hvíta húsið? Bandaríski auðkýfingurinn Donald Trump á kosningafundi í Oregon-ríki. Hann færðist nær því að verða kjörinn forsetaefni repúblik- ana í kosningunum í nóvember með sigri í forkosningum í Oregon í fyrradag, enda hafa allir keppinautar hans ákveðið að draga sig í hlé. Vill ræða við leiðtoga Norður-Kóreu » Verði Donald Trump næsti forseti Bandaríkjanna verður hann tilbúinn að hefja við- ræður við leiðtoga Norður- Kóreu, Kim Jong-Un. Þetta kom fram í viðtali auðkýfings- ins við Reuters í fyrradag. » Bandarísk stjórnvöld hafa hafnað slíkum viðræðum vegna deilu ríkjanna um kjarnavopn Norður-Kóreu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.