Morgunblaðið - 19.05.2016, Side 27
✝ Benedikt Jóns-son, vélstjóri,
fæddist 27. apríl
1927 í Reykjavík.
Hann lést á
húkrunarheimilinu
Mörk 5. maí 2016.
Faðir hans var
Jón Þorsteinsson,
f. 18.6. 1892 í
Rvík., d. 19.1.
1969, sjóm., síðar
flokksstj. hjá
Reykjavíkurborg. Móðir hans
var Margrét Ingigerður Bene-
diktsdóttir, húsmóðir, f. 23.9.
1897 í Rvík., d. 19.8. 1968.
Hann var í námi í Iðnskólanum
í Reykjavík 1944-47. Nám í
plötu- og ketilsmíði í Stálsmiðj-
unni hf. í Reykjavík 1944-48.
Vélskólapróf 1951. Aðstoðarvél-
stjóri á m.s. Gullfossi III til
febrúar 1952, en síðan á tog-
urum til 1954. Starfsmaður hjá
Olíufélaginu Skeljungi 1954-71.
Vann síðan við dagblaðið Vísi
og Blaðaprent hf. um skeið og
var framkvæmdastjóri Prent-
miðjunnar Hilmis hf. frá mars
1972 og starfsmaður Frjálsrar
fjölmiðlunar frá stofnun þess
dóttur, f. 17.1. 1957, og eiga
þau fjóra syni: Atli Örn, f. 19.3.
1979, sambýliskona Lilja Odds-
dóttir, f. 3.7. 1978. Gunnar
Snær, f. 6.3. 1983, sambýliskona
Helga Finnsdóttir, f. 18.7. 1985,
og eiga þau tvo syni. Eyþór
Ingi, f. 6.12. 1985, sambýliskona
Svanlaug Birna Sverrisdóttir, f.
28.10. 1993, og eiga þau einn
son. Örvar, f. 11.11. 1992, sam-
býliskona Helga Gylfadóttir, f.
25.11. 1995, og eiga þau einn
son. 3) Jón Ingi, f. 21.10. 1959,
viðskiptafr. kvæntur Sigríði
Jónu Guðnadóttur, f. 7.5. 1963,
og eiga þau þrjú börn, Evu
Margréti, f. 30.1.1998, Sigurjón
Inga, f. 31.7. 1999, og Eydísi
Ósk, f. 4.12. 2002. 4) Ásta
Björk, f. 24.2. 1966, kennari,
gift Guðlaugi Pálssyni, f. 24.9.
1966, og eiga þau tvö börn,
Halldóru Sif, f. 25.9. 1987, gift
Kristni Péturssyni, f. 7.8. 1985,
og eiga þau einn son. Páll
Helgi, f. 7.3. 1994, unnusta Vi-
viana Caspaneda.
Barn áður: Erla, f. 4.1. 1948,
gift Friðbirni Sveinbjörnssyni
og eiga þau tvær dætur, Ástrós,
f. 20.3. 1973, og Ástrúnu, f.
17.2. 1975.
Úför Benedikts fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 19. maí
2016, kl. 13.
fyrirtækis 1981 og
þar til hann lét af
störfum og fór á
eftirlaun árið 1999.
Hann kvæntist 6.
október 1951 Hall-
dóru Ármannsdótt-
ur, f. 12.7. 1932,
dóttur Ármanns
Guðmundssonar,
húsasmíðameistara
í Reykjavík, og
Ástu Bjarnadóttur.
Börn: 1) Ármann Haukur, f. 9.2.
1952, húsasmíðameistari,
kvæntur Elínu Ebbu Gunn-
arsdóttur, f. 24.9. 1953, og áttu
þau fjögur börn: Erna Karen, f.
4.9. 1972, sambýlismaður henn-
ar er Jón Óskar Þórhallsson, f.
6.5. 1969, og eiga þau fjóra
syni, Benedikt Ingi, f. 27.4.
1978, d. 1.4. 2007, lætur eftir
sig dóttur, Dóra Steinunn, f.
14.12. 1983, gift Eiríki Jóhanni
Gunnarssyni, f. 30.4. 1976, og
Ármann Ingvi, f. 3.10. 1986,
sambýliskona hans er Alex-
andra Eyfjörð Ellertsdóttir, f.
6.7. 1989. 2) Gunnar, f. 10.2.
1956, starfsmaður Landsnets.
Hann er kvæntur Unni Péturs-
Margt flýgur í gegnum kollinn
þegar kemur að því að kveðja og
þakka fyrir sig. Nú þegar faðir
minn er látinn reikar hugurinn til
baka og þar er að finna margar
skemmtilegar minningar og þær
eru dýrmætar, því þær lifa með
manni. Það voru gæðastundir að
fara á nokkurra ára bili á hverj-
um laugardags- og sunnudags-
morgni á skíði saman ef opið var,
nú ef það var ófært þá fórum við
saman í sund í Vesturbæjarlaug á
laugardögum. Eins drógum við
nokkra laxa og silunga saman, en
hvað stoltastur var ég af frammi-
stöðu minni rétt utan við Sauð-
árkrók fimm ára gamall, þegar
þú kenndir mér fyrstu hand-
brögðin í veiðimennsku og ég
uppskar þessa fínu sjóbleikju,
sem maður átti í mesta basli við
að ná að landi. Föður mínum var
annt um fjölskylduna og var alltaf
tilbúinn að aðstoða ef hann gat
komið að liði. Dyggð í hans huga
var heiðarleiki og samviskusemi.
Faðir minn var búinn að glíma við
Alzheimers-sjúkdóminn um
nokkuð langt skeið og var inni á
heilabilunardeildinni á Mörkinni
síðustu tvö ár. Þar fékk hann
mjög góða umönnun og ber að
þakka starfsfólki Markarinnar
fyrir frábært starf. Það var kom-
ið að leiðarlokum á 89. afmælis-
degi hans því þá var hann kominn
með hita og tveim dögum síðar
var hann settur í líknarmeðferð
og svaf án þess að opna augun
fram á uppstigningardag, en
þann dag var hann með rifu á
báðum augnlokum og klukkan
15.30 glaðvaknaði hann, horfði
skýrum augum á hvert okkar
systkinanna og mömmu og
kvaddi í friði. Þannig kvaddi hann
með stæl og bættist enn ein góð
minning í kollinn. Með þessum
orðum kveð ég þig, elsku pabbi,
og hvíl þú í friði. Þinn sonur,
Jón Ingi Benediktsson.
Heimilisvinur og frændi,
Benedikt Jónsson, er fallinn frá
89 ára að aldri. Benni frændi eins
og við kölluðum hann alltaf var
fæddur á Grímsstaðaholtinu og
ólst þar upp í gömlu húsi við
Fálkagötu sem nú er horfið. Hús-
ið kallaðist Kvöldroðinn. Faðir
hans var Jón Þorsteinsson, sjó-
maður og verkamaður, og móðir
hans var Margrét Benediktsdótt-
ir. Hún var systir föður míns,
Gunnars E. Benediktssonar hrl.
Mikill samgangur var á milli
heimilanna.
Á mínum yngri árum áttum við
Benni mikið saman að sælda og
stundum fannst mér hann eins og
bróðir þótt aldursmunur væri
nokkur. Ég fann að foreldrar
mínir báru hag hans mjög fyrir
brjósti og var hann oft gestkom-
andi á Fjölnisveginum um lengri
eða skemmri tíma. Þegar faðir
minn eignaðist bíl árið 1946 gerð-
ist Benni eins konar umsjónar-
maður bifreiðarinnar því að hvor-
ugt foreldra minna hafði þá
bílpróf. Benni sá um viðhaldið á
bílnum og var oft bílstjóri fjöl-
skyldunnar. Þannig fórum við í
langt ferðalag norður í land þeg-
ar ég var um 11 ára gamall, tók sú
ferð tíu daga og var mjög eftir-
minnileg.
Benni kynntist snemma konu-
efni sínu, Halldóru Ármannsdótt-
ur. Þau giftu sig og lifðu í góðu
hjónabandi síðan. Það vildi svo til
að þegar við Sonja giftum okkur
var það á sama degi og þau Benni
og Dóra höfðu gift sig. Héldum
við oft saman upp á þennan dag
og áttum reyndar oft saman góð-
ar stundir við önnur tækifæri.
Eitt sinn kom Benni að máli
við mig og spurði hvort mér hefði
aldrei dottið í hug að eignast
sumarbústað.
Satt að segja taldi ég mig ekki
vera neinn sérstakan sumarbú-
staðarmann enda alls ólaginn í
verklegum efnum. Það varð þó úr
að Benni og Dóra fóru með okkur
Sonju austur í Þingvallasveit þar
sem Benni vissi um bústað til
sölu. Svo fór að við keyptum bú-
staðinn. Það varð mikið gæfu-
spor. Þar höfum við verið í um 40
ár og átt margar yndisstundir
með fjölskyldu og vinum. Og allt-
af var Benni reiðubúinn að hjálpa
ef eitthvað þurfti að dytta að.
Þegar ég var að stússast í póli-
tík þurfti ég oft að ganga í gegn-
um prófkjör eins og gengur. Allt-
af voru Benni og Dóra fyrst á
vettvang til að styðja mig með
ráðum og dáð.
Fyrir það er ég ávallt mjög
þakklátur.
Eftir því sem árin hafa liðið
hefur samverustundunum fækk-
að. Síðustu ár voru Benna erfið.
Hann fékk Alzheimerssjúkdóm-
inn og fjarlægðist lífið smám
saman. Við Sonja kveðjum góðan
dreng og sendum Dóru og börn-
unum okkar bestu samúðarkveðj-
ur með þökk fyrir allt og allt.
Birgir Ísl. Gunnarsson.
Minningar hrannast upp. Lítill
ljósgrænn bíll frá Frakklandi,
sem hafði þá náttúru að aka aldr-
ei fram af borði. Þennan bíl gaf
mágur minn mér þegar ég var
fimm ára og mér finnst hann enn
vera einn mesti dýrgripur sem ég
hef haft í höndum. Benni mágur
varð mér fljótt kær, eins konar
aukapabbi.
Hann var vélstjóri á Fossunum
og sigldi til útlanda. Þannig hefur
Benni verið mér samgróinn og
hjartfólginn allt mitt líf. Dóra og
Benni byggðu sér hús í Háagerði
við hlið foreldra minna og urðu
þannig mínir næstu nágrannar í
bernsku minni. Þegar fjölskyldan
stækkaði fluttu þau sig um set yf-
ir ásinn í Fossvoginn og þar var
oft glatt á hjalla. Benni var meist-
ari í útigrilli og nutum við gest-
risni og hlýju þeirra margoft.
Meðan mín æskuheimili voru sex
var æska barna þeirra Dóru og
Benna öll í Fossvoginum. Fyrir
nokkrum árum minnkuðu þau við
sig og fluttu á Sléttuveg í Foss-
vogi í eitt af þeim mörgu húsum
sem fyrirtæki okkar byggði fyrir
eldra fólk. Þau Dóra byggðu upp
einstaka fjölskyldu með fjórum
afbragðs börnum, sem öll hafa
fundið sinn góða farveg í lífinu.
Saman stofnuðum við Benni og
Sveinn R. Eyjólfsson heildversl-
unina Andra hf. (1966) meðan ég
var enn við nám í Stokkhólmi.
Sveinn var þá stjórnarformaður
fyrirtækis föður míns, Ármanns-
fells hf. Pabbi hafði trú á þessum
unga manni, sem hafði tómhentur
keypt af honum íbúð og staðið í
skilum. Við Benni önnuðumst
dreifingu á Gevalia-kaffi frá Sví-
þjóð (sem þá var nýnæmi, því í
búðum fékkst aðeins Kaaber og
Braga-kaffi) auk margra annarra
vörutegunda í verslanir. Það voru
sólríkir dagar þó að kannski hafi
stundum rignt. Við græddum svo
mikla peninga að ég flosnaði upp
úr efnaverkfræðináminu í Stokk-
hólmi og skráði mig í viðskipta-
fræði í Háskóla Íslands. Það æxl-
aðist síðan svo að ég keypti
hlutafé Benna og Sveins í Ár-
mannsfelli og við seldum Andra
til Haraldar og félaga hans.
Sveinn og Benni stofnuðu með að
a.m.k. hluta til þeim peningum
síðan Dagblaðið með bróður
Sveins og Jónasi, sem varð rit-
stjóri. Þeir fóstbræður stjórnuðu
síðan DV í áratugi, þó að Sveinn
hafi ætíð verið meira í sviðsljós-
inu, og þeir gerðu það vel. Það
varð ævistarf vélstjórans að eiga
stóran þátt í að stýra dagblaði og
honum farnaðist það vel. Því mið-
ur urðu við starfslok Benna vin-
slit með þeim vinum Sveini og
Benna, en þannig er manneskjan.
Benni var mér ætíð gefandi. Eitt
sinn hafði honum áskotnast veiði-
leyfi í Elliðaánum á besta tíma og
kom og færði mér leyfið. Ég
gleymi aldrei þeim 10 punda
flugulaxi sem ég fékk þá á efsta
veiðistað ánna. Þökk sé Benna.
Saman fórum við sex í siglingu á
Miðjarðarhafinu um aldamót.
Benni var þar sjálfskipaður vél-
stjóri og þó að við værum á segl-
bát var vélin lífsnauðsynleg og
Benni stóð vaktina með sóma.
Það voru dýrðardagar. Þú varst
mikill fjölskyldumaður. Fjöl-
skyldan var þér allt og saman
byggðuð þið Dóra samheldnustu
fjölskyldu sem ég þekki. Það er
stórt afrek í einu lífi og mætti
mörgum verða til eftirbreytni.
Þakka þér samfylgdina mér kæri
vinur.
Ármann Örn Ármannsson.
Benedikt Jónsson
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
✝ BjarnheiðurIngibjörg Sig-
mundsdóttir fædd-
ist í Viðey 18. júní
1930. Hún lést 4.
maí 2016 á Hrafn-
istu í Hafnarfirði.
Foreldrar henn-
ar voru Sigmund-
ur Björnsson, f.
16. maí 1901 að
Óspaksstaðaseli,
d. 18. nóvember
1971, og Sesselja Sam-
úelsdóttir, f. 20. febrúar 1983,
d. 30. mars 1957, og unnu þau
sem farandverkafólk þar til
þau settust að á Öldugötu 21.
Eftirlifandi bróðir hennar er
Sverrir Sigmundsson. Börn
hennar eru Sigmundur H.
Friðþjófsson og Sesselja
Haukdal Friðþjófsdóttir. Sig-
mundur er kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur og eiga þau saman
tvær dætur, þær Heiðu Hrönn
Sigmundsdóttur, gift Guð-
mundi Fjalari Ísfeld. Sonur
þeirra er Eiríkur Jón Ísfeld.
Hulda Hrund Sigmundsdóttir,
sambýlismaður er Þórhallur
Ingi Jónsson og eiga þau sam-
an Sunnu Dís Þórhallsdóttur.
Hulda á frá fyrra hjónabandi
Önnulísu Rún
Eiríksdóttur.
Sesselja Hauk-
dal Friðþjófsdóttir
á einn son, Davíð
Hilmar Haukdal
Blessing.
Heiða, eins og
hún var alltaf
kölluð, útskrif-
aðist úr Hús-
mæðraskólanum
að Löngumýri
1949 og lauk hjúkrunarnámi í
október 1954. Sama ár giftist
hún eiginmanni sínum, Frið-
þjófi Haukdal Þorgeirssyni, f.
19. maí 1930, d. 6. október
2006, og hófu þau búskap.
Bjuggu þau á Álfaskeiði í
Hafnarfirði og síðustu 35 árin
á Krókahrauni 4 í Hafnar-
firði. Var hún ein af stofn-
endum Félags kristilegra
hjúkrunarkvenna árið 1952 og
vann hún sem hjúkrunarfræð-
ingur á Landspítala, St. Jós-
efsspítala, Sólvangi og síðustu
23 árin sem skólahjúkrunar-
fræðingur í Víðistaðaskóla í
Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag,
19. maí 2016, klukkan 15.
Í dag er lögð til hvíldar
tengdamóðir mín, hún Heiða
hjúkrunarfræðingur. Lengst af
starfaði hún sem skólahjúkrunar-
fræðingur í Víðistaðaskóla. Hún
var látlaus, ljúf, jákvæð og lifði
samkvæmt sinni barnstrú alla
tíð. Aldrei heyrði ég hana hall-
mæla nokkrum manni. Þakka þér
fyrir þann tíma sem við áttum
saman, hann er mér einstaklega
mikils virði og ég kveð þig með
bæninni sem var þér svo kær:
Þú, Guð, sem stýrir stjarnaher
og stjórnar veröldinni,
í straumi lífsins stýr þú mér
með sterkri hendi þinni.
(Vald. Briem)
Guðrún Jónsdóttir.
Bjarnheiður Ingi-
björg Sigmundsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HJALTI ÞÓRÐARSON
fv. skrifstofustjóri MBF,
Ástjörn 2, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
Selfossi, miðvikudaginn 11. maí 2016.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 21. maí
klukkan 13.30.
.
Margrét Sturlaugsdóttir,
Rúnar Hjaltason, Elísabet Jensdóttir,
Heimir Hjaltason, Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Arna Hjaltadóttir, Kjartan Ólafsson,
Sóley Hjaltadóttir, Ólafur Jónsson,
Svala Hjaltadóttir, Júlíus Eyjólfsson,
Hjaltey Rúnarsdóttir, Andrés Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
NÖNNU GUÐRÚNAR INGÓLFSDÓTTUR.
.
Sigurþór Sigurðsson,
Ingólfur Bragi Valdimarsson,
Guðleif Kristbjörg Bragadóttir, Kristjón Elvarsson,
Hilmar Bragason, Dagnija Karabesko,
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín, mágkona og frænka,
INGUNN SIGURJÓNSDÓTTIR,
Kríuhólum 2,
lést að heimili sínu 16. maí s.l. Útförin fer fram í kyrrþey.
.
Jón Sigurjónsson,
Stefanía Magnúsdóttir
og fjölskylda.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
VALGERÐUR K. SIGURÐARDÓTTIR,
kennari,
Daltúni 28, Kópavogi,
lést á Líknardeild Landspítalans
föstudaginn 13. maí.
.
Pálmar Sölvi Sigurgeirsson,
Sigurður Pálmarsson,
Sigríður Pálmarsdóttir,
Ingvar Pálmarsson,
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓSKAR HALLDÓRSSON,
húsgagnabólstrari,
Lyngbergi 39b, Hafnarfirði,
lést á taugalækningadeild Landspítalans í
Fossvogi þann 17. maí sl. Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 24. maí klukkan 13.
.
Helga Jóna Jensdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.