Víkurfréttir - 26.09.2002, Side 8
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Kjarnorkuvopn
í Sandgerði?
Samtök hcrstöövaand-
stæðinga hafa ritað
bæjarstjórn Sand-
gerðis bréf þar sem samtök-
in óska eftir þátttöku sveit-
arfélagsins i afvopnunar-
átaki mcð friðlýsingu svæð-
isins og skrifi undir yfirlýs-
ingu um kjarnorkuvopna-
laust sveitarfélag.
Bréfið, sem var dagsett 22.
ágúst sl. var lagt fram til
kynningar á síðasta flmdi bæj-
arstjómar Sandgerðis. Ekki
hefur enn verið tekin ákvörð-
un um það hvort yfirlýsingin
verði undirrituð.
Auglýsingasíminn er
421 0000
Faxnúmer:421 0020
FRÉTTIR
MANNLIF • BÆJARMAL
Lögreglan í Keflavík hefur
fengið það staðfest að karl-
maðurinn sem svipti sig lífi
á gistiheimili í Reykjanes-
bæ, þann 9. þessa mánaðar
var tæplega fertugur írani.
Hann var handtekinn á
Keflavíkurflugvelli með
falsað vegabréf, en maður-
inn hugðist halda til Minn-
eapolis. Lögreglan í Dan-
mörku hafði tekið fingraför
af manninum og með sam-
anburði við þau fékkst upp-
runi hans staðfestur.
Jóhannes Jensson, yfirmaður
rannsóknardeildar Keflavíkur-
lögreglunnar segir að Iraninn
hafi tvívegis sótt um hæli í
Danmörku, fyrst 1996 og aft-
ur í upphafi þessa árs. Ekki er
vitað hvar maðurinn dvaldi
árin þar á milli en líklegt að
hann hafi allan tímann verið í
Evrópu. Engar grunsemdir
hafa kviknað um að íraninn
hafi verið í tengslum við
hryðjuverkahópa eða í öðrum
vafasömum félagsskap. Hann
mun hafa verið ókvæntur en
lögreglunni hefúr enn ekki
tekist að hafa uppi á systkin-
um hans i íran.
Var íranskur
a ð uppruna
Lúðvík Geirsson, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, fór í
óvissuferð með starfsfólk
bæjarskrifstofu Hafnarfjarðar
um Suðurnes sl. fostudag. Hóp-
urinn fór víða um svæðið í
þessari óvissuferð sinni. Um
tíma var talið að Lúðvík og
hans fólk væri týnt í svarta
þoku á Reykjanesi. Áður en
hjálparsveitir voru kallaöar til
birtist rútan með fólkinu við
brúnna á milli heimsálfa, sem
reist var í sumar. Þar tók nýr
bæjarstjóri Grindavíkur, Ólaf-
ur Örn Ólafsson, á móti fólk-
inu. Ólafur var reyndar á gráu
svæði, þar sem brúin tilheyrir
Reykjanesbæ og því voru bæj-
arstjórarnir að hittast í röngu
sveitarfélagi. Víkurfréttir lof-
uðu að hafa ekki hátt um það!
Eftir að hafa gengið á milli
heimsálfa afhenti grindvíski bæj-
arstjórinn þeim hafnfirska og
hans fólki viðurkenningarskjöl
því til staðfestingar. Þá var aftur
haldið út í óvissuna og nú í Salt-
fisksetur Islands í Grindavík.
Áður en saltfiskurinn var skoð-
aður var léttleika á dósum dreift á
fólkið, svona rétt til að tryggja
það að allir væru áfram glaðir og
kátir. Við höfum áreiðanlegar
heimildir fyrir því að þessum
léttleikadósum hafi verið dreift
nokkuð oft í ferðinni þvi ein-
hveijir spurðu að því við brúnna
á milli heimsálfa, hvar mætti
pissa!
Viðar Mar Aðalsteinsson
og Árni Sigfússon á gangi yfir
upphækkaða gangbraut framan við
Myllubakkaskóla í Keflavík.
Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr.
Kristjánsson
»2»
Myndin til hliðar: Olafur Örn Olafsson, bæjarstjóri í Grindavík,
tekur á móti Lúðvík Geirssyni, bæjarstjóra í Hafnarfirði, á land
svæði Reykjanesbæjar við Sandvík á Reykjanesi. Að ofan:
Lúðvík og hans fólk gengur á milli heimsálfa.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Bœjarstjórar hittust í röngu sveitarfélagi!
ulóma
Lego vörur
ný sending
Víkurbraut 62 - sími 426 8711
STÆRSTI
fréttavefur
Suðurnesja
www.vf.is
Átak í umferðarmálum Reykjanesbæjar
jr
vegum umferðar- og
tæknisviðs Reykjanes-
bæjar hefur í sumar ver-
ið lögð sérstök áhersla á að
bæta öryggi barna og gangandi
vegfarenda þar sem sérstaklega
hefur verið hugað að gerð
hraöahindrana í íbúðarhverf-
um. Að sögn Viðars Más Aðal-
steinssonar forstööumanns
umferðar- og tækniráðs hafa
verið lagðar 37 hraðahindranir
í íbúðarhverfi i Reykjanesbæ, 3
í Höfnum, 12 í Ytri-Njarðvík, 3
í Innri-Njarðvík og 19 í Kefla-
vík.
Viðar Már segir að við ákvörðun
um byggingu hraðahindrananna
hafi verið byggt á óskum og á-
bendingum íbúa, ásamt því sem
umferðaröryggisáætlun hafi ver-
ið til hliðsjónar. 1 tengslum við á-
takið hafa verið lagðir 4,1 kíló-
metrar af nýjum og endurgerðum
gangstéttum og lagfærðar mis-
fellur í gangstígum sem gátu
skapað slysahættu. Á blaða-
mannafundi sem haldinn var til
að kynna átakið kom fram í máli
Áma Sigfússonar bæjarstjóra að
settur hafi verið á laggimar sér-
stakur sími þar sem íbúar geti
hringt inn og bent á hættur í um-
hverfinu, sérstaklega gagnvart
börnum, sem þjónustumiðstöð
Reykjanesbæjar hugar síðan að:
„Það er mjög mikilvægt að fá á-
fram ábendingar frá foreldrum
og íbúum um hættur í umhverf-
inu og skapa þannig sem ömgg-
ast umhverfi fyrir böm og gang-
andi vegfarendur." Ámi segir að
sérstaklega hafi verið hugað að
öryggismálum í kringum skólana
í Reykjanesbæ og má þar nefna
hraðahindranir í kringum Heiða-
skóla, Myllubakkaskóla og
Holtaskóla: „Markmiðið er nátt-
úrulega að draga úr hraða í íbúð-
arhverfunum og við skólana og
draga þannig úr líkum á slysum.
En þetta er einungis eitt skref í
öryggismálunum og við munum
áfíam vinna að þessum málurn,"
sagði Ámi m.a. Símanúmerið þar
sem hægt er að hringja og koma
með ábendingar varðandi hættur
í umhverfinu er: 421-6780.
8