Morgunblaðið - 19.05.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Við fögnum því að nú skuli eftir út-
boð gengið til samninga við aðila
sem augljóslega er að bjóða ríkinu
miklu hagstæðari
kjör en áður voru
í boði,“ sagði
Ólafur Stephen-
sen, fram-
kvæmdastjóri
Félags atvinnu-
rekenda, þegar
Morgunblaðið
leitaði álits hans á
niðurstöðu út-
boðs á flugmiðum
fyrir stjórnarráðið sem kynnt var á
þriðjudaginn. Félagið þrýsti mjög á
að efnt yrði til útboðsins. Ólafur
gagnrýnir hins vegar framkvæmd-
ina og hve stutt skref hafi verið stig-
ið að þessu sinni.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
mun ríkið á grundvelli annars hluta
útboðsins ganga til samninga við
flugfélagið WOW air vegna farmiða-
kaupa til tveggja áfangastaða. Boðn-
ar voru út flugferðir á þrjá algeng-
ustu áfangastaði starfsmanna
ráðuneytanna og barst eitt tilboð frá
WOW air til tveggja áfangastaða og
var það samþykkt. Hinn hluti út-
boðsins átti að tryggja afsláttarkjör
á hverjum tíma, en tilboð Icelandair
í það var metið ógilt.
„Það hefur verið alveg óviðunandi
ástand í þessum málum í næstum
fjögur ár,“ sagði Ólafur. Loks þegar
stjórnvöld hafi látið undan og efnt til
takmarkaðs útboðs á farmiðum
starfsmanna stjórnarráðsins hafi
framkvæmdin reynst gölluð og það
hafi latt menn til þátttöku, en ekkert
erlent flugfélag tók þátt í útboðinu.
Gallarnir hafi m.a. falist í því að
upphaflega var þess krafist að allir
tilboðsgjafar flygju til Brussel, en
aðeins Icelandair er með áætlunar-
flug þangað frá Keflavík. Þá hafi
verið krafa um að íslenskumælandi
þjónustufulltrúi væri til taks allan
sólarhringinn sem var aukakvöð fyr-
ir erlendu félögin. Frá þessu hafi
síðan verið fallið, en þetta hafi dreg-
ið úr áhuga flugfélaganna. Mönnum
hafi að mati Ólafs fundist að verið
væri að reyna að þrengja hópinn.
Í frétt frá fjármála- og efnahags-
ráðuneytinu á þriðjudaginn sagði að
unnið væri að undirbúningi á útboði
á flugfarmiðum fyrir stofnanir rík-
isins. Hyggst stjórnarráðið taka þátt
í því útboði þar sem ekki náðist að
semja um almenn afsláttarkjör í ný-
afstöðu útboði.
Hagstæðari kjör fást
eftir útboð flugmiða
Félag atvinnu-
rekenda gagnrýnir
framkvæmdina
Morgunblaðið/Golli
Útboð WOW air bauð betur í öðrum hluta flugfarmiðaútboðs Stjórnarráðs-
ins og við það verður samið. Viðskiptin eru þó mjög takmörkuð.
Ólafur Stephensen
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Hönnun fyrir lífið
Besta vörumerkið í Þýskalandi 2015
Góð hönnun á ekki aðeins við um útlit hlutar, heldur einnig upplifun
notandans á honum. Nýju innbyggðu eldhústækin fráMiele eru
hönnuðmeð þessa hugmyndafræði í huga. Tækin passa öll
fullkomlega saman hvað varðar útlit, áferð og virkni.
Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í eldhústækin og innréttinguna
og tryggðu þér raunveruleg gæði á réttu verði.
Hönnun og ráðgjöf á staðnum.
best
brands
IIIJlillr 11
Vatnskæld
kælitæki
Einstaklega hljóðlát
tæki fyrir t.d. kerfis-
loft eða á vegg
hitataekni.is
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
Fyrsta skóflustungan að Lava, eld-
fjalla- og jarðskjálftamiðstöð Ís-
lands, á Hvolsvelli var tekin í gær.
Húsnæðið verður 2.200 fermetrar
að stærð sem rúmar gagnvirka
fræðslusýningu auk bíósalar, veit-
ingaaðstöðu, kaffihúss, salernis-
aðstöðu fyrir hópa, verslunarrýmis
og þjónustumiðstöðvar ásamt út-
sýnispalli á þaki byggingarinnar.
Áætlað er að opna í maí á næsta
ári. „Þegar húsið verður komið í
fulla notkun er áætlað að um 20 ný
störf skapist á Hvolsvelli,“ segir Ás-
björn Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins.
Á sýningunni verður tilurð Ís-
lands sýnd en miðstöðin er helguð
jarðfræði Íslands, eldstöðvum á
Suðurlandi, eldgosum, jarð-
skjálftum og hamfarahlaupum með
sérstaka áherslu á nýjustu eldgos
hverju sinni.
Stefnt er að því að Lava verði
„glugginn“ inn í jarðvanginn Kötlu
Geopark. Katla jarðvangur nær
yfir 9.542 km² landsvæði og þekur
rúmlega 9% af flatarmáli landsins,
frá Hvolsvelli í vestri að Skeiðar-
ársandi í austri. Nyrsti hluti jarð-
vangsins teygir sig langt inn á
Vatnajökul en langar strendur af
svörtum sandi afmarka jarðvang-
inn í suðri. Þéttbýliskjarnar í jarð-
vanginum eru Hvolsvöllur, Vík í
Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur.
Lava mun einnig koma á fram-
færi, með beinum hætti, upplýs-
ingum um jarðhræringar, eldgos
og aðrar náttúruhamfarir í sam-
vinnu við Almannavarnir, Veður-
stofu Íslands og lögreglu.
Ljósmynd/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Skóflustunga Áætlað er að húsnæðið komist í gagnið í maí á næsta ári.
Skóflustunga að eldfjallamiðstöð
2.200 fermetra
húsnæði á Hvolsvelli
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mál Reykjavíkurborgar gegn ís-
lenska ríkinu vegna lokunar NA/SV
flugbrautarinnar (06/24) á Reykja-
víkurflugvelli, sem stundum er nefnd
neyðarbrautin, er á dagskrá Hæsta-
réttar 1. júní nk.
Sem kunnugt er kvað Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur upp þann dóm 22.
mars sl. að innanríkisráðherra, fyrir
hönd íslenska ríkisins, væri skylt að
loka flugbrautinni og endurskoða
skipulagsreglur fyrir flugvöllinn til
samræmis við lokun flugbrautarinn-
ar innan 16 vikna frá dómsupp-
kvaðningu. Innanríkisráðuneytið
áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar.
Telur að gögnin séu ekki rétt
Sigurður Ingi Jónsson, fyrrver-
andi forseti Flugmálafélags Íslands
og nú fulltrúi Framsóknar og flug-
vallarvina í umhverfis- og skipulags-
ráði Reykjavíkurborgar, er andvígur
því að flugbrautinni verði lokað.
„Héraðsdómur byggir dóm sinn á
þrennu. Í fyrsta lagi að samningar
skuli standa. Í öðru lagi að þótt ekki
sé sérstaklega tekið fram í orðalagi
samkomulags innanríkisráðherra og
borgarstjóra [í október 2013] að ör-
yggis- og þjónustustig Reykjavíkur-
flugvallar þurfi að uppfylla kröfur
laga, reglugerða og alþjóðasáttmála
þá felur undirritun ráðherra í sér
alla þá fyrirvara sem lögformlegt
ferli kallar á. Í þriðja lagi lítur hér-
aðsdómarinn greinilega svo á að
skýrslur Isavia og Eflu sýni fram á
að öryggis- og þjónustustig vallarins
verði fullnægjandi með tveimur flug-
brautum,“ sagði Sigurður.
Hann var viðstaddur aðalmeðferð
málsins fyrir héraðsdómi. Sigurður
sagði að vitni sem borgin kallaði til,
verkefnisstjóri Isavia, hefði ítrekað
lýst við aðalmeðferðina með hvaða
hætti þeir ákvörðuðu ákveðnar for-
sendur í skýrslugerðinni.
„Þær forsendur standast ekki
reglugerð um flugvelli (464/2007) og
Viðauka 14 við alþjóðasáttmála Al-
þjóða flugmálastofnunarinnar
(ICAO) sem reglugerðin byggist á,“
sagði Sigurður. „Þar eð gögnin
standast ekki reglugerð lít ég svo á
að lögformlegu ferli hafi ekki verið
fullnægt. Ég vona að Hæstiréttur
ógildi héraðsdóminn og vísi málinu
heim í hérað eða sýkni íslenska ríkið
vegna þess að gögnin sem héraðs-
dómur byggist á eru ekki rétt.“
Segir reglugerð rangtúlkaða
Þá telur Sigurður að skýrslum
Eflu og Isavia vegna málsins sé í
mörgu áfátt. Hann vitnar í tölvu-
póstsamskipti milli Isavia og Eflu
þar sem m.a. komi fram að Efla hafi
byggt hliðarvindsstuðul á lengd flug-
brauta, sem sé rangt. Þeir hafi því
rangtúlkað reglugerð um flugvelli og
sagt berum orðum að ekki þyrfti að
taka tillit til bremsuskilyrða sem
leiddi af sér „íhaldssamari nothæf-
isstuðul“. „Það er gagngert tekið
fram í þessum tölvupósti að þeir ætli
að sleppa breytu sem eigi að reikna
með samkvæmt reglugerð og al-
þjóðasáttmála,“ sagði Sigurður. „Ég
lít svo á að það hafi verið gert til að
fegra niðurstöðuna.“
Gagnrýnir gögn
Isavia og Eflu
Áfrýjun vegna neyðarbrautar 1. júní