Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016 Iðnaðarmenn Þjónusta                                 ! " #$ %&& ' '' ((()*)  Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Suzuki Swift GLX til sölu. Nýskr. 8/2014, ek. 30 þ.km. 16“ álfelgur. Verð 2.290 þús. Engin skipti. Upplýsingar í síma 892 2830 Hjólbarðar Matador vetrar og heilsársdekk tilboð 215/70 R 16 kr. 21.990 235/60 R 18 kr. 31.890 255/55 R 18 kr. 33.100 255/50 R 19 kr. 38.900 Framleidd af Continental í Slóvakíu Frábær dekk á góðu verði Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur s. 5444333 Traktordekk rýmingarsala 13.6 -24 kr. (1 stk) 39.900 11.2 – 28 ( 1 stk) kr. 29.900 Kaldasel ehf ., Dalvegur 16 b, Kópavogur s. 5444333 Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Smáauglýsingar ✝ Stefán UnnarMagnússon fæddist á Leifsgötu í Reykjavík 16. desember 1935. Hann lést 26. apríl 2016. Foreldrar hans voru Magnús B. Björnsson vélstjóri, f. 22. nóvember 1904, d. 10. desem- ber 1986, og Lilja Sighvatsdóttir húsmóðir, f. 12. september 1908, d. 6. febrúar 2000. Unnar átti heima á Hagamel 17 fram yfir unglingsár. Hann fór 16 ára til sjós á úar 1965, og Friðrika Eggerts- dóttir húsmóðir, f. 5. október 1894, d. 28. febrúar 1988. Börn Stefáns Unnars og Bergrúnar eru: 1) Friðrik Þor- geir Stefánsson lögfræðingur, f. 1. maí 1955, giftur Margréti H. Hauksdóttur flugfreyju. 2) Unnar Örn Stefánsson kjötiðn- aðarmaður, f. 12. júlí 1962, sambýliskona Hildur Harð- ardóttir skrifstofustjóri. 3) Magnús Bjarki Stefánsson, f. 26. maí 1965, giftur Unni G. Pálsdóttur framkvæmdastjóra. Unnar og Bergrún bjuggu mestan sinn hjúskap í vesturbæ Reykjavíkur, utan þrjú ár kringum 1965 sem þau bjuggu á Húsavík. Lengst af bjuggu þau að Bauganesi 3a í Skerja- firði en seinustu árin að Kapla- skjólsvegi 93. Útför Stefáns Unnars fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. skip Eimskipa- félagsins og í fram- haldi af því í Vél- skólann 1955. Var vélstjóri til sjós alla tíð upp frá því. Framan af á fiski- skipum frá Hafn- arfirði en síðari ár- in hjá Faxamjöli og síðast HB Granda. Unnar kynntist eftirlifandi konu sinni Bergrúnu Jóhannsdóttur árið 1952. Bergrún er fædd 9. nóvember 1933 og voru for- eldrar hennar Jóhann Garðar Jóhannsson bryggjusmiður, f. 15. nóvember 1897, d. 21. febr- Jæja, pabbi minn. Þá ertu far- inn í síðustu siglinguna þína. Mér finnst það skrýtið. Ég hélt að ég væri búinn að undirbúa mig og sætta mig við að þú værir að fara en svo þegar á hólminn er komið þá er þetta eitthvað svo endan- legt. Ég á eftir að sakna þín mikið. Þú sagðir kannski ekki alltaf mik- ið, en þegar þú hafðir eitthvað að segja lagði ég við hlustir. Þú hafðir einstaklega þægilega nær- veru og sýndir væntumþykju þína frekar með gjörðum en orð- um og ætli ég sé ekki bara nokk- uð líkur þér með það. Við á Stýró eigum eftir að sakna þess þegar þú kíktir við á leiðinni í vinnuna, með derhúfuna á höfðinu og lykl- ana dinglandi í beltinu. „Kaffi? Já takk. Kannski hálfan.“ Eins og Jak- ob Þór komst að orði; „það voru ekki einhverjir stórkostlegir hlutir sem einkenndu afa og gerðu hann að þeim yndislega manni sem hann var heldur þess- ir litlu, hversdagslegu“. Það er lífið, það sem skiptir máli þegar upp er staðið. Ég vil trúa því að þú sért kom- inn á góðan stað, búinn að hitta vini og ættingja sem fóru á undan þér og fáir þér kannski hálfan kaffi með þeim. Við skulum passa mömmu. Bless, pabbi minn, Magnús Bjarki. Það er erfitt að kveðja bróður og enn erfiðara aðeins tæpum fimm mánuðum eftir að elsti bróðirinn var kvaddur. Að eiga tvo stóra bræður veitir mikla ör- yggiskennd og þá kennd þekki ég. Unnar, en það var nafnið sem við notuðum alltaf, var sérstak- lega dagfarsprúður. Þar bar hann örugglega af okkur systk- inunum fimm. Hópurinn var tví- skiptur, tveir bræður, fæddir með þriggja ára millibili og síðan liðu sjö ár en þá kom ég í heiminn og síðan tvö yngstu systkinin, Maggi Binni og Sjöfn, með þriggja ára millibili. Á yndislegu en stóru æskuheimili okkar var Unnar hjálparhellan hennar mömmu okkar. Hann var alla tíð snyrtimenni svo af bar og þetta kom fram strax í æsku. Seinna heyrðum við að enginn kæmi inn í vélarrúmið hjá honum án þess að fara úr skónum þótt menn slepptu því þegar í matsalinn var farið. Minningarnar hrannast upp; Unnar á að fara að fermast en pabbi veikist af brjósklosi og fer í uppskurð á spítala. Fermingunni er frestað til hausts. Þrátt fyrir að fermingarfötin væru keypt við vöxt, tókst Unnari að vaxa upp úr þeim á einu sumri og þurfti að fermast í smóking af pabba. Örfá- um árum síðar fór hann til sjós – til Ameríku sem messagutti á einhverjum Fossinum. Þvílíkt ævintýri og komið tilbaka með alls konar fínirí. Plötuspilara fyr- ir 45 snúninga hljómplötur og nýjustu lögin. Amerískar mokk- asíur, nælonskyrtur og dress. Ótrúlega spennandi allt saman. Vinkonum mínum fannst ekki slæmt að fylgjast með nýjungun- um, sem hann færði heim. Þótt þriggja ára munur væri á elstu bræðrum mínum, gerði ég engan greinarmun á því á sínum tíma. Man að ég hafði miklar áhyggjur þegar Búbbi, elsti bróðirinn, trú- lofaði sig og Unnar var ekki trú- lofaður. Unnar hefur verið 16 ára þá og því var auðvitað engin ástæða fyrir þessum áhyggjum en 9 ára stelpa getur greinilega haft ýmsar ranghugmyndir. Nokkrum árum síðar kom kær- astan til sögunnar, hún Rúna hans, en þau giftust kornung. Hann þurfti forsetaleyfi enda að- eins nítján ára. Friðrik sonur þeirra var nýfæddur og heimilið á Hagamel 17 varð stærra á tíma- bili. Skömmu síðar eignuðust þau sitt heimili en ég varð heima- gangur hjá þeim og naut þess að passa frændur mína enda á fyr- irtaks barnfóstrualdri. Síðar fluttu þau á Dunhagann en þar bjó mannsefnið mitt hjá þeim á meðan hann stundaði háskóla- nám. Það er gott að eiga góða að. Unnar var til sjós og því lang- dvölum að heiman. Eftir að hann kom í land vann hann fulla vinnu þar til veikindi hans komu í veg fyrir að halda henni áfram en þá vantaði hann aðeins rúma tvo mánuði í áttrætt. Hann var þó búinn að veikjast áður og fara í stórar hjartaaðgerðir en það var ekki á honum að sjá. Einhvern veginn fannst mér, að ekkert gæti fellt hann eða kannski vildi ég bara trúa því. Síðustu stund- irnar, sem við áttum saman, geymi ég með mér eins og fjár- sjóð. Það er lítið eftir af fjölskyld- unni glöðu á Hagamel 17 en það ber að þakka hversu góðan upp- vöxt við börnin fengum þar. Rúnu og fjölskyldunni allri sendi ég einlægar samúðarkveðj- ur. Þeirra missir er mestur. Guð blessi minningu góðs manns. Stefanía Magnúsdóttir (Níní). Höggvið er skarð í vinahópinn með andláti Stefáns Unnars Magnússonar, en áfram lifa ára- tuga góðar minningar um sam- vistir við traustan og góðan vin. Hæglátur en kankvís og glað- lyndur gaf hann hverri samveru- stund þann góða anda og hlýju sem endist alla tíð og við hinstu kveðju fylgja þessum góða manni hlýjar kveðjur og þakklæti fyrir liðnar stundir. Unnar var lengst af ævinni á sjónum þar sem hann sinnti vélstjórn af stakri sam- viskusemi og óbilandi dugnaði eins og honum var einum lagið. Þess vegna voru kynnin framan af ævi okkar bundin við stopula viðveru hans í landi, en eftir að traustur hópur vina og fjölskyld- ur þeirra gerðu sáttmála um fundi og endurfundi á bökkum Laxár í Þingeyjasýslu þá var fléttuð saman sú vinátta þar sem Unnar átti sinn sterka þráð. Í Laxárdal þar sem Agnúar hafa mætt til vinafunda í 40 ár voru þau Unnar og Rúna einn af horn- steinum gleðistunda, hláturs og hlýju þar sem veiðiskapur vék fyrir hinu fyrrnefnda eftir því sem árin og áratugir liðu. Í Lax- árdal leiddi hann yngsta son okk- ar, Þorstein, þá nýgræðing til veiða, um undraheim dalsins þar sem aflabrögð voru talsvert minna mál en hlý nærvera og góður félagsskapur. Eftir að Unnar kom í land þá gerðist hann vaktmaður skipa hjá HB Granda hf. í Gömlu höfn- inni í Reykjavík. Þar, sem fyrr, sinnti hann hlutverki sínu af þeirri elju og trúmennsku sem honum var einum lagið. Mátti á stundum velta því fyrir sér hver ætti skipin og höfnina því aldrei mátti hann vita af neinu sem bet- ur mátti fara án þess að koma því á framfæri. Og það var eftir öðru að þegar Unnar þurfti seint á síð- asta ári að leita sér læknisaðstoð- ar var lítill tími til þess fyrr en vaktatörn væri lokið og skipin og höfnin trygg. Þá var hins vegar af þessum vinnuharða höfðingja dregið og á næstu vikum og mán- uðum dró úr styrk og þreki þar til yfir lauk. Þessi Agnúahópur, sem hist hefur á bökkum Laxár minnst eina viku síðustu fjóra áratugi spannar þrjár kynslóðir og sú fjórða vex úr grasi. Við kveðjum nú einn af fyrstu kynslóð, sem eins og við af annarri kynslóð, hafði það að markmiði í gríni og alvöru að skila af sér föður- og móðurbetrungum. Unnar skilaði sínu í þeim efnum eins og vænta mátti, ekki síst vegna hennar Rúnu, sem alla tíð var óbilandi stoð og stytta í farsælu og fallegu hjónabandi þeirra. Hvað okkur endist stund eða tími til endur- funda við Laxá skal ekkert full- yrt, en vinar verður saknað þegar hópurinn hittist og fagnar fjöru- tíu árum í dalnum. Þar verður Unnar að þessu sinni með okkur í anda, glaður í bragði. Við leiðarlok eru það hlýjar og góðar minningar sem eru efstar í huga ásamt þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við nutum saman. Rúnu og fjölskyldunni allri sendum við og hinir Agnú- arnir okkar blíðustu kveðjur og hluttekningu nú þegar góður drengur er kvaddur hinstu kveðju. Gísli og Hallbera. Allt frá því að ég flutti í húsið á Kaplaskjólsvegi hafa Unnar og Rúna verið mér einstaklega hlýir og traustir nágrannar. Þegar ég svo ættleiddi son minn þriggja ára frá Afríku treystust böndin enn frekar þar sem Théo fékk sérstakt dálæti á Unnari eða kannski var það öfugt? Þeir áttu alla vega einstakt samband og Unnar uppmáluð hetja þegar hann frelsaði mömmu eina, sem kom að sækja barnið sitt í afmæli, úr lyftunni sem hafði stoppað á milli hæða. Auðvitað var það vél- stjórinn, af gamla skólanum, sem fann lausn á öllum vandamálum. Vanur að leysa sín mál úti á rúmsjó þar sem ekki verður hringt á hjálp eða hlaupið út í búð eftir varahlutum. Þannig var hann líka í lífinu fannst mér, ekki í því að fá hjálp frá öðrum en endalaus uppspretta stuðnings og aðstoðar fyrir hina. Þegar ég sagði syni mínum að nú væri Unnar dáinn þá spurði hann mig hvort hann hefði stigið um borð. Mér fannst það viðeigandi því segja má að Unnar hafi nú stigið um borð í eilífðarskútuna. Við þökkum samfylgdina í þessu lífi og hlýjum okkur við minningar um einstakan mann. Elsku Rúna, við samhryggjumst þér og stönd- um að baki þér hér konurnar saman á stigapallinum eins og þú segir svo oft. Hvíl í friði, kæri Unnar. Guðný Einarsdóttir og Théo. Stefán Unnar Magnússon Hún sofnaði inn í Draumalandið á sumardaginn fyrsta, hún góða, ljúfa, frænka mín, Margrét Lúðvígs- dóttir. Við vorum nánar í orðsins fyllstu merkingu. Mæður okkar voru bræðradætur og feður okkar góðir vinir. Í Norðurmýrinni, nánar tiltekið á Vífilsgötunni, fæddumst við. Hún á númer 15 og ég á númer 13. Hún í júní 1937 en ég í október 1938. Fyrstu æskuárin voru ljúf í skjóli góðra foreldra. Árið 1941 eignuðumst við lítil systkin. Hún bróðurinn Sigurð Gísla og ég syst- urina Ragnheiði. Foreldrar mínir fluttu stuttu eftir fæðingu Ragnheiðar á Sel- foss en ég 1942 eftir vetrardvöl hjá ömmu Ragnheiði og fjölskyldu. Nokkrum árum síðar fluttu Magga og hennar fólk á Selfoss og urðu þá miklir fagnaðarfundir. Við kynntumst fjölmörgum krökkum. En þegar árin liðu og við þrosk- uðumst héldum við hópinn Stína, Nanna, Magga. Steina og ég. Við Margrét Lúðvígsdóttir ✝ Margrét Lúð-vígsdóttir fæddist 2. júni 1937. Hún lést 21. apríl 2016. Útför Margrétar fór fram 29. apríl 2016. vorum saman öllum stundum. Við gift- umst allar og eign- uðumst börn og bú. Magga giftist Þorfinni Valdimars- syni, Honna, miklum húmorista. Þau eignuðust þrjú mannvænleg börn; Þór skógar- vörð, Ástríði Ingi- björgu þroskaþjálfa og Lúðvíg Lúther framkvæmda- stjóra. Barnabörnin eru sjö. Magga elskaði barnabörnin og dekraði við þau enda ekki í kot vísað hjá ömmu Möggu, sem var mikill mat- gæðingur og bjó til gómsætan mat og kökur. Heimili Möggu og Honna var listrænt og fallegt, en Magga hafði mikinn áhuga á málaralist. Þær voru ófáar ferðirnar sem við frænkurnar fórum á Listasafn Ár- nesinga í Hveragerði. Nú er engin Magga sem hringir og segir: Eigum við að skreppa? Ég trúi því varla enn að hún sé horfin okkur, en við Steina erum tvær eftir af vinkvennahópnum. Við tölum nær daglega saman og ornum okkur við minningar um elsku Möggu okkar. Megi hún hvíla í friði hjá ástvin- um sínum. Elín (Ella). Bíddu pabbi bíddu mín, bíddu því ég kem til þín. Sem barn trúði eg því í einlægni að þessi texti væri um þig og mig, elsku pabbi. Þannig átti ég þig í þessu lagi og huggun í tónlistinni. Ég hljóp eins og segir í textanum til pabba sem beið mín. Það liðu þó 47 ár þar til ég loksins fann þig. Mörgum árum fylgja breyti- legar vonir og væntingar. Allar þær bestu rættust hjá okkur þegar við loks hittumst og meira til. Þú opnaðir hjarta þitt Hólmgeir Sævar Óskarsson ✝ Hólmgeir SævarÓskarsson fædd- ist 26. desember 1945. Hann lést 18. apríl 2016. Útför Hólmgeirs fór fram 4. maí 2016. og heimili, elsku faðir minn. Ég eignaðist ein- staka fjölskyldu, ykkur Línu og bræður mína þrjá. Í dag kveð ég þig, elsku faðir minn, í hinsta sinn eftir þessi allt of stuttu kynni, en samt svo ótrúlega gefandi. Ég á eftir að hlýja mér við minningar um einstakan föður og þekkja þig áfram í bræðr- um mínum sem endurspegla þann trausta, fallega og góða mann sem þú varst. Elsku Lína mín, bræður mínir, Heimir, Hilmar og Stef- án, votta ég mína dýpstu sam- úð. Hvíl í friði. Ég elska þig, pabbi minn. þín dóttir, Hulda Birna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.