Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 10
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ísland hefur skuldbundið sig til að draga verulega úr losun gróður- húsalofttegunda á næstu árum. Samningur þess efnis var undirrit- aður í New York á degi jarðar, þann 22. apríl síðastliðinn. „Ef að líkum lætur verða Íslend- ingar að draga úr notkun jarðefna- eldsneytis um 350-400 þúsund tonn á næstu 15 árum. Þetta verður ekki gert nema með veru- legum fjárfest- ingum í innviðum samfélagsins – sérstaklega í stóraukinni notkun á rafmagni,“ segir orðrétt í minnisblaði Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóa- hafna sf., sem kynnt var á síðasta stjórnarfundi félagsins. Skip verði tengd rafmagni Í minnisblaði Gísla fjallar hann m.a. um tengingar skipa við raf- orkukerfi í landi, en í reglugerð sem nýlega tók gildi er tiltekið að skip sem liggja við bryggju skuli nota rafmagn úr landi í stað skipa- eldsneytis eftir því sem kostur er. Á það fyrirkomulag að stuðla að auknum loftgæðum og draga úr mengun. Er það niðurstaða Gísla í minnis- blaðinu að til þurfi að koma fjár- hagsstuðningur ríkisins við hafnir til að efla lágspennukerfi þannig að togarar og smærri skip geti öll tengst landrafmagni í 10 stærstu höfnunum á Íslandi. Þá segir Gísli að með fjárhags- stuðningi ríkisins og samstarfi hafna og raforkufyrirtækja mætti koma upp háspennutengingum í Reykjavík og á Akureyri. Miðað við fjölda skemmtiferðaskipa væri einnig æskilegt að slíku kerfi væri komið upp á Ísafirði. Hafnirnar hafi ekki fjárhagslegt bolmagn til að koma þessum búnaði upp og því er lagt til að það verði gert með fjár- stuðningi ríkisins. Á fundinum lýsti stjórn Faxaflóa- hafna yfir stuðningi við þau atriði sem fram koma í minnisblaðinu og fól Gísla að senda umhverfisráð- herra og eigendum Faxaflóahafna sf. minnisblaðið. Umræðan um landtengingu skipa (cold ironing) hefur vaxið síð- ustu ár, segir í minnisblaði Gísla Gíslasonar. Landtengingar skipa séu þekkt tækni og því eitt af því sem mögulegt sé að gera nú þegar til að minnka notkun jarðefnaelds- neytis. Verða að þróa landtengingu Íslensk skip og hafnir verði því að þróa búnað sinn fyrir landteng- ingu sem hluta þess verkefnis Ís- lendinga að ná árangri í loftslags- málum. Íslenskar hafnir hafa frá árinu 1980 boðið upp á landteng- ingu skipa með svokölluðu lág- spennukerfi, sem þýðir að smærri skip og flestir togarar, íslensku varðskipin og skip Hafrannsókna- stofnunar og fleiri hafa getað tekið landrafmagn. Ekki hafi þó verið unnt að tryggja togurum nægt afl til að knýja frystikerfi og krana við löndun, en í almennri viðlegu hefur þetta kerfi þjónað skipum upp að ákveðinni stærð. Núverandi rafmagnsbúnaður og töflur margra skipa eru ekki gerðar til að hægt sé að taka landrafmagn. Með endurnýjun skipaflotans á næstu árum og áratugum muni þetta vafalaust breytast. Þar sem lágspennukerfinu sleppir tekur við háspennukerfi. Engin slík kerfi eru á Íslandi, en í nokkrum höfnum er- lendis hafa þau verið að ryðja sér til rúms, segir Gísli. Uppsetning háspennukerfa er mjög kostnaðarsöm (hver tenging kostar hundruð milljóna) og nánast alls staðar þar sem þau hafa verið sett upp hefur framkvæmdin að stórum hluta verið kostuð af ríki, sveitarfélagi, héraði, ESB eða öðr- um sjóðum. Þá er aflþörf skipa mjög mismunandi. Gróft talið má segja að minni kaupskip þurfi 1 - 4 MW á meðan skemmtiferðaskip þurfa 7-14 MW, segir Gísli. Auka þarf landtengingu skipa  Fjárframlag ríkisins þarf til að efla lágspennukerfi þannig að togarar og smærri skip geti öll tengst landrafmagni í 10 stærstu höfnunum á Íslandi  Uppsetning háspennukerfa kostar hundruð milljóna Morgunblaðið/Ómar Sundahöfn Flest hafa verið fjögur skemmtiferðaskip samtímis í Reykjavík. Öll keyra þau ljósavélar í höfn. Hafnir hafa boðið minni skipum landtengingu. Gísli Gíslason 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Stefnt er að því að semja sérstaklega um kjör skipstjórnarmanna og vél- stjóra á hvalaskoðunarbátum og hef- ur verið boðað til fundar hjá ríkis- sáttasemjara í dag hjá samnings- aðilum; Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd hvalaskoðunarfyrirtækja, Félagi vélstjóra og málmtækni- manna (VM) og Félagi skipstjórnar- manna. Enginn heildstæður kjarasamn- ingur hefur verið í gildi innan þessa ört vaxandi geira að sögn Guðmund- ar Ragnarssonar, formanns VM. Hann segir að kjarasamningur hafi verið í gildi á milli Framsýnar og hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík en sá samningur hugnist ekki VM. Greinin hefur vaxið ört „Ef horft er til baka þá voru fyrir- tæki í hvalaskoðun lítil. Í dag er þetta stór atvinnugrein og þá verður að vera til alvöru kjarasamningur fyrir þá sem starfa innan greinarinn- ar,“ segir Guðmundur. Hann segir að félagið hafi fyrir nokkrum árum gefið út einhliða launatöflu fyrir starfsmenn á hvalaskoðunarbátum til viðmiðunar og síðan þá hafi verið stefnt að því að gera kjarasamning við fyrirtæki í greininni. „Við förum yfir málin, þreifum fyrir okkur,“ segir Guðmundur, spurður um efni fundarins í dag. Hann vonast til þess að fulltrúar stóru hvalaskoðunarfyrirtækjanna komi fram með hugmyndir um hvernig þeir sjái þetta fyrir sér en Samtök atvinnulífsins koma að samningaborðinu fyrir hönd hvala- skoðunarfyrirtækjanna. Guðmundur segir félögin tvö stefna að því að gera kjarasamninga um fleiri tegundir siglinga innan- lands, þ.m.t. ferjusiglingar, í fram- haldinu af gerð samninganna við hvalaskoðunarfyrirtæki. ash@mbl.is Ör vöxtur kallar á kjarasamninga  Án samninga á hvalaskoðunarskipum Morgunblaðið/Eggert Kjaramál Samningsaðilar setjast að borðinu hjá ríkissáttasemjara í dag. Í Reykjavík hafa nokkur skip verið tengd heitu vatni til upphitunar og áhugi er hjá nokkrum aðilum að taka þann hátt upp. Dráttarbátar Faxa- flóahafna sf. eru tengdir hitaveitu, hvalveiðbátarnir, skip Hafrannsókna- stofnunar, Landhelgisgæslunnar og Gamli Óðinn svo dæmi séu nefnd. Ef skip eru búin ofnakerfi líkt og byggingar þá er hitun skipa með heitu vatni hagkvæmur kostur á sama hátt og þar sem hitaveitur eru til staðar til húshitunar. Hituð með heitu vatni HITAVEITA TENGD Í SKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.