Víkurfréttir - 05.09.2002, Síða 11
Meðal gamalla myndbrota var frá sjómannadeginum í Keflavík
fyrir um hálfri öld.
Björn V. Skúlason, aðstoðarskólastjóri Heiðarskóla afhenti Áka
Granz og Guðleifi Sigurjónssyni fyrstu eintök myndbands um lis-
taverk í Reykjanesbæ en þeir hjálpuðu mikið við gerð þess.
Viðar Oddgeirsson spjallar við hjónin Jóhann Einvarðsson og
Guðnýju Gunnarsdóttur.
UÓSANÓTT í NÝJA BÍÓI
Tvær stutt-
myndir sýndar
Tvær stuttmyndir verða sýndar á
Ljósanæturhelginni í Nýja Bíói.
Annars vegar sýnir Viðar
Oddgeirsson mynd úr flokki hans
„Lífið í bænum“ en fyrsta
myndin var sýnd á Ljósanótt í
fyrra. Viðar kemur víða við í
gömlum myndbrotum, t.d. frá
vígslu Keflavíkurkirkju, ferð
Njarðvikinga um miðjan síðasta
áratug vestur á land, hvalavaða í
Njarðvík, sjómannadagur í
Keflavík, brot úr leikriti og fleira
skemmtilegt.
Hin stuttmyn-
din er
Listaverk og
minnismerki í
Reykjanesbæ. Útgefandi er
Heiðarskóli og Listasafn
Reykjanesbæjar. Nemendur
Heiðarskóla í 8. bekk í fyrra
unnu þemaverkefhi um merkin.
Viðar Oddgeirsson hjálpaði þeim
við að gera mynd úr verkefninu.
Myndirnar voru frumsýndar í
vikunni og þá voru meðfýlgjandi
myndir teknar.
Opið hús á Ljósanótt
í Islandsbanka
Líttu inn í útibú Islandsbanka á Ljósanótt á milli kl. 15.30 og 17.30.
Kl. 16 og kl. 17 verður sýnt leikritið Norrænt samstarf, eftir Kristján Þórð
Hrafnsson f samstarfi við Guðlaug Valgarðsson.
Á milli sýninga (sem hvor um sig tekur um 10 mfnútur) heldur Hljómsveit
Rúnars Júlfussonar uppi stemmningunni. Kaffi og meðlæti - að sjálfsögðu!
ISLANDSBANKI
11