Víkurfréttir - 26.09.2002, Page 2
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
FRÉTTiR
Bærinn greiði
fimm en fái
hundrað milljónir
Bæjar)fir\ölduni í
Reykjancsbæ hcfur
borist tilkynning
íbúðalánasjóðs um aö sam-
þykkt er að veita Reykja-
nesbæ viðbótarlán úr ll)úð-
arlánasjóði á árinu 2002 að
fjárhæð kr. 100.000.000,-
Lán þessi komi til greiðslu
þegar sveitarfélagiö hefur
innt af hcndi framlag sitt í
varasjóð viðbótarlána, scm
nemur 5%.
Bæjarráð Reykjanesbæjar
samþykkir fjárveitinguna að
upphæð kr. 5.000.000,- og
vísar upphæðinni til endur-
skoðunar fjárhagsáætlunar
Reykjanesbæjar.
Stofnfiskur vill
byggja við
Kalmanstjörn
Fiskeldisfyrirtækið
Stofnfískur hf. hcfur
sótt um byggingarleyfi
fyrir 200 m2 cldishúsi mcð
rannsóknaraðstööu og
starfsmannaaðstöðu ásamt
plani umhverfís borholu
austan þjóðvegar við Kalm-
anstjörn við Hafnir.
Skipulags- og byggingar-
nefhd Reykjanesbæjar tekur
vel í erindið á síðasta fundi
sínum, þó með þeim ábend-
ingum að uppbygging mann-
virkja sé innan þess svæðis
sem affnarkað er í aðalskipu-
lagi.
25% fækkun
barna í leikja-
skóla Keflavíkur
Allssóttu 160 böm á
aldrinum 6-11 ára
leikjaskóla Keflavíkur
í sumar. Skýrsla íþrótta- og
lcikjaskóla Keflavíkur var
kynnt á síöasta fundiTóm-
stunda- og íþróttaráðs bæj-
arins. Nokkra athygli vekur
að í fyrra voru börnin 215,
sem gerir um 25% fækkun
á milli ára. Nokkrar um-
ræður urðu um skýringar á
þcssari fækkun og kont m.a.
fram að ein skýringin gæti
verið aukið framboö á
íþróttum og tómstundum
fyrir þcssa aldurshópa.
Starfsmenn íþrótta- og tóm-
stundadeildar (ÍTD) munu
skila til TÍR samantekt á þátt-
töku bama og ungmenna í
sumamámskeiðum s.l. sumar,
eftir að allar skýrslur ffá
samningsaðilum TÍR em
komnar í hús.
9
FYRST OG FREMST
Sölusamningar við stóra
Ilok þessa mánaðar mun Saltverksmiðj-
an á Reykjanesi taka til starfa á ný eftir
þó nokkurt hlé. Sævar Pétursson
rekstrarráðgjafi hefur unnið að endur-
reisn rckstrarins síðasta ntánuð og er hann
starfandi framkvæmdastjóri. Sævar segir
að nú þegar sé búið að gcra sölusamninga
við nokkra stóra aðila og munu þeir fá salt-
ið afhent innan 30 daga. Að sögn Sævars er
allur búnaður verksmiöjunnar í lagi og
segir hann aö farið verði hægt af stað:
„Við komum til með að fara rólega af stað og
þróa okkur áfiam,, Sævar segir að saltið sem
ffamleitt sé í verksmiðjunni sé einstakt þvi í
saltinu er um 60% minna natríum en í venju-
legu salti: „Eg tel að það séu miklir mögu-
leikar fyrir þetta svæði með saltverksmiðj-
unni. Við erum með einstaka auðlind þarna
úti og við getum svo sannarlega sagt að við
séum að framleiða heilsusalt, sem er mjög
gott fyrir hjartasjúklinga til dæmis. Það getur
enginn ffamleitt svona salt nema við, en það
aðila í höfn
hefur verið reynt að blanda salt til að minnka
natrium innihaldið í því.“ Saltið sem ffamleitt
verður í verksmiðjunni verður pakkað á Ak-
ureyri og i Danmörku, en Sævar segir að í
ffamtíðinni horfí menn á þann möguleika að
pakka ffamleiðslunni á Suðumesjum: „Eg er
mjög bjartsýnn á að reksturinn gangi vel en
það er aðalmálið að fara hægt af stað, ná fleiri
sölusamningum og þróa reksturinn síðan
áffam,“ segir Sævar að lokum.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
Heilsugæslulæknar að hætta
að er auðvitaö afar baga-
legt að þurfa að yfirgefa
Suðurnesin og skilja
hcilsugæsluna eftir læknislausa
enda höfum við verið mjög
ánægð hér í starfi og viljum
helst vinna hér áfram. Þaö er
ótrúlegt að heilbrigðisráöhcrra
leyfí þcssari stöðu að koma upp
en ráöuneytið er einfaldlega að
renna út á tíma, segir", segir
Ragnar Gunnarsson læknir við
Heilbrigöisstofnun Suðurnesja
í samtali við Víkurfréttir
Eins og ffam hefur komið sögðu
heimilislæknar á Suðurnesjum
upp störfum s.l. vor vegna deilu
þeirra við Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið (HTR) og
taka uppsagnimar gildi I. nóv-
ember n.k. í samtali við Ragnar
var hann spurður nánar um stöðu
mála.
- Hver er ástæða þess að þið
cruð að hætta störfum hér?
„Heimilislæknar sækjast effir því
að Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið veiti þeim, sem
sérffæðingum í heimilislækning-
um, sömu starfsréttindi og aðrir
sérgreinalæknar búa við. Þetta
þýðir að við viljum hafa val um
hvort við störfúm hjá hinu opin-
bera á heilsugæslu eða á lækna-
stofu samkvæmt svonefndum
gjaldskrársamningi við Trygg-
ingarstofnun ríkisins. Sumir vilja
hugsanlega vinna í hlutastarfi á
heilsugæslu og að öðrum hluta á
stofú. Margir mundu hins vegar
vilja halda óbreyttu starfi á
heilsugæslu. Það er alls ekki svo
að meirihluti heimilislækna vilji
hætta sem heilsugæslulæknar,
þeir vilja einfaldlega hafa val
eins og sérfræðingar í öðrum
greinum lækninga. Þessi deila
snýst ekki um kaup og kjör held-
ur er urn starfsréttindabaráttu að
ræða.
Uppsagnirnar í vor komu til
vegna óánægju okkar með ffam-
komu HTR í okkar garð en eins
og margir vita breytti ráðuneytið
í upphafi árs fyrirkomulagi á
greiðslu læknisvottorða í heilsu-
gæslu á landinu. í kjölfar þeirra
breytinga úrskurðaði kjaranefnd í
mars sl. að vottorðavinna heilsu-
gæslulækna væri alfarið hluti af
aðalstarfi þeirra. Þetta þýddi
gjörbreytingu á áratuga hefð á
vottorðavinnu heilsugæslulækna.
Mörg þessara vottorða hafa
heilsugæslulæknar unnið í yftr-
vinnu vegna þess að enginn tími
hefúr verið til þess i dagvinnu. Ef
heilsugæslulæknar fylgja þessum
fyrirmælum alfarið þýðir það að
þeir sinna færri sjúklingum dag-
lega og þar með skerðist þjón-
ustugeta heilsugæslustöðva. Frá
því að þetta átti sér stað í vor hef-
ur mikið vatn runnið til sjávar og
deila heimilislækna i landinu við
HTR snýst nú umfram allt um
áðumefúd starfsréttindi".
- Nú hafa læknar í Hafnarfirði
sagt upp ásanit ykkur. Af hver-
ju segja ekki fleiri læknar upp
starfi fyrst þetta er barátta á
landsvísu?
„Það er víða annars staðar en á
þessum tveimur stöðum sem
heintilislæknar hafa verið að
segja upp og bætist í hópinn bæði
á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni nú í hverjum
mánuði. Það er komin upp
grafalvarleg staða í heilsugæslu á
landinu og HTR hefúr hingað til
ekki haft burði til að leysa þenn-
an vanda. Við heimilislæknar á
Suðumesjum höfúm átt í beinurn
viðræðum við ráðuneytið en eng-
in lausn hefur fengist í málinu.
Hið sama gildir um allar aðrar
samningaviðræður sem ráðuneyt-
ið hefur átt, m.a. við Félag ís-
lenskra heimilislækna. Okkur
þykir þessi þróun mála mjög
slæm og ekki síst gagnvart ibú-
um á svæðinu. Það er auðvitað
afar bagalegt að þurfa að yfirgefa
Suðumesin og skilja heilsugæsl-
una eftir læknislausa enda höfúm
við verið mjög ánægð hér í starfi
og viljum helst vinna hér áfram.
Það er ótrúlegt að heilbrigðisráð-
herra leyfi þessari stöðu að koma
upp en ráðuneytið er einfaldlega
að renna út á tíma. Við heilsu-
gæslulæknar á Suðurnesjum
verðum á allra næstu dögum að
gera ráðstafanir með vinnu ann-
ars staðar fyrst ekki hefúr samist
í deilunni," segir Ragnar að lok-
um
Auglýsingasíminn er 421 0000
ismsniMait
ICELANOsea