Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Nemendur 10. bekkjar í Árskóla á Sauðárkróki gerðu sér lítið fyrir og gáfu 110 þúsund krónur úr bekkjar- sjóði til Ívars Elís Sigurjónssonar, fimm ára flogaveiks stráks á Sauð- árkróki. Ívar Elí er búinn að berjast við flogaveiki í tvö ár. Þegar verst er fær hann allt að 20 köst á dag. Eftir tveggja ára meðferð á Íslandi eru ís- lenskir læknar orðnir ráðalausir og hafa ákveðið að senda hann til Bost- on í læknisrannsóknir núna í maí. Margar fjáraflanir til styrktar Ív- ari hafa farið fram á Sauðárkróki og voru krakkar í 10. bekk Árskóla ekki lengi að hugsa sig um þegar stungið var upp á þeirri hugmynd að styrkja Ívar. Ákveðið var að gefa 110 þúsund krónur úr bekkj- arsjóðnum, sem annars átti að fara í vasapening til nemenda í ferðalag- inu, en þeir eru alls 42 í bekknum. Nemendurnir hafa safnað í allan vetur fyrir útskriftarferð til Dan- merkur sem farin verður í lok maí og töldu þeir ekki eftir sér að hver og einn léti 2.500 krónur af hendi rakna til Ívars Elís og fjölskyldu hans. arora49@live.com Ljósmynd/Laufey Harpa Styrkur Formenn nemendafélags Árskóla, Alexandra Ósk Guðjónsdóttir og Róbert Smári Gunnarsson ásamt Ívari Elí litla. Gáfu 110 þúsund úr bekkjarsjóðnum Viðskiptamogginn alla fimmtudaga Mikið úrval af fatnaði og skóm fyrir sumarið! Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 - www.facebook.com/spennandi Vertu upplýstur! blattafram.is SUMUM LEYNDARMÁLUM Á EKKI Að ÞAGA YFIR. GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK? HVAÐ MEÐ KYNFERÐISOFBELDI? Póstsendum Mikið úrval af sundfatnaði Kíktu á heimasíðuna lifstykkjabudin.is LAUGAVEGI 82 101 REYKJAVÍK SÍMI 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Leiktæki, sem stóð óklárað við Afla- granda í Vesturbæ Reykjavíkur, hefur nú verið fjarlægt, en bent hafði verið á slysahættu af tækinu. Í skriflegu svari frá Reykjavík- urborg til Morgunblaðsins kemur fram að úttekt borgarstarfsmanna á tækinu í gær hafi leitt í ljós að það væri ekki öruggt börnum og var það því fjarlægt. „Í það vantaði hluti og frágangi var verulega ábatavant,“ segir í svarinu. Ennfremur segir þar að öruggasta leiðin hafi verið að fjar- lægja leiktækið og lagfæra það á öruggum stað. Til stendur að koma leiktækinu fyrir aftur á svipuðum stað innan tveggja vikna, eftir að gerðar hafa verið á því endurbætur, og þá verður einnig ráðist í að ganga frá fallvörnum og öðrum öryggis- atriðum. Íhlutir pössuðu ekki í Framkvæmdir hófust seint síð- asta vetur og leiktækið var því ekki komið upp fyrr en 27. október 2015. Aðrar framkvæmdir biðu vegna vetraraðstæðna. Við eftirlit í lok mars 2016 kom í ljós að tækið hafði ekki verið stað- sett miðað við upphaflega hönnun og hafði sú staðsetning áhrif á stærð ör- yggissvæðis. Þá var ákveðið að girða svæðið af þar til búið væri að ganga frá tækinu í samræmi við hönnun. „Seinkun á lokafrágangi var einkum til komin vegna þessa að íhlutir í kastalann og rennibrautina frá selj- anda pössuðu ekki og panta þurfti nýja,“ segir í svarinu frá Reykjavík- urborg. ash@mbl.is Leiktækið lagað á öruggum stað Morgunblaðið/Júlíus Í fyrradag Hér má sjá leiktækið, sem hafði staðið óklárað um skeið. Í gær Svona var umhorfs á svæðinu í gær. Leiktækið hafði verið fjarlægt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.