Víkurfréttir - 26.09.2002, Side 10
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju
OPIÐ HUS
Sálarrannsóknarfélag Suöurnesja
ueröur meö opiö hús miöuikudaginn
2. október nk. kl. 20.30. í húsi
félagsins aö Víkurbraut 13.
Guörún Mjörleifsdóttir ueröur meö
fyrirlestur; kaffi á könnunni.
Félagar fjölmenniö.
Stjórnin.
Félag Suðurnesjamanna í Reykjavík
FUNDARBOÐ
Boðað er til fundar í Félagi Suðurnesjamanna
í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 1. október n.k., kl. 17:oo í
fundarsal Skógræktarfélags Islands að
Ránargötu 18, Reykjavík.
Fundarefnið er:
Landsspilda félagsins við Háa-Bjalla við
Vogastapa, Vatnsleysustrandarhreppi, og
framtíðareignarhald á henni.
Starfsemi félagsins hefur legið niðri nú um
alllangt skeið en eldri félagsmenn eru hvattir
til að mæta á fundinn, en til hans er boðað
að frumkvæði Skógræktarfélags Islands og
Skógræktarfélagsins Skógfeíls, Vogum.
Félag Suðurnesjamanna í Reykjavík
Félags- og aðalfundur
Reykjanes, félag smábátaeigenda á
Reykjanesi, tilkynnir félags- og aðalfund
laugardaginn 5. október nk.
Sprengifundur. Nánar auglýst síðar.
Æfingarhjá kór Ytri-Njarövikurkirkju verða
á þriðjudagskvöldum og hefjast kl. 20.30
Natalía mun einnig sjá um raddþjálfun.
Áhugasömu söngfólki er bent á að hafa samband
við Natalíu í síma 555 1346 og 699 4613,
Árna í síma 421 7223 og Ólafíu ísíma 421 1208.
M SJÁVARÚTVEGUR Á SUÐURNESJUM
Óskar Ævarsson, rekstrarstjóri
Samherja hf,- Fiskimjöls og Lýsis í Grindavík:
Verkalýðsforingi
í blindgötu
- athugasemdir við málflutning Kristjáns Gunnarssonar,
formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur
og nágrennis, í síðasta tölublaði Víkurfrétta
Isíðasta tölublaði Víkur-
frctta var saniantekt um
samdrátt aflahcimilda á
Suðurncsjum og cins og svo
oft áður var núgildandi flsk-
veiðistjórnunarkcrfi alfariö
kennt um. í blaðinu cr rætt
við formanns Visis, fclags
skipstjórnarmanna á Suður-
ncsjum, forinann Sjómanna-
sambands Islands og síðast en
ekki síst Kristján Gunnars-
son, formann Vcrkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur.
Undirritaður hafði ekki hugsað
sér að taka þátt í umræðu um
þessi mál, en sökum þess að
Kristján nefnir Samherja hf. í
Grindavík sérstaklega í grein
sinni er óhjákvæmilegt að gera
athugasemdir við málflutning
hans.
I greininni segir Kristján Gunn-
arsson orðrétt: „Þetta eru skelft-
legar tölur og það má setja
spumingarmerki við þann kvóta
sem hefur farið til stóru risanna
í Grindavík, sem t.d. Samherji á
stóran hlut í. Hver segir að afl-
anum sé landað á Suðumesjum,
þó kvótinn sé skráður þar?"
Með þessum orðum er Kristján
Gunnarsson að gefa í skyn að
Samherji hf. sé að færa kvóta
frá Grindavík til annarra svæða
á landinu. Svo er alls ekki -
þvert á móti.
Hvað á Kristján við með orðun-
um „sem Samhetji á stóran hlut
í?“ Er hann að vísa til sjávarút-
vegsfyrirækjanna Þorbjörns-
Fiskaness hf. og/eða Vísis hf.?
Ut af fyrir sig væri ekki slæmt
að eiga hlut í þessum öflugu
fyrirtækjum, en svo er ekki.
Samherji hf. og Fiskimjöl og
Lýsi eru eitt og sama fyrirtækið
- þessi fyrirtæki voru sameinuð
fýrir fimm árum.
A þeim fimm árum sem Sam-
heiji hf. hefur komið að rekstr-
inum í Grindavík heflir að jafn-
Óskar Ævarsson,
rekstrarstjóri Samherja hf.
- Fiskimjöls og Lýsis
í Grindavík
aði 70-80% af uppsjávarkvóta
Samheija verið landað þar á ári
hverju. Þessar aflaheimildir í
uppsjávarfiski eru skráðar á Ak-
ureyri en ekki i Grindavík. Engu
að síður er þeim landað í
Grindavík. Það er því að snúa
hlutunum algjörlega á hvolf
þegar Kristján Gunnarson lætur
að því liggja að Samherji hafi
flutt kvóta ffá staðnum. Þvert á
móti hefur Samheiji nýtt stærst-
an hluta af uppsjávarkvóta fyrir-
tækisins, sem er skráður á Akur-
eyri, suður til Grindavíkur til
þess að treysta og efla starfsem-
ina þar. Og vert er að hafa í
huga að sá kvóti í uppsjávarteg-
undum sem nú er unninn hjá
Samherja í Grindavík er sem
næst 40% meiri en allur upp-
sjávarkvóti Fiskimjöls og Lýsis
áður en Samhetji kom að rekstri
fýrirtækisins á sínum tíma.
Og enn frekari talnastaðreyndir
Kristjáni Gunnarssyni og les-
endum Vikurffétta til glöggvun-
ar:
Síðustu tvö ár hefur verið land-
að um 93 þúsund tonnum af
uppsjávarfiski í Grindavík og í
ár stefnir í að 105-110 þúsund
tonnunr af uppsjávarfiski verði
■ ---------....------------------
landað þar. Stærstur hluti þessa
kvóta er skráður á Akureyri en
ekki í Grindavík.
Samkvæmt tölum Fiskistofu var
heildarafli sem barst á land í
Grindavík árið 2000 og 2001
um 136 þúsund tonn hvort ár -
þar af var hiutur Samherja í
loðnu, síld og kolmunna um 93
þúsund tonn hvort ár.
Eftir að Víkurfréttir komu út í
síðustu viku hringdi ég í Krist-
ján Gunnarsson og gerði at-
hugasemdir við málflutning
hans í blaðinu. Kristján hafði fá
svör á reiðum höndum og sagði
sem svo að vel gæti verið að
hann hefði ekki farið með rétt
mál!
Það verður að gera þá lágmarks
kröfu til manns í ábyrgðarstöðu
eins og Kristján Gunnarsson er í
að áður en farið er með slíkar
vangaveltur í opinbera umfjöll-
un sé gerð í það minnsta tilraun
til þess að grafast fyrir um sann-
leiksgildi þeirra.
Og svona í lokin. Þegar rætt er
um tilflutning aflaheimilda frá
einu byggðarlaginu til annars er
undantekningalaust hamrað á
því að sökudólgurinn sé stórút-
gerðin í iandinu sem sogi til sín
allan kvótann. Bæði Kristján
Gunnarsson og Sævar Gunnars-
son, formaður Sjómannasam-
bands Islands, ættu að íhuga að
aflaheimiidir hafa í umtalsverð-
um mæli flust af bátaflotanum á
Suðurnesjum yfir á smábáta-
flotann í landinu., sem affur hef-
ur haft sitt að segja í dvinandi
bátaútgerð á Suðumesjum. Sem
endranær vilja menn hins vegar
gleyma þessari staðreynd. Enda
passar hún ekki inn í myndina í
endalausum áróðri og hanta-
gangi gegn núverandi fiskveiói-
stjómunarkerfi, þar sem stöðugt
er hamrað á því að stórútgerðin
í landinu sé uppspretta hins illa.
'"■■'""—.....■—■..—,— .......■ ■
Frítt út að borða Jyrir tvo!
Skráðu þig í glænýjan netleik á www.vf.is
10